Morgunblaðið - 13.03.2014, Qupperneq 22
Leitin að flugi MH370
Heimildir: MalaysiaAirlines/Vietnam govt/Malaysia govt/NOAA
Malaysia Airlines
Boeing 777-200
Vænghaf:
60,9 m
MALASÍA
INDÓNESÍA
VÍETNAM
TÆLAND
KAMBÓDÍA
Kuala
Lumpur
240 km
Flug MH370 hvarf
klukkan 01.30 að
staðartíma 8. mars sl.
Malasísk yfirvöld
segja að vélin kunni
að hafa breytt um stefnu
af ókunnum ástæðum
Staðfest á
miðvikudag
að malasískir
leitarmenn hefðu
hafið leit á
þessu svæði
Andamanhaf
Malacca-
sund
Tælandsflói
Suður Kínahaf
Stækkað
leitarsvæði frá
og með mánudegi
Áætluð dýpt
300-1.500 m
70 - 200 m
30 - 70 m
Upphafleg leit
Síðasta þekkta
staðsetning
Ho Chi Minh-borg
Leitar-
svæði E
Phu Quoc-
eyja
Tho Chu-eyja
Kuala
Terengganu
Lengd:
63,7 m
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Ættingjar farþega í flugi MH370 frá
Kuala Lumpur til Peking fundu litla
huggun í gær í takmörkuðum og
misvísandi upplýsingum malasískra
yfirvalda um afdrif vélarinnar áður
en hún hvarf af ratsjám sl. föstudag.
Fjörutíu og tvö skip og þrjátíu og níu
flugvélar frá tólf þjóðlöndum voru
við leit í gær en þá var leitarsvæði
stækkað um helming og nær nú yfir
tæpa 70 þúsund ferkílómetra.
Yfirvöld í Malasíu virðast litlu nær
um hvar vélina væri helst að finna og
stjórnvöld í Víetnam sögðu í gær að
þau myndu draga úr leit þar til betri
upplýsingar lægju fyrir um áherslur
leitarinnar. „Á þessu stigi rannsókn-
arinnar, og leitar- og björgunarað-
gerða, hefði ég átt von á því að sjá
mun afmarkaðri skilning á því hver
flugleiðin var, hvert vélinn stefndi og
þrengingu leitarinnar þar af leið-
andi,“ sagði Richard Quest, sérfræð-
ingur CNN í flugmálum, í gær.
Snéri vélin við?
Þungi leitarinnar virðist nú bein-
ast að Malacca-sundi en það er tals-
vert fjarri áætlaðri flugleið vélarinn-
ar. Embættismaður innan malasíska
flughersins sagði í samtali við CNN
á þriðjudag að vélin hefði flogið
nærri eyjunni Palau Perak, undan
vesturströnd Malasíu, en New York
Times hafði það hins vegar eftir tals-
manni malasíska forsætisráðuneyt-
isins, að embættismenn innan hers-
ins hefðu sagt að engin
sönnunargögn bentu til þess að vélin
hefði flogið til baka yfir Malay-
skaga.
Á blaðamannafundi í gær fékk
kenningin um að vélin hefði sannar-
lega snúið við aftur byr undir báða
vængi þegar yfirvöld tilkynntu að
ratsjár hefðu merkt óþekkta flugvél
fljúga yfir Malay-skaga og 200 mílur
yfir Malacca-sund. Hvort um var að
ræða flug MH370 er ekki vitað og
sagði yfirmaður malasíska hersins
að allir möguleikar væru enn á borð-
inu. Óskað hefur verið eftir aðstoð
bandarískra sérfræðinga við að
greina ratsjárgögn.
Ættingjarnir óþreyjufullir
Enn er allt á huldu um ástæður
hvarfsins en helstu kenningar snúa
ýmist að því að vélinni hafi verið
rænt, að henni hafi verið grandað
með sprengju eða að allsherjarbilun
í vélbúnaði hafi valdið því að hún
hvarf sporlaust. Á meðan mörgum
spurningum er ósvarað bíða ættingj-
ar farþeganna og áhafnarinnar milli
vonar og ótta.
„Tíminn líður. Það ætti að vera í
forgangi að leita að hinum lifandi,“
sagði miðaldra maður á fundi með
fulltrúum Malaysia Airlines í Peking
í gær. Sonur hans var farþegi í vél-
inni. Margir fundargesta lýstu
óánægju sinni á fundinum vegna
skorts á upplýsingum frá yfirvöld-
um. Najib Razak, forsætisráðherra
Malasíu, biðlaði hins vegar til ætt-
ingjanna um þolinmæði.
„Fjölskyldurnar verða að skilja að
þetta er ófyrirsjáanlegt,“ sagði ráð-
herrann. „Fjölskyldurnar verða að
skilja að gripið hefur verið til að-
gerða af öllum mætti,“ sagði hann.
Virðast ekki vita hvar á að leita
Yfirlýsingar malasískra yfirvalda
stangast á Leitarsvæðið stækkað í
70.000 ferkílómetra Mörgu ósvarað
AFP
Óvissa Aðstandendur farþega og
áhafnar bíða milli vonar og ótta.
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014
Yfir fimmtíu flugskeytum var skot-
ið á Ísrael frá Gaza-svæðinu í gær
en um er að ræða umfangsmestu
flugskeytaárás á landið síðan í nóv-
ember 2012. Vopnaður armur Isla-
mic Jihad-hreyfingarinnar, Al-
Quds Brigades, lýsti árásinni á
hendur sér og sagði hana svar við
loftárás Ísraela á suðurhluta Gaza á
þriðjudag, þar sem þrír liðsmenn
hreyfingarinnar létu lífið.
Engar fregnir bárust af mann-
falli í árásunum en lögregluyfirvöld
í Ísrael sögðu að flugskeytin hefðu
gengið yfir í nokkrum hrinum og
hafnað á landamærum Ísraels og
Gaza. Eitt lenti nærri bókasafni í
bænum Sderot og annað nærri
bensínstöð á öðru svæði. Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra Ísr-
aels, hét því í gær að svara af mikl-
um þunga.
ÍSRAEL
Umfangsmesta flug-
skeytaárás frá 2012
AFP
Átök Liðsmenn Al-Quds Brigades raða
sér upp við útför látinna félaga í gær.
Breskur áfrýj-
unardómstóll úr-
skurðaði í gær
að ákvörðun
Dominics Grie-
ves, ríkislög-
manns Englands
og Wales, um að
neita Guardian
um aðgang að
bréfum Karls
Bretaprins til
ráðherra bresku ríkis-
stjórnarinnar hefði verið ólögmæt.
Dómstóllinn hafnaði röksemda-
færslu Grieves, sem sagði að inni-
hald bréfanna gæti vakið spurn-
ingar um pólitískt hlutleysi
prinsins og þannig hamlað honum
í að sinna skyldum sínum þegar
hann verður konungur.
Guardian hefur reynt að fá að-
gang að bréfunum í níu ár en
prinsinn hefur sætt gagnrýni fyrir
að nýta sér stöðu sína til að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri við
kjörna embættismenn og hafa
áhrif á stefnumótun hins opinbera.
Í úrskurði áfrýjunardómstólsins
kemur m.a. fram að Grieve hefði
ekki getað hrakið upphaflega
ákvörðun úrskurðarnefndar um
upplýsingafrelsi, sem komst að
þeirri niðurstöðu að það þjónaði
almannahagsmunum að gegnsæi
ríkti um það hvernig og hvenær
prinsinn hefði reynt að hafa áhrif
á stjórnvöld.
BRETLAND
Ólögmætt að hindra
birtingu bréfanna
Prinsinn af Wales
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
Hugarlausnir nýtt námskeið
sembyggir á hreyfingu, fræðslu og núvitund
• Hefst 17.mars
• Þjálfun skv. forskrift hreyfiseðils í 8 vikur
• Þjálfun3x í viku:Mán.,mið. og fös. kl. 13:00
• Fyrirlestrar og viðtal við sálfræðing
• Hópmeðferð í núvitund
• Verð 21.900pr.mánuð (43.800 samtals)
Ert þú aðglímavið einkenni
streitu, depurðar eða kvíða?
Fagaðilar:
Að námskeiðinu standa Sigrún
Ása Þórðardóttir sálfræðingur,
Elva Brá Aðalsteinsdóttir
sálfræðingur, Óskar Jón
Helgason sjúkraþjálfari og
Guðni Valentínusson
heilsufræðingur
GuðniValentínusson
heilsufræðingur
Meginmarkmiðnúvitundarþjálfunar er, að takameiri þátt í því semþúupplifir ogfinnur fyrir.
Einnig að verameðvitaðri um tilfinningar oghugsanir, vera í núinuogbregðast við af yfirvegun