Morgunblaðið - 03.07.2014, Síða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014
KOLAPORTIÐ
kolaportid.is
Einstök stemning í 25 ár
Opið laugardaga og sunnu
daga
frá kl. 11-17
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hafðu það í huga að allar fjarvistir
taka sinn toll þegar þú ráðstafar tíma þín-
um. Nú er tími til þess að láta rómantísku
draumana rætast.
20. apríl - 20. maí
Naut Regnið er yndislegt í augum garðyrkju-
mannsins. Nýttu tímann vel og vertu um leið
opinn fyrir nýjum tækifærum til að grípa.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Stundum leiða frekari umræður
ekki til neins árangurs. Tíminn mun leiða í
ljós hvað stenst og hvað ekki.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt þér finnist heimurinn vera að
hrynja er það ekki svo. Rétta framkoman,
ásamt nýjustu upplýsingunum, getur fært
sigur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Eitt og annað getur farið úrskeiðis þeg-
ar menn tala ekki hreint út um hlutina. Haltu
ótrauð/ur áfram á sömu braut. Stundum
brynjarðu þig með fágaðri framkomu til að
halda öðrum frá þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er eitt og annað sem þú hefur
trassað heima fyrir. Og nú er komið að ein-
um slíkum djörfum strákapörum. Mundu
bara að öllum aðgerðum fylgja afleiðingar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef lífið er leikrit er það svo sannarlega
sprengihlægilegt gamanleikrit byggt á mis-
skilningi um þessar mundir. Staðreyndin er
sú að sá sem ekki klárar sín mál getur ekki
hjálpað öðrum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert í ójafnvægi og veist ekki í
hvorn fótinn þú átt að stíga. Vertu sjálfum
þér samkvæmur og þá muntu uppskera laun
erfiðis þíns.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Fjölskyldan kemur saman til að
tala um erfiðleika fortíðarinnar. En enginn
leysir það fyrir þig svo þú skalt gefa þér tím-
ann.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það stefnir í átakalítinn dag hjá
þér en það þýðir ekki að þú getir slegið
slöku við. Vertu viðbúinn því að komast að
ýmsu óvæntu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Forðist að deila við börn um eign-
ir eða peninga. Gættu þín, þú gætir laðað að
þér fólk sem hugsar bara um peninga.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gamalt indíánaspakmæli segir að
þeir sem elski fjölskyldu sína verði aldrei rík-
ir. Líttu í kring og sjáðu hverju þú getur
fengið áorkað. Reyndu að tala ekki stans-
laust.
Hallmundur Kristinsson kastarfram að gefni tilefni:
Tekur Fiskistofa stökk
stefnir út um koppagrundir.
Mörgum þykir framsókn frökk
og fruntaleg um þessar mundir.
Svo bætir hann við: „En við Norð-
lendingar horfum á björtu hlið-
arnar:
Færsluglaða flutningsmenn
Framsóknar má lofa;
hér mun kannski hafna senn
Höfuðborgarstofa!“
Magnús Halldórsson segir veðrið
ekki sem heppilegast fyrir lands-
mótið á Gaddstaðaflötum: „Norð-
lendingar eru sumir nokkuð kok-
hraustir með blíðuna heima, en það
mun lagast hér syðra von bráðar:
Vindur beljar votum rómi,
vætu í rastir hleður.
Enda líka að allra dómi,
algjört skítaveður.
Úr því verð ég gott að gera,
svo glaðni augnablikið.
Og það er líka lán að vera,
laus við mesta rykið.“
Kristján Björn Snorrason leggur
orð í belg:
Veðrið er meira en beggja blands
og bleytir nú heyjaforðann.
Ýta því sól til Suðurlands
sveitungar mínir að norðan.
Jón Gissurarson rifjar upp vísu
eftir Ásgrím Kristinsson í Ásbrekku
í Vatnsdal, sem orti svo er hann sá
sunnlenska bændur við heyskap:
Sá ég þessa sunnanmenn
signa heyjaforðann
skyldu þeir búa betur en
bændur fyrir norðan.
Kristján bætir við:
Ljóst er það að ljáir digna
og laufin fjúka af hríslu.
Þegar fer að rjúka og rigna
í Rangárvallasýslu.
