Morgunblaðið - 23.07.2014, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2014
✝ IngveldurEyjólfsdóttir
fæddist 29. júní
1938 í Reykjavík.
Hún lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 15.
júlí 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Laufey
Árnadóttir frá
Teigi í Grindavík,
f. 18.7. 1921, d.
25.11. 1996 og Eyjólfur Kol-
beins Steinsson frá Miðfirði, V-
Húnavatnssýslu, f. 22.9. 1911,
d. 2.11. 1952. Seinni eig-
inmaður Laufeyjar var Gísli
Bjarnason, f. 13.5., d. 27.4.
1988. Systkini hennar eru Hel-
ena Marín Eyjólfsdóttir, f. 23.1.
1942, maki Finnur Eydal, f.
25.3. 1940, d. 16.11. 1996,
Eygló Eyjólfsdóttir, f. 3.7.1949,
sambýlismaður Ásgeir Sveins-
son, f. 25.6. 1954, sammæðra:
Eyjólfur Bjarni Gíslason, f.
13.9. 1954, kvæntur Mary Jane
Rupert, f. 3.8. 1954, Bjargey
Gígja Gísladóttir, f. 12.1.1958,
sambýlismaður Ófeigur Sig-
urðsson, f. 8.4. 1953, samfeðra:
20.1. 1994, c) Elva Margrét, f.
16.5. 2001. 3) Elentínus, f. 22.1.
1965, kvæntur Laritzu Pinero
Ricardo, f. 7.1. 1974, dætur
þeirra eru a) Sheila Barban Pi-
nero, f. 13.10. 1994, sambýlis-
maður Jóhann Magnússon, f.
15.5. 1991, b) Margrét, f. 2.8.
2010. 4) Sævar, f. 29.5. 1972,
kvæntur Steinunni Snorradótt-
ur, f. 10.5. 1972. Börn þeirra
eru a) Rannveig Hlín, f. 1.9.
1998, b) Lína Rut, f. 4.12. 2009,
c) Snorri Þór, f. 16.2. 2011.
Ingveldur ólst upp í húsinu
Höfðaborg og síðar fluttist hún
í Stórholt 19 í Reykjavík. Hún
gekk í Laugarnesskóla og síðar
lá leiðin í Gagnfræðaskóla
Austurbæjar. 17 ára gömul
kynnist hún eiginmanni sínum
og hófu þau búskap stuttu síðar
í lítilli kjallaraíbúð við Brunn-
stíg 2 í Keflavík. 18 ára gömul
eignast hún sinn fyrsta dreng
af fjórum. Leiðin lá síðan á
Vallagötu 4 og lengstan tíma
þeirra búskapar bjó fjölskyldan
að Baugholti 15 sem þau
byggðu 1972. Eftir fráfall
Sverris flutti Ingveldur að Nón-
vörðu 10 og bjó þar til dauða-
dags. Ingveldur var heimavinn-
andi húsmóðir alla sína tíð og
sinnti sinni fjölskyldu af alúð
og ást.
Útför Ingveldar fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag, 23. júlí
2014, kl.13.
Reynir Jónsson
(Eyjólfsson), ætt-
leiddur, f. 1937.
2. júní 1962 gift-
ist Ingveldur Sverri
Elentínussyni, f.
10.8. 1937, d. 23.8.
1991, vörubifreiða-
stjóra og síðar
leigubifreiðastjóra.
Synir Ingveldar og
Sverris eru 1) Eyj-
ólfur, f. 4.2. 1957,
kvæntur Helgu Kristínu Guð-
mundsdóttur, f. 25.5. 1961.
Börn þeirra eru a) Guðmundur
Árni, f. 10.6. 1983, sambýlis-
kona Sunna Sigríður Guð-
mundsdóttir, f. 3.7. 1990, dóttir
þeirra er Helga Kristín. b)
Ingveldur, f. 9.9. 1986, unnusti
Skarphéðinn Njálsson, f. 30.4.
1987, c) Sævar Freyr, f. 17.7.
1993, kærasta Aníta Rut
Adamsdóttir, f. 1.1. 1996. 2)
Sverrir, f. 19.6. 1963, kvæntur
Auði Óskarsdóttur, f. 14.1.
