Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 39

Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 39
ur með Baldri bróður og Karli heitn- um Einarssyni. Hljómsveitin hét KBK en þeir léku báðir á harm- ónikku. Síðan bættist í hópinn. Ég fór að leika á gítar og síðan verður þetta hljómsveitin BG og Ingibjörg. Við lékum fyrir dansi í áratugi, víða um land en þó einkum á Vest- fjörðum.“ – Þið gáfuð út plötur, ekki satt? „Jú við sendum frá okkur fjórar litlar plötur sem SG Hljómplötur gáfu út og eina stóra plötu, Sól- skinsdag, sem var tekin upp í Hafn- arfirði og Steinar Berg gaf út á sín- um tíma. Þessu var bara ágætlega tekið. Sum þessara laga urðu býsna vinsæl og gengu í útvarpinu mán- uðum og árum saman. Maður heyrir jafnvel enn sum þeirra spiluð, s.s. lögin Góða ferð og Þín innsta þrá.“ – Nú er þessi ballmenning horfin. „Já. Dansleikir og sveitaböll á landsbyggðinni lögðust af með bjórnum og öldurhúsamenningu. Það er auðvitað frítt inn á barina, ólíkt böllunum. Ég held nú samt að ýmsir í eldri kantinum sakni þess að hafa ekki lengur pelann undir borð- inu. Þannig var þetta í gamla daga.“ Karl starfaði með hléum hjá föður sínum við húsbyggingar í Hnífsdal, á Ísafirði og víðar á Vestfjörðum. Hann vann einnig á verkstæði föður síns, Trésmiðjunni hf. – Hnífsdal, og starfaði síðan sjálfur við smíðar. Karl og félagar hans í hljómsveit- inni festu kaup á hluta af Sjálfstæð- ishúsinu á Ísafirði 1985, breyttu staðnum umtalsvert og starfræktu hann í 11 ár: „Þessi rekstur gekk vel fyrstu árin en síðan minkaði aðsókn- in og við ákváðum að selja staðinn.“ Karl söng með Karlakór Ísafjarð- ar og tók þátt í páskaprógrammi Sunnukórsins. Fjölskylda Eiginkona Karls var Rannveig Hjaltadóttir, f. 23.9. 1942, d. 21.10. 2013, handavinnu- og húsmæðra- kennari við Grunnskólann á Ísafirði. Hún var dóttir Hjalta Þorsteins- sonar, netagerðarmanns á Dalvík, og k.h., Kristínar Jóhannsdóttur húsfreyju. Synir Karls og Rannveigar eru Hjalti Karlsson, f. 23.7. 1965, for- stöðumaður hjá HAFRÓ á Ísafirði en kona hans er Sigríður Lára Gunnlaugsdóttur, sjúkraþjálfari við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísa- firði og eiga þau þrjá syni; Rúnar Óli Karlsson, f. 3.4. 1972, landfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, búsettur á Ísafirði en kona hans er Nanný Arna Guðmundsdóttir kennari, sem auk þess rekur kaffihús á Ísafirði á sumrin og eiga þau þrjú börn; Smári Karlsson, f. 2.4. 1976, blaðamaður á Bæjarins besta en kona hans er Sig- ríður Gísladóttir, dýralæknir, sem starfar hjá Matís. Systkini Karls: Halldór Geir- mundsson, f. 29.1. 1930, d. 16.1. 2014, bifreiðastjóri; Gunnar Geirmunds- son, f. 15.4. 1931, húsgagnasmiður, búsettur í Kópavogi; Geir Sigurlíni Geirmundsson, f. 25.5. 1932, fyrrv. sjómaður og beitningamaður, bú- settur í Sandgerði; Helgi Ólafur Hörður Geirmundsson, f. 17.11. 1934, d. 14.6. 2005, sjómaður og út- gerðarmaður á Ísafirði; Ásthildur Hjálmfríður Geirmundsdóttir, f. 19.6. 1936, húsfreyja í Kópavogi; Baldur Björn Geirmundsson, f. 15.10. 1937, tónlistarmaður og fyrrv. skrifstofumaður á Mjólkurstöðinni á Ísafirði. Foreldrar Karls voru Geirmundur Júlíusson, f. 4.3. 1908, d. 17.10. 