Morgunblaðið - 26.04.2014, Page 30

Morgunblaðið - 26.04.2014, Page 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2014 Svavar Tómas- son var góður vinur og við erum svo heppin að eiga fullt af góðum minningum um þennan frábæra vin. Hvernig má það vera að hann sé farinn frá okkur? Þetta er ósanngjarnt, hann sem gerði allt svo rétt, hann tók ekki óþarfa áhættu, hann var ekki glanni, hugsaði vel um heilsuna og fjölskyldan var honum allt. Svavar var mikið hjá okkur Steina þegar við byrjuðum að búa, hann skrifaði alltaf í gestabókina áður en hann fór og eigum við fulla bók með sögum af honum sem er okkur kærkomin minning. Vinahópurinn hittist oft fyrir og eftir böll í Stangarholtinu þar sem Svavar bjó en þaðan var stutt að ganga í Þórskaffi. Ákveðin festa var í gangi þegar Svavar bjó þar; á miðvikudögum var vaskað upp og á sunnudögum var farið í ísbíltúr. Þessu var ekki haggað. Eftir ísbíltúrana var stundum endað í Skildinganesinu hjá Írisi mömmu hans og fengu þá allir pönnukökur. Svavar var góður sonur og voru sterk bönd á milli hans og mömmu hans og tók hún vinahópnum hans eins og hún ætti okkur öll. Svavar og Ransý voru höfð- ingjar heim að sækja og alltaf svo gott að koma til þeirra. Það er hægt að segja að þau hafi haldið vinahópnum saman því þau voru dugleg að fara í heim- sóknir og ennþá duglegri að kalla á okkur í mat og kaffi. Það var mikið talað og hlegið þegar vina- hópurinn kom saman, allir að keppast við að segja frá sínu og sínum. Svavar var duglegur að fylgjast með hvað aðrir voru að gera og samgladdist þegar vel gekk. Það var líka yndislegt að ferðast með honum þegar hann var með 7“ appelsínugula sjón- varpstækið með hinar ýmsu gerðir af loftnetum og þurftum við að stoppa þar sem hann náði útsendingu á fréttum því ekki gat hann haldið áfram án þess að sjá þær. Fréttatímarnir voru heilagar stundir! Það var gaman að gefa Svav- ari að borða, hann elskaði að borða góðan mat, kökur og brauðrétti. Hann var mjög stundvís og mætti alltaf á þeim tíma sem hann sagðist ætla að mæta á. Skemmtilegustu símtöl- in voru á afmælisdögunum, 5. júní, þegar Svavar átti afmæli en þá hringdi Steini í hann glað- hlakkalegur og sagði honum hvað hann væri orðinn eldgamall og hvað hann væri nú heppinn að eiga svona ungan vin. Svo hlógu þeir rosalega að þessum brand- ara sínum fram til 13. september þegar Steini átti afmæli en þá Svavar Sæmundur Tómasson ✝ Svavar Sæ-mundur Tóm- asson fæddist í Kópavogi 5. júní 1959 og lést þann 13. apríl 2014. Svavar var jarð- sunginn frá Bú- staðakirkju 25. apr- íl 2014. hringdi Svavar og leikurinn endurtók sig. Svavar og Ransý voru falleg hjón og eiga þau þrjú ynd- isleg börn, tvo tengdasyni, þrjú barnabörn og eitt á leiðinni. Það er ynd- islegt að sjá hvað þau eru öll miklir vinir og styðja hvert annað á þessum erfiða tíma. Ransý verður ekki ein að eiga svona góðan hóp í kringum sig. Við eigum ekki eftir að sætta okkur við það að Svavar sé farinn en við verðum að reyna að læra að lifa með sorginni. Hann var besti vinur minn en nú er hann farinn og ég finn engan annan eins og hann þennan mann … (Höf: Ingólfur Þórarinsson) Elsku Ransý, börn, tengda- börn, barnabörn, faðir, bræður, tengdaforeldrar, ættingjar og vinir; við kveðjum með sár í hjarta og fallegar minningar um okkar besta vin. Hjördís, Steini og börn. Elsku Svavar, það er ótrúlegt að þú sért ekki lengur meðal okk- ar. Það er erfitt og skrítið að þurfa að skrifa þessi orð svo snemma á lífsleiðinni. Það var svo margt sem við