Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Page 41
30.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
F
emínistahreyfingin á Ís-
landi er í krísu eftir að
einn af forsprökkum henn-
ar missteig sig á netinu í
skjóli nafnleyndar og var með
dólgslæti. Hingað til hefur fem-
ínistahreyfingin því miður verið of
upptekin af og velt sér upp úr
smáatriðunum sem engu máli
skipta og misst af því sem skiptir
konur raunverulegu máli – jafn-
rétti kynjanna og ekki síst launa-
jafnrétti.
Þessi 11%
launamunur
kynjanna hef-
ur hinsvegar
ekkert gufað
upp þótt það
hafi verið lítið
talað um hann
síðustu mán-
uði. Launa-
munur
kynjanna hef-
ur einhvern veginn drukknað í
ESB-umræðu og skuldaniðurfell-
ingu, makríldeilu og lekamálum
ráðherra.
Reglulega birtast litlar fréttir
um að eitt og eitt fyrirtæki á
stangli hafi fengið Jafnlaunavott-
un VR. Jafnlaunavottunin er
byggð á breskri fyrirmynd og
geta fyrirtæki sótt um þótt starfs-
menn þess séu ekki félagsmenn í
VR. Auðvitað er Jafnlaunavottun
VR eitthvað sem fyrirtæki ættu
að sækjast eftir, en mér finnst lít-
ill fréttapunktur í því að 19 fyr-
irtæki (samkvæmt upplýsingum á
heimasíðu VR) hafi fengið Jafn-
launavottun eftir að hún var fyrst
kynnt í febrúar 2013.
Ég velti því fyrir mér hvort það
þurfi ekki að setja fram einhverja
gulrót fyrir fyrirtæki þannig að
þau hefðu beinan hag af því að
vera með einhverskonar jafn-
launastefnu. Fyrirtækjarekstur
er í fæstum tilfellum góðgerð-
arstarfsemi heldur snýst hann
um beinharða peninga. Þess
vegna dettur mér í hug hvort það
væri hægt að koma því þannig
fyrir að fyrirtæki sem væru með
Jafnlaunavottun VR fengju
skattaafslátt í einhverju formi.
Svo má aftur velta því fyrir sér
hvort peningurinn færi ekki strax
aftur inn í hagkerfið með þessu
fyrirkomulagi …
Ef jafnrétti á að nást þurfa kon-
ur að vera sterkar og sjálfstæðar.
Auðvitað þurfa þær að komast í
stjórnir fyrirtækja og ná völdum í
viðskiptalífinu en það hangir
meira á spýtunni. Lífið snýst
nefnilega ekki bara um viðskipta-
lífið og að konur fari að græða á
daginn og grilla á kvöldin eins og
karlarnir. Í heiminum er stór hóp-
ur kvenna sem eiga einhvern veg-
inn engan séns vegna fátæktar
og geta ekki látið til sín taka því
þær eiga enga möguleika. Þær
eru fastar í vonlausum aðstæðum,
sumar í ofbeldissamböndum og
jafnvel með allt of mörg börn á
sínu framfæri sem gerir það að
verkum að þær komast ekki úr
sporunum.
Í nýútkominni bók Bjargar
Guðrúnar Gísladóttur, Hljóðin í
nóttinni, er íslenskum raunveru-
leika á eftirstríðsárunum lýst afar
vel. Þar átti móðir Bjargar Guð-
rúnar engan séns. Hún gat ekki
séð fyrir börnunum sínum sjálf og
neyddist því til að búa með
drykkjusjúkum eiginmanni sem
beitti hana kerfisbundnu ofbeldi
bæði andlegu og líkamlegu. Ef
hún hefði fengið einhvern fé-
lagslegan stuðning hefði hún lík-
lega getað staðið á eigin fótum og
boðið börnunum sínum upp á
betra líf.
Ég sé ekki annað en að það séu
næg tækifæri fyrir Femínista-
félag Íslands og það veiti ekki af
að bretta upp ermar og hjóla í
menn og málefni. Karlarnir
myndu nefnilega aldrei láta ein-
hver netdólgslæti slá sig út af
laginu …
martamaria@mbl.is
Dólgslætin áttu sér stað í tölvunni.
Hljóðin í nóttinni
eftir Björgu Guð-
rúnu Gísladóttur.
Þessi mynd var tekin á Kvennafrídaginn 1985.
Myndu aldrei
láta dólgslæti slá
sig út af laginu
FLUGFARÞEGAR FÁ VSK
AFÖLLUMGLERAUGUM
SÍMI 527 1515 GÖNGUGÖTU