Morgunblaðið - 03.07.2014, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014
Indverskir múslimar biðja bænir áður en þeir fá sér að borða og enda föstu
gærdagsins. Milljónir múslima um heim allan halda nú ramadan heilagan.
Þá neyta þeir hvorki matar né drykkjar frá morgni til kvölds. Nærri 15%
Indverja eru múhameðstrúar, eða tæpar 200 milljónir manna.
AFP
Biðja bænir við sólarlag
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Sterk sönnunargögn eru fyrir því
að íranskar orrustuþotur séu komn-
ar í þjónustu yfirvalda í Írak. Rúss-
ar sendu þotur fyrir aðeins nokkr-
um dögum en sérfræðingar segja
að önnur sending, sem barst í
fyrradag, eigi uppruna sinn að
rekja til Írans. Þýðir þetta að lönd
sem lengi hafa verið svarnir óvinir,
Bandaríkin og Íran, vinna nú sam-
an með yfirvöldum í Írak gegn IS-
IS-samtökunum.
Aðeins tímaspursmál
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu vígbúast
nú og hafa hert eftirlit og vörð
meðfram landamærunum í norður-
hluta landsins sem snúa að Írak.
Sádi-Arabía hefur enn ekki verið
skotmark ISIS-samtakanna en
stjórnvöld í landinu óttast að slíkt
sé aðeins tímaspursmál. Landa-
mærin eru þó töluvert öruggari en
landamæri Íraks og Sýrlands, sem
samtökin ruddust auðveldlega yfir
fyrir nokkrum dögum.
Sádi-Arabar hafa lengi þurft að
sæta ásökunum um að þeir séu fjár-
hagslegt bakland samtakanna, þar
sem báðir aðilar tilheyra fylkingu
súnníta innan múhameðstrúar.
Þessum ávæningi hafa yfirvöld
landsins ávallt neitað. Þó verður
ekki horft framhjá því að einhverjir
Sádi-Arabar líti á ISIS-samtökin
sem nauðsynleg viðbrögð við auknu
valdi sjíta í Írak, þannig eru ríkir
einstaklingar í Sádi-Arabíu taldir
líklegir til að standa að baki fjár-
mögnun samtakanna.
Kúganir, mannrán og skattar
Ný rannsókn hefur þó leitt annað
í ljós, að aðeins fimm prósent fjár-
magns samtakanna koma frá ut-
anaðkomandi framlögum. Talið er
að meirihluti þess sem samtökin
afla komi frá kúgunum, mannrán-
um og óopinberum sköttum sem
lagðir eru á fólk sem býr á yf-
irráðasvæðum þeirra. Samtökin eru
líklega orðin þau ríkustu og
óárennilegustu í heiminum, og
stjórnvöld í nágrannaríkjunum
þykja nú hafa góða ástæðu til að
óttast hvað þau gera næst.
Sádi-Arabar vígbúast og
herða landamæravörslu
Íran og Bandaríkin snúa bökum saman gegn kalífatinu
AFP
Til varnar Sýrlenskir hermenn á
leið til að verja landamæri sín.
Framfaraflokkurinn og Verka-
mannaflokkurinn eru nú með til
skoðunar að endurvekja umræðu
um bann við búrkum múslima á al-
mannafæri, eftir
að Mannrétt-
indadómstóll
Evrópu úrskurð-
aði í fyrradag að
slíkt bann bryti
ekki gegn mann-
réttindum.
„Við hljótum
að þurfa að
skoða hvort við
ættum að stuðla
aftur að banninu,
eftir að dómstóllinn í Strassborg
staðfesti það sem við höfum alltaf
sagt, bann við búrkum brýtur ekki
gegn mannréttindum,“ segir Mazy-
ar Keshvari, þingmaður Framfara-
flokksins.
Jan Bøhler, þingmaður Verka-
mannaflokksins, segir að úrlausn
dómstólsins varpi nýju ljósi á um-
ræðuna í landinu. „Þegar þingið
hafnaði slíku banni árið 2013 var
helsta áhyggjuefnið að Noregur
ætti á hættu að sæta átölum þegar
málið kæmi til kasta dómstólsins.
Nú er ekkert tilefni til slíkra
áhyggna,“ segir Bøhler.
Keshvari játar hins vegar að ný
atkvæðagreiðsla væri ekki vænleg
til árangurs. „Staða okkar hefur
alltaf verið skýr varðandi þetta
mál, en við viðurkennum að meiri-
hluti þingsins er ekki sammála. Þó
þessi rök séu nú úr vegi, þá er
ekkert sem okkur finnst benda til
þess að hinir flokkarnir séu að
skipta um skoðun,“ segir Keshvari.
Fyrrverandi leiðtogi Verka-
mannaflokksins og núverandi
framkvæmdastjóri Evrópuráðsins,
Thorbjørn Jagland, fagnar nið-
urstöðu dómstólsins. „Ég tel þetta
vera jákvæða niðurstöðu, þetta
þýðir að ef þú ætlar að taka þátt í
samfélaginu þá ber þér skylda til
að sýna andlit þitt, annars er ekki
hægt að mynda tengsl við þig,“
segir Jagland.
Búrkur mögulega
bannaðar í Noregi
Búrkubann staðfest í Frakklandi
Árekstur Íslam á
Vesturlöndum.
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Gigt, vöðvabólga
eða fótaóeirð?
www.annarosa.is
Eftir þrjú brjósklos og uppskurði vilja vöðvarnir á því svæði stífna þegar
mér verður kalt. Vöðva- og gigtarolían hefur alveg bjargað mér undanfarna
mánuði, hún er svo vöðvaslakandi og hitar svo vel! Eftir að ég kynntist
henni get ég ekki hugsað mér að vera án hennar og mæli eindregið með
henni! Fótakremið er silkimjúkt, fer fljótt inn í húðina og mér finnst það
alveg æðislegt. – Magna Huld Sigurbjörnsdóttir
Vöðva- og gigtarolían þykir afar góð til að draga úr liðverkjum
og vöðvabólgum ásamt því að gagnast við fótaóeirð.
Fótakremið er kælandi og kláðastillandi, mýkir þurra húð,
græðir sprungur og ver gegn sveppasýkingum.
SPORTÍS
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS
KAYANO - DÖMU CUMULUS - DÖMU NIMBUS - DÖMU
Verð: kr. 30.990.-Verð: kr. 26.990.-Verð: kr. 32.990.-
KAYANO - HERRA
Verð: kr. 32.990.-
CUMULUS - HERRA
Verð: kr. 26.990.-
NIMBUS - HERRA
Verð: kr. 30.990.-