Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 11

Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 11
hjálpar. Svo ekki sé talað um ef móð- irin hefur verið slæm sjálf af tíða- verkjum þá er þetta einhvern veginn talið normið. Konan þekkir þá ekki annað og heldur að eitthvað sem eru virkilega óeðlilega miklir verkir séu eðlilegir tíðaverkir,“ útskýrir Silja. Sumar konur sem illa eru haldn- ar af endómetríósu hafa lýst því að verkirnir sem þær finna við tíðir séu sársaukafyllri en verkirnir sem fylgja því að fæða barn. Silja segir að konur sem þjakaðar eru af þessum sjúk- dómi geti því miður ekki alltaf reitt sig á heilbrigðiskerfið. „Heilbrigðiskerfið virðist í sum- um tilvikum ekki vera nógu fljótt að kveikja á þessu. Við höfum mörg dæmi um konur í samtökunum sem hafa leitað ítrekað til lækna og kvart- að undan verkjum en verið sendar heim með verkjalyf og þau skilaboð að þær séu bara svona óheppnar og þurfi bara að þrauka,“ segir Silja. Að sögn Silju er kviðarholsspeglun eina pottþétta leiðin til að sjúkdómsgreina endómetríósu. Vilja göngudeild Þessi vika hefur verið tileinkuð vitundarvakningu um endómetríósu sem nær hámarki í dag með Million Women March for Endometriosis 2014 víða um heim og hvatningar- göngu Samtaka um endómetríósu. Þá verður gengið í hóp sem leið liggur frá Hallgrímskirkju niður að kvenna- deild Landspítalans. „Með göngunni viljum við hvetja fólk til að sýna kon- um með endómetríósu aukinn skiln- ing og samstöðu. Við viljum líka hvetja heilbrigðisstarfsfólk til þess að kynna sér sjúkdóminn betur og brýna þörfina fyrir göngudeild fyrir konur með endómetríósu og króníska kviðarverki,“ segir Silja Ástþórs- dóttir, formaður samtakanna. Gangan hefst klukkan 17 í dag og eru allir velkomnir. Stutt athöfn verður við kvennadeildina. Þeim sem fræðast vilja nánar um sjúkdóminn eða starfsemi sam- takanna er bent á vefsíðuna www.endo.is. Morgunblaðið/Ómar Umræða Silja Ástþórsdóttir er formaður samtaka um endómetríósu. Hún segir brýnt að fræða fólk um sjúkdóm- inn til að afnema þá bannhelgi sem hvílir á umfjöllun um blæðingar og verki sem endómetríósu fylgja. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014 Krónan Gildir 13.-16. mars verð nú áður mælie. verð SS lambalæri frosið ......................................... 1.098 1.398 1.098 kr. kg Goða súpukjöt frosið í poka .............................. 669 849 669 kr. kg Lambalærissneiðar.......................................... 1.978 2.198 1.978 kr. kg Lambalærissneiðar kryddaðar .......................... 1.978 2.198 1.978 kr. kg Lambakótilettur............................................... 2.158 2.398 2.158 kr. kg Krónu kjúklingabringur ferskar .......................... 1.998 2.298 1.998 kr. kg Krónu kjúklingabringur mojitos ......................... 2.198 2.598 2.198 kr. kg Kjarval Gildir 13.-16. mars verð nú áður mælie. verð Goða grillborg. 4 stk m/brauði ......................... 798 898 798 kr. pk. SS grískar grísalundir....................................... 1.758 2.198 1.758 kr. kg SS hangiálegg box 115 g................................. 549 639 549 kr. pk. Þykkvab. kartöflugr. m/beikoni 600 g................ 585 689 585 kr. pk. Iceberg/Jöklasalat .......................................... 365 489 365 kr. kg Freyju mix 400 g ............................................. 499 759 499 kr. pk. Nóatún Gildir 14.-16. mars verð nú áður mælie. verð Lamba prime úr kjötborði ................................. 2.998 3.798 2.998 kr. kg Lambahryggur m/villisv. úr kjötborði ................. 2.289 2.698 2.289 kr. kg Ungnautagúllas úr kjötborði ............................. 2.158 2.698 2.158 kr. kg Holta kjúkl.læri úrbeinuð .................................. 2.098 2.498 2.098 kr. kg Hollt og gott garðsalat 200 g............................ 398 498 398 kr. pk. Þín verslun Gildir 13.-16. mars verð nú áður mælie. verð Ísfugl 1/1 ferskur kjúklingur ............................. 919 1.149 919 kr. kg Ísfugl kalkúnapylsa Frankfurter ......................... 1.479 1.649 1.479 kr. kg Daloon kínarúllur 600 g................................... 689 898 1.149 kr. kg Pascual jógúrt 500 g ....................................... 389 499 778 kr. kg Almondy Toblerone-terta 400 g ........................ 1.089 1.449 2.723 kr. kg Bugler roasted paprika 125 g........................... 198 249 1.584 kr. kg Zendium tannbursti Pósturinn Páll..................... 198 298 198 kr. stk. Zendium tannkrem Pósturinn Páll ..................... 198 298 198 kr. stk. Helgartilboð Morgunblaðið/Styrmir Kári Við flytjum Sameinaði lífeyrissjóðurinn flytur starfsemi sína í Sundabogann, Sundagörðum 2, Reykjavík. Skrifstofa sjóðsins verður lokuð á morgun, föstudaginn 14. mars, vegna flutninganna. Nýja húsnæðið býður upp á góða aðstöðu til þess að sinna þjónustu við sjóðfélaga og aðra sem erindi eiga við sjóðinn. Ágætt aðgengi er að húsinu og næg bílastæði. Verið velkomin í Sundabogann! Starfsfólk Sameinaða lífeyrissjóðsins Sundagörðum 2 / 104 Reykjavík / 510 5000 / lifeyrir.is E N N E M M / S IA • N M 6 16 3 7

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.