1967. Börn þeirra eru a) Sonja
Ósk, f. 3.8. 1989, unnusti Vikt-
or Guðnason, f. 13.12. 1989, b)
Eyjólfur, f. 2.9. 1992, kærasta
Tinna Björk Stefánsdóttir, f.
Þá hefur mamma kvatt þennan
heim. Þegar ég horfi til baka er
það fyrsta sem kemur í huga minn
hversu einstök kona hún var. Hún
bar hag pabba og okkar bræðr-
anna fyrir brjósti og var alltaf boð-
in og búin að gera allt fyrir okkur.
Eftir að pabbi lést fyrir 23 árum
snérist líf hennar um okkur syn-
ina og fjölskyldur þeirra, enda var
hún alltaf með okkur sama hvað
var gert eða hvert var farið.
Mamma var heimavinnandi
húsmóðir og var alltaf heima þeg-
ar ég kom heim úr skóla eða vinnu
og það fyrsta sem hún spurði:
„Ertu ekki svangur, Sævar
minn?“ Hún hætti ekki fyrr en
hún var búin að koma einhverju
ofan í mig, það gerði hún alla tíð.
Mamma var húsmóðir og sinnti
því hlutverki eins og öllum öðrum,
fullkomlega. Í hverri viku þreif
hún húsið hátt og lágt, bakaði og
þvoði gardínur svo allt yrði „spik
and span“ fyrir helgina eins og
hún orðaði það sjálf. Árið 1983, þá
aðeins 45 ára gömul, fékk mamma
alvarlegt heilablóðfall. Það hafði
gríðarlega mikil áhrif á heilsu
hennar og mikið var tekið frá
henni við það, en með jákvæðninni
og gleðinni náði hún undraverðum
bata. Eftir það lenti mamma oft á
sjúkrahúsi og okkur leist stundum
ekki á blikuna, en alltaf reif hún
sig upp og var mætt á rúntinn
skömmu síðar. Í einni sjúkrahús-
vist hennar sögðu hjúkrunarkon-
urnar við mig að starfið væri mun
væri léttara ef allir sjúklingar
hefðu sömu jákvæðni og mamma
hafði. Alltaf hrósaði hún starfs-
fólkinu, hversu elskulegt það væri
og maturinn góður. Við sögðum
oft við hana að kokkurinn væri
örugglega búinn að fá kauphækk-
un eftir allt hrósið frá henni.
Mamma kom nánast daglega í
kaffi til okkar á bílaleiguna og
settist niður til að spjalla við okk-
ur. Oft og iðulega báðum við hana
að skjótast með okkur þangað
sem þurfti að sækja eða fara með
bíla, það þótti henni gaman og
ekki síður ánægjulegt að geta
hjálpað til. Mamma hafði mikið
gaman af að koma í heimsókn og
sjá barnabörnin stækka og þrosk-
ast. Alltaf lék hún við þau og fífla-
ðist í þeim, henni var alltaf tekið
fagnandi þegar hún bankaði þrisv-
ar á forstofudyrnar og sagði halló
með sinni mildu rödd. Oft æsti
hún krakkana upp og þegar allt
var komið að suðumarki stóð hún
upp, sagði að nú væri kominn tími
til að skella sér og taka smá rúnt.
Undir það síðasta hrakaði
heilsu hennar mikið og hefur hún
eflaust verið hvíldinni fegin og að
fá að hitta pabba loksins aftur. Ég
vil þakka mömmu allt sem hún
hefur gert fyrir mig og fjölskyld-
una. Hennar verður sárt saknað
en minnst með gleði og þakklæti.
Sævar.
Minning þín er ljós í lífi okkar.
Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér.
Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf þér.
Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og
hlíf.
Hún er íslenska konan, sem ól þig og
þér helgaði sitt líf.
(Ómar Ragnarsson)
Þessi fallegi texti Ómars Ragn-
arssonar hefði svo sannarlega get-
að verið saminn um elskulega
móður mína Ingveldi Eyjólfsdótt-
ur. Í fáeinum orðum langar mig að
minnast hennar. Hún var einstök
kona á allan hátt, sem helgaði líf
sitt uppeldi fjögurra kraftmikilla
drengja. Meðan faðir okkar,
Sverrir Elentínusson, vann lang-
an vinnudag sinnti mamma heim-
ilinu af kostgæfni, þannig var hún
ávallt til staðar. Þegar ég lít til
baka sé ég hversu dýrmætt það
var að hafa hana heimavinnandi.
