Morgunblaðið - 26.04.2014, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2014
Margar tillögur eru af veitingum á
heimasíðu okkar. Einnig er hægt að
panta einstaka rétti eða eftir óskum.
Veislusalur okkar er bjartur og fallegur
salur á jarðhæð, gott aðgengi.
Öll þjónusta, kaffi og gos eru innifalin í
verði þegar erfidrykkja er í sal.
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is ·www.veislulist.is
Veitingar í erfidrykkjur
af öllum stærðum, hvort sem er í veislusal
okkar, í aðra sali eða í heimahús.
Skútan
Ég ætla að sjá Maximús í Hörpu með strákunum mínum tveimurog um kvöldið fer í ég út að borða með manninum mínum, þaðer að segja ef ég fæ pössun, þá yrði líka mjög gaman að kíkja í
heimsókn til vina okkar um kvöldið sem eiga líka afmæli,“ segir Marín
Þórsdóttir sem er 37 ára í dag. Hún er mannfræðingur að mennt og
starfaði lengi hjá Rauða krossinum. Hún segist vanalega halda upp á
daginn og bjóða vinum og fjölskyldu til sín en að þessu sinni verður
það undan að láta þar sem dagskráin á afmælisdaginn er fullskipuð.
Marín er í sambúð og á tvo stráka, tveggja og fimm ára. Nýverið gaf
hún út heklbókina, Heklað fyrir smáfólkið. Þar eru hinar ýmsu upp-
skriftir fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna af alls konar hekluðum
dýrum, geimverum og vélmennum auk fylgihluta. Marín heldur hekl-
námskeið á næstunni fyrir þá sem vilja ná tökum á Amigurumi hekl-
aðferðinni. Þá munu uppskriftir eftir hana birtast í annarri heklbók
sem kemur út hjá Forlaginu á þessu ári. Marín hefur alltaf haft mikinn
áhuga á handavinnu. Hún fékk mjög jákvæð viðbrögð við hekluðu fí-
gúrunum sínum og var oft spurð hvort hún vildi selja þær. „Mér finnst
almennt ekki mikið borgað fyrir svona handverk, því fannst mér mun
betri hugmynd að kenna öðrum að búa þetta til sjálfir.“ Hún segir
strákana sína vera endalausa uppsprettu hugmynda. „Ef þeir vilja t.d.
eignast kolkrabba þá bý ég hann til fyrir þá.“ thorunn@mbl.is
Marín Þórsdóttir er 37 ára
Í strákafansi Marín og synirnir Högni 5 ára og Heimir 2 ára.
Heklar fígúrur
fyrir smáfólkið
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Vinkonurnar Þóra
Rún Þórsdóttir,
Pálína Björk M.
Pálsdóttir og Að-
alheiður Una Sig-
urbjörnsdóttir
gengu í hús og
söfnuðu munum til
að selja og bjuggu
einnig til listaverk
til að selja sjálfar.
Þær söfnuðu 15.473
krónum til handa
hjálparstarfi Rauða
krossins.
Söfnun
Akranes Aníta Ösp fæddist 14. júlí.
Hún vó 3.755 g og var 53 cm löng. For-
eldrar hennar eru Ingibjörg Kristín B.
Gestsdóttir og Guðbjartur Þ. Jóhann-
esson.
Nýir borgarar
Reykjavík Margrét Birta fæddist
19. júní kl. 2. Hún vó 3.425 g og var 50
cm löng. Foreldrar hennar eru Sig-
urður James Þorleifsson og Ólöf
Birna Margrétardóttir.
B
jörn fæddist í Reykjavík
26.4. 1964 og ólst þar
upp í Vesturbænum.
Hann var í Melaskóla
og Hagaskóla, lauk
stúdentsprófi frá MR 1984, embætt-
isprófi í læknisfræði frá HÍ 1990, öðl-
aðist almennt lækningaleyfi á Íslandi
1992, í Svíþjóð 1994 og í Noregi 1997,
öðlaðist sérfræðileyfi í bækl-
unarskurðlækningum í Svíþjóð 1996
og á Íslandi 1997 og varð dr.med. frá
Gautaborgarháskóla 1998.
Á námsárunum var Björn aðstoð-
arlæknir á Borgarspítalanum,
Reykjalundi og á Heilsugæslustöð-
inni á Hólmavík, var kandidat á
Reykjalundi, Borgarspítala og
Landakotsspítala og aðstoðarlæknir
við sérfræðinám á Borgarspítala og
Sahlgrenska Universitetssjukhuset í
Gautaborg, síðan sérfræðingur þar
frá 1996 og yfirlæknir frá 1999-2002.
Björn var síðan yfirlæknir við Land-
spítala – Háskólasjúkrahús 2002,
varð sviðsstjóri skurðlækninga þar
2005, framkvæmdastjóri lækninga á
LSH 2007-2008, leysti af sem for-
stjóri LSH 2008, framkvæmdastjóri
lækninga 2008-2009 og forstjóri
Landspítalans 2009-2013. Hann er nú
forstjóri Nextcode Health Iceland frá
hausti 2013.
Björn sinnti kennslu í bækl-
unarskurðlækningum fyrir sjúkra-
og iðjuþjálfara við Gautaborgarhá-
skóla 1994-97 og í hryggjarskurð-
lækningum frá 1998-2002. Hann er
klínískur prófessor við læknadeild
Háskóla Íslands frá 2008 og hefur
kennt á fjölda námskeið víða um
heim.
Björn æfði og keppti í knatt-
spyrnu, handbolta og körfubolta með
Val á unglingsárunum, lék rúmlega
250 meistaraflokksleiki með Val í
körfubolta og varð þá Íslands-, bikar-
Björn Zoëga, forstjóri Nextcode Health Iceland – 50 ára
Fjölskyldan Jón Gunnar, Guðrún Lilja, Harpa, Una Sigrún, Árni Bergur, Björn og Sigurbjörn í Umbríu á Ítalíu árið 2011.
Valsari úr Vesturbænum
Hjónin Björn Zoëga og Harpa Árnadóttir stödd í Arnarfirði.