Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Síða 39
Það er hægt að fá margs konar
viðbætur við vafrann sem gefa þér
kost á að búa til sérhæfðar aðgerð-
ir í vafranum, svo sem til þess að
vista senda síðu í tölvupósti með
einum takka, eða að loka á auglýs-
ingar á vefsíðum. Það getur þó
verið tvíeggjað sverð að nota mikið
af viðbótum, því þær auka enn á
minnisnotkun vafrans.
Sigurvegari: Þrátt fyrir að
nota mikið minni er Chrome
sá vafri sem hægt er að mæla
með fyrir flesta.
Besta fría póstþjónustan
Það er ekki langt síðan Hotmail-
netfang var undirstaða netsam-
skipta. Síðan hefur þó margt
breyst, meðal annars Hotmail, sem
í dag er orðið Outlook.com, sem er
í dag helst keppinautur Gmail-
þjónustunnar frá Google um hylli
netnotenda. Í Bandaríkjunum er
Yahoo! Mail ennþá
stærsta tölvupóstþjón-
ustan. Yahoo! hefur
gengið í gegnum mikla
endurnýjun undanfarið
ár og er póstþjónustan
þar ekki undanskilin. Yahoo! hefur
nær fullkomlega tekist að klóna
viðmót Gmail, en bætir þó um bet-
ur þegar kemur að geymslumagni,
en þú færð terabæt af geymslu-
plássi undir póstinn þinn hjá
Yahoo. Þá er einnig boðið upp á
stuðning við IMAP og POP sem
gerir þér kleift að sækja póst frá
öðrum póstþjónum, s.s. vinnupóst, í
gegnum Yahoo! Helsti gallinn við
Yahoo! er hins vegar að ruslpóstur
virðist eiga þar greiðari leið að inn-
hólfi notenda en annars staðar.
iCloud-þjónustan frá Mac er ágæt-
ur valmöguleiki fyrir þá sem eru
með allan sinn vélbúnað í Apple-
vistkerfinu, en skortir þó POP-
stuðning. Það eru þó Gmail og
Outlook sem sannarlega bítast um
toppsætið. Helsti kostur Outlook er
gríðarlega þægilegt viðmót sem
byggist á einfaldleika og stílhreinni
hönnun. Það býður líka upp á
handhægari tengingar við sam-
félagsmiðla, og nær ótakmarkað
pláss. Þá eru í boði öflugir leitar-
og flokkunareiginleika. Gmail býð-
ur upp á flest það sama, afburða-
leit, góða flokkun, öfluga rusl-
póstsíu og meiri möguleika á að
aðlaga útlit og notkun að eigin ósk-
um. Það er þó ekki jafn stílhreint
og þægilegt í notkun
enn sem komið er.
Hvora þessa þjónustu
þú kýst að nota er dá-
lítið undir því komið
hvort þú metur hærra,
einfaldleika eða möguleikann til að
aðlaga þjónustuna að sérþörfum.
Sigurvegari: Gmail. Það er
erfitt að gera upp á milli
þeirra, en eftir stendur að
undirritaður notar sjálfur
Gmail í sínum netsamskiptum,
þrátt fyrir góða reynslu af
Outlook. Ef það þarf að greina
á milli er það ekki verri
ástæða en hver önnur.
Ljósmynd/Ósk Laufdal
* Helstu kostirChrome ogFirefox umfram Saf-
ari og Explorer eru
annars vegar hraði
og hins vegar fjöldi
viðbóta sem hægt er
að fá fyrir þessa
vafra. Chrome hefur
um talsvert skeið ver-
ið hraðasti vafrinn.
Ský taka hér á sig óvenju-
lega en fallega mynd. Ekki
er þó um að ræða sömu
ský og í skýjageymslu.
30.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Dómstóll í Ontario hefur skikkað framkvæmdastjóra
hjá kanadíska snjallsímaframleiðandanum BlackBerry
til að virða samning sinn við fyrirtækið en samkeppn-
isaðilinn Apple bauð honum samning undir lok síðasta
árs. Þetta er þó skammgóður vermir því lögbannið
gildir aðeins fram í júní á þessu ári. Þá verður mað-
urinn, Sebastien Marineau-Mes, frjáls ferða sinna.
Marineau-Mes vann áður hjá QNX Software sem
BlackBerry keypti haustið 2010. Þangað til í september
síðastliðnum var hann yfir 600 manna þróunardeild
innan fyrirtækisins. Á þeim tímapunkti fór hann að ljá
máls á því að hætta hjá BlackBerry en var þá boðin
stöðuhækkun sem hann þáði. Marineau-Mes átti að
vinna áfram að þróunarmálum en í stað þess að hafa
600 manns undir sér átti hann að vera yfir 3.000.
Þegar Marineau-Mes fékk atvinnutilboð frá Apple í
desember síðastliðnum vildi hann hætta þegar í stað
hjá BlackBerry. Því undu menn ekki þar á bæ og endaði
málið fyrir dómstólum. BlackBerry hélt því fram að
Marineau-Mes gæti ekki hætt strax, þar sem skýrt
ákvæði væri í nýja samningnum þess efnis að uppsagn-
arfresturinn væri sex mánuðir. Þessu hafnaði Mar-
ineau-Mes á þeim forsendum að skrifað hefði verið
undir samninginn meðan bann var við stöðuhækk-
unum innan fyrirtækisins vegna hugsanlegrar yfirtöku.
Samningurinn væri með öðrum orðum ógildur. Ekkert
varð af yfirtökunni. Þessum röksemdum hafnaði dóm-
stóllinn í Ontario.
Svo sem gefur að skilja hefur Marineau-Mes ekki
mætt til vinnu síðan í janúar og ólíklegt verður að telj-
ast að BlackBerry óski eftir þjónustu hans fram til 23.
júní að samningurinn rennur út. „Það er leiðinlegt að
þurfa að grípa til aðgerða af þessu tagi,“ segir í yfirlýs-
ingu frá fyrirtækinu, „en við gerum allt sem þarf til að
tryggja að starfsmenn okkar virði sína samninga.“
BLACKBERRY GRÍPUR TIL ÖRÞRIFARÁÐA
Framkvæmda-
stjóri kyrrsettur
– um stund
Höfuðstöðvar BlackBerry. Fyrirtækið hefur átt afar erfitt
uppdráttar undanfarið og margir lykilstarfsmenn hætt.
Smáralind | Sími 512 1330
Opið Sunnudaga 13-18
AppleTV
iPhone
Verð frá:67.890.-
FERMINGARTILBOÐ
Tilboð:15.990.-*
Fullt verð: 18.990.-
*T
ilb
o
ð
g
ild
ir
til
12
.a
p
ríl
20
14
.
Þaðerbúiðað
ferma iPhone í
verslanirokkar