1996, húsasmiður í Hnífsdal, og Guð- munda Regína Sigurðardóttir, f. 5.5. 1904, d. 23.6. 1994, húsfreyja. Úr frændgarði Karls Geirmundssonar Karl Geirmundsson Sigríður Sigurðardóttir húsfr. á Látrum Sigurður Gíslason hreppstj. á Látrum Ólína Halldóra Sigurðardóttir húsfr. á Látrum og í Hnífsdal Sigurður Þorkelsson útvegsb. á Látrum og síðar í Hnífsdal Guðmundína Regína Sigurðardóttir húsfr. á Atlastöðum og í Hnífsdal María Gísladóttir húsfr. í Neðri-Miðvík Þorkell Ísleifsson b. í Neðri-Miðvík Elísa Ólafsdóttir húsfr. frá Ósi Jón Guðmundsson húsm. á Steinstúni í Víkursveit Guðrún Jónsdóttir húsfr. á Atlastöðum Júlíus Geirmundsson útvegsb. á Atlastöðum Geirmundur Júlíusson útvegsb. á Atlastöðum í Fljótavík og smiður í Hnífsdal Sigurlína Friðriksdóttir húsfr. á Atlastöðum Geirmundur Guðmundsson útvegsb. á Atlastöðum Gítarleikarinn Karl Geirmundsson. ÍSLENDINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014 Arnaldur Hall varði nýlega dokt- orsritgerð sína við Kaupmannahafn- arháskóla. Titill ritgerðarinnar er: „Polycation-mediated perturbation of cellular bioenergetic processes and redox homeostasis and its implication in cancer“. Verkefnið var tvíþætt, ann- ars vegar vann Arnaldur að rann- sóknum á eituráhrifum jákvætt hlað- inna nanóeinda sem notaðar eru sem genaferjur við flutning á kjarnsýrum inn í frumur og hins vegar rannsakaði hann áhrif krabbameinsgena á efna- skiptahvörf krabbameinsfrumna og þá möguleika að hanna nanóeindir sem eru sérhæfðar í að drepa krabba- meinsfrumur. Mikilvægi þess að auka skilning á ástæðum eituráhrifa nanóeinda felst í þeim möguleikum að umbreyta nanó- eindum á þann hátt að þær verði skað- lausar frumum á meðan genafærsla á sér stað. Niðurstöður Arnaldar sýna fram á hvernig stærð og uppbygging (architecture) nanóeindanna hefur mismunandi áhrif á orkuefnaskipta- hvörf frumna og þá efnaferla sem gera frumum kleift að framleiða nægjan- legan efnivið til framleiðslu á hinum ýmsu stórsameindum sem eru nauð- synlegar til eðlilegs frumu- vaxtar og fjölg- unar. Arnaldur rannsakaði einnig samspil stökkbreytinga í krabbameins- frumum sem virkja sérstök krabbameins- gen, svokölluð „onkogen“, og afleiðingar þeirra á orkuframleiðslu krabbameinsfrumna. Niðurstöður þeirrar rannsóknar út- skýra meðal annars hvernig krabba- meinsfrumur eru háðar virkni „onko- gena“ til að sjá þeim fyrir nægjanlegri orku til vaxtar og viðhalds vegna und- irliggjandi óskilvirkni í orkuframleiðslu í hvatberum krabbameinsfrumna. Aukin sameindalíffræðileg þekking á þeim breytileika sem fyrirfinnst í orku- framleiðslu á milli krabbameins- frumna og venjulegra frumna gæti aukið möguleika fyrir framþróun nýrra meðferðarúrræða sem ráðast sérhæft á orkuefnaskiptahvörf krabbameins- frumna. Arnaldur lauk BSc-gráðu í sameindalíffræði frá HÍ 2007 og MSc-gráðu í Human Biology við Kaupmannahafnarháskóla, Kræftens Bekæmpelse, 2010. Foreldrar hans eru Þorbjörg Þórðardóttir, myndlistarmaður og kennari, og Þórður Hall, myndlistarmaður og kennari. Hann hefur verið ráðinn til starfa við krabbameins- rannsóknir við Kræftens Bekæmpelse. Hann er í sambúð með Kathrine Damm. Doktor Doktor í líffræði krabba- meina og eiturefnafræðum 95 ára Rósa Gísladóttir 90 