Að loknum skóladegi, á yngri ár-
um, streymdu vinirnir í heimsókn
og heimilið minnti einna helst á
leikskóla. Það var glatt á hjalla og
með bros á vör reiddi mamma
ávallt fram kræsingar í allan skar-
ann. Heimili okkar var sannarlega
kærleiksríkt og hjónaband for-
eldra minna ástríkt og einstakt á
marga vegu. Það eru mikil forrétt-
indi að fá að alast upp við þær að-
stæður, umvafinn ást og um-
hyggju, sem var óendanleg.
Eitt af aðalsmerkjum móður
minnar var jákvæðni á öllum svið-
um. Það lýsir sér best í því hvernig
hún tókst á við erfið veikindi sem
dundu yfir árið 1983. Á skömmum
tíma náði hún undraverðum bata
þrátt fyrir að útlitið hafi ekki verið
gott. Enn á ný sá ég hversu sterk
og heilsteypt kona hún var. Kvart-
aði aldrei og sá ávallt björtu hlið-
arnar á tilverunni, þrátt fyrir að
brekkurnar á göngu lífsins hafi á
köflum verið brattar. Faðir okkar
lést langt um aldur fram, aðeins
54 ára að aldri. Það var fjölskyld-
unni mikið áfall. Eftir stóð
mamma sem klettur en bar harm
sinn í hljóði og helgaði sig barna-
börnunum, sem ljómuðu í hvert
sinni sem þau sáu hana. Síðustu
árin hrakaði heilsu hennar. Með
æðruleysi og þessari óendanlegu
jákvæðni sigraði hún hvert áfallið
af öðru. Jákvæðni hennar var í
raun æðri öllum skilningi. Á
stundum hélt ég að hún ætti ekki
afturkvæmt af sjúkrastofnun. Þá
sem endranær kom hún okkur öll-
um á óvart. Eftir fáeina daga var
hún sest undir stýri á litla bílnum
sínum og ók um götur bæjarins
með bros á vör.
Undanfarin ár var ég þeirrar
gæfu aðnjótandi að eiga hana
móður mína að sem nágranna.
Það var mér dýrmætt að geta
gengið til hennar dag hvern, heils-
að og kvatt með kossi og endur-
goldið henni þá ást og umhyggju
sem hún færði mér á hverjum degi
barnæskunnar. Nærveran færði
henni einnig öryggi, en hún bjó
ávallt ein eftir að pabbi féll frá.
Fyrirmyndir eru okkur öllum
mikilvægar. Það eru mikil forrétt-
indi að hafa átt foreldra sem
færðu manni endalausa ást, ör-
yggi og hlýju. Betra veganesti er
ekki hægt að hugsa sér og er ég
þeim óendanlega þakklátur. For-
eldrar mínir eru sú fyrirmynd
sem ég horfi til í lífinu og er ég
sannfærður um að við byggjum í
betri heimi ef fleiri ættu svona
góðar fyrirmyndir. Mamma þráði
hvíld undir það síðasta. Hún bar
það ekki á torg en við sem þekkt-
um hana sáum hversu þjáð hún
var. Þó svo að söknuðurinn sé sár
er það huggun í harmi að hún þjá-
ist ei meir. Það er erfitt að útskýra
það fyrir fjögurra ára hnátu að
amma Inga sé ekki lengur á meðal
okkar. Það er okkar hlutverk að
halda minningu hennar á lofti rétt
eins og minningunni um Sverri
afa. Minningunni um einstök hjón.
Ég kveð nú móður mína í hinsta
sinn, tárvotur og fullur þakklætis
fyrir einstaka fórnfýsi og ást.
Hvíl í friði, elsku mamma.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þinn,
Elentínus.
Frá fyrstu tíð var elskuleg
móðir mín, hún Ingveldur Eyjólfs-
dóttir, stoð mín og stytta í lífinu.
Hún var nú betur þekkt sem Inga.
