Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 36
FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 184. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Birgitta vill breyta nafninu sínu
2. Skilaði 50.000 króna veski
3. Svona selur þú fasteignina á …
4. Skáru gat á tjald björgunarsveitar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Enska reggísveitin UB40 mun halda
tónleika í Eldborg í Hörpu 19. sept-
ember nk. Hljómsveitin tilkynnti í jan-
úar á þessu ári að hún myndi koma
saman á ný til að taka upp plötu og
fara í tónleikaferð um heiminn með
upphaflegri liðskipan. UB40 var ein
vinsælasta hljómsveit heims á níunda
áratugnum og fram á þann tíunda og
hafa yfir 70 milljónir eintaka af plötum
hennar selst á heimsvísu. Af þekktum
smellum hljómsveitarinnar má nefna
„Red Red Wine“, „I’ve got you babe“,
„I can’t help falling in love“ og „Food
for Thought“. UB40 var stofnuð árið
1979 og vakti fljótt athygli í heima-
landi sínu. Hún hefur starfað með
hléum síðan með breytilegri liðskipan
og gaf síðast út plötu í fyrra, Getting
over the Storm. Miðasala á tónleikana
hefst í dag á harpa.is og midi.is.
UB40 heldur tónleika
í Hörpu í september
Hljómsveitin Árstíðir og sjónlista-
konan Kitty Von Sometime vinna nú
saman að stuttmynd sem unnin verð-
ur út frá tónlist Árstíða af væntanlegri
plötu hljómsveitarinnar. Hljómsveitin
efndi til hópfjáröflunar vegna plöt-
unnar og safnaðist þrefalt hærri upp-
hæð en stefnt var að. Er það líklega
fyrst og fremst að þakka myndbandi
af hljómsveitinni að flytja „Heyr
himna smiður“ á þýskri lestarstöð
sem yfir 3,3 milljónir manna hafa
horft á og hefur vakið mikla athygli á
hljómsveitinni. Kitty
mun hefja tökur á
Langjökli í þessum
mánuði og verður
stór ísskúlptúr
fluttur þangað en
hann mun gegna
mikilvægu hlut-
verki í mynd-
inni.
Kitty og Árstíðir
starfa saman
Á föstudag Norðaustan 10-18 m/s vestantil, hvassast á Vest-
fjörðum en 5-13 m/s um landið austanvert. Rigning en skýjað með
köflum og úrkomulítið syðst. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Suðurlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan og norðaustan 10-20 m/s vestantil
og rigning, hvassast og úrkomumest norðvestanlands en hægari
suðaustlæg átt og rigning með köflum austantil. Hiti 7 til 15 stig.
VEÐUR
KR-ingar eru í þriðja sæti
Pepsi-deildar karla eftir sig-
ur á Víkingum, 2:0, í gær-
kvöld. Breiðablik og ÍBV
unnu bæði sína fyrstu leiki
á tímabilinu, Blikar lögðu
Þór og Eyjamenn unnu sigur
í Keflavík með tveimur
mörkum í lokin. Loks var
jafnt hjá Fjölni og Fylki í
dramatískum sex marka
leik í Grafarvogi þar sem Ill-
ugi Þór Gunnarsson jafnaði
fyrir Fjölni í blálokin. »2-4
Langþráðir sigrar
Blika og ÍBV
Alfreð Finnbogason er genginn til liðs
við Real Sociedad sem kaupir hann af
Heerenveen í Hollandi og hann er þar
með fyrsti íslenski knattspyrnumað-
urinn sem spilar með Baskaliði.
Flestir leikmanna liðsins eru fæddir
og uppaldir í Baskahéruðum
Spánar en þó eru í hópnum
þrír erlendir leikmenn
sem spila með
landsliðum
sem komust
í sextán liða
úrslit heims-
meist-
arakeppninnar
í Brasilíu. »1
Alfreð fyrstur til að
spila með Baskaliði
Nær öruggt er að handboltamaðurinn
Sigfús Páll Sigfússon flytji til Hiro-
sima í Japan og spili með Wakunaga
næsta vetur. Sigfús segir um 96%
líkur á þessu. „Það er eins gott að
þetta gangi eftir, því ég er búinn að
leigja íbúðina mína hér á Íslandi,“
sagði Sigfús Páll við Morgunblaðið.
