Morgunblaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
HÁÞRÝSTIDÆLUR
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Teg: T 300
Snúningsdiskur
Gerir pallinn eins
og nýjan
Teg: K 2.21
110 bör max
360 ltr/klst
Teg: K 4.200
130 bör max
450 ltr/klst
Teg: K 5.700
140 bör max
460 ltr/klst
Teg: K 4Prem
130 bör max
420 ltr/klst
Teg: SC 1122
3 bör max
1,2 ltr
Teg: HDS
8/17-4M
170 bör max
400-800 ltr/klst
Teg: K 7.700
/K 7.710
160 bör max
600 ltr/klst
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Icelandair Group, gagnrýndi Sam-
keppniseftirlitið harkalega í ræðu
sinni á aðalfundi félagsins sem fram
fór á þriðjudag. Sagði hann eftirlitið
hafa gengið fram „með fordæma-
lausum hætti“ á síðustu mánuðum.
Jafnframt gagnrýndi hann stjórn-
völd fyrir stefnuleysi í stórum og
mikilvægum málum á undanförnum
árum.
Björgólfur sagði Icelandair fyrst
og fremst vera í alþjóðlegri sam-
keppni í flugrekstri og benti á að lík-
lega myndu 17 flugfélög fljúga um
Keflavíkurflugvöll í sumar. Lítið mál
væri fyrir risastór félög í Evrópu og
N-Ameríku að bæta við ferðum til
Íslands.
Tilefni gagnrýninnar á samkeppn-
isyfirvöld er nýleg ákvörðun Sam-
keppniseftirlitsins (SE) um úthlutun
afgreiðslutíma til Wow Air á Kefla-
víkurflugvelli. Þar beindi eftirlitið
þeim tilmælum til Isavia að tryggja
Wow Air aðgang að mikilvægum af-
greiðslutímum á vellinum. Áfrýjun-
arnefnd samkeppnismála felldi hins
vegar þessa ákvörðun SE úr gildi.
Björgólfur sagði að vegna leiða-
kerfis Icelandair væri það félaginu
mikilvægt að geta tengt Evrópuflug
við Norður-Ameríkuflug.
„Brottfarartímar félagsins í Kefla-
vík byggjast á margra áratuga upp-
byggingu leiðakerfisins og á þessum
tíma hefur Icelandair öðlast rétt til
samsvarandi
brottfarartíma á
erlendum flug-
völlum. Á mörg-
um erlendum
flugvöllum er það
ómögulegt fyrir
flugfélög að færa
til þá tíma sem
þau hafa öðlast
svokallaðan hefð-
arrétt að. Þrátt
fyrir að bent hafi verið á það ítrekað
við meðferð málsins að nóg væri af
lausum afgreiðslutímum á Keflavík-
urflugvelli stærstan hluta sólar-
hringsins varð niðurstaða Sam-
keppniseftirlitsins sú að veita þyrfti
öðru flugfélagi forgang að af-
greiðslutímum á nákvæmlega því
tímabili sem Icelandair hefur skipu-
lagt leiðakerfi sitt í kringum. Sem
betur fer hefur ákvörðun Samkeppn-
iseftirlitsins nú verið felld úr gildi
þar sem fyrirmæli hennar voru
óframkvæmanleg. Þannig var
ákvörðuninni beint að Isavia, rekstr-
araðila flugvallar, þrátt fyrir að
kveðið sé á um það í lögum að sam-
ræmingarstjóri flugvallarins beri
einn ábyrgð á úthlutun afgreiðslu-
tíma. Samkeppniseftirlitið hefur
samt sem áður tilkynnt að hugsan-
lega verði ákvörðuninni skotið til
dómstóla eða hafið nýtt mál gagn-
vart samræmingarstjóra flugvallar-
ins. Það hefur hins vegar ávallt verið
skoðun okkar að niðurstaðan stand-
ist ekki,“ sagði Björgólfur.