Hún var heimavinnandi húsmóðir
alla sína tíð, móðir og eiginkona,
sem gerði allt fyrir drengina sína
fjóra og eiginmann. Pabbi vann
alla tíð mikið og var mikið í burtu
frá heimilinu þannig að allt heim-
ilishald var á herðum mömmu.
Hún var drottningin sem öllu réð,
reglur voru skýrar og við prins-
arnir vorum dekraðir frá fyrstu
tíð. Alltaf var nóg að bíta og
brenna, skúffukökur, jólakökur og
heimabökuð brauð. Veislumatur í
hvert mál. Þegar við strákarnir
fórum síðan að vinna frekar ungir,
var nestið vel útilátið, smurt brauð
með eggjum og síld. Já, síldin
hennar mömmu var einstök og við
vorum vel dekraðir. Þegar árin
liðu og við strákarnir tókum við
Shell á Fitjum var hún mamma
okkar oft kölluð „kakóskutlan“ því
þegar kalt var kom hún reglulega
með heitt kakó til okkar á græn-
um Austin Mini.
Mamma okkar var alltaf létt í
lund, tók öllum erfiðleikum með
brosi á vör og kvartaði aldrei und-
an einu eða neinu. Í mörg ár hefur
hún átt í miklum veikindum en
þrátt fyrir það þá var aldrei „neitt
að henni“. Aðrir voru veikir en
hún aldrei. Hún bognaði, en
brotnaði aldrei þegar mikið lá við
og varð bara sterkari eftir því sem
árin liðu.
Síðustu árin var hún nokkurs
konar bílstjóri bæjarins, rúntaði
um bæinn endalaust eins og leigu-
bílstjóri og stoppaði hér og þar í
kaffi og með því. Hún var sælkeri,
elskaði kökur og sætindi en best
þótti henni að fá vel eldað lamba-
læri eða hrygg.
Mamma mín var yndisleg móð-
ir og eiginkona og besta amma í
heimi. Mátti ekki vamm sitt vita
og auðgaði líf allra sem kynntust
henni. Hennar verður sárt sakn-
að.
Hvíl í friði, elsku mamma mín,
og megi englar alheimsins gæta
þín.
Eyjólfur Sverrisson.
Nú er ferðalagi yndislegrar
tengdamóður og ömmu á þessari
jörð lokið. Ferðalag hennar ein-
kenndist af gleði, bjartsýni, ást og
umhyggju. Inga helgaði líf sitt
eiginmanni, sonunum fjórum og
heimilinu. Hennar mesta yndi var
að vera með sínum nánustu og
gleðjast. Þegar afmæli, ferming
eða annað tilefni var í vændum
þar sem hægt væri að slá upp
veislu var Inga full tilhlökkunar.
Hún beið spennt eftir að fá að
hitta alla, spjalla og síðast en ekki
síst að fá góðar veitingar, enda
alltaf fyrst að standa upp þegar
búið var að segja „gjörið svo vel“.
Hún naut þeirra stunda þar sem
allir voru saman og fannst henni
fólk stundum rjúka of snemma
heim enda sat hún þangað til öllu
var lokið.
Eitt af því sem Inga gerði mikið
af og færði henni mikið frelsi var
að keyra um og skoða bæjarfélag-
ið sitt. Oft þegar hún kom í heim-
sókn sagði hún: „á ekki að taka
rúnt í dag?“. Hún naut þess að
rúnta og borða góðan mat. Að
bjóða henni í mat var það besta
sem hægt var að gera fyrir hana.
Það var nánast sama hvað var í
matinn, aldrei hafði hún fengið
neitt jafn gott. Hún var vanaföst
með eindæmum og hægt hefði
verið að stilla klukkuna eftir
henni. Inga tók sína vanalegu bíl-
túra og yfirleitt á sama tíma dags.
Um helgar kom hún alltaf rétt upp
úr eitt, fékk sér kaffi og settist í
spjall. Inga hafði gaman af barna-
börnunum og var alltaf til í að fífl-
ast í þeim og leika við þau. Hún
söng mikið fyrir börnin og kenndi
þeim þulur og söngva. Oft var
mikið fjör á heimilinu þegar hún
kom og svo sagði hún: „þau eru
svo lífleg og skemmtileg“.
