Morgunblaðið - 13.03.2014, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 13.03.2014, Qupperneq 38
38 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014 Tryggvi Páll Friðriksson, uppboðshaldari hjá Gallerí Fold, hef-ur í nógu að snúast og ætlar ekki að halda sérstaklega upp á69 ára afmælisdaginn, sem er í dag. „Ég hef aldrei verið neitt sérstaklega fyrir það að halda upp á afmælið mitt en á von á að eiga stund með fjölskyldunni, eins og ég geri reglulega,“ segir hann. Uppboð og vinna í tengslum við þau taka drjúgan tíma. „Meðan ég get unnið og hef gaman af því er það fínt,“ segir Tryggvi Páll og minnir á að næsta stóra uppboð verði í galleríinu við Rauðarárstíg 31. mars. Hann er með hefðbundin uppboð á mánudögum klukkan 18.00 sex til átta sinnum á ári og síðan eru vefuppboð stöðugt í gangi. Þannig lauk einu í fyrrakvöld, annað er í gangi núna og síðan hefst nýtt á laugardag. „Ég er alltaf eins og mús í hlaupahjóli,“ seg- ir hann. Sala á málverkum hrundi í kjölfar bankahrunsins. „Mér finnst sal- an fara æði hægt af stað aftur,“ segir Tryggvi Páll. „Það hrundi allt sem hrunið gat. Uppboðin hafa gengið bærilega vel en það vantar rosalega mikið upp á að sala á nýrri myndlist sé svipuð og hún var fyrir hrun.“ Hann bætir við að verk gömlu meistaranna séu alltaf vinsæl og abstraktverk séu vinsælli en landslagsverk. „Menn kaupa verk gömlu meistaranna til þess að fjárfesta í þeim vegna þess að verðið hefur haldist gott.“ steinthor@mbl.is Tryggvi Páll Friðriksson 69 ára Afmælisbarnið Tryggvi Páll Friðriksson hjá Galleríi Fold. Alltaf eins og mús á hlaupahjóli Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Keflavík Ásta María fæddist 23. mars kl. 20.17. Hún vó 3688 g og var 50,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Elísa D. Andersen og Sigurður M. Sigurðsson. Nýir borgarar Hveragerði Þórunn Cathinca fæddist 4. janúar kl. 2.43. Hún vó 3.825 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Alda Sif Marteinsdóttir og Kristján Hannesson. K arl fæddist á Atl- astöðum í Fljótavík á Hornströndum 13.3. 1939 og ólst þar upp til sex ára aldurs. Þá flutti fjölskyldan í Hnífsdal: „Ég er líklega næstsíðasta barnið sem fæddist í Fljótavík. Þegar við flutt- um voru flestir farnir þaðan, ein- ungis eftir tvær eða þrjár fjöl- skyldur. Þá var ekki lengur hægt að setja út né taka upp bát. Það var því sjálfhætt því búskapurinn þarna byggðist að mestu á sjófangi. Þetta voru útvegsbændur.“ Karl var í barnaskóla í Hnífsdal og stundaði síðan nám í tónfræði og nám á bassa við Tónlistarskólann í Reykjavík 1958. Síðar stundaði hann nám í tónfræði við Tónlistarskólann á Ísafirði um skeið. Karl byrjaði ungur að leika fyrir dansi: „Ég byrjaði að leika á tromm- Karl Geirmundsson, tónlistarmaður á Ísafirði – 75 ára Í Frognerseteren við Osló Karl og eiginkona hans, Rannveig Hjaltadóttir kennari, en hún lést á síðasta hausti. Hélt uppi fjörinu á Vestfjörðum um árabil Í sveiflu Karl með gítarinn með Baldri, bróður sínum, ævifélaga í tónlistinni. 95 ára er í dag, 13. mars, Rósa Gísla- dóttir frá Krossgerði. Hún fæddist á Ytri-kleif í Breiðdal. Foreldrar hennar voru Jóhanna Þórdís Jónsdóttir og Gísli Stefánsson. Rósa átti fimm systkini sem öll eru látin. Eiginmaður Rósu var Björgvin Gíslason, bóndi og oddviti, fæddur í Krossgerði á Beru- fjarðarströnd 19.1. 1910. Hann lést ár- ið 1971. Þau bjuggu í Krossgerði. Þau eignuðust fjögur börn. Árnað heilla 95 ára DREIFARAR • SNJÓTENNUR • SNJÓBLÁSARAR • SLITBLÖÐ A. Wendel ehf | Tangarhöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 551 5464 | wendel.is Tæki til vetrarþjónustu Stofnað 1957

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.