Þá Hreinn Guðvarðarson:
Að jafna lífskjör gerir gott
og gjarnan festir skorður
Væri ekki feikna flott
að flytja regnið norður.
Að síðustu er Þórarinn M. Bald-
ursson með „eitt lítið innlegg í um-
ræðu um fæðuöflun fótboltamanna“:
Álmur branda úlfs í ham
ei kvað vanda tökin;
allan fjandann naga nam
nema handarbökin.
Pétur Blöndal
p.blondal@gmail.com
Vísnahorn
Af Fiskistofu, rigningu og
fæðuöflun fótboltamanna
Í klípu
„ÞAÐ ER ÓÞARFI AÐ ÓTTAST
HANN INGÓ. HANN GELTIR HÁTT
EN BÍTUR ENGAN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG HAFÐI FYRIR ÞVÍ AÐ SENDA
STRÁKINN MINN Í FÍNAN HÁSKÓLA, OG
ÞETTA ER BESTA HUGMYNDIN HANS?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að finnast hún
alltaf falleg.
FERSKAR
KÓKOSHNETUR
- TÍNIÐ SJÁLF!
JÁ, ÉG Á EINMITT
EINN ÓDÝRAN
SKJÖLD EFTIR!
EN ÞAÐ FYLGIR HONUM
EKKI ÁBYRGÐ.
ÉG HEFÐI ALDREI ÁTT
AÐ REYNA AÐ ELDA PITSU
FRÁ GRUNNI!
ÉG PITSA! ÉG VILJA
MEIRA PEPPERÓNÍ! MÚHA-
HAHA!
OF MIKIÐ
GER.
Einn góðan sumardag fyrir umáratug varð Víkverji fyrir
nokkrum vonbrigðum á fótboltavell-
inum. Vonbrigðin stöfuðu þó ekki af
úrslitunum á vellinum heldur af því
að Skagamenn, sem voru að fara að
mæta Vesturbæingum, gengu út á
KR-völlinn í hvítum stuttbuxum.
Þessi lið höfðu þá háð margar fræg-
ar rimmur án þess að nokkur mað-
ur ruglaðist á stórveldunum tveim-
ur á velli. Sem betur fer entist sú
tilraun í búningamálum ekki lengi
og næst þegar liðin mættust fengu
þau bæði að vera í sínum hefð-
bundnu svörtu stuttbuxum án þess
að heimurinn færist.
x x x
Þetta er rifjað upp í ljósi þess að áHM hefur alþjóðaknattspyrnu-
sambandið FIFA sett alls kyns
reglur um búninga og útbúnað leik-
manna, svo mjög að keyrir um
þverbak. Mörg liðanna skarta nú til
dæmis einlitum búningum, þar sem
FIFA sendi þau tilmæli, sem ekki
allir fylgdu, að það ætti helst að
vera einn litur í búningunum. Þjóð-
verjar og Argentínumenn leika því
ekki í svörtum stuttbuxum eins og
venjulega heldur hvítum og engu
var líkara en Ítalir og Englendingar
hefðu ruglast á stuttbuxunum sín-
um. Og það er ekki nóg að eyði-
leggja skuli sögufræga búninga með
reglugerðafarganinu. Sérstaklega
galnar reglur gilda um notkun
þeirra. Þannig máttu alrauðir Spán-
verjar ekki mæta albláum Hollend-
ingum í riðlakeppninni, þar sem
rauður og blár eru skilgreindir sem
dökkir litir, og þurftu Spánverjar
því að skipta í hvítt. Víkverji hlakk-
ar til að mæta á næsta leik Fram og
Vals.
x x x
Um helgina fréttist svo að mennhjá FIFA ætluðu sér að rann-
saka nærbuxur Neymars, stjörnu
Brasilíumanna, en teygjan í þeim
hafði rétt gægst upp fyrir stuttbux-
urnar í einum leiknum og reyndist
vera skræpótt. Þetta þótti háalvar-
legt mál. Víkverji getur þó ekki
annað en brosað við tilhugsunina
um að einhver sveittur kerfiskall
sitji í Sviss og hafi áhyggjur af því
að nærbuxur leikmanna séu orðnar
of litríkar. víkverji@mbl.is
Víkverji
En ég mæni í von til Drottins, bíð eftir
Guði hjálpræðis míns. Guð minn
mun heyra til mín. (Míka 7:7)