Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Side 59

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Side 59
30.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59 Elif Shafak er höfundur skáld- sögunnar Heiður. Tvíburasyst- urnar Jamila og Pembe eru fæddar í kúrdísku þorpi. Jamila verður ljósmóðir en Pembe fylgir eiginmanni sínum til London og hjónin verða að velja á milli gamalla hefða og nútímalegs borgarlífs. Elsti son- urinn tekur svo að sér að verja heiður fjölskyldunnar þegar eiginmaðurinn lætur sig hverfa. Höfundur bókarinnar, rithöf- undurinn, blaðamaðurinn og fræðikonan Elif Shafak er fædd árið 1971 og er tyrknesk. Bæk- ur hennar hafa verið þýddar á 39 tungumál og hún hefur hlot- ið verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín. Ólíkir menn- ingarheimar Milan Kundera verður 85 ára þann 1. apríl næst- komandi. Tveimur dögum síðar, þann 3. apríl kem- ur út eftir hann ný skáldsaga hjá Gallimard í París, Franski titillinn á henni er La fete de l’insignifi- ance, Hátíð hins fáfengilega. Sagan gerist í París nútímans á nokkrum dögum í júní og fjallar um mann sem er kominn af léttasta skeiði, heldur að hann sé kominn með krabbamein, fer til læknis til að fá það staðfest, kemst að því að svo er ekki en ákveður samt að láta alla í kringum sig halda að svo sé til að vekja athygli og njóta sam- úðar fólks. Inn í verkið fléttar Kundera síðan ýms- um vangaveltum um frelsi og ábyrgð í ástarmálum, skopskyn stjórnmálamanna og harðstjóra eins og Stalíns. Til stendur að skáldsagan komi út hjá Forlaginu í haust í þýðingu Friðrik Rafnssonar, en hann seg- ir söguna vera bráðskemmtilega og margradda. Fjórtán ár eru frá því Kundera sendi síðast frá sér skáldsögu, en það það var Fáfræðin sem kom út í Frakklandi, og hér á landi sama ár, árið 2000. Í millitíðinni sendi hann frá sér tvö ritgerðarsöfn, Tjöldin (2006) og Kynni (2009). Heildarsafn verka hans kom svo út í hinni virðulegu ritröð, Pleiade, hjá Gallimard árið 2011. NÝ SKÁLDSAGA FRÁ KUNDERA Milan Kundera sendir frá sér nýja bók. Í Berlín í Þýskalandi kom út á dögunum hjá bókaútgáfunni Queich-Verlag ljóða- bókin Das Dorf. Það er Þorpið eftir Jón úr Vör í þýskri þýðingu og með eft- irmála Sigrúnar Valbergsdóttur og Wolfgangs Schiffer. Ljóðin eru prent- uð bæði á íslensku og þýsku. Hana prýða svart-hvítar blýantsteikningar Kjartans Guðjónssonar, sem birtust fyrst í 3. útgáfu Þorpsins á Íslandi árið 1979. Við þýðingu ljóðanna var stuðst við síðustu útgáfu Þorpsins sem kom út árið 1999 hjá Máli og menningu. Þrjú ljóðanna í bókinni höfðu áður birst í þýskri þýðingu í bókmenntatímaritinu Die Horen, Bremerhaven. Þau þýddu Jón Thor Gíslason og Wolfgang Schiffer sem og Magnús Diðrik Baldursson og Wolf Kühnelt. Í kynningu og ítarlegum eftirmála bók- arinnar er gerð grein fyrir íslenskri ljóðagerð og þeim breytingum sem á henni urðu laust fyrir miðja síðustu öld. Greint er frá þeirri sérstöðu sem Þorp- ið hefur ætíð haft í íslenskum bók- menntum. Það gefur útgáfunni aukið vægi að textinn er líka allur á frummál- inu. ÞORPIÐ Á ÞÝSKU Hin fræga ljóðabók Þorpið eftir Jón úr Vör er komin út í Þýskalandi í tvímála útgáfu. Stúlka með maga, skáldætt- arsaga Þórunnar Erlu- og Valdi- marsdóttur, fékk Fjöruverð- launin, bókmenntaverðlaun kvenna og í rökstuðningi sagði: „Rödd sögukonunnar er sterk og frumleg eins og sagan sjálf, hæðin þegar það á við, en líka elsku- og huggunarrík. Það er mikill stráksskapur í textanum og stíllinn er fagur og töfrum slunginn.“ Sannarlega ekki amaleg um- sögn! Verðlaunabók Þórunnar Verðlaunabók, glæpir og ólíkir heimar NÝJAR BÆKUR ÍSLENSKAR SKÁLDSÖGUR SÍÐASTA ÁRS KOMA NÚ HVER Á FÆTUR ANNARRI Í KILJU OG MEÐAL ÞEIRRA ER VERÐLAUNABÓK, STÚLKA MEÐ MAGA. GLÆPASÖGUR ERU VITANLEGA FYR- IRFERÐARMIKLAR OG ÞAR Á MEÐAL ER EIN FINNSK. SKÁLDSAGA EFTIR TYRKNESKAN HÖF- UND ER NÝKOMIN ÚT Í ÍSLENSKRI ÞÝÐINGU. Að gæta bróður míns eftir finnska höfundinn Antti Tuomainen (höf- und Græðarans) fjallar um Klaus sem á föður og afa sem báðir hröktust út í glæpi. Klaus ætlar sér ekki sömu örlög en dag einn er hann rekinn úr vinnunni og kemst að því að litli bróðir selur dóp. Svo er maðurinn sem rak hann myrtur. Hér er á ferð hin ágætasta glæpa- saga sem er á köflum launfyndin. Finnsk saga um glæpi Bókafélagið hefur gefið út bók með uppskriftum að pinnamat. Bókin er í öskju og henni fylgir brauð- og ávaxtaskeri til að móta fallega forrétti og smárétti. Tuttugu og fjórar afar fjölbreyttar uppskriftir eru í bókinni og þar eru einnig leiðbeiningar í fimm skref- um um það hvernig eigi að skera út og móta smá- réttina. Sannarlega skemmtileg viðbót í mat- reiðsluflóruna sem er í miklum blóma nú um stundir Ljúffengur pinnamatur * „Ímyndunarafl er mikilvægaraen þekking.“ Albert Einstein BÓKSALA 19.-25. MARS Allar bækur 1 Hljóðin í nóttinniBjörg Guðrún Gísladóttir 2 Sannleikurinn um mál HarrysQuebert Joël Dicker 3 Kroppurinn er kraftaverkSigrún Daníelsdóttir 4 HHhHLaurent Binet 5 KonungsmorðiðHanne-Vibeke Holst 6 Iceland Small World - lítilSigurgeir Sigurjónsson 7 Marco áhrifinJussi Adler Olsen 8 5:2 mataræðiðMichael Mosley/ Mimi Spencer 9 Skrifað í stjörnurnarJohn Green 10 Verjandi JakobsWilliam Landay Kiljur 1 Sannleikurinn um mál HarrysQuebert Joël Dicker 2 HHhHLaurent Binet 3 KonungsmorðiðHanne-Vibeke Holst 4 Marco áhrifinJussi Adler Olsen 5 Verjandi JakobsWillam Landay 6 SandmaðurinnLars Kepler 7 SkuggasundArnaldur Indriðason 8 Og fjöllin endurómuðuKhaled Hosseini 9 HeiðurElif Shafak 10 ÓlæsinginnJonas Jonasson Listinn er tekinn saman af Eymundsson MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Skammt er milli lífs og dauða.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.