Dagur Sigurðsson lék með Wakunaga
í byrjun aldarinnar. »1
Sigfús annar Íslending-
urinn til að spila í Japan
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingileif Friðriksdóttir
if@mbl.is
Styrktartónleikar á vegum UNI-
CEF verða haldnir í Hörpu í kvöld
og hefjast klukkan 21. Tónleikarnir
eru til styrktar börnum í Suður-
Súdan, en þar ríkir gríðarlegt
neyðarástand, og hefur UNICEF
lýst yfir hæsta neyðarstigi á svæð-
inu. Tónleikarnir eru liður í neyðar-
söfnun sem samtökin á Íslandi hófu
nýlega og mun hver einasta króna
af miðasölu renna óskipt til UNI-
CEF. Lyfjafyrirtækið Alvogen
stendur straum af tónleikunum og
sér auk þess um framkvæmd
þeirra. Á tónleikunum munu hljóm-
sveitirnar Hjaltalín og Kaleo koma
fram auk Páls Óskars og Snorra
Helgasonar. Miðaverð er 4.500
krónur og stendur miðasala yfir á
Midi.is.
Aðstæður gríðarlega erfiðar
Ástandið í Suður-Súdan hefur
versnað hratt eftir að blóðug átök
brutust út í landinu í desember á
síðasta ári. Landið stóð á veikum
grunni fyrir og mikil fátækt ríkti
en nú hefur ástandið versnað enn
frekar. Fleiri en 1,5 milljónir
manna eru nú á flótta, þar af helm-
ingurinn börn.
Stefán Ingi Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi,
sinnir nú hjálparstarfi í Suður-
Súdan og segir ástandið slæmt.
„Þetta er komið langt yfir hættu-
mörk og það eru mörg vannærð
börn í landinu. Það er augljóst að
stríðið hefur haft gríðarleg
áhrif,“ segir Stefán, en hann hef-
ur nú verið í landinu í viku.
Stefán segir stærsta
vandamálið vera nær-
ingarástand. „Við erum
aðallega að einblína á
næringarástand. Síð-
astliðna viku höfum
við náð til um 20%
þeirra sem við telj-
um okkur geta náð til, en við
stefnum að því að ná til 75%.“
Veita börnum aðhlynningu
Viðbragðsteymi UNICEF hafa
farið um landið á undanförnum vik-
um, fundið út hvar flóttafólk heldur
til og veitt börnum aðhlynningu og
meðferð. Að sögn Stefáns hafa
teymin sett upp tvenns konar nær-
ingarstöðvar; annars vegar þar sem
foreldrar mæta með börn sín einu
sinni í viku, og hins vegar þar sem
fólk með stærri vandamál og sjúk-
dóma er lagt inn. Stefán segir gott
að sjá hve mikil áhrif hægt er að
hafa. „Þetta er mjög átakanlegt að
horfa upp á, en það er gaman að
sjá hversu mikil áhrif við getum
haft.“
Styrkja börn í Suður-Súdan
Lýst hefur verið
yfir hæsta neyðar-
stigi á svæðinu
Ljósmynd/UNICEF
Börn Gríðarlegur fjöldi fólks, eða fleiri en 1,5 milljónir manna, er nú á flótta frá Suður-Súdan, vegna hræðilegra að-
stæðna. Þar af er helmingurinn börn. Viðbragðsteymi UNICEF vinna nú að því að veita börnum aðhlynningu.
Því sem safnast í neyðar-
söfnuninni mun UNICEF meðal
annars verja til að útvega
hjálpargögn á borð við bólu-
efni, næringarmjólk og víta-
mínbætt jarðhnetumauk fyrir
börn sem þjást af vannær-
ingu, hreint drykkjarvatn
og fleira. Með því að
senda sms-ið BARN í
númerið 1900 er hægt
að styrkja söfnunina um
1.900 krónur. Fyrir þá upphæð er
til dæmis hægt að útvega 11 þús-
und lítra af drykkjarvatni. Jafn-
framt rennur allur ágóði af tónleik-
unum óskiptur til söfnunarinnar.
Stefán Ingi Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi,
sem sinnir nú hjálparstarfi í Suð-
ur-Súdan, heldur úti blogginu
Dansandibjorn@wordpress.com og
er þar hægt að fylgjast með upp-
lifun hans á aðstæðum á svæðinu.
Neyðarsöfnunin mikilvæg
FRAMKVÆMDASTJÓRI UNICEF Á ÍSLANDI ER Í SUÐUR-SÚDAN
Stefán Ingi
Stefánsson