Morgunblaðið - 13.03.2014, Side 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014
Skotbómulyftarar
mest seldi
skotbómulyftarinn
2012
Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is
Lyftigeta 2.5 til 12 tonn
Fáanlegir með
• Vinnukörfum
• Skekkingju á bómu
• Bómu með lengd allt að 18 metrum
• Roto útfærsla með bómu
allt að 25 metrum
Grænn markaður ehf. | Réttarhálsi 2, 110 Reykavík | www.flora.is | Sími 535 8500 | info@flora.is
Verslunareigendur!
Ítalskir pappírspokar í úrvali
Eingöngu
sala til fyrirtækja
Mikil umræða skap-
ast reglulega um ís-
lenska lífeyr-
issjóðakerfið sem af
nokkrum er talið það
besta á byggðu bóli.
En er það best í heimi
eða kerfisgallagripur
sem dæmdur er til að
hrynja? Ef við byrjum
á kostum kerfisins eru
þeir nokkuð augljósir.
Sjóðsöfnunarkerfið er þannig hugs-
að í grunninn að framtíðarlífeyr-
isþegar eigi fyrir sínum lífeyri þegar
vinnuskyldu lýkur öfugt við gegn-
umstreymiskerfi þar sem skatt-
kerfið stendur alfarið undir þeirri
byrði.
Til að undirstrika styrk kerfisins
greiða lífeyrissjóðirnir stóran hluta
lífeyris á móti Tryggingastofnun
sem er í raun ekki nema hálfur
sannleikurinn. Lífeyrissjóðirnir
greiða út milljarðatugi á ári með ið-
gjöldum sjóðfélaga sinna en ekki
með sölu á eignum og standa því ið-
gjöldin undir útgreiðslum sjóðanna
og munu gera það næsta áratuginn
hið minnsta. Á meðan iðgjöldin
standa undir útgjöldum er kerfið í
raun gegnumstreymiskerfi.
Hættan sem stafar af núverandi
kerfi er fyrst og fremst sú að þeir
lífeyrisþegar sem hefja töku lífeyris
á þeim tímapunkti sem sjóðirnir
þurfa að selja eignir til að standa við
skuldbindingar sínar, taka á sig alla
markaðsáhættu. Til að setja þetta í
samhengi getum við einungis getið
okkur til um gríðarlegan eignabruna
sem orðið hefði, í viðbót við bókfært
tap sjóðanna eftir hrun, ef þeir
hefðu þurft að selja eignir til að
standa undir lífeyrisgreiðslum þeg-
ar seljanleiki á mörkuðum var eng-
inn og skráð verðbréf svo gott sem
verðlaus, þó svo að vera eignafærð
langt yfir raunvirði í bókum sjóð-
anna.
Annar kerfisvandi er síaukin þörf
fyrir aukið innstreymi. Iðgjöld hafa
hækkað samhliða aukinni ör-
orkubyrði, hækkun lífaldurs og tapi
í fjárfestingum. Iðgjöld voru hækk-
uð úr 8% í 10% svo í 12% árið 2006
og nú telja stjórnendur kerfisins
æskilegt að iðgjöldin hækki í 15,5%
og að aldur til töku lífeyris verði
hækkaður í bland við skerðingar/
jöfnun réttinda. Sú staðreynd, að
helmingur eigna sjóðanna er beinar
skuldir almennings við kerfið að við-
bættum gríðarlegum halla opinberu
sjóðanna, ætti að duga til að ráða-
menn þjóðarinnar staldri við og setji
spurningarmerki við raunverulegan
styrk kerfisins og hversu gjaldeyr-
ishöftin eru í raun lítið brot af vand-
anum.
Erlendar eignir sjóðanna telja nú
um 24% af heildareignum sem er
svipað hlutfall og árin fyrir hrun en
var 30% þegar mest lét þó svo að
heimildir sjóðanna til erlendra fjár-
festinga væru 50% af heildar-
eignum. Þetta sýnir að
vandamál lífeyrissjóð-
anna vegna gjaldeyr-
ishafta á sér lengri og
áhugaverðari sögu en
haldið er á lofti í dag.
Þá vaknar sú spurn-
ing hvort lífeyr-
issjóðakerfið sé orðið of
íþyngjandi fyrir hag-
kerfið og valdi því að
svigrúm er lítið til að
bæta kjör vinnandi
fólks og grunnþjónustu
í núinu þar sem sjóð-
irnir þurfa sífellt hærra hlutfall af
vinnuframlagi til að standa við lof-
orð sín og sífellt hærri ávöxtun til að
aðlaga afkomu sína síbreytilegum
reiknilíkönum tryggingastærðfræð-
inga.
Kerfið þarf að vera sveigjanlegra
til að takast á við breytta aldurs- og
örorkusamsetningu, bólumyndun,
djúpar niðursveiflur í hagkerfinu
eða hrun markaða þegar seljanleiki
verðbréfa er enginn. Einnig þurfum
við kerfið sem ekki er byggt á mark-
aðsvæddum lífeyri sem aftur kemur
í veg fyrir að sjóðirnir geti fjárfest í
samfélagslegum verkefnum sem
auka lífsgæði þeirra sem njóta eiga
góðs af kerfinu í dag, á morgun eða í
nánustu framtíð.
Ef tekin væri upp blönduð leið
gegnumstreymis og sjóðsöfnunar
væri til kerfi sem vægi upp kerf-
isgalla beggja leiða, en hvorug geng-
ur upp ein og sér. Í því sambandi
mætti skoða þann möguleika að
sameina lífeyrissjóðakerfið Trygg-
ingastofnun eða loka núverandi
kerfi og stofna einn sjóð sem myndi
leiða af sér milljarða hagræðingu í
annars gríðarlega kostnaðarsömu
lífeyrissjóðakerfi. Augljósir kostir
þess og nauðsyn að aftengja at-
vinnulífið og verkalýðshreyfinguna
úr stjórnum sjóðanna mun gjör-
breyta kjarabaráttu launafólks til
hins betra og stórauka gegnsæi,
gæði og aðhald í fjárfestingum.
Í slíku kerfi þarf ekki að markaðs-
væða lífeyrisréttindi eða þræla út
einni kynslóð fyrir aðra heldur væri
grunnlífeyrir tryggður eftir lög-
bundnu framfærsluviðmiði og öll
réttindi jöfnuð við það. Enginn halli
væri á nýju kerfi heldur breytileg
blanda sjóðsöfnunar og skatta.
Þannig gæti nýtt kerfi trappað niður
sjóðsöfnun tímabundið þegar mark-
aðir geta ekki tekið við fjármagni
öðru vísi en að bólgna út, eða þegar
almenningur í landinu á vart til
hnífs og skeiðar í miklum nið-
ursveiflum. Nýtt kerfi gæti fjárfest
eða lánað á sambærilegum kjörum
og tíðkast í kringum okkur, óháð
innistæðulitlum loforðum núverandi
kerfis, sem mun án efa auka gæði
fjárfestinga til mikilla muna og auka
lífsgæði heildarinnar í stað þess að
ala á vaxtaokri og láglaunaánauð í
veikri von um að forstjórar og
stjórnir sjóðanna sneiði hjá kerf-
isbundnum markaðsáföllum fram-
tíðarinnar. Einnig er mikilvægt að
skilgreina lífeyri í víðara samhengi
og þá sérstaklega þak yfir höfuðið
sem er líklega okkar mikilvægasti
lífeyrir. Hvort er mikilvægara fyrir
hagkerfi framtíðarinnar að byggja
upp sjóðfélaga í eigin húsnæði og
minnka þannig framfærsluþörf eða
byggja upp sjóði sem þurfa að sjá
fyrir öllu?
Í mínum huga er þetta ekki
spurning um hvort heldur hvenær
við þurfum að viðurkenna vandann.
Það er stór biti að kyngja fyrir þá
sem mært hafa kerfið í hástert, án
þess að hlusta á réttmæta gagnrýni
þeirra sem bent hafa á krumpur í
gullslegnum klæðum keisarans. En
sem betur fer eru fleiri og fleiri
farnir að sjá augljósa galla núver-
andi kerfis og fram hafa komið
margar góðar og uppbyggilegar
hugmyndir til að bæta kerfið svo
það vinni að bættum lífskjörum allra
kynslóða, alla ævi, allra sem að því
koma.
Blönduð leið er ekki gallalaus leið
en það er klárlega meiri glóra í að
takast á við fyrirsjáanlegan vanda í
stað þess að hjakka í sama hyldjúpa
hjólfarinu og stinga hausnum í sand-
inn. Ósveigjanleiki kerfisins er
mesti galli þess og mun verða því að
falli. Sagan kennir okkur að öll kerfi
sem greiða út loforð sín með inn-
streymi fjármagns eru dæmd til að
hrynja. Sagan sýnir okkur að fjár-
málakerfið og markaðir munu taka á
sig kerfisbundin hrun enda væri
brjálæði að halda öðru fram með
kerfi sem er endurreist á nákvæm-
lega sömu brauðfótum og þegar það
hrundi, án nokkurra kerfisbreyt-
inga.
Það ætti ekki að reynast erfitt að
breyta lögum til að aðlaga kerfið
augljósum hagsmunum sjóðfélaga
en alls hafa verið gerðar 72 breyt-
ingar á skyldutryggingum lífeyr-
isréttinda frá 2008. Lagabreytingar
um lífeyrissjóði rúlla iðulega í gegn-
um þingið eins og hver annar gegn-
umtrekkur þegar aðlaga þarf kerfið
sjálfu sér eða breyttum aðstæðum á
fjármálamörkuðum. Er ekki komin
tími á að breyta kerfinu í almanna-
þágu?
Sveigjanlegt lífeyriskerfi
Eftir Ragnar Þór
Ingólfsson
Ragnar Þór Ingólfsson
» Á meðan iðgjöldin
standa undir út-
gjöldum er kerfið í raun
gegnumstreymiskerfi.
Höfundur er sölustjóri
og stjórnarmaður í VR.
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morg-
unblaðsins og höfunda.
Morgunblaðið birtir ekki greinar
sem einnig eru sendar eru á aðra
miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn "Senda inn grein" er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Nánari
upplýsingar veitir starfsfólk
Morgunblaðsins alla virka daga í
síma 569-1100 frá kl. 8-18.