áttum eftir að gera saman. Þú varst okkur allt- af svo traustur og mikill vinur. Stundum tekur lífið stefnu sem er algjörlega óskiljanleg, óréttlát og ómögulegt að sætta sig við hana. Það var það sem gerðist þegar við fengum fréttirnar um að elsku besti Svavar okkar væri farinn. Þetta gat ekki verið satt, mátti ekki vera satt. Sérstaklega í ljósi þess að varkárni og öll ör- yggismál voru honum svo mik- ilvæg. Svavar hefur verið stór og mikilvægur hluti af lífi okkar í mörg ár. Það er svo erfitt og ólýsanlega sárt að hugsa til þess að hann sé farinn frá okkur. Hann var besti vinur sem hægt er að hugsa sér, traustur, fynd- inn, staðfastur og alltaf hann sjálfur. Við fyrstu kynni myndaðist strax sterkur vinskapur milli okkar hjóna. Börnin okkar tengdust einnig sterkum vina- böndum í gegnum vinskap okkar. Það leið varla sá dagur að Guð- finnur og Svavar heyrðust ekki í síma eða hittust. Elsa og Ransý gerðu oft grín að því að þeir væru kjaftakerlingarnar en ekki þær, því þeir gátu talað endalaust í síma þó svo að það væri ekki nema ein gata á milli okkar. „Eigum við ekki frekar að labba yfir til þeirra í ostaveislu frekar en að þið talið saman í síma í all- an dag,“ stungum við Ransý ekki svo sjaldan upp á. Við töluðum oft um það hvað vinátta okkar hjóna við Svavar og Ransý væri einstök og við heppin að hafa þessa vináttu. Þökkum fyrir allar stundirnar sem við höfum átt saman í gegn- um tíðina. Allar gönguferðirnar, ostaveislurnar, matarveislurnar, dansinn, útilegurnar, utanlands- ferðirnar, veiðiferðirnar, skíða- ferðirnar, vélsleðaferðirnar og allt hitt. Hans verður sárt sakn- að; brosið, krafturinn, gleðin og háværi hláturinn. Missirinn er mikill og söknuðurinn óbærileg- ur. Elsku Ransý, börn, tengda- börn og barnabörn, við vottum ykkur öllum okkar dýpstu sam- úð. Guðfinnur Már Árnason, Elsa María Hallvarðs- dóttir og fjölskylda. Við andlátsfregn góðs og kærs vinar er eins og tíminn stöðvist um stund. Þannig leið okkur þeg- ar við fréttum að elsku Svavar okkar hefði látist af slysförum langt um aldur fram. Við kynntumst Svavari fyrir rúmum 30 árum þegar hann og Ransý fóru að vera saman. Við gerðum okkur strax grein fyrir því að Ransý hafði fundið sér yndislegan mann sem tók Önnu Hlíf sem sína eigin dóttur. Við svona sorglegan atburð látum við hugann reika og marg- ar ljúfar minningar skjóta upp kollinum, glefsur frá ýmsum tímaskeiðum sem við komum til með að varðveita í huga okkar um ókomna tíð. Svavar hafði mjög góða nærveru og var alltaf tilbúinn að rétta öllum hjálpar- hönd. Það fylgir því mikil sorg og söknuður að þurfa að horfa á eft- ir svo yndislegum manni í blóma lífsins yfirgefa þessa jarðvist svona snemma. Við héldum alltaf að við fengjum að eldast saman og að Svavar yrði allra karla elst- ur. Mikil vinátta og tengsl hafa alla tíð verið á milli fjölskyldna okkar og höfum við brallað fjöl- margt saman gegnum árin. Ávallt reyndum við að skipu- leggja fríin okkar saman því það var alltaf svo gaman þar sem Svavar, Ransý og krakkarnir voru. Saman höfum við ferðast um landið þvert og endilangt. Í þessum ferðum hafði Svavar ákveðið hlutverk sem var að hella upp á kaffi fyrir Aggý, hún þurfti ekki annað en að senda sms og þá var kaffið klárt innan stundar. Við ferðuðumst líka mikið saman erlendis og eigum æðislegar minningar úr þeim ferðum. Ógleymanleg er ferðin þegar við keyrðum saman frá Danmörku til Spánar og eyddum saman frá- bærum tíma í Rósakoti. Það var alltaf stutt í húmorinn hjá Svavari og gerði hann