Morgunblaðið - 13.03.2014, Page 32

Morgunblaðið - 13.03.2014, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014 ✝ Helgi Þorkels-son var fædd- ur á Markarskarði í Hvolhr., Rang., 17. september 1920. Hann and- aðist á Landspít- alanum í Fossvogi 4. mars síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Þorkell Guðmundsson, f. 17. maí 1876 á Gafli í Flóa, d. 17. jan. 1952 í Vestmanneyjum, og Guðrún Eyvindsdóttir, f. 21. maí 1882 í Litla Kollabæ í Fljótshlíð, d. 24. júní 1921 af barnsförum á Markarskarði, Rang. Þau gengu í hjónaband árið 1909. Helgi var yngstur af 9 systk- inum. Systkini hans eru Kjart- an, f. 12.11. 1911, d. 8.1. 1912, Anna Guðrún, f. 14.11. 1912, d. 25.1. 1996, Þuríður Sesselja, f. 10.1. 1914, d. 4.8. 2009, Magnús Karl, f. 31.1. 2015, d. 26.10. 1993, Ingimundur, f. 23.1. 1916, d. 5.5. 2006, Guð- ríður, f. 2.4. 1917, d. 15.11. 1998, Ólafur, f. 7.8. 1918, d. 13.7. 2013, Elín, f. 25.9. 1919, búsett í Noregi. Helgi stundaði mamma, f. 4.6. 1956. Börn: Hulda Ösp, f. 4.2. 1976, Auður Brynja, f. 15.2. 1981, Helgi Þorkell, f. 29.10. 1985. 2) Har- aldur málmiðnaðarmaður, f. 23.10. 1957, maki Valgerður Hannesdóttir leikskólakennari, f. 18.8. 1956. Börn: Halldóra, f. 4.4. 1986, Hulda, f. 10.3. 1993, Theódór Sölvi, f. 17.10. 1989. 3) Ólafur Þorkell mat- reiðslumaður, f. 30.12. 1959, maki Svandís Torfadóttir hár- greiðslumeistari. Börn: Albert Torfi, f. 3.1. 1979, Haraldur, f. 20.11. 1987, Arnar Ingi, f. 6.8. 1990. 4) Guðrún sjúkraliði, f. 12.4. 1961, maki Geir Gígja kerfisfræðingur. Börn: Matt- hildur, f.16.11. 1981, Sara Gígja, f. 22.3. 1999 5) Andri Már, málmiðnaðarmaður, f. 29.12. 1967, maki Margrét Huld Guðmundsdóttir heil- brigðisritari, f. 3.6. 1973. Börn: Sylvía Rán f,. 27.1. 1988, Elvar Már, f. 1.4. 1993, Emil Þór, f. 8.12. 1995, og Helga Björt, f. 14.1. 1998. Barna- barnabörnin eru orðin 14 sam- tals. Helgi og Hulda kona hans reistu sér hús á Garðaflöt 13 og fluttu inn í kringum 1964 og þá fyrst í bílskúrinn á með- an íbúðin var að klárast og bjó Helgi þar til dauðadags. Útför Helga Þorkelssonar fer fram frá Garðakirkju í dag, 13. mars 2014 og hefst athöfnin klukkan 15.00. nám í rennismíði á vélaverkstæði Magna hf. í Vest- manneyjum árin 1944-48. Árið 1951 lauk Helgi vél- skólaprófi. Að loknu því námi var hann á togara frá Vestmanneyjum um tíma, hóf síðan störf sem vélstjóri hjá Jöklum hf. 1953-60. Helgi var vélstjóri á Drangajökli þegar hann sökk í Pentlandsfirði 29.6. 1960 og hætti Helgi á sjó eftir þá reynslu og hóf störf í landi hjá vélaverkst. B.U.R og vann þar, lengst sem yfirverkstjóri en af og til sem eftirlitsmaður með skipum fyrirtækisins. Eftir það vann hann hjá Lands- virkjun við Búrfells- og Íra- fossvirkjanir til starfsloka. Helgi kvæntist 23. júlí 1955 Huldu Haraldsdóttur, f. 28. janúar 1927 í Reykjavík, d. 1. desember 1993. Foreldar hennar voru Haraldur Ólafs- son, skipstjóri og Ásta Smith húsmóðir. Börn Helga og Huldu eru: 1) Ásta dag- Elsku pabbi minn. Það er sárt að hugsa til þess að þú sért horfinn frá okkur. Við huggum okkur við þær minningar sem þú gafst okkur og skilur eftir í hugum okkar og hjörtum. Þær verða varðveittar um alla eilífð. Þessar minningar eru óteljandi og það er erfitt að setjast niður og setja þær á blað. Þegar ég var lítil stelpa var svo gaman að hjálpa þér í garðinum heima og hugsa um og mála