Heilsa Ingu var ekki eins og
best var á kosið og átti hún þykka
og mikla sjúkraskýrslu. Þótt hún
færi á sjúkrahús og það þyrfti eitt-
hvað að hjálpa til við að líkaminn
yrði eins góður og kostur var á þá
var hún alltaf jákvæð og sagðist
strax vera orðin miklu betri. Oft
grunaði mann að hún segðist vera
betri en raunin var, sú jákvæðni
og sannfæringarkraftur sem hún
hafði kom henni hvað eftir annað á
fætur og heim fyrr en áætlað hafði
verið. Eftir að Inga fékk heila-
blóðfallið sagði hún oft önnur orð
en hún hugsaði sem hljómaði
skemmtilega fyrir þá sem heyrðu.
Þegar hún áttaði sig á að hún hafði
sagt einhverja vitleysu var hún
fyrsta manneskjan til að hlægja
að því. Hún hafði húmor fyrir
sjálfri sér og hló manna mest þeg-
ar skondin tilvik komu upp.
Inga hafði mikla unun af að
vera með barnabörnunum og tók
Rannveigu minni eins og sínu eig-
in strax frá byrjun, enda þótti
henni vænt um að Rannveig kall-
aði hana alltaf ömmu sína. Börn-
unum fylgdist hún náið með og
þeirra framförum og þroska. Lína
Rut og Snorri Þór sitja eftir með
margar spurningar um ömmu
sem við reynum að svara eftir
bestu getu. Nú er amma engillinn
þeirra sem passar þau rétt eins og
afar þeirra gera.
Inga hefur haldið af stað í ann-
að og meira ferðalag. Hún var
tilbúin að fara í þá ferð, hitta
Sverri og aðra sem hafa farið á
undan. Við þökkum henni allt sem
hún hefur gefið okkur.
Steinunn, Rannveig Hlín,
Lína Rut og Snorri Þór.
Elskuleg tengdamóðir mín hún
Inga er látin. Ég trúi þessu nú eig-
inlega ekki enn þar sem hún hefur
verið stoðin í mínu lífi frá því ég
var 15 ára gömul. Það var jú þann-
ig að þegar foreldrar mínir fluttu
til Bandaríkjanna þá flutti ég inn
til Ingu þar sem elsti sonur henn-
ar, hann Eyfi, var kærastinn
minn.
Í tæp 40 ár hef ég haft hana
Ingu mína bæði sem vin og sem
tengdamóður. Hún var einstök
manneskja sem gerði öllum jafnt
undir höfði, fór ekki í manngrein-
arálit og talaði ekki illa um einn
eða neinn. Hún kenndi mér að
elda og baka, studdi mig í hvívetna
alla tíð, þoldi mína galla og kvart-
aði aldrei. Aldrei var hún neikvæð
eða tuðandi sem tengdamóðir,
heldur var hún uppbyggjandi og
full af ást. Við ferðuðumst mikið
saman bæði hér heima og erlendis
og alltaf var hún jafn jákvæð og
þægileg í umgengni. Ég á henni
mikið að þakka.
Hún var alltaf tilbúin að passa
og aðstoða eftir því sem hægt var,
kvartaði aldrei þegar beðið var
um aðstoð, alltaf tilbúin. Barna-
börnin voru hennar yndi og naut
hún þess að stjana við þau eftir því
sem tímar leyfðu.
Elsku Inga mín, kærar þakkir
fyrir allt, þú varst yndisleg.
Helga Kristín
Guðmundsdóttir.
Hún Inga systir mín er dáin.
Þrátt fyrir veikindi undanfarinna
ára kom andlát hennar í raun á
óvart, alltaf hafði hún náð sér á
undraverðan hátt og einhvern
veginn töldum við að það sama
myndi gerast núna. En kallið kom
og líklega var hún bara sátt við að
fá að fara til Sverris síns.
Inga var elst af systkinahópn-
um sem samanstóð af þremur
dætrum af fyrra hjónabandi
mömmu, Laufeyjar Árnadóttur
með Eyjólfi Kolbeins Steinssyni;
Ingu, Helenu og Eygló og svo
okkur Edda sem erum fædd í
seinna hjónabandi hennar með
Gísla Bjarnasyni.