óspart grín að sjálfum sér og öðrum ef svo bar undir. Seint gleymist þegar við vorum á Spáni eitt sinn og hann keypti sér Nike dress frá toppi til táar, já ekki má gleyma Nike-úrinu, kannski mest til að stríða Önnu Hlíf og Októ því þau voru svo mikið Adi- das fólk. Á heimili Ransýar og Svavars kynntust margir ein- stakri gestrisni þeirra hjóna. Þau höfðu það sem hefð að halda allt- af veislur þegar þau áttu afmæli, því þeim fannst svo gaman að fá vini og fjölskyldu til sín. Þegar við bjuggum í Svíþjóð og komum heim, þá bjuggum við hjá þeim. Við fermdum hana Berglindi okkar á Íslandi á þessum árum og var veislan haldin heima hjá þeim hjónum. Svavar var mjög mikill vinur barna sinna og fjölskyldna þeirra, þau gátu alltaf leitað til hans með allt. Það var ósjaldan sem Áslaug Svava hringdi í pabba sinn og spurði hvort að þau ættu ekki að hittast og borða saman í hádeginu, auðvitað var Svavar ekki lengi að mæta á staðinn. Tommi og Svavar voru miklir vinir og með mörg sameig- inleg áhugamál svo sem veiði- og snjósleðaferðir. Svavar naut sín einnig að fullu í afahlutverkinu. Svavar var frábær eiginmaður, pabbi, tengdapabbi, afi og félagi. Það eru algjör forréttindi að hafa átt hann að sem ástvin. Elsku Ransý, Anna Hlíf, Októ, Tommi, Áslaug, Siggi, barna- börn, Tommi og Ester. Við send- um ykkur hugheilar samúðarósk- ir og hlýjar hugsanir á þessum erfiðu tímum. Agnes og Birgir. Mikið er það óraunverulegt að sitja hér og skrifa minningar- grein um elsku Svavar okkar. Svavar hefur alltaf verið stór hluti af okkar lífi og við höfum eytt með honum óteljandi skemmtilegum og yndislegum stundum. Við söknum hans mikið og hann skilur eftir sig stórt skarð í lífi okkar allra. Það er ómögulegt að lýsa því í rituðu máli hversu vænt okkur þykir um Svavar. Hann var alltaf svo góður, hress og fyndinn og gerði allar stundir skemmtilegri. Við erum svo heppin að hafa fengið að eyða svona miklum tíma með honum og fjölskyldunni hans. Yndislegri fjölskyldu er ekki hægt að finna. Ransý og Svavar hafa oft reynst okkur eins og foreldrar, þau voru alltaf til staðar og vildu allt fyrir okkur gera. Í ljósi þess hversu nánar fjölskyldur okkar eru, hafa myndast gríðarlega sterk vin- áttubönd milli okkar og barna Ransýar og Svavars, vináttubönd sem munu vara að eilífu. Okkur eru sérstaklega minn- isstæðar allar utanlandsferðirn- ar, Keisbakkaferðirnar og útileg- urnar sem við fórum í með Svavari, Ransý og krökkunum. Þessar ferðir einkenndust af hlátri og gleði og þar stjórnaði Svavar ávallt ferðinni með skemmtilegum sögum, bröndur- um og gríðarlega smitandi hlátri. Utanlandsferðirnar sem við fór- um í voru margar, Evrópureisan, nokkrar ferðir í Rósakot og ferð- in til Calpe. Við munum aldrei gleyma því þegar við sátum sam- an í lestinni í París seint um kvöld eftir heilan dag í Euro- Disney garðinum og Svavar nýtti sér galsann sem við vorum í og þuldi upp brandara eftir brand- ara. Indjánahöfðinginn, Nónó- dýrin, Snati o.fl. gerðu það að verkum að við grenjuðum öll úr hlátri alla leiðina. Í einni Spánarferðinni keyrði Svavar í klukkutíma í öfuga átt í steikjandi sól og miklum hita. Honum fannst það nú ekki mikið mál og hló bara að þessu, en við krakkarnir sömdum lýsandi texta við lag KK honum til heið- urs á meðan við sátum sveitt í aftursætunum: „… það kostar svita og blóð að fara Svabbaslóð.