ára Guðmundur Hjaltason Jóna Jónsdóttir Þóra Steingrímsdóttir 85 ára Björg Jónsdóttir 80 ára Bryndís Nikulásdóttir Einar G. Arnþórsson 75 ára Björn B. Ingvarsson Inga Kristjana Halldórsdóttir 70 ára Guðmundur Einarsson Helgi H. Steingrímsson Margrét Snorradóttir Steinunn Valdimarsdóttir 60 ára Anna Hjálmdís Gísladóttir Antoni Kempa Björg Hólm Jakobsdóttir Einar Sveinn Hálfdánarson Friðrik A. Halldórsson Guðmundur Eiríksson Gunnlaugur Ragnarsson Helgi Magnús Stefánsson Jón Árni Sigurðsson Ólafur Þór Jónsson Sigurður Einarsson Stefán Sigurðsson Vilhjálmur A. Kristjánsson 50 ára Anna María F. Gunnarsdóttir Arnar Guðni Guðmundsson Garðar Bragason Guðbjörg Erla Guðbjörnsdóttir Guðmundur Elías Einarsson Gunnar Marel Einarsson Harry Buchisa Mashinkila Haukur Hafsteinsson Hreinn Smári Sveinsson Hulda Björnsdóttir José Antonio Carbonell Camps Jón Trausti Bjarnason Júlíus Þórðarson Katrín Eymundsdóttir Kristín Þóra Pálsdóttir Pétur Guðmundsson Svanhildur Óskarsdóttir Svanur Þór Eðvaldsson Þóra Jóna Dagbjartsdóttir 40 ára Davíð Pálsson Drífa Nikulásdóttir Fe Galicia Isorena Friðrik Magnússon Kristín Björg Árnadóttir Mariusz Zbigniew Orlowski Oksana Shabatura Silja Björg Róbertsdóttir Svava Kristjánsdóttir Vilhjálmur Þór Sigurjónsson Þorgerður Halldórsdóttir Örlygur Þór Jónasson 30 ára Arna Björg Jónasdóttir Cesar Arnar Sanchez Davíð Halldór Kristjánsson Davíð Þór Björnsson Davíð Örn Guðnason Erna Dögg Sigurjónsdóttir Guðrún Benediktsdóttir Gunbold Gunnar Bold Líf Steinunn Lárusdóttir Óskar Örn Guðmundsson Sæunn Auðunsdóttir Wioleta Mierzejewska Til hamingju með daginn 30 ára Pétur býr á Hellu, er húsasmiður og starfar hjá Samverki. Maki: Hjördís Brynj- arsdóttir, f. 1982, sjúkra- þjálfari. Synir: Gunnar Atli, f. 2010, og Bóas Óli, f. 2012. Foreldrar: Gunnar Pét- ursson, f. 1960, tækni- fræðingur, og Margrét Ólafsdóttir, f. 1957, sjúkraþjálfari. Þau eru bú- sett í Danmörku. Pétur Gunnarsson 30 ára Halla ólst upp á Reykjum á Skeiðum, er búsett í Ólafsvík, lauk kennaraprófi frá KHÍ og er nú grunnskólakennari í Ólafsvík. Maki: Bjarni Gunnar Jó- hannsson, f. 1985, versl- unarstjóri. Dóttir: Ingibjörg, f. 2014. Foreldrar: Rúnar Þór Bjarnason, f. 1956, bóndi á Reykjum, og Ingibjörg Pálsdóttir, f. 1960, d. 1998, bóndi og húsfreyja. Halla Rúnarsdóttir 30 ára Heiðar ólst upp á Hvolsvelli, er þar búsettur og er jarðvinnuverktaki þar. Maki: Ólöf Guðbjörg Egg- ertsdóttir, f. 1983, hjúkr- unarforstjóri við dval- arheimilið Kirkjuhvol. Sonur: Eðvar Eggert, f. 2011. Foreldrar: Þormar Andr- ésson, f. 1954, verktaki á Hvolsvelli, og Sigurlín Óskarsdóttir, f. 1958, svæðisstjóri hjá VÍS. Heiðar Þormarsson www.nortek.is Sími 455 2000 Nortek sérhæfir sig í öryggislausnum sem þú getur treyst hvort heldur er að degi eða nóttu, miklir möguleikar bæði fyrir lítil og stór fyrirtæki. Meira en 16 ára reynsla í sölu og þjónustu á öryggiskerfum. Nortek ehf | Eirhöfði 13 og 18 | 110 Reykjavík Hjalteyrargötu 6 | 600 Akureyri | nortek@nortek.is FYRIRTÆKJAÖRYGGI • Aðgangsstýring • Brunakerfi • Myndavélakerfi • Innbrotakerfi • Slökkvikerfi / Slökkvitæki • Öryggisgirðingar / Hlið / Bómur • Áfengismælar / fíkniefnapróf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.