húsið. Ég minnist þess með brosi á vör þegar ég var að leika mér og hreiðra um mig í fallega kof- anum í bakgarðinum sem þú smíðaðir handa okkur krökkun- um. Ófáar voru líka ferðirnar í kartöflugarðinn okkar þegar við fórum að setja niður og svo aft- ur til að taka upp. Þetta voru skemmtilegar og lærdómsríkar stundir. Það er nokkuð sem ég gleymi aldrei og það var þegar þú gekkst inn í vinnslusalinn í gömlu Bæjarútgerðinni í Reykjavík þegar ég vann í fisk- inum og konurnar litu upp. Ein þeirra hafði á orði „mikið er þetta fallegur maður“. Ég svar- aði stolt um hæl og sagði „þetta er pabbi minn“. Pabbi, þú varst svo góður og fallegur maður, myndarlegur með meiru og það fyllir mig stolti að hafa átt þig sem pabba. Ferðin okkar til Noregs er mér ofarlega í huga þegar við fjölskyldan frá Íslandi fjölmenntum á ættarmót sem var haldið sumarið 1996. Við áttum yndislegar stundir þar með Ellu systur þinni og af- komendum hennar. Ég er þakk- lát fyrir okkar góðu samveru- stundir í Hamborg og nú í seinni tíð stendur alltaf upp úr þegar við fórum í Fljótshlíðina þína og fengum okkur kaffi á Langbrók. Ég á eftir að sakna þín sárt, elsku pabbi minn, og þess að líta til þín á Garðaflöt- inni. Ég mun elska þig um alla eilífð og varðveita dýrmæta minningu um þig í hjartanu. Við biðjum Guð og góða að taka þér opnum örmum og umvefja þig kærleika og friði. Takk fyrir allt. Þótt minn elskulegi faðir og kæri vinur hafi nú kallaður verið heim til himinsins sælu sala og sé því frá mér farinn eftir óvenju farsæla og gefandi samferð, þá bið ég þess og vona að brosið hans blíða og bjarta áfram fái ísa að bræða og lifa ljóst í mínu hjarta, ylja mér og verma, vera mér leiðarljós á minni slóð í gegnum minninganna glóð. Og ég treysti því að bænirnar hans bljúgu mig blíðlega áfram munu bera áleiðis birtunnar til, svo um síðir við ljúflega hittast munum heima á himnum og samlagast í hinum eilífa ljóssins yl. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Þín dóttir, Guðrún og fjölskylda. Elsku yndislegi afi minn. Þá er flugmiðinn sem þú talaðir um kominn í þínar hendur og þú hefur tekið flugið á friðsælan stað. Það er erfitt að kveðja þig og ég geri það með miklum trega. Ég þakka fyrir að eiga margar góðar og ljúfar minn- ingar um þig til að ylja mér við. Ég hef hugsað mikið undanfarið um stundir sem við höfum átt saman og sögur sem við höfum skipst á. Það eru ófá skiptin sem við höfum sest saman yfir kaffibolla og þú talað um æskuna þína í Fljótshlíðinni, ferðasögur um hafið og stjórnmál, þá aðallega um íhaldið. Oft lá þér svo á að segja mér sögurnar og hlóst svo mikið á meðan að ég náði kannski helmingnum en hafði rosalega gaman af. Svo hlógum við bara saman. Þú hefur lifað tímana tvenna og bjóst yfir hafsjó af fróðleik og ótrúlegum sögum. Þetta voru margar af mínum uppáhaldsstundum með þér. Þegar ég hugsa um Garða- flötina sé ég þig fyrir mér þar sem þú situr á tröppunum í sól- inni, eða vappandi um garðinn að dytta að. Ég finn angan af bóndarósunum þínum og í garð- inum eru smáfuglar að kroppa í brauð sem þú hefur skilið eftir handa þeim á flötinni. Þegar ég var lítil var ég mikið hjá þér og ömmu og ég er svo þakklát fyrir tímann sem ég fékk að eiga þarna sem barn, valsaði um í hrauninu, veiddi síli í læknum og ófáar voru ferðirnar í sund- laugina sem þér þótti svo nota- leg. Kofinn í