Inga var heilum 20 árum eldri
en ég og við því ekki aldar upp
saman. Bæði hún og Helena systir
voru löngu fluttar að heiman og
búnar að stofna fjölskyldur þegar
ég man fyrst eftir mér. Elsti sonur
Ingu, Eyfi, er reyndar árinu eldri
en ég sem gerði það að verkum að
hann bættist á einhvern sjálfsagð-
an hátt í systkinahópinn okkar.
Sem fyrsta barnabarn mömmu
var hann mikið hjá okkur og við
Eygló, Eddi og Eyfi brölluðum
margt saman á þessum árum, ind-
íánaleikir og byssuleikir það
minnisstæðasta. Og svo bættust
synirnir við hver af öðrum hjá
þeim heiðurshjónum, Ingu og
Sverri; Sverrir yngri kom næstur,
síðan Elli og að síðustu Sævar og
þá fékk stóra frænka stundum það
hlutverk að passa.
Það var mikill samgangur við
heimili Ingu og Sverris, sunnu-
dagsbíltúrar til Keflavíkur voru
algengir enda þau hjónin höfð-
ingjar heim að sækja. Inga var
húsmóðir af guðs náð og ef ridd-
arakrossar væru veittir fyrir hús-
móðurstörf hefði hún svo sannar-
lega átt að fá einn slíkan.
Matargerð og bakstur lék í hönd-
um hennar, enda veitti ekki af,
heimilið stórt og mikill gestagang-
ur alla daga. Ég var svo heppin að
fá oft að gista hjá Ingu systur á
þessum árum og tengdist því fjöl-
skyldunni meira en ella. Ekki var
ég nú alltaf sátt við það að Inga
reyndi að taka sér móðurvald yfir
litlu systur og siða hana til en ef-
laust hefur ekki veitt af.
Inga var sannfærð um að stað-
ur móðurinnar væri inni á heim-
ilinu við að hlynna að fjölskyld-
unni. Við systur vorum nú ekki
alltaf sammála um þessi mál þar
sem ég var svona frekar höll undir
kvenréttindabaráttuna. En Inga
var ákveðin kona þrátt fyrir alla
ljúfmennskuna og þegar ég seinna
fór að vinna utan heimilis með ung
börn ávítaði hún mig og sagði að
ég ætti ekki að vinna svona mikið.
Og kannski hafði hún bara rétt
fyrir sér, að minnsta kosti hafa
synir hennar staðið sig afar vel í
lífinu og hugmyndafræði Ingu
skilað sér til fjölskyldna þeirra.
Sambandið minnkaði svolítið
þegar árin liðu og hver fór að
sinna sínu í lífinu. Alltaf héldum
við þó góðu sambandi, sérlega
minnisstætt er 75 ára afmæli Ingu
síðasta sumar þar sem nánasta
fjölskylda hittist og átti góða
stund saman í Skorradalnum sem
og fjölskyldukaffið sem við afkom-
endur mömmu héldum fyrir síð-
ustu jól í Fannafold. Núna eru
þetta dýrmætar stundir í minn-
ingunni.
Samúðarkveðjur sendi ég son-
um Ingu og fjölskyldum þeirra.
Missir þeirra er mikill, kletturinn í
lífi þeirra er horfinn á braut.
Bjargey Gísladóttir.
Vinkona okkar hún Inga eða
„tengdó“ eins og við oft kölluðum
hana er farin frá okkur eftir erfið
og löng veikindi. Við höfum þekkt
hana Ingu í fjöldamörg ár eða frá
þeim tíma sem systir mín hún
Helga fluttist inn til hennar fyrir
um 40 árum. Eðlilegt þótti mér að
kalla hana bara tengdó þar sem
hún var tengdamóðir systur minn-
ar, munaði engu að bæta einni við.
Inga var yndisleg manneskja,
mikill gleðigjafi og viskubrunnur
sem öllum vildi vel. Það hafa verið
forréttindi að eiga hana sem vin-
konu í langan tíma, hlusta á sög-
urnar hennar og ræða við hana
um tilgang lífsins.
Við vorum svo heppin að fá að
vera ein af „stöppustöðunum“
hennar þegar hún rúntaði um bæ-
inn á bílnum sínum. Hún kom
reglulega í heimsókn til okkar og
hver sú stund var dýrmæt og ætíð
okkur til gleði og