Brotið gegn ákvæðum EES
Taldi hann samkeppnisyfirvöld í
fyrsta lagi ekki hafa heimildir til að
breyta löglega settum stjórnvalds-
fyrirmælum. Í öðru lagi bryti það
gegn EES-samningnum að eitt inn-
lent flugfélag, af þeim 17 sem fljúga
til Íslands í sumar, væri tekið út og
veittur forgangur að tilteknum af-
greiðslutímum. Þá taldi Björgólfur
núverandi fyrirkomulag við úthlutun
afgreiðslutíma ekki raska sam-
keppni þar sem nóg væri af lausum
tímum á flugvellinum.
Hann sagði leiðakerfi Icelandair
hafa verið í þróun í tæpa þrjá áratugi
og hefði kostað hluthafa félagsins
gríðarlega fjármuni. „Ég neita ein-
faldlega að trúa því að litið verði
framhjá þeirri áratugalöngu upp-
byggingu og ég tel það fásinnu að ís-
lensk samkeppnisyfirvöld ætli að
horfa framhjá þeim hefðarrétti sem
Icelandair hefur áunnið sér allt frá
árinu 1987,“ sagði Björgólfur.
Ekki stjórnvöldum að þakka
Hann vék í ræðu sinni einnig að
ytra rekstrarumhverfi Icelandair
Group og annarra fyrirtækja.
„Það er ekki á neinn ákveðinn hall-
að þegar ég segi að Íslendingar og ís-
lensk fyrirtæki hafa búið að stefnu-
leysi í alltof mörgum stórum og
mikilvægum málum á vettvangi
stjórnmálanna á undanförnum ár-
um. Ég segi það fullum fetum að
góður árangur margra íslenskra fyr-
irtækja hefur náðst þrátt fyrir að-
gerðir stjórnvalda, en ekki fyrir til-
stuðlan þeirra,“ sagði Björgólfur,
sem taldi það óheppilegt að stefna
Íslands í peningamálum til framtíðar
væri nær óskrifað blað. Gjaldeyris-
höftin hefðu verið við lýði í á sjötta ár
en áttu að vera í tvö ár. „Utanríkis-
málastefna landsins er óljós og sí-
felldar breytingar á skattaumhverfi
fyrirtækja og atvinnugreina hafa
valdið verulegri óvissu fyrir atvinnu-
rekendur,“ sagði Björgólfur enn-
fremur í ræðu sinni.
„Fordæmalaus háttur“
Samkeppniseftirlitið harðlega gagnrýnt af forstjóra Icelandair Group
Stjórnvöld einnig gagnrýnd fyrir stefnuleysi í stórum og mikilvægum málum
Morgunblaðið/Ernir
Icelandair Móðurfélagið skilaði um sex milljarða króna hagnaði í fyrra.
Björgólfur
Jóhannsson
Sigurður Helga-
son, stjórnar-
formaður Ice-
landair Group,
sagði m.a. í
ræðu sinni að
þótt vel hefði
gengið í rekstri
félagsins á síð-
asta ári hefði
ytra umhverfi
mátt vera hagfelldara, „enda
hefur mér þótt stjórnvöld ekki
sýna flug- og ferðaþjónustu
nægan skilning“. Aukin skatt-
heimta hefði óhjákvæmilega
skilað sér út í verðlagið.
„Nær væri að stjórnvöld
styddu við bakið á fyrirtækjum í
flug- og ferðaþjónustu með al-
mennum aðgerðum sem auka
straum ferðamanna til landsins
og skapa þannig auknar gjald-
eyristekjur,“ sagði Sigurður.
Hann benti á að fyrir lægju til-
lögur um gjaldskrárhækkun á
Keflavíkurflugvelli. Sú hækkun
myndi beinast sérstaklega að
tengifarþegum og myndi leggj-
ast mun þyngra á Icelandair en
aðra flugrekendur. „Ég tel þessar
tillögur hins vegar mjög var-
hugaverðar og tel að þær muni á
endanum snúast upp í andhverfu
sína.“
Sigurður áréttaði að alþjóð-
legur flugrekstur væri bæði
sveiflukenndur og verðnæmur.
Því þyrftu stjórnvöld að stíga
hægt til jarðar í verðhækkunum
á flugrekstur.
Skattheimta
út í verðlagið
STJÓRNARFORMAÐURINN
Sigurður
Helgason