Morgunblaðið - 03.07.2014, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014
3 m/s - raforkuframleiðsla hefst 15 m/s 28 m/s 34 m/s - raforkuframleiðsla stöðvastKjöraðstæður til raforkuvinnslu
Það er allt í lagi
að það blási svolítið
Í Búrfellsstöð við Þjórsá er gagnvirk orkusýning og skammt
norður af stöðinni eru fyrstu vindmyllur Landsvirkjunar.
Þeim er ætlað að veita vísbendingar um framtíðarmöguleika
í beislun íslenska roksins. Við vonum auðvitað að sumarið
verði gott en okkur finnst líka allt í lagi þó það blási hressilega
í 50 metra hæð yfir hraunsléttunni fyrir norðan Búrfell.
Gagnvirk orkusýning í Búrfellsstöð er opin alla daga kl. 10-17.
Einnig tekur starfsfólk á móti gestum við vindmyllurnar norðan
Búrfells alla laugardaga í júlí kl. 13-17.
Jarðvarmasýning í gestastofu Kröflu er skemmtilegur áfangastaður
fyrir norðan. Þar er opið alla daga kl. 10-17.
Við Kárahnjúkastíflu tekur leiðsögumaður á móti gestum alla
miðvikudaga og laugardaga kl. 14-17.
Velkomin í heimsókn í sumar!
www.landsvirkjun.is/heimsoknir
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sala á nýjum vörubílum tók mikinn
kipp á fyrri helmingi ársins í saman-
burði við sömu mánuði í fyrra.
Þannig seldust 44 nýir vörubílar
fyrstu sex mánuði ársins en 28 sömu
mánuði í fyrra, eins og sýnt er á graf-
inu hér til hliðar. Það er 57% aukn-
ing í sölu milli ára.
Tölurnar eru sóttar í greiningu
Brimborgar og segir Egill Jóhanns-
son, forstjóri fyrirtækisins, að reikna
megi með að nýr vörubíll kosti að
meðaltali um 20 milljónir.
Samkvæmt því keyptu íslensk
fyrirtæki nýja vörubíla fyrir tæplega
900 milljónir króna á fyrri hluta árs-
ins. Tekið skal fram að nær engin
þeirra eru í byggingariðnaði.
Nýjar rútur kosta 40 milljónir
Að sögn Egils má áætla að ný rúta
kosti að meðaltali 40 milljónir króna
en notuð rúta 15-20 milljónir og er
síðarnefnda talan
lauslega áætluð.
Egill telur sölu-
aukninguna í nýj-
um vörubílum til
marks um bata í
hagkerfinu, enda
sé um verulega
fjárfestingu að
ræða.
Hann tekur
fram að langflest-
ir þessara vörubíla séu flutningabíl-
ar, auk þess sem eitthvað sé um
dráttarbíla og sorpbíla. Innflutning-
ur á vörubílum til efnisflutninga hafi
hins vegar enn ekki tekið við sér.
„Nú eru nánast engir nýir vörubílar
fluttir inn sem eru með palli og ætl-
aðir til efnisflutninga. Að jafnaði
hafa samtals selst 150-200 vörubílar
á ári, flutningabílar og vörubílar með
palli. Það hefur aldrei áður orðið jafn
langt samdráttarskeið í sölu á vöru-
bílum og hefur verið frá efnahags-
hruninu.“
Stefán Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Guðmundar Jónas-
sonar, segir aukna eftirspurn vegna
fjölgunar ferðamanna hafa ýtt undir
endurnýjun á flota fyrirtækisins,
sem er 26 rútur. Innan þriggja til
fjögurra ára stefni fyrirtækið á að
meðalaldur flotans verði orðinn 4-5
ár en hann er nú 8-10 ár.
„Það er þumalputtaregla að sætið
í nýjum hópferðabílum kosti nú um
800.000 krónur. Það þarf því að hafa
mikið að gera og selja á góðu verði til
að fá upp í kostnaðinn. Bílarnir sem
við höfum keypt á síðustu misserum
eru 16-57 sæta. Sú breyting hefur
orðið að fyrir 10-15 árum höfðum við
sjö mánuði á hverju ári til að dunda
við bílana og hafa þá tilbúna fyrir 4-5
mánaða vertíð. Nú er hins vegar ver-
tíð árið um kring. Maður getur því
ekki leyft sér að vera með gamla og
lélega bíla sem eru stöðugt á verk-
stæði.“
Skapar sóknarfæri fyrir aðra
Stefán telur að vegna örrar endur-
nýjunar á rútum hjá ferðaþjónustu-
fyrirtækjum geti markaðurinn fyrir
notaðar rútur senn mettast. Verðið á
þeim muni því lækka. Hann segir að-
spurður að það geti skapað sóknar-
færi fyrir nýliða á markaðnum.
Sala nýrra vörubíla eykst um 57%
Mikil söluaukning er á milli ára
Sala á nýjum rútum hefur minnkað
160
140
120
100
80
60
40
20
0
Vörubílar yfir 12 tonn
í heildarþyngd
Stórar rútur
(40 sæta og yfir)
Notaðar rútur
Heimild: Brimborg
2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014
150
3 1 1 7
17 23 16 12
3 10
13 12 13 15
22
13 11
26 28
44
Sala á stærri ökutækjum
Á fyrstu sex mánuðum ársins (nýskráningar)
Stefán
Gunnarsson