Morgunblaðið - 23.07.2014, Side 9

Morgunblaðið - 23.07.2014, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2014 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 ÚTSALA Fallegir bolir, toppar, peysur, buxur, pils, leggings og töskur fyrir konur á öllum aldri 20-70%afsláttur Allar töskur á 40%afslætti Verið velkomin • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 Vertu vinurá facebook Útsala Kvartbuxur í fallegum litum Str. 36- 52 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Þúsundir sjónvarpsnotenda hafa haft samband við Ríkisútvarpið frá því að byrjað var að loka á hliðrænar útsendingar og senda aðeins út staf- rænt. Örfáir þeirra hafa hins vegar átt við stór vandamál að stríða og hafa langflestir aðeins verið að afla sér upplýsinga um hvað þeir þurfi að gera til að ná stafræna merkinu, að sögn Gunnars Arnar Guðmundsson- ar, forstöðumanns tæknikerfa RÚV. Hliðrænu útsendingunum var hætt á Suðurlandi í fyrradag og nást þær nú aðeins á höfuðborgarsvæð- inu og á Stór-Eyjafjarðarsvæðinu. Stefnt er að því stafrænu útsending- arnar verði orðnar allsráðandi öðru hvoru megin við áramótin. Hafa leiðbeint fólki Til þess að ná stafrænni útsend- ingu RÚV þarf svonefnt UHF-loft- net og stafrænan móttakara fyrir sjónvarpið. Hægt er að fá loftnetið frá tæpum 6.000 kr. en stafrænn móttakari kostar frá um 12.000 kr. skv. lauslegri könnun Morgunblaðs- ins hjá raftækjaverslunum. Einnig er hægt að leigja stafræna móttak- ara hjá fjarskiptafyrirtækjunum. Stór hluti notenda RÚV finnur ekki fyrir breytingunni þar sem þeir taka nú þegar við útsendingunum í gegnum netið eða eiga sjónvörp sem eru með innbyggðan móttakara fyrir stafrænar útsendingar. „Sjónvörp sem eru eldri en um það bil 2003 árgerð geta ekki tekið við þessum útsendingum nema með móttakara á milli. Þeir sem eru með eldri sjónvörp þurfa að verða sér úti um svoleiðis afruglara eða þá að upp- færa sjónvarpið,“ segir Gunnar Örn. Eðli hliðrænna útsendinga er þannig að ekki er tæknilega hægt að greina hversu margir nota þær. Gunnar Örn áætlar hins vegar að nokkur þúsund Íslendinga hafi enn horft á hliðrænu útsendingarnar. Þegar byrjað var að loka fyrir hliðrænu útsendingarnar var byrjað á svæðum sem hafa upplifað mesta skerðingu á þjónustu RÚV til að þau fengju nýju tæknina fyrst. Starfs- menn RÚV hafa síðan lagt fólki lið við að aðlagast nýjum tímum. „Við höfum verið að leiðbeina fólki í gegnum þessi mál. Hvað það þarf að gera, hvort það þurfi að uppfæra loftnetið, sjónvarpið eða fá sér mót- takara. Við höfum fundið alveg ótrú- lega margar lausnir til að hjálpa fólki,“ segir Gunnar Örn. Morgunblaðið/Ernir Flatskjáir Nýrri gerðir sjónvarpa eru margar með stafræna móttakara inn- byggða. Eldri gerðir þurfa sérstakan móttakara fyrir stafræna merkið. Margir spyrja um nýja tækni  Hliðrænum útsendingum RÚV hætt um áramót  Margir eru þegar tilbúnir Cintamani hefur ákveðið að innkalla fjór- ar barnaflíkur en ástæðan er sú að bönd og reimar í flíkunum samræmast ekki lög- um um öryggi vöru og opinbera markaðs- gæslu og ÍST-staðal um öryggi barnafatn- aðar. T.d. eru bönd í hálsmáli barna yngri en sjö ára ekki leyfileg. Cintamani býður öllum viðskiptavinum sínum sem keypt hafa umrædd föt að snúa sér til Cintamani og fá aðstoð starfsfólks við að fjarlægja böndin úr fatnaðinum þeim að kostnaðarlausu. Neytendastofa hvetur þá sem keypt hafa umræddan fatnað að snúa sér til verslana Cintamani til að gera viðeigandi lagfæringar. Cintamani innkallar fjórar barnaflíkur Innköllun Fötin frá Cintamani. „Allt þetta ár hefur verið síaukin eftirspurn eftir þessum stafrænu móttökurum og líka eftir loftnet- unum,“ segir Sófus Árni Haf- steinsson, verslunarstjóri Elko í Lindum. Í flestum nýjum sjónvörpum er innbyggður móttakari og segir Sófus það vinna gegn eftirspurn- inni eftir utanáliggjandi mót- tökurum. Margir þeirra sem kaupi sér móttakara nú sé fólk sem keypti sér flatskjá áður en það tíðkaðist að stafrænir móttakarar væru inn- byggðir. „Það er allur gangur á því hverjir eru að kaupa þetta. Þetta er mjög algengt í til dæmis sumar- bústaði þar sem fólk er kannski ekki rosalega oft á ferðinni og er ekki með nýj- asta tækið sitt þar,“ segir hann. Algengt fyrir sumarbústaðinn STAFRÆNIR MÓTTAKARAR FYRIR SJÓNVÖRP Útsending RÚV verður stafræn. Rangt mengunargildi Ranglega var greint frá meng- unargildi Volkswagen Golf R-line í bílablaði Morgunblaðsins. Það er ekki 123 g af CO2 á kílómetra heldur 116 g sem gerir hann að visthæfum bíl. Auk þess skal tekið fram að DSG-sjálfskiptingin er 7 þrepa en ekki 6 þrepa. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.