Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Side 54
Bráðabirgðahúsnæði fyrir heimilislausa eftir jarðskjálftana í Kobe í Japan árið 1995. Eins og sjá
má eru sökklarnir bjórkassar fylltir sandpokum en veggirnir úr lóðréttum pappahólkum.
Bráðabirgðaskóli reistur við í Chengdu í Kína, árið 2008.
Eins og sjá má er grindin öll úr pappírshólkum.
Þ
egar rætt er um arkitektúr beinist
athyglin iðulega að varanlegum
byggingum, úr stáli og steypu.
Þegar tilkynnt var hver hlyti
Pritzker-verðlaunin í ár, helstu
verðlaun sem arkitektum geta hlotnast fyrir
heildarverkið, varð hins vegar fyrir valinu
maður sem hefur öðlast verðskuldaða frægð
fyrir byggingar sem er ætlað að standa til
bráðabirgða og eru iðulega
reistar úr efnum á borð við
pappahólka og bjórkassa.
Shigeru Ban er sjöundi
Japaninn sem hreppir þessi
eftirsóttu verðlaun síðan
stofnað var til þeirra árið
1979. Hann er 56 ára gamall
og nýtur sívaxandi vinsælda
og virðingar, eins og sjá má á því að hann
starfrækir nú arkitektastofur í þremur stór-
borgum, Tókýó, París og New York, og
ferðast á milli þeirra til að vinna að ólíkum
verkefnum. En Ban sló fyrst í gegn fyrir
skýlin sem hann hannaði fyrir fórnarlömb
náttúruhamfara og stríðsátaka, til að mynda í
Japan, Tyrklandi, Rúanda, Indlandi, Kína og
Haítí. Þau fyrstu voru reist í Rúanda árið
1994, tjöld með súlur úr pappírshólkum. „Mér
fannst að það mætti bæta þessi skýli,“ var
haft eftir honum um snjalla lausnina.
Í umsögn dómnefndar segir að byggingar
Ban sjái þessu hrakta fólki fyrir skjóli, þær
séu félagsmiðstöðvar og staðir fyrir bæna-
gjörð fyrir fólk sem hefur upplifað ólýsan-
legan missi og eyðingu. Ban er iðulega mætt-
ur með fyrstu björgunarsveitum og tekur frá
upphafi þátt í uppbyggingu bráðabirgðabygg-
inganna.
Ballettlegar byggingar
Ban hefur lýst því hvernig hann geymdi
gjarnan pappírshólkana sem voru innan í
rúllum af faxpappír og teiknipappír á
arkitektúrstofum. Einn daginn heimsótti
hann verksmiðju sem útbjó slíka hólka og
komst að því að hægt er að fá þá í ýmsum
lengdum og misbreiða. Síðan hefur hann not-
að þá í burðarvirki, veggi og loft bygginga.
Í umfjöllun The New York Times er Ban
sagður hafa ögrað viðteknum hugmyndum
um rými heimilisins og hvað það þýði að hafa
þak yfir höfuðið. Til að mynda hafa kirkjur
hans og tónleikasalir úr pappír vakið mikla
athygli. „Verk hans eru loftkennd, sveigj-
anleg; eins og ballett,“ skrifaði Michael Kim-
melman, helsti gagnrýnandi blaðsins, fyrir
nokkrum árum. „Hann er afkomandi Buck-
minster Fuller og Oscars Niemayer, hefð-
bundins japansks arkitektúrs og Alvars
Aalto; hann er líka gamaldags módernisti
með ljóðrænan streng og uppgötvunarhæfni
verkfræðings.“
Þrátt fyrir að þessar byggingar Ban eigi
iðulega aðeins að vera nýttar í tvö til þrjú ár,
þá líkar fólki vel við þær, auk þess sem þær
reynast furðu sterkar, og hefur verið búið í
þeim í allt að áratug.
En þrátt fyrir að Ban sé hvað þekktastur
fyrir þessi bráðabirgðaskýli; smáhýsi fyrir
flóttamenn og félagsmiðstöðvarnar úr pappír,
þá hefur hann einnig unnið að hefðbundnari
verkefnum. Eitt þeirra er glæsilegt útibú
Pompidou-safnsins í Metz í Frakklandi, síðar
á árinu verður opnað listasafn í Aspen í Colo-
rado sem hann teiknaði og þá hafa margir
dáðst að „Metal Shutter House“, íbúðablokk í
Chelsea í New York, og verslunarhúsi Cam-
per-skóbúðarinnar við Prince Street í SoHo
þar í borg. Þá hafa afar tilraunakenndar
byggingar eftir hann verið reistar í Japan, til
að mynda hús þar sem útveggirnir eru eins
og sturtutjöld og blakta í vindinum. Eftir jarðskjálfta í L’Aquila á Ítalíu árið 2005 reis þessi glæsti tónleikasalur; veggir sem loft úr pappír.
Ljósmynd/Didier Boy de la Tour
SHIGERU BAN HREPPTI VIRTUSTU ARKITEKTAVERÐLAUNIN FYRIR ÓVENJULEGAR LAUSNIR
Verðlaunabyggingar úr pappa
JAPANSKI STJÖRNUARKITEKTINN SHIGERU BAN HANNAR NEYÐARSKÝLI,
KIRKJUR OG FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR SEM RÍSA Á HAMFARASVÆÐUM VÍÐA
UM LÖND. OFTAST ERU ÞÆR BYGGÐAR ÚR PAPPAHÓLKUM.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
„Pappírsdómkirkjan“ er hún kölluð þessi kirkja Ban í Christchurch í Nýja-Sjálandi.
Metal Shutter House er í Chelsea í New
York og hefur vakið verulega athygli þar.
„Curtain Wall House“ í Tókýó; útveggir blakta.
Shigeru Ban
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.3. 2014
Menning