Morgunblaðið - 03.07.2014, Page 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014
Nicolas Sarkozy, fyrrverandi for-
seti Frakklands, sætir nú rann-
sókn sem varðar meint áhrif hans
á dómara. Var Sarkozy settur í
varðhald á þriðjudag og yfir-
heyrður. Reyna rannsakendur að
sjá hvort Sarkozy hafi lofað hátt-
settum dómara virtri stöðu í
Mónakó, gegn því að dómarinn
veitti honum upplýsingar um
málatilbúnað tiltekinnar rann-
sóknar. Rannsóknin, sem átti sér
stað árið 2007, varðaði mögu-
leikann á ólöglegri fjármögnun
kosningabaráttu Sarkozys, en
fullyrt hefur verið að Muammar
Gaddafi, þáverandi forsætisráð-
herra Líbíu, hafi átt þátt í að
fjármagna kosningabaráttuna.
Er Sarkozy ásakaður um að
hafa átt í sambandi við dómarann
til að afla upplýsinga um mála-
tilbúnað gegn sér. Enn alvarlegri
þykir möguleikinn að Sarkozy
hafi á einhvern hátt reynt að
múta dómaranum. Er þetta í
fyrsta skipti í sögu landsins sem
fyrrverandi forseti er settur í
varðhald með þessum hætti. Lík-
legt er talið að yfirheyrslan geti
dregið verulega úr líkunum á því
hann verði valinn forsetaframbjóð-
andi UMP-hægriflokksins fyrir
forsetakosningarnar 2017. Sarkozy
og stuðningsmenn hans halda því
fram að ásakanirnar séu af póli-
tískum toga, en ljóst er að um al-
varlegar ásakanir er að ræða.
Forveri Sarkozys í forsetastól,
Jacques Chirac, hlaut skilorðs-
bundinn dóm árið 2011 fyrir fjár-
drátt.
AFP
Íbygginn Ásakanir um spillingu
gætu svert mannorð Sarkozys.
Sakaður um spillingu
Mögulegt forsetaframboð Sarkozys árið 2017 í uppnámi Samkvæmtdönsku innflytj-
endastofnuninni
voru rétt rúm-
lega þúsund
glæpamenn
brottreknir árið
2011, en í fyrra
voru þeir rétt
rúmlega átján
hundruð. „Út-
lendingar sem fremja glæpi eiga
ekki heima hérna. Við sættum okk-
ur ekki við að fá útlendinga sem
koma hingað til landsins og fremja
glæpi,“ segir Karen Hækkerup
dómsmálaráðherra.
Vísa fleiri afbrota-
mönnum úr landi
Karen Hækkerup
DANMÖRK
Lögreglan í Hong Kong handtók yf-
ir 500 mótmælendur á þriðjudags-
kvöld. Handtökurnar áttu sér stað
eftir að hundruð þúsunda manna
höfðu gengið um stræti borg-
arinnar til að krefjast lýðræðis.
Amnesty-samtökin hafa þrýst á yf-
irvöld í borginni að sleppa mótmæl-
endum úr haldi. Segja samtökin að-
gerðir lögreglu óþarfar og að þær
geti sett slæmt fordæmi.
Fjöldi mótmælenda
handtekinn
HONG KONG
Mörg af kóral-
rifum Karíba-
hafsins gætu
horfið innan tutt-
ugu ára, sam-
kvæmt skýrslu
frá alþjóðlegu
náttúruvernd-
arsamtökunum.
Gögn frá tugum
þúsunda rannsókna sýna að þeim
hefur nú þegar hrakað um 50 pró-
sent síðan á áttunda áratugnum.
Telja höfundar skýrslunnar að of-
veiði og sjúkdómar eigi meginsök á
þessu. Ef ekkert sé að gert þá muni
þróunin halda áfram, en með vernd
geti þau vaxið til fyrra horfs.
Kóralrif gætu horfið
innan tuttugu ára
KARÍBAHAFIÐ
Ísraelska lögreglan fann í gær lík
palestínsks táningsdrengs sem hafði
verið rænt fyrr í gærmorgun. Lög-
reglan gat ekki staðfest ástæður
morðsins en heimildir herma að
morðið sé hefndaraðgerð fyrir morð-
in á þremur ísraelskum drengjum,
en lík þeirra fundust í fyrradag.
Þegar upp komst um verknaðinn
hópuðust Palestínumenn að heimili
drengsins og lentu í átökum við ísr-
aelsku lögregluna. Köstuðu þeir
steinum að lögreglunni sem svaraði
með hljóðsprengjum, táragasi og
skaut fólkið með gúmmíkúlum.
Fannst brennt í skógi
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni var drengnum rænt
snemma í gærmorgun nálægt versl-
un föður síns í Austur-Jerúsalem.
Aðeins nokkrum klukkutímum
seinna fannst lík hans, að hluta til
brennt, í skógi nálægt vesturhluta
borgarinnar. Bar það einnig merki
um að ofbeldi hefði verið beitt.
Öryggisráðherra Ísraels, Yitzak
Aharonovitch, sagði að ekki væri
hægt að draga ályktanir um ástæður
morðsins á þessari stundu. „Allir
möguleikar verða skoðaðir, morðið
gæti tengst glæpum eða það gæti
tengst pólitík. Við skulum bíða ró-
lega eftir niðurstöðum.“
Morðið átti sér stað aðeins degi
eftir að jarðarfarir ísraelsku drengj-
anna fóru fram.
Krafðist fordæmingar
Mahmoud Abbas, forseti Palest-
ínu, segist hafa krafist þess af hálfu
forsætisráðherra Ísraels, Benjamin
Netanyahu, að hann fordæmdi
morðið rétt eins og Abbas fordæmdi
morðin á ísraelsku drengjunum
þremur. Þá kallaði hann á ísraelsk
yfirvöld að taka skýra afstöðu til að
koma í veg fyrir frekari hefndarað-
gerðir. Skömmu síðar gaf Netan-
yahu út tilkynningu þar sem hann
lýsti vanþóknun á því sem hann sagði
vera ógeðfellt morð. Þá biðlaði hann
til beggja fylkinga um að taka ekki
lögin í sínar eigin hendur, heldur
fylgja lögunum.
Of snemmt er að segja til um hvort
morðið sé í raun hefndaraðgerð, en
sé það raunin getur það haft alvar-
legar afleiðingar fyrir samband þjóð-
anna.
Myrtu dreng
frá Palestínu
Ekki ljóst hvort um hefnd sé að ræða
Gæti orsakað frekari átök í landinu
Stelpa leikur sér með vatn í gosbrunni í miðbæ
Rómar. Hitinn í borginni náði allt að 31 gráðu í
gær og líklega hefur verið kærkomið að geta kælt
fætur sína í vatni brunnsins. Nærri þrjár milljónir
manna búa í þessum fornfræga höfuðstað Ítalíu,
sem liggur meðfram ánni Tíber. Spannar saga
hennar á þriðja þúsund ár. Nú á dögum er hún
fjórða fjölmennasta borgin innan ESB. Borgin er
oft kölluð „Borgin eilífa“ eða „Roma Aeterna“.
AFP
Ekki rignir alls staðar þótt Íslendingar sjái vart til sólar
Sól og hiti í Rómarborg