Morgunblaðið - 03.07.2014, Side 2

Morgunblaðið - 03.07.2014, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Brynjólfur Þorkelsson Framkvæmdastjóri binni@remax.is Sylvía GWalthersdóttir Löggiltur fasteignasali sylvia@remax.is „...veittu mér framúrskarandi þjónustu í alla staði“ „Katrín heiti ég. Þau hjónin Binni og Sylvía sáu um að selja húsið mitt sumarið 2013 og veittu mér framúrskarandi þjónustu í alla staði. Haldið var opið hús þar sem þau sáu um að bjóða fólkið velkomið og fylgdu opna húsinu svo eftir en það leiddi til sölu sem allir voru sáttir við. Ég mæli hiklaust með þessum sætu hjónum“ 820 8080 Hringdu núna ogpantaðu frítt söluverðmat Guðni Einarsson Guðmundur Magnússon Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarút- vegsráðherra segir að hann hafi talið eðlilegra að hlutdeildarsetja makríl, þ.e. að miða við veiðireynslu, og það hafi komið til álita í ráðuneytinu að gera það í vetur sem leið. „Við féllum hins vegar frá því þar sem málið var þá komið til umboðs- manns Alþingis og okkur fannst skynsamlegra að bíða eftir leiðbein- ingum hans,“ sagði ráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. Eins og fram kom í blaðinu í gær hefur umboðsmaður Alþingis komist að þeirri niðurstöðu að sú ákvörðun stjórnvalda að hlutdeildarsetja ekki makrílstofninn árin 2011 til 2013 hafi ekki verið í samræmi við lög. Um- boðsmaður tók málið fyrir vegna kvörtunar tveggja útgerðarfélaga sem telja sig hafa orðið fyrir skaða af þessum sökum. Ætla fyrirtækin að sækja bætur vegna málsins. Sigurður Ingi sagði að það væri nú til skoðunar í ráðuneytinu hvernig standa ætti að því að hlutdeildarsetja makríl í sam- ræmi við álit umboðsmanns. Vandinn væri sá að ekkert væri um það fjallað í álitinu hvernig bregðast ætti við væntingum þeirra sem fengið hafa út- hlutanir frá 2010. Ráðherra vildi ekk- ert tjá sig um skaðabótaskyldu stjórnvalda. „Þetta er það sem við höfum haldið fram frá upphafi, að ráðherra hafi borið að setja makrílinn í hlutdeild. Við teljum að lögin séu algjörlega skýr um það og að öllum hefði átt að vera það ljóst frá upphafi að sú aðferð sem farið var af stað með og síðan við- haldið sé í andstöðu við ákvæði laga,“ sagði Kolbeinn Árnason, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna (LÍÚ), um álit umboðsmanns Alþingis um úthlutun makríls. Hann sagði að bæði LÍÚ og einstakir útgerðarmenn hefðu oft far- ið yfir þessi mál með sjávarútvegs- ráðuneytinu. Kolbeinn sagði að ef menn hefðu viljað fara einhverja aðra leið en lög kveða á um þá hefðu þeir þurft að breyta lögunum, áður en réttindi samkvæmt þessu öllu saman stofnuð- ust. „Fyrst svo var ekki gert þá þurfa menn að leysa hnút sem er orðinn nokkuð harður,“ sagði Kolbeinn. Þar átti hann við þær útgerðir sem áttu að fá meira úthlutað samkvæmt lögum en þær svo fengu samkvæmt reglum sem ráðherra setti og urðu líklega fyrir tjóni þess vegna. Kolbeinn sagði að LÍÚ hefði ekki fyrirsvar fyrir einstakar útgerðir varðandi mál af þessu tagi, þ.e. að meta hvort útgerðir hafi orðið fyrir tjóni og ef svo er að sækja bætur fyrir það tjón fyrir dómstólum. Það verði útgerðirnar að gera í eigin nafni. Kol- beinn segir að LÍÚ muni hins vegar þrýsta á að stjórnvöld fari að lögum. Eðlilegra að miða við veiðireynslu  Álit umboðsmanns um makrílveiðar til frekari skoðunar í ráðuneytinu Morgunblaðið/Styrmir Kári Makríll Vinnslustöðin og Ísfélag Vestmannaeyja sendu umboðsmanni Al- þingis kvartanir vegna þess hvernig stjórnvöld úthlutuðu makrílkvótanum. Úthlutun makríls » Umboðsmaður Alþingis tel- ur að sú ákvörðun stjórnvalda að miða ekki við veiðireynslu á makríl árin 2011, 2012 og 2013 hafi verið ólögleg. » Framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vest- mannaeyjum telur að fyrir- tæki sitt hafi orðið fyrir um tveggja milljarða tjóni vegna þess að það hafi ekki fengið að veiða og vinna það magn af makríl sem fyrirtækið hafi átt rétt á. Betur fór en á horfðist í höfuðstöðvum Matís í Grafar- holti í gær, þegar mótor á loftpressu hafði brunnið yfir. Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað á vettvang en mikinn reyk lagði frá húsinu. Mikill viðbúnaður var hafður vegna eldfimra efna og gastegunda í húsinu. Reykræsting tók um einn tíma. Allt tiltækt slökkvilið kallað að Matís í Grafarholti Morgunblaðið/Þórður Mikill viðbúnaður vegna sprengihættu „Kjaraviðræðum miðar lítið áfram. Ekki virðist vera mikill samnings- vilji hjá Icelandair,“ segir Maríus Sigurjónsson, formaður Flugvirkja- félags Íslands. Flugvirkjar aflýstu verkfalli 18. júní þegar fyrir lá að setja ætti lög- bann á verkfallið. Aðspurður hvort búast megi við öðru verkfalli bráð- lega segir Maríus að svo geti verið. „Ef ekkert gengur fer að líða að öðru verkfalli. Við höfum ekki ákveðið neitt enn sem komið er, en þolinmæðin er ekki endalaus. Við- ræðurnar ganga illa.“ Þá bætir Mar- íus við að innanríkisráðherra hafi gefið í skyn að lagt verði lögbann á verkfall flugvirkja eigi það sér stað aftur. Í kjaradeilunum fer Icelandair meðal annars fram á breytingar á vaktakerfi flugvirkja, innleiðingu á meiri vaktavinnu á viðhaldsstöðinni en flugvirkjar vilja láta meta aukna ábyrgð til launa. Icelandair sendi frá sér tilkynn- ingu þar sem fram kom að bein áhrif vegna aðgerða flugvirkja hefðu kost- að fyrirtækið 399 milljónir króna. Næsti fundur í kjaraviðræðunum fer fram í dag. isb@mbl.is „Kjaraviðræðum miðar lítið áfram“  Flugvirkjar svartsýnir á framhaldið Morgunblaðið/Ómar Flug Icelandair tapaði 399 m. kr. vegna aðgerða flugvirkja í júní. Lögmæti ein- stakra samninga sem trygginga- miðlarar hafa gert fyrir hönd erlendra trygg- ingarfélaga mun skýrast á morgun þegar gjald- eyriseftirlit Seðlabanka Ís- lands sendir miðl- urunum bréf með skýringum þar að lútandi. Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri SVÞ, staðfesti þetta í samtali við mbl.is eftir fund með starfsmönnum Seðlabankans í gær. Reglum um gjaldeyrismál var breytt hinn 19. júní sl. til að stöðva söfnun óheimilis sparnaðar erlendis á vegum tryggingarfélaga. Síðan hefur ríkt óvissa um áhrif breyting- anna á lögmæti einstakra samninga tryggingamiðlara, þar með taldar líf- og sjúkdómatryggingar sem eru tengdar sparnaði. Tugþúsundir Íslendinga eru með samninga við tryggingamiðlara. Andrés segir brýnt að valda ekki frekari óróa á markaðnum. Fundað um tryggingar Andrés Magnússon Fyrstu sex mánuðir ársins hafa ver- ið óvenjuhlýir og aðeins þrisvar ver- ið hlýrri í Reykjavík frá upphafi samfelldra mælinga 1871, sam- kvæmt yfirliti Trausta Jónssonar á vef Veðurstofunnar. Hlýrra var á fyrri hluta áranna 1964, 1929 og 2003. Á Akureyri hafa fyrstu sex mánuðir ársins aðeins tvisvar verið hlýrri frá 1882, þ.e. 1964 og 1974. Munur á hita fyrstu sex mánaði ársins á Akureyri nú og árin 1929 og 2003 er að sögn Trausta ómarktækur. Á Akureyri hefur úrkoma aðeins einu sinni áður mælst meiri fyrstu sex mánuði ársins en nú. Það var 1989. Úrkoman hingað til er nú um 50% umfram meðallag og hefur náð 70% af meðalársúrkomu. Sólskinsstundir það sem af er ári eru um 50 færri á Akureyri en að meðaltali 1961 til 1990. Í Reykjavík eru sólskinsstundir ríflega 40 stund- um færri en að meðaltali sama tíma- bil en 180 stundum færri en að með- altali fyrstu sex mánuði ársins síðustu 10 árin, 2004 til 2013. Morgunblaðið/Styrmir Kári Veður Fyrri hluti ársins góður. Með mestu hlýindum frá upphafi  Aðeins þrisvar verið hlýrra frá 1871 Kona var flutt á sjúkrahús eftir að eldur kom upp í íbúð hennar í fjöl- býlishúsi í Jörfabakka í Breiðholti í gærmorgun. Ekki fengust upplýs- ingar um líðan konunnar í gær- kvöldi. Eldsupptök eru óljós en greiðlega gekk að slökkva eldinn, sem kom upp í stofunni. Slökkvilið frá tveimur stöðvum á höfuðborgarsvæðinu var kallað á staðinn um kl. 10 í gærmorgun. Kona á sjúkrahús eftir eld í fjölbýli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.