Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Page 8
Einar Skúlason
hefur snúið sér
að útivist. Bók
eftir hann um
gönguleiðir í ná-
grenni Reykja-
víkur er vænt-
anleg á
næstunni. Einar,
sem leiddi lista
Framsókn-
arflokksins í síð-
ustu borgar-
stjórnar-
kosningum en
situr nú í stjórn
Bjartrar fram-
tíðar, greindi frá því á Facebook í vikunni að
bókin væri farin í prentun. Í henni verður að
finna leiðarlýsingar á átta miserfiðum göngu-
leiðum nærri höfuðborginni.
Fjöll framyfir
pólitík
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.3. 2014
Auðvitað eru allir hissa, brjálaðir kannski.Af hverju fá sumir ríkistryggða „leiðrétt-ingu“ á verðtryggðu láni sínu en ekki aðr-
ir sem skulda sömu fjárhæð og urðu einnig fyrir
barðinu á hinum svokallaða forsendubresti? Af
því, kæru vinir, að þannig virkar millifærslukerf-
ið. Fé er tekið frá einum og fært til annars. Þetta
er alþekkt. Barnabætur, vaxtabætur, húsaleigu-
bætur. Hreinræktuð millifærsla af sama meiði og
fyrirhuguð leiðrétting.
Það er huggun harmi gegn að sett var þak á
„leiðréttinguna“. Millifærslan frá greiðandi heim-
ilum til þiggjandi heimila á því aldrei að verða
meiri en 4 milljónir króna á hvert þiggjandi heim-
ili. Öll heimili verða greiðendur í „leiðréttingunni“
en rúmur helmingur þiggjandi.
Bein útgjöld úr ríkissjóði, sameiginlegum sjóði
okkar allra, vegna „leiðréttingarinnar“ verða 80
milljarðar króna. Þeir peningar verða sóttir með
sköttum á annars vegar heimili og hins vegar fyr-
irtæki sem þurfa þá að velta þeim kostnaði út í
verðlag sitt. Á endanum eru því heimilin helstu
greiðendur. Að meðaltali mun hvert heimili greiða
640 þúsund krónur í aukna skatta vegna „leiðrétt-
ingarinnar“.
Skattfrjáls niðurgreiðsla á íbúðalánum með sér-
eignarsparnaði fólks er ekki talin með í þessu. Þar
er ekki um að ræða bein útgjöld fyrir ríkissjóð
heldur tekjutap.
Eins og „leiðréttingin“ er kynnt til sögunnar
mun það óhjákvæmilega eiga sér stað að eignalítið
lágtekjufólk mun styðja auðugt hátekjufólk. Þetta
stönduga hátekjufólk hefur jafnvel hagnast vel á
húsnæðiskaupum sínum. Það keypti kannski íbúð
árið 2000 sem hefur hækkað í verði langt umfram
öll lán síðan. Dæmi má líka taka af foreldrum sem
keyptu hús um aldamótin fyrir nánast ekkert
nema lánsfé. Eignarhlutur þeirra í húsinu er nú
um 50%. Dóttir þeirra mun greiða hærri skatta en
ella á næstu árum til þess að tryggja foreldrum
sínum enn meiri hagnað af kaupunum á húsinu.
Fólk sem grætt hefur tugi milljóna á húsnæðis-
kaupum fær því „leiðréttingu“ á „forsendubresti“.
Hvernig sem á þetta mál er litið verður ekki hjá
því komist að segja eitt. „Leiðréttingin“ er þjóð-
nýting einkaskulda. Skuldir einstaklinga, einka-
skuldir, verða færðar yfir á ríkissjóð. Það má gera
mann brjálaðan af minna tilefni.
Þessi mikla þjóðnýting er stefnubreyting frá
því landsmenn höfnuðu því í tvígang í almennri at-
kvæðagreiðslu að þjóðnýta einkaskuldir vegna
Icesave.
Þessi þjóðnýting er slæm út af fyrir sig en for-
dæmið sem hún setur jafnvel verra. Eina glætan í
málinu er sú að menn sem aldrei hafa séð ofsjón-
um yfir barnabótum eða vaxtabótum virðast nú
skilja hversu óréttlátt það er að taka fé af einum
til að gefa öðrum.
Leiðrétting er þjóðnýting
* Skuldir einstaklinga,einkaskuldir, verðafærðar yfir á ríkissjóð. Það
má gera mann brjálaðan
af minna tilefni.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridurandersen.is
Skuldaleiðrétt-
ingar urðu umfjöll-
unarefni á Facebo-
ok í vikunni.
„Forsætisráðherra
segir að það verði
jafn auðvelt að sækja um skulda-
leiðréttingu og að panta pítsu. Ég
vona að netöryggið verði aðeins
meira en hjá Dominos,“ sagði
Bergsteinn Sigurðsson dag-
skrárgerðarmaður á RÚV í stöðu-
uppfærslu.
Þingmaðurinn
og Samfylking-
arkonan Sigríður
Ingibjörg Inga-
dóttir setti þessa
útreikninga á
skuldaniðurfellingarfrumvarpi rík-
isstjórnarinnar inn á Facebook síðu
sína:
„Sjá, ég boða yður heimsmet!
5.257 heimili fá 0 kr. í lækkun á
höfuðstól
14.253 heimili fá 0-0,5 milljóna
lækkun á höfuðstól
20.014 heimili fá 0,5-1 milljón í
lækkun á höfuðstól
16.342 heimili fá 1-1,5 milljóna
lækkun á höfuðstól
9.365 heimili fá 1,5-2 milljóna
lækkun á höfuðstól
3.891 heimili fá 2-2,5 milljónir í
lækkun á höfuðstól
1.933 heimili fá 2,5- 3 milljónir í
lækkun á höfuðstól
1.615 heimili fá 3-3,5 milljónir í
lækkun á höfuðstól
1.014 heimili fá 3,5 til 4 milljónir í
lækkun á höfuðstól.“
Fjölmiðlamaðurinn Logi Berg-
mann fékk kennslustund í kynjaðri
hugsun í vikunni: „Jafnréttisáminn-
ing dagsins er í boði Hrafnhildar
Hólm (4ra ára):
H: Pabbi. Það er
búið að krota á
hliðið á leikskól-
anum. Hvað
stendur þarna? L:
Ekkert. Þetta er
bara eitthvað bull. H: En hver gerði
þetta? L: Sennilega einhverjir
strákasnar. H: En pabbi. Það gætu
líka verið stelpuhálfvitar.
Takk.“
AF NETINU
Króatíska blaðið Croatian Times greinir frá
því í vikunni að Ivica Kostelic, króatíska skíða-
stjarnan, og Elín Arnarsdóttir hafi ákveðið að
gifta sig 24. maí. Kostelic er einn fremsti
skíðamaður heims, fimmfaldur heimsbik-
armeistari og silfurverðlaunahafi frá Ólympíu-
leikunum í Sochi í alpatvíkeppni og er stór-
stjarna í Króatíu. Parið býr í Króatíu og
verður veislan þar í landi.
Stjörnubrúð-
kaup í maí
Vettvangur
Á bakvið hönnunarfyrirtækið Tulipop
standa þær Helga Árnadóttir og
Signý Kolbeinsdóttir og búa þær til
skapandi og fallegar vörur fyrir börn
sem höfða til fólks á öllum aldri. Tuli-
pop verður með skemmtilegan við-
burð á HönnunarMars, teiknismiðju
fyrir krakka á öllum aldri, laugardag-
inn 29. mars milli kl. 12 og 16 á Hverf-
isgötu 39. Um leið verður ný vörulína
Tulipop fyrir árið 2014 frumsýnd.
„Krakkar fá skapandi
Tulipop teiknibækur og
leiðsögn við að skapa sínar
eigin teikningar á meðan
DJ Snorri og Stefán þeyta
skífum,“ segir Signý. Meðal
nýrra vara sem Tulipop er
að setja á markað eru
Bubble og Gloomy vatnsflöskur, Maddý mat-
arstell, minnisbækur, hnífaparasett úr stáli og
margt fleira. „Í Tulipop heiminum búa
krúttlegar og heillandi persónur, eins og
sveppastrákurinn hugljúfi Bubble, sem
ann öllu sem hrærist, og systir hans
Gloomy, hugrakka og ævintýragjarna
sveppastelpan sem hræðist ekkert.“
Vörulína Helgu og Signýjar hefur vak-
ið mikla athygli erlendis og meðal annars
hlotið alþjóðleg hönnunarverðlaun.
TEIKNISMIÐJA FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
Helga og Signý eru
stofnendur Tulipop.
Föndur og fjör Tulipop