Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014
✝ GuðmundurVilmar Magn-
ússon fæddist 3. júlí
1929 á Akranesi.
Hann lést 21. júní
2014.
Foreldrar hans
voru hjónin Hólm-
fríður Oddsdóttir
húsfreyja og Magn-
ús Sveinsson vél-
stjóri. Hólmfríður
fæddist 19.9. 1899 í
Prestshúsum, Innri-Akranes-
hreppi. Hún var dóttir Odds
Guðmundssonar bónda og Hall-
dóru Guðmundsdóttur. Magnús
fæddist 9.6. 1892 á Staðarhöfða,
Innri-Akraneshreppi, hann lést
22.12. 1951. Hann var sonur
Sveins Eiríkssonar járnsmiðs og
Sigurbjargar Sigurðardóttur.
Þau Magnús og Hólmfríður
eignuðust níu börn og var Guð-
mundur Vilmar fimmta barn
þeirra.
Systkini Guðmundar Vilmars
eru: Oddur Hannes, f. 8.6. 1920,
Aldís Fríða, f. 5.7. 1923, Sig-
urbjörg Ásta, f. 13.8. 1926, d.
starfaði við vélgæslu og verk-
stjórn hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna á Selfossi frá 1970 þar til
hann lauk störfum 1999.
Eftirlifandi eiginkona Guð-
mundar Vilmars er Helga Ein-
arsdóttir, f. 14.6. 1931. Þau
gengu í hjónaband árið 1961.
Helga er dóttir hjónanna Lauf-
eyjar Karlsdóttur og Einars Jó-
hannssonar, en þau voru bændur
á Geithellum í Álftafirði, Suður-
Múlasýslu. Börn Guðmundar
Vilmars og Helgu eru: 1) Björk,
f. 26.4. 1961. Eiginmaður hennar
er Dan Brynjarsson. Synir
þeirra eru Ágúst Freyr, Hákon
Valur og Arnar Birkir. 2) Alma,
f. 15.10. 1966. Eiginmaður henn-
ar er Emil Guðjónsson. Dætur
þeirra eru Berglind og Hildur. 3)
Hlynur, f. 23.4. 1968. Eiginkona
hans er Ingibjörg Ragnhildur
Hjálmarsdóttir. Börn þeirra eru
Jón Ólafur, Daníel Hjálmar, Sól-
veig Svava og Guðmundur Atli.
Guðmundur Vilmar og Helga
hófu búskap á Digranesvegi 61 í
Kópavogi en bjuggu mestan
hluta búskapartíðar sinnar við
Réttarholt 15 á Selfossi. Þar
byggðu þau sér fallegt heimili og
ræktuðu svo fallegan garð að
eftir var tekið.
Útför Guðmundar Vilmars fer
fram frá Selfosskirkju í dag, 3.
júlí 2014, kl. 14.
15.6. 1974, Sig-
urður Magnús, f.
7.2. 1928, d. 10.10.
2007, Bragi, f.
19.10. 1930, Hall-
dór, f. 14.1. 1936,
Óttar Sævar, f.
25.6. 1937, og Sig-
urlín, f. 26.8. 1942.
Guðmundur
Vilmar ólst upp hjá
foreldrum sínum á
Akranesi. Hann
stundaði nám við Iðnskóla Akra-
ness 1946-1949 og var við nám í
vélvirkjun í vélsmiðju Þorgeirs
og Ellerts á Akranesi 1948-1952.
Hann lauk sveinsprófi 1951.
Hann fór til náms í Vélskóla Ís-
lands og lauk þaðan prófi 1954.
Guðmundur Vilmar var vél-
stjóri á skipum Skipadeildar SÍS
árin 1954-1963. Hann vann í Vél-
smiðju Þorsteins Erlingssonar í
Reykjavík til áramóta 1963, síð-
an í vélsmiðjunni Stálveri sf. í
Reykjavík fram í mars 1965.
Hann var verksmiðjustjóri við
síldarverksmiðju Búlandstinds
hf. á Djúpavogi 1965-1970. Hann
Í dag hefðir þú orðið 85 ára og í
stað þess að halda upp á afmælið
þitt eins og við höfum svo marg-
sinnis gert kveðjum við þig í
hinsta sinn. Á stórafmælum lagð-
ir þú mikið upp úr að við fjölskyld-
an værum öll saman og helst úti í
náttúrunni, þín besta afmælisgjöf
var að vera með okkur börnunum
þínum og seinna tengdabörnum
og barnabörnum, við vorum þér
svo afar kær. Afmælisdagar eins
og þegar við löbbuðum inn að
Háafossi, dvöldum í bústað, sigld-
um á Þingvallavatni eða bara hitt-
umst í Réttarholtinu og grilluðum
saman eru í minningunni svo dýr-
mætir.