bakgarðinum var kærkominn fyrir okkur krakk- ana og þar áttum við öll skemmtilegar stundir. Það var heldur ekki leiðinlegt sitja í bláa Volvoinum þínum og renna í Hafnarfjörðinn eftir nammiís á Skalla. Ég sé fyrir mér þegar við vorum að tína saman „bakk- ullur“ í kartöflureitnum í bak- garðinum, rabarbarann og sól- berin sem hafa fylgt Garðaflötinni alla tíð. Við fórum oft í Heiðmörkina og af og til renndum við í Fljótshlíðina sem var yndislegt á góðum sumar- degi. Nú er tómlegt að ímynda sér hvernig „Garðó“ verður í fram- haldinu þegar þú ert farinn. Mér líður dálítið eins og teng- ingin við æskuslóðirnar sé farin og einhvern veginn átti maður alltaf hjá þér skjól. Ég á eftir að sakna þess að renna við og sjá brosið þitt, þiggja kaffibolla og ostaköku, en þér var mikið í mun að bjóða gestum alltaf eitt- hvað þegar þeir komu. Áramót- in verða sérstaklega tómleg því þau bestu voru heima hjá þér, að horfa á Skaupið, borða ís- tertur og sjá nágrannana fara hamförum í flugeldunum. Ég er þakklát fyrir heim- sóknina þína til okkar í Grinda- vík fyrir ekki svo löngu að kíkja á húsið. Þakklát fyrir að þú fékkst að kynnast börnunum okkar Jóhanns, allt fram á síð- ustu stundu spurðir þú um þau öll. Ég veit að elsku amma Hulda, pabbi og fleiri góðir taka vel á móti þér og hugsa vel um þig þarna hinum megin. Ég var búin að biðja um það í hljóði að þau myndu passa vel upp á þig. Takk fyrir allt, elsku afi minn, ég gleymi þér aldrei og þú munt ávallt eiga sérstakan stað í hjarta mínu og fjölskyld- unnar. Þú varst mikill heiðurs- maður, góðhjartaður og sá allra seigasti. Mér þykir óendanlega vænt um þig og ég er stolt af því að vera afkomandi þinn. Það voru sannkölluð forréttindi að eiga þig sem afa. Þín Matthildur, Jóhann, Hekla, Snædís og Friðrik. Kallið er komið komin er nú stundin vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast margt er hér að þakka Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast margs er að sakna Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Í dag kveðjum við hinstu kveðju Helga Þorkelsson sem lést hinn 4. mars síðastliðinn. Elsku tengdapabbi og Helgi afi, margar minningar koma upp í hugann þegar höfðingi eins og þú fellur frá. Við mæðg- ur vorum svo heppnar að fá að kynnast þér fyrir fáum árum og þegar ég kom fyrst með Íseyju Rún heim til þín á Garðaflötina kynntirðu þig sem Helga afa og alla tíð síðan hefur hún kallað þig Helga afa, alltaf var vel tekið á móti okkur og ef hún var ekki með mér var alltaf spurt hvar litla manneskjan væri. Við vorum dálítið með annan fótinn á Garðaflötinni, og oft á tíðum þegar ég sótti stelpuna á leikskólann og við ætluðum heim þá vildi hún bara fara heim til Helga afa í Garðabæ. Margt rifjast upp eins og ferð- irnar í Fljótshlíðina, ferðin okk- ar á Þingvelli þegar ég var í skærappelsínugulu peysunni sem Andri þinn gaf mér og sagðir þú að hann myndi ekki týna mér í þessari enda sást í mig langar leiðir, ferðirnar í kirkjugarðinn að vitja um leiðið hjá Huldu þinni en nú ert þú farinn á stefnumót við hana, síð- ustu tvenn jólin með þér, nú síð- ast á Garðaflötinni, og gamlárs- kvöld þegar þú skelltir sjálflýsandi spöng á hausinn. Já þú varst dásamlegur, elsku tengdapabbi, og hafðir nú stundum orð á að ég væri ansi litrík í klæðnaði. Svo skutumst við stundum saman á skjóna mínum í búðina eða annað