Morgunblaðið - 26.04.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2014
Ráðherrar vinstri stjórnarinnarsálugu minntu á sig og verk
sín í vikunni. Fram var lagt frum-
varp um veiðigjöld sem gerir ráð
fyrir gríðarlegri
umframskattlagn-
ingu á sjávarútveg-
inn, en þrátt fyrir
það heldur minni
skattlagningu en í
ár og talsvert minni
en áform vinstri
stjórnarinnar höfðu
gert ráð fyrir.
Þetta þótti tveim-ur fyrrverandi
ráðherrum í rík-
isstjórn Steingríms
og Jóhönnu ótækt
þegar leitað var
álits þeirra á þessu
nýja veiðigjaldafrumvarpi.
Árni Páll talaði eins og hver ann-ar sem ólst upp í Alþýðu-
bandalaginu og tók fullan þátt í öll-
um skattahækkunum vinstri
stjórnarinnar. Hann harmaði mjög
að ríkisstjórnin skyldi sýna viðleitni
til að slaka ögn á skattaklónni.
Katrín Jakobsdóttir var samasinnis og gætti þess vandlega
að sýna engan skilning á því að at-
vinnulífið þyrfti boðleg starfsskil-
yrði til að hægt væri að halda uppi
velferðarþjónustu.
Þvert á móti taldi hún greinilegaað forsenda velferðarþjónust-
unnar væri að knésetja atvinnulífið
með viðbótarsköttum.
Núverandi stjórnvöld, sem hafafarið sér hægt í að leiðrétta
ofurskattastefnu vinstri stjórn-
arinnar, hljóta að vera þakklát fyr-
ir að ráðherrar þeirrar rík-
isstjórnar skuli reglulega minna á
orðin „you ain’t seen nothing yet“.
Árni Páll
Árnason
Styðja enn gömlu
skattastefnuna
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir
Veður víða um heim 25.4., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 6 rigning
Akureyri 10 skýjað
Nuuk -5 léttskýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Ósló 13 heiðskírt
Kaupmannahöfn 15 heiðskírt
Stokkhólmur 12 heiðskírt
Helsinki 13 heiðskírt
Lúxemborg 18 léttskýjað
Brussel 20 léttskýjað
Dublin 13 léttskýjað
Glasgow 10 skýjað
London 13 skúrir
París 12 alskýjað
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 21 heiðskírt
Berlín 21 heiðskírt
Vín 16 skúrir
Moskva 13 heiðskírt
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 18 léttskýjað
Aþena 21 léttskýjað
Winnipeg 1 súld
Montreal 6 skýjað
New York 15 heiðskírt
Chicago 13 léttskýjað
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:17 21:35
ÍSAFJÖRÐUR 5:08 21:54
SIGLUFJÖRÐUR 4:51 21:37
DJÚPIVOGUR 4:43 21:08
Þessir kylfingar í Golfklúbbnum
Kili í Mosfellsbæ nutu ávaxta erfiðis
síns en þá atti kappi hópur fé-
lagsmanna sem hjálpaði starfs-
mönnum að undirbúa opnun vall-
arins fyrr í vikunni.
Íslenskir golfáhugamenn iða í
skinninu en grasið á golfvöllum
landsins er nú að vakna af löngum
vetrardvala. Á fyrstu völlunum er
nú byrjað að opna inn á sumarflat-
irnar, aðallega á þeim sem standa
næst sjávarsíðunni enda fer frost
fyrst úr jörðu þar.
Mót voru haldin í tilefni sum-
ardagsins fyrsta, hjá Kili, á Hellu,
Golfklúbbi Brautarholts á Kjal-
arnesi, í Leirunni á Suðurnesjum og
á Hornafirði.
Fleiri mót eru svo á dagskránni
um helgina, meðal annars á Akra-
nesi, í Hveragerði og í Grindavík.
Morgunblaðið/Kristinn
Golfvellir opnaðir
hver af öðrum
Hafrannsóknastofnun og Náttúru-
auðlindastofnun Grænlands undir-
rituðu í gær samstarfssamning.
„Samningurinn er gerður til að
styrkja samstarf stofnananna á
sviði haf- og fiskirannsókna, eink-
um á hafsvæðinu milli Grænlands
og Íslands og á sameiginlegum
fiskistofnum þessara nágranna-
þjóða,“ segir í frétt Hafrannsókna-
stofnunar.
Gert er ráð fyrir sameiginlegum
rannsóknaverkefnum, gagn-
kvæmum skiptum á sérfræðiþekk-
ingu og starfsmönnum o.fl. Fyrsta
samstarfsverkefnið samkvæmt
samningnum verður makrílrann-
sókn á rs. Árna Friðrikssyni.
Samvinna við Grænlendinga um rann-
sóknir á sviði haf- og fiskirannsókna
Sjávarútvegsráðherra Undirritaði
samninginn fyrir hönd Íslands.