Að eiga pabba eins og þig er
ómetanlegt, ósjaldan hefur maður
staðið frammi fyrir vandasömu og
óleystu verkefni og þá var oftar
en ekki viðkvæðið, ég ætla að
spyrja pabba, hann veit það
örugglega. Í mínum huga kunnir
þú flest. Þegar ég var barn og
unglingur í skóla á Selfossi var
ekki ónýtt að eiga þig að, stærð-
fræði- og eðlisfræðikunnátta þín
kom mér í gegnum fjölbraut og
dönskustílana þýddir þú með mér
á þinn snjalla hátt.
Þegar ég svo fullorðnaðist og
eignaðist mína eigin fjölskyldu
var aðstoð ykkar mömmu þakk-
arverð. Þegar gubbupest geisaði
eða frí var í skóla var nóg að
hringja til ykkar, annaðhvort
komuð þið að passa eða dæturnar
voru sendar til ykkar. Við höfðum
oft þann háttinn á að hittast við
Litlu kaffistofuna og skipta um
farm.
Einu sinni vorum við komin á
undan og biðum eftir afa og
ömmu, einmana bíll kom niður
Lögbergsbrekkuna og Emil seg-
ir: ætli þetta sé ekki afi? Þá er
sagt með stolti í aftursætinu: nei
þetta er ekki afi, hann er alltaf
fyrstur, og það stóð heima, stuttu
síðar komu ljós niður brekkuna
ekki eins einmana og þau fyrri og
þar fór afi á pallbílnum sínum
fremstur í flokki. Barnabörnin
eiga góðar minningar um sam-
veru með afa og ömmu sem munu
ylja þeim um ókomin ár.
Í seinni tíð þegar mamma fór
að veikjast kom ást þín og vænt-
umþykja í hennar garð vel í ljós,
þitt verkefni var að hugsa um
hana og gera allt það sem var best
fyrir hana. Það kom ekki til
greina að hún færi frá þér og það
fór svo að þú annaðist hana alveg
þangað til þú gast ekki meir. Þeg-
ar veikindi þín kvöddu dyra með
fremur hastarlegum hætti varstu
ábyggilega orðinn býsna þreyttur
þó að þú kvartaðir ekki og fram á
síðasta dag varstu að hugsa um
hag mömmu og að henni liði sem
allra best.
Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt
sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt
hverju orði fylgir þögn
og þögnin hverfur allt of fljótt.
En þó að augnablikið aldrei fylli stund
skaltu eiga við það mikilvægan fund
því að tár sem þerrað burt
aldrei nær að græða grund.
Líttu sérhvert sólarlag,
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
Þú veist að tímans köldu fjötra enginn
flýr
enginn frá hans löngu glímu aftur snýr.
Því skaltu fanga þessa stund
því fegurðin í henni býr.
(Bragi V. Skúlason)
Með þessu fallega ljóði kveð ég
þig með þakklæti, af þér hef ég
lært svo margt og notið óendan-
legrar elsku. Takk elsku pabbi
minn fyrir samfylgdina.
Alma Guðmundsdóttir.
Þegar ég hugsa til afa, Guð-
mundar Vilmars Magnússonar,
koma upp margar góðar minning-
ar. Afi hafði mjög gaman af nátt-
úrunni og ferðuðust þau amma
mikið um Ísland. Þegar ég var
átta ára fékk ég að fara með þeim
í skemmtilega ferð yfir hálendið á
húsbílnum og skoðuðum við með-
al annars steinhjörtu í búri og
flotta hveri. Afi tók margar
myndir í þessari ferð og eiga þær
eftir að lifa í minningunni um
ókomin ár. Einnig vorum við
margar skemmtilegar stundir
saman að bauka í garðinum þar
sem hann fræddi mig um plöntu-
ríkið. Ekki má gleyma bílskúrn-
um þar sem alltaf var til súkku-
laði, en þar áttum við afi líka
margar góðar stundir. Afi sýndi
alltaf mikinn áhuga og stuðning í
því sem við bræðurnir vorum að
gera, hvort sem það var í námi
eða frístundum, og er ég mjög
þakklátur fyrir það.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð
(Valdimar Briem)
Takk fyrir allt afi,
Hákon Valur Dansson.
Elsku afi, Guðmundur Vilmar
Magnússon, er látinn. Ég á ótelj-
andi góðar minningar um afa,
hann var mikill náttúruunnandi
og því vel við hæfi að bæði fyrstu
og síðustu minningar mínar séu
samvera okkar úti í náttúrunni.