sem við þurftum að fara, já þú kall- aðir bílinn minn skjóna og svo var alltaf haft orð á að fara var- lega í umferðinni þegar ég var að skjótast á skjóna mínum. Allar ferðirnar sem maður stoppaði, mislengi, á Garðaflöt- inni, stundum bara til að rétt líta inn og sagðir þú við mig stundum að það þyrfti nú ekk- ert að passa þig, stundum til að stoppa lengur við, t.d. þegar ég sat hér við borðið og lærði og þú fylgdist með og sagðir mér að passa að lesa ekki yfir mig, stundum til að malla okkur saman lax eða annan fisk en það fannst þér best að fá og oftar en ekki var nú líka gist á Garða- flötinni. Einnig minnist ég sagnanna þinna úr sveitinni síðan þú varst lítill, af sjómennskunni, þá sérstaklega þegar Drangjök- ull sökk og mannbjörg varð, ferðirnar þínar utan vegna sjó- mennskunnar og svo þegar þú varst í Bæjarútgerðinni. Líka þegar þú talaðir um að kaupa bíl fyrir sumarið og við mynd- um fara í bíltúr. Já þú varst ótrúlega duglegur kall sem áttir merkilega sögu að baki og vildir bara gera hlutina sjálfur, enda vanur að bjarga þér sjálfur síð- an úr sveitinni. Elsku Andri Már, Ólafur, Haraldur, Guðrún og Ásta, við Ísey Rún viljum votta ykkur og fjölskyldu ykkar samúð okkar en minningin um þennan mikla heiðursmann mun lifa meðal okkar. Elsku tengdapabbi og afi, vertu kær kvaddur og guði fal- inn. Margrét Huld Guðmundsdóttir. Þar til næst Nú hjartað slær ei lengur lífsins takt og líkamanum horfið andans fjör. Ég veit nú stendur sálin aðra vakt og tekur næsta skref á lífsins för. Ég veit þín sál er ljós af lífsins loga, lýsir skært sem drottins kærleiks- kraftur. Ég bið því fyrir kveðju, koss og lofa að minnast þín þar til við hittumst aftur. (ABE) Auður Brynja Eyjólfsdóttir. Helgi Þorkelsson ✝ GuðfinnaHulda Jóns- dóttir fæddist í Bjarnaborg í Reykjavík 7. októ- ber 1934. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð 2. mars 2014. Foreldrar henn- ar voru Jón Jóns- son, f. 22. apríl 1890, d. 11. ágúst 1980, og Sigurlaug Þorbjörg Guðbrandsdóttir, f. 27. mars 1901, d. 7. ágúst 1974. Guð- finna var yngst níu systkina og eru þau öll látin. Samfeðra voru Þorvarður, f. 1912, d. 1978, Bjarni, f. 1915, d. 1952, Valgerður Lilja Hagalín, f. 1917, d. 1996, og Sigurður, f. 1921, d. 2003. Sammæðra voru Steingrímur Þórður, f. 1922, d. 1996, Guðbrandur Halldór, f. 1923, d. 1989, Hörður Smári, f. 1925, d. 1990, og Oddrún Hulda, f. 1928, d. 1929. Eftirlifandi eiginmaður Guð- finnu er Jóhannes Kristinsson, f. 18. mars 1927 í Kirkjubæ í Hróarstungu. Þau gengu í hjónaband 28. desember 1965. Foreldrar hans voru Kristinn Þórel Gíslason, f. 7. september 1891, og Helga Jóhanna Jó- hannesdóttir, f. 10. ágúst 1886, d. 28. maí 1975. Synir Guðfinnu og Jó- hannesar eru Kristinn, f. 16. september 1964, og Steingrímur Halldór, f. 24. jan- úar 1967. Börn Kristins með Val- gerði Hjördísi Rúnarsdóttur, en þau slitu samvistir, eru a) Sól- dís Dröfn, f. 1990, b) Kristinn Andri, f. 1997, og c) Jóhannes Smári, f. 2001. Sóldís Dröfn á Fanneyju Rán, f. 2009. Krist- inn er í sambúð með Brynju Pálu Helgadóttur sem á tvö börn. Guðfinna ólst upp í Reykja- vík, hún lauk grunnskólaprófi og vann ýmis verkakvenna- störf ásamt því að sinna hús- móðurstörfum. Þau Jóhannes hófu búskap í Reykjavík en fluttust um tíma á Sauðárkrók. Í 40 ár hafa Guðfinna og Jó- hannes verið búsett í Hraunbæ í Reykjavík en