“ Í einni Keisbakkaferðinni feng- um við krakkarnir Svavar til þess að reyna að gera við gamlan raf- magnsbíl sem hafði fylgt með Keisbakka. Svavar hafði litla trú á verkefninu enda bíllinn æva- gamall en við höfðum mikla trú á okkar manni. Til þess að hvetja Svavar áfram var sungin vísan „Svabbi Svabbi, he‘s the man, if he can‘t do it, no one can“. Þessi hvatning varð til þess að honum tókst að koma bílnum í gang en jómfrúrferðin endaði snögglega eftir aðeins 14 metra akstur, þeg- ar bíllinn gaf endanlega upp önd- ina. Ekki voru gerðar fleiri til- raunir til að koma bílnum í gang, en þessi hvatningarvísa hefur verið notuð í ófá skipti við aðrar skemmtilegar aðstæður eftir það. Allar yndislegu minningarnar með Svavari og fjölskyldu munu lifa með okkur um ókomna tíð. Elsku Ransý, Anna Hlíf, Októ, Tómas, Áslaug, Siggi, barnabörn og aðrir ástvinir. Við og makar okkar sendum ykkur okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Hvíl þú í friði, elsku Svavar okkar. Berglind, Kalli og Ingvar.  Fleiri minningargreinar um Svavar Sæmund Tóm- asson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar og frænda, HALLDÓRS KRISTINS GÍSLASONAR, Kidda í Sjólyst, Steinholtsvegi 6, Eskifirði. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki gjörgæsludeildar Landspítalans og Fjórðungssjúkrahússins á Neskaupsstað fyrir einstaka umhyggju og hlýhug. Bjarki Gíslason og systkini. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar INGVELDAR GÍSLADÓTTUR frá Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til Ásgerðar Sverrisdóttur læknis, Heimaþjónustu Karitasar og starfsfólks líknar- og krabbameinsdeildar Landspítalans. Fyrir hönd barna, tengda- og barnabarna, Eyjólfur Pétursson. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför systur minnar, mágkonu og frænku, ÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR, hússtjórnarkennara, Reynimel 36. Jóhannes Guðmundsson, Guðrún María Tómasdóttir, Jóhanna Guðbjörnsdóttir, Þuríður Guðbjörnsdóttir, Tómas Jóhannesson, Helgi Jóhannesson, Sigríður Jóhannesdóttir, Guðmundur Þorri Jóhannesson og fjölskyldur. ✝ Ástkær fósturbróðir minn og vinur, ÁSMUNDUR JÓNSSON, Hofsstöðum, Mývatnssveit, verður jarðsunginn frá Skútustaðakirkju föstudaginn 2. maí kl. 14.00. Ásdís Ásgeirsdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN SNORRI ÞORLEIFSSON, lést föstudaginn 21. mars. Við þökkum hlýhug og samúð allra sem heiðrað hafa minningu hans. Arndís Jónsdóttir, Arnaldur Valgarðsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Sigurgeir Steingrímsson, Sigrún Jónsdóttir, Stefán Magnússon, Björk Jónsdóttir, Kjartan Jóhannsson, Jóhanna Jónsdóttir, Bo Hedegaard Knudsen, Sturla Þór Jónsson, Einar Örn Jónsson, Birna Ósk Hansdóttir, afa- og langafabörn. ✝ Vil færa alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengda- föður, afa, langafa og langalangafa, HARALDAR HERMANNSSONAR frá Yzta-Mói, Fljótum, Sauðármýri 3, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á lyflækningadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og starfsfólki á deild 1 á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki fyrir einstaka nærgætni, alúð og hlýju í umönnun. Guðmunda Hermannsdóttir og fjölskylda. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu fjölskyldunni samhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, SÓLVEIGAR ÁRNADÓTTUR, Borgarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar fyrir hlýju og umhyggju. Eggert Margeir Þórðarson, Júlíanna Júlíusdóttir, Theódór Kristinn Þórðarson, María Erla Geirsdóttir, Guðrún Þórðardóttir, Gylfi Björnsson, ömmu- og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.