Morgunblaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014
New York. AFP. | Tveir létu lífið og
að minnsta kosti 22 særðust þegar
tvær íbúðabyggingar hrundu í
sprengingu í Austur-Harlem í
New York í gær. Klukkan 13 að
staðartíma var nokkurra enn
saknað en Bill de Blasio, borg-
arstjóri New York-borgar, sagði
mögulegt að viðkomandi væru
óhultir fjarri slysstað.
Vitni að slysinu sögðust hafa
vaknað við eitthvað sem líktist
jarðskjálfta en talsmaður orkufyr-
irtækisins Con Edison sagði í
samtali við AFP að fyrirtækinu
hefði borist tilkynning um mögu-
legan gasleka klukkan 9.13 að
staðartíma, aðeins nokkrum mín-
útum áður en sprengingin varð.
„Íbúi tilkynnti um gaslykt í íbúða-
byggingunni við 1652 Park
Avenue en gaf til kynna að lyktin
gæti komið að utan,“ sagði tals-
maðurinn.
Í kringum 250 slökkviliðsmenn
börðust við eld í nærliggjandi
byggingum í gær og lagði þykkan
reyk frá svæðinu. Talsmaður lög-
reglu New York-borgar sagði að
lögreglunni hefði borist neyðarkall
klukkan 9.34 en vitni sögðu vett-
vang slyssins líkjast stríðssvæði.
Jazzmen Arzuaga sagði í samtali
við AFP að hún hefði verið við
vinnu þegar kona hennar hringdi
til að segja henni hvað hafði gerst.
„Hún hringdi í mig og sagði við
mig: „Guð minn góður, þú verður
að koma heim, þetta er eins og
seinni heimsstyrjöldin, fólk er að
deyja, það var sprenging.“ Ég
bókstaflega hljóp til,“ sagði hún.
Kona Arzuaga, Jay Virgo, sagði
að hún hefði verið í rúminu þegar
sprengingin þeytti henni í gólfið.
„Ég hljóp út úr byggingunni og
leit yfir götuna og það voru tvær
manneskjur liggjandi á gólfinu.
Það var gler alls staðar, risastór
glerbrot. Þetta var brjálæðislegt.“
AFP
Harmleikur Tilkynnt var um mögulegan gasleka í Austur-Harlem áður en byggingarnar hrundu í sprengingu.
Tvær byggingar hrundu
í sprengingu í New York
Tveir látnir og 22 særðir Nokkurra enn saknað í gær
Sprenging
» Borgarstjóri New York-
borgar sagði í gær að um 15
mínútur hefðu liðið á milli til-
kynningarinnar til orkufyrirtæk-
isins og sprengingarinnar.
» Lestarsamgöngur fóru úr
skorðum vegna sprenging-
arinnar en húsin stóðu nærri
lestarteinum.
Í grein sem birtist í Financial Tim-
es í gær kemur fram að komist
breski Verkamannaflokkurinn til
valda eftir þingkosningarnar í
Bretlandi á næsta ári verður ekki
gengið til þjóðaratkvæðis um aðild
landsins að Evrópusambandinu
fyrir 2020.
David Cameron, forsætisráð-
herra og leiðtogi Íhaldsflokksins,
hefur heitið því að efna til þjóð-
aratkvæðagreiðslu 2017 verði
hann enn við stjórnvölinn en Ed
Miliband, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, segir tímasetninguna
handahófskennda og að þjóðar-
atkvæðagreiðsla um aðild að ESB
myndi draga at-
hyglina frá þeim
vandamálum
sem steðja að
efnahagi lands-
ins.
Breska þingið
hefur þegar
samþykkt lög
sem kveða á um
þjóðaratkvæða-
greiðslu um allar tillögur sem fela
í sér afsal á valdi þingsins. Mili-
band segist myndu vilja breyta lög-
unum þannig að heldur yrði kosið
um aðild en að ólíklegt sé að til
þess muni koma fyrir 2020.
BRETLAND
Ekki kosið um aðild fyrir 2020
Ed Miliband
Nýjasta uppá-
tæki athafna-
mannsins Pier-
ricks Cléments
hefur vakið
von og viðbjóð
íbúa í bænum
Cancale á
Bretagneskaga
í Frakklandi
en hann hyggst veiða þúsundir
tonna af sjósniglum í Mont Saint-
Michel-firði og vinna til mann-
eldis.
Landsniglar þykja herram-
ansmatur í Frakklandi en um-
ræddir sniglar, slipper shells, eru
álitnir sníkjudýr þar sem þeir
festa sig við kræklinga, ostrur og
hörpudiska og ræna frá þeim
næringunni, þ.e. plöntusvifi. Til-
raunir hafa verið gerðar til þess
að moka sniglunum upp af botni
fjarðarins en þrátt fyrir það hef-
ur uppskera kræklinga- og ostru-
ræktenda við Bretagneskaga
minnkað um 20% á 30 árum.
Clément hefur hins vegar feng-
ið til liðs við sig verðlaunakokka
frá Frakklandi, Spáni og Japan
og hyggst gera tilraun til að
markaðsetja salt-sætan snigilinn
sem úrvalshráefni. Í því augna-
miði hefur tegundin verið end-
urskírð berlingot de mer, eða
hyrna hafsins.
FRAKKLAND
Óvenjuleg leið til að halda sníkjudýri í skefjum
Við bjóðum öll afmælisbörn
velkomin og gefum þeim fría
n
eftirrétt í tilefni dagsins.
afmaeli?
Attu´
Til hamingju!!!
H
ug
sa
sé
r!