sl. tvö ár dvald- ist Guðfinna á hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð í Kópavogi þar sem hún lést. Guðfinna var jarðsungin frá Árbæjarkirkju 10. mars 2014. Guðfinnu kynntist ég fyrir um þremur árum, eftir að ég og Kristinn sonur hennar fórum að vera saman. Heilsu hennar var þá farið að hraka en hún bjó þá enn heima í Hraunbæn- um með Jóa sínum. Fljótlega fluttist hún á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð þar sem hún dvaldist síðustu tvö ár ævi sinnar. Guð- finna tók mér afar vel allt frá fyrsta degi og verð ég henni ævinlega þakklát fyrir þær góðu móttökur sem hún veitti mér í fjölskylduna sína. Okkur varð vel til vina og áttum góðar stundir saman þar sem um- ræðuefnið var oftar en ekki fólkið hennar sem hún var afar stolt af og ánægð með. Fas hennar einkenndist af einstakri ljúfmennsku, mikilli hógværð og lítillæti og alltaf var stutt í hláturinn og kátínuna. Með hlýhug, virðingu og þakklæti fyrir vináttuna kveð ég Guðfinnu. Blessuð sé minn- ing hennar. Aðstandendum öllum votta ég mína innilegustu samúð. Brynja Pála Helgadóttir. Nú er hún Finna mín gengin inn í Sumarlandið og á þar væntanlega góða heimkomu. Hún var sérlega grandvör og vönduð kona til orðs og æðis. Svo hjartahlý, hógvær, orðvör, ljúf og blíð í öllu andsvari, bros- og hláturmild, einlæg, vildi öllum vel og hafði afar góða nærveru. Þetta eru sönn orð – falleg íslensk orð um fal- lega sál. Og nú heyri ég hana segja: „Þetta er nú fullmikið sagt.“ Það sem einkenndi Finnu al- veg sérstaklega var hversu barngóð hún var. Hún átti svo auðvelt með að ná til barna með áhuga sínum og ljúfri framkomu við þau. Þess naut dóttir mín í ríkum mæli á sín- um tíma þegar Finna gætti hennar hluta dags fyrsta árið í grunnskóla. Verður það seint fullþakkað. Við Finna kynntumst fyrst snemma á 8. áratugnum þegar við fluttum, ásamt fjölskyldum, í nýbyggt fjölbýlishús í Hraun- bænum. Okkur varð fljótt vel til vina og áttum ótal margar skemmtilegar stundir saman gegnum árin yfir kaffibolla við eldhúsborðið hennar. Bar þá margt á góma. Einkum þótti mér áhugavert að heyra frá- sagnir hennar af æsku og upp- vexti í Reykjavík á tímum kreppu og eftirstríðsára. Ekki er hægt að tala um Finnu öðruvísi en að minnast á Jóa, manninn hennar, þann ljúfa mann. Þau voru einstak- lega samhent hjón og báru greinilega mikla virðingu hvort fyrir öðru. Á heimili þeirra andaði allt af ró og friði. Synir þeirra tveir, Kristinn og Stein- grímur, áttu svo sannarlega gott atlæti í sínum uppvexti. Enda bera þeir þess vitni. Seinna nutu barnabörnin sömu elskusemi ömmu og afa og svo barnabarnabarnið. Finna átti við mikinn heilsu- brest að stríða seinustu árin og dvaldi tvö þau síðustu á hjúkr- unarheimili. Þangað fór Jó- hannes daglega í fylgd sonar þeirra að vitja hennar. Voru þessar daglegu heimsóknir þeirra feðga Finnu afar kærar og léttu henni stríðið. Að leiðarlokum þakka ég Finnu innilega vináttuna, ein- lægnina og hlýjuna í minn garð og míns fólks síðustu 40 árin. Bið henni allrar blessunar Guðs á nýjum vegum. Ég sendi Jó- hannesi, Steingrími, Kristni og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Bára B. Kjartansdóttir. Guðfinna Hulda Jónsdóttir Davíð útfararstjóri Jóhanna Erla guðfræðingur útfararþjónusta Óli Pétur útfararstjóri 551 3485 • udo.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.