Hann kenndi mér að bera virð-
ingu fyrir umhverfinu, að spá og
spekúlera í hinum ýmsu fyrir-
brigðum. Þær eru ljúfar minning-
arnar frá því að fylgjast með
skógarþröstunum út um eldhús-
gluggann í Réttarholtinu ásamt
heimsóknum í mjólkurbúið til
hans til að líta eftir öllum tækjum
og tólum. Hann var alltaf reiðubú-
inn að kenna manni og var mörg-
um ljúfum stundum eytt í bíl-
skúrnum þar sem ýmislegt var
grúskað. Þessar bílskúrsstundir
voru ómetanlegar, og að loknu
góðu dagsverki var ætíð dregið
fram rjómasúkkulaði sem hann
faldi handa sér og barnabörnum.
Afi hafði sterkar skoðanir á hlut-
um og lá ekki á þeim, eins hafði
hann gríðargaman af ýmsum
orðaleikjum og hagyrðum, sjálfur
var hann hnyttinn og skorinorð-
ur. Hann var einfaldlega einn
merkilegasti maður sem ég hef
þekkt. Við deildum miklum áhuga
á kvæðum og því er vel við hæfi að
kveðja með orðum Bólu-Hjálm-
ars úr okkar uppáhaldsbók:
Færri slíkan vin eg veit,
sem vananum ekki týndi,
aldrei mig svo augum leit,
að ei góðverk sýndi.
Hvíl í friði elsku afi,
Ágúst Freyr Dansson.
Þegar ég lít til baka og hugsa
um afa er svo margt sem hægt er
að segja. Gleði, umhyggja og
þakklæti eru hlutir sem mér fyrst
dettur í hug. Ísferðir í Þrastar-
skóg og gamlar frásagnir þar á
eftir. Frjálsleiki og aðdáun. Hann
afi hafði alltaf tíma fyrir alla sem
gáfu honum tíma sinn og var allt-
af nóg um að vera þegar maður
kom í Réttarholtið. Hann kenndi
mér gildi þess að njóta alls sem
við höfum, og að bera virðingu
fyrir náttúrunni, njóta án þess að
spilla og að græða án þess að
fórna.
Afi var félagi góður og þótti
honum afskaplega gaman að
dunda sér við eitthvað. Hann var
mikill viskubrunnur og lærði ég
ótal marga hluti af honum. Að
smíða í skúrnum með honum var
rosalegt fjör. Það skemmtilegasta
var þegar við komum öll saman
frændsystkinin og vorum oft tíu í
einu hjá afa og ömmu, þá var fjör í
kotinu.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Takk fyrir allt elsku afi. Þinn
Arnar Birkir Dansson.
Elsku afi minn. Mig langar í
nokkrum orðum að minnast þín,
sérstaklega þar sem ég er langt í
burtu og gat ekki kvatt þig. Þegar
ég fór út sem au pair fyrir tæpu
ári hvarflaði það ekki að mér að
þú tækir ekki á móti mér þegar ég
kæmi til baka. Ég var alveg viss
um að ég gæti komið heim, kíkt í
Réttarholtið, bakað fyrir þig
pönnukökur og spjallað um heima
og geima eins og svo oft áður. Það
var áfall fyrir mig að fá þær frétt-
ir að þú værir orðinn alvarlega
veikur og núna ertu farinn. Það er
næstum óskiljanlegt að ég fái
aldrei að sjá þig aftur. Ég vildi
óska að ég gæti knúsað þig einu
sinni enn, bara einu sinni. Ég vildi
líka óska þess að ég kæmist í jarð-
arförina en ég verð víst að sætta
mig við að geta ekki kvatt þig eins
og ég hefði viljað. Ég þakka þó
fyrir það að þú ert laus við allan
sársauka og kominn á friðsælan
stað þar sem þér líður vel. Mér
finnst eins og þú sért kominn
hingað til mín og tilhugsunin um
að þú vakir yfir mér styrkir mig í
sorginni. Ég veit að þú reyndir
eins og þú gast að bíða með að
kveðja og það læðist að mér sá
grunur að þig hafi langað til Kali-
forníu með mér. Það verður gam-
an hjá okkur að ferðast saman.
Minningarnar sem þú skilur
eftir eru góðar og munu alltaf eiga
sérstakan stað í hjarta mínu. Ég
er þakklát fyrir þann tíma sem við
áttum saman og fyrir allt sem þú
kenndir mér. Það er margt sem
kemur upp í hugann, þú að brasa
úti í bílskúr, að hlusta á fréttirnar,
hugsa um blómin ykkar ömmu, að
búa til Mikka ref og síðan þú að
slá blettinn þegar ég fór heim eft-
ir síðustu heimsókn mína á Sel-
foss. Þegar ég var lítil var uppá-
haldið mitt að fara í útilegur með
ykkur ömmu. Mér þótti líka gam-
an að hlusta á sögur áður en ég
sofnaði, læra á grammófóninn,
hlusta á plötur, brasa í bílskúrn-
um með þér, fá afasúkkulaði og
ömmubrjóstsykur, laga til í garð-
inum og koma svo inn og fá ný-
bakaðar ömmupönnukökur. Það
var alltaf gaman hjá okkur.
Takk fyrir allt elsku afi minn,
betri afa en þín er ekki hægt að
óska sér. Þín
Berglind.
Minningarnar steymdu inn
þegar Björk vinkona mín lét mig
vita að pabbi hennar væri dáinn.
Ég á margar góðar minningar um
Guðmund frá því að ég bjó á Sel-
fossi. Það var alltaf jafnnotalegt
að koma með Björk á heimili
þeirra Guðmundar og Helgu á
Réttarholtinu. Alltaf var manni
vel tekið með myndarskap og
hlýju.
Við sátum oft í eldhúsinu á fal-
lega heimilinu þeirra og spjölluð-
um við þau hjónin, þau vildu vita
hvað við vinkonurnar værum að
bralla og hvernig hefði gengið í
skólanum.
Ég minnist þess að við Björk
skiptumst á að vera heima hjá
mér og heima hjá henni að læra
fyrir skólann. Heima hjá mér
fengum við aðstoð við tungumálin
hjá foreldrum mínum en Guð-
mundur var snillingur í stærð-
fræði og eðlisfræði þar sem hann
eyddi ómældum tíma í að hjálpa
okkur. Hann var alltaf jafn þol-
inmóður og geðgóður þar sem ég
skildi ekki alltaf þessa fræði en
með hans góðu hæfileikum náðum
við þessu í sameiningu.
Elsku Helga, Björk, Alma og
Hlynur, ég votta ykkur og fjöl-
skyldum ykkar mína innilegustu
samúð. Guð veri með ykkur.
Kveðja,
María.
Guðmundur
Vilmar Magnússon
HINSTA KVEÐJA
Ást og þakkir færi ég þér
fyrir hlýju og kærleika.
Bjartar minningar lifa æv-
ina á enda. Sofðu rótt, elsku
afi minn.
Þín
Hildur.
✝
Móðursystir mín,
INGIBJÖRG JÚLÍUSDÓTTIR,
sem lést á öldrunardeildinni á Grund í
Reykjavík verður jarðsungin frá Fossvogs-
kapellu föstudaginn 4. júlí kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Brynjar Pálsson.
✝
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
INGVI SÆMUNDSSON
frá Borðeyrarbæ,
Kveldúlfsgötu 24,
Borgarnesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness að morgni 30. júní.
Sigurrós Jóhanna Sigurðardóttir,
börn og fjölskyldur þeirra.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
PÁLÍNA HRAUNDAL,
Hringbraut 50,
áður Hvassaleiti 56,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
sunnudaginn 29. júní.
Útför hennar fer fram frá Grensáskirkju
mánudaginn 7. júlí kl. 11.00.
Sigrún Óskarsdóttir,
Lúðvík Hraundal,
Kristín Hraundal, Tryggvi Jónasson,
Þórir Snorrason, Ragnheiður Pálsdóttir,
barnabörn, langömmubörn
og langalangömmubarn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ELÍN SUMARLIÐADÓTTIR,
Skarðshlíð 12c,
Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn
27. júní.
Hún verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 8. júlí kl. 13.30.
Guðrún Arnfinnsdóttir, Oddur Jónas Eggertsson,
Bryndís Arnfinnsdóttir, Sigurður Jóhannsson,
María Arnfinnsdóttir, Baldur Örn Baldursson,
Sigurður Líndal Arnfinnsson, Kristín Hjaltalín,
Arna Þöll Arnfinnsdóttir, Jón Í. Guðmann,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð við andlát
elskulegrar dóttur, systur, mágkonu og
frænku,
HILDAR ÓSKARSDÓTTUR,
Einarsnesi 62 A.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk í Einarsnesi,
Ás styrktarfélagi og Þroskahjálp.
Gunnlaug Emilsdóttir,
Júlía Margrét Sveinsdóttir,
Emil Anton Sveinsson, Birna V. Björnsdóttir,
Óskar Karlsson, Nanna Ísleifsdóttir,
Áslaug Óskarsdóttir, Ingólfur Einarsson,
Dóra Sif Óskarsdóttir, Helge Lavergren,
stjúpbræður og systkinabörn.