Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Síða 40
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum?
Ég get ómögulega áttað mig á eigin stíl, en ég er mikið fyrir einfalda
hluti, fallegar línur og klæðskeradeild ELLU finnst mér sú allra besta í
veröldinni. Þannig að þegar ég fer í vel sniðinn ELLU-kjól líður mér eins
og ég sé viðeigandi hvar sem er. Ég er mikið fyrir fallega fylgihluti en vinn
mikið og vil vera frjáls og alls ekki burðast með þunga hluti. Fallegur vand-
aður fatnaður hefur verið í uppáhaldi hjá mér frá því ég var ung stelpa að
læðast í fataskáp mömmu. En hún átti mikið af dýrindis dóti
frá Sonia Rykiel.
Áttu þér uppáhaldsflík eða fylgihlut?
Uppáhaldsflíkin mín er ELLA LBD ljós ullarkjóll sem
ég fer alltaf í við hátíðleg tilefni. Reyndar elska ég líka
allar kápurnar mínar frá ELLU. En ef ég á að segja
eins og er þá vel ég mjög oft svartar flíkur sem ég
svo klæði upp og niður með fylgi-
hlutum og skófatnaði.
Hvaða þekkta andlit finnst
þér með flottan stíl?
Þær Andrea Oddsdóttir og Högna
Sigurðardóttir arkitekt eru vin-
konur mínar og tískufyrirmyndir
mínar hér heima. Ég veit fátt
skemmtilegra en að lauma mér í
heimsókn til þeirra. Þær eru báðar
ákaflega elegant konur og hafa ein-
staka þekkingu á tískusögunni sem
og listasögu almennt. Þær þekktu
Sonia Rykiel í París og þekktu
þann „elegance“ sem var allt-
umlykjandi á seinni hluta síðustu
aldar. Þegar þær klæða sig upp
á þá eru hattar, hanskar og fallegar
kápur áberandi og bera þær sig
báðar eins og drottningar að mínu
mati.
Hvaða sumartrend ætlar
þú að tileinka þér?
Ég tileinka mér aldrei trend heldur klæði mig alltaf eftir
eigin sannfæringu – þannig að ég verð ekkert öðruvísi
þetta sumarið en önnur sumur. Hins vegar elska ég
að vera úti á sumrin og finnst mikið frelsi í að geta
tekið mér tíma og farið í sund og langar göngur. Mér
finnst fátt fallegra en svartur bambus á sólkysstri húð
og það er vanalega stíllinn minn á sumrin.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða
mottó, þegar kemur að fatakaupum?
Já, heldur betur. Kaupið minna!!! Að eiga eina vandaða flík í fataskápnum
sem endist þér að eilífu eru bestu kaupin. Það eiga allir að hafa aðgang að
vönduðum fötum enda ákaflega óhagstætt og dýrt að kaupa ódýrt þegar
dæmið er reiknað til enda.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð?
Katrín Káradóttir hjá ELLU er uppáhald. Einnig Sonia Rykiel og Martin
Margiela. Ég ber mikla virðingu fyrir Steinunni Sigurðardóttur og finnst
hún einstakur fagmaður. Ég gæti haldið áfram í allan dag. Málið er nefni-
lega að starf fatahönnuða er einstakt og ákaflega flókið. Að vinna við að
skapa eitthvað alveg nýtt er einungis fært mjög hæfum alkemistum. Rann-
sóknarvinnan á bak við hverja línu tekur oft marga mánuði og ferillinn er
flókinn en ákaflega skemmtilegur.
Hvar kaupir þú helst föt?
Hjá ELLU.
Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna?
Það er ekkert nauðsynlegt við snyrtitöskur. Hins vegar finnst mér ákaf-
lega nauðsynlegt að vera með góðan rakagjafa á Íslandi og er ég mikið fyrir
góðar olíur. Ég ýmist bý þær til sjálf eða kaupi hjá Bláa Lóninu.
Hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns?
Áður en ég stofnaði ELLU fann ég aldrei neitt til að vera í. Ég var að
leita að þessum einföldu flíkum sem eru undirstaðan fyrir góðan fataskáp.
Sá kjóll sem ég nota hvað mest frá ELLU er Cache Ceur – hann er úr
mjúku jersey og maður getur gert hvað sem er í þessum kjól. Hann er fínn
í vinnuna, frábær heimakjóll og svo má bara fara í háa hæla og þá er hann
orðinn fyrirtaks kokteilkjóll. Svona einn með öllu.
En þau verstu?
Hef keypt svo margt skrítið í gegnum tíðina. Hluti sem eru illa sniðnir og
úr lélegum efnum sem fylltu fataskápinn minn og mér leið alltaf eins og ég
ætti ekkert til að fara í en fannst ég ekki geta hent eða losað mig við þetta.
Svo loksins ákvað ég að gefa þetta frá mér og líður eins og þungu fargi sé
af mér létt.
Morgunblaðið/Kristinn
Einfaldleiki
og fallegar
línur
ELÍNRÓS LÍNDAL ER LISTRÆNN STJÓRNANDI OG EIGANDI
ÍSLENSKA TÍSKUHÚSSINS ELLU. ELÍNRÓS, SEM ER ÁVALLT
FÁGUÐ TIL FARA, KÝS AÐ FYLGJA EKKI TÍSKUSTRAUMUM
HELDUR KLÆÐIR HÚN SIG EFTIR EIGIN SANNFÆRINGU.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Sonia Rykiel fatahönnuður hannar
vandaðar flíkur en hún hefur lengi
verið í uppáhaldi.
FERILLINN ER FLÓKINN EN SKEMMTILEGUR
Belgíski fatahönn-
uðurinn Martin
Margiela er einn
af eftirlætishönn-
uðum Elínrósar.
Úr sýningu ELLU.
Elínrós segir klæð-
skeradeild ELLU þá
bestu í veröldinni.
Elínrós Líndal velur sér gjarnan
svartar flíkur sem hún síðan
klæðir upp og niður með
fylgihlutum og skófatnaði.
Tíska *PopUp er svokölluð farandverslun sem haldinverður á Loft Hostel, Bankastræti 7, laugardag-inn 29. mars milli klukkan 12 og 18. Þar gefstgestum og gangandi færi á að versla við hönnuðimilliliðalaust. 15 hönnuðir munu kynna og seljavörur sínar og þar á meðal verða þau ÁsgrímurMár, Erla Gísla, Færið, Rim, Tíra, Vargur, Varpið,
Vegg, Útópía og fleiri.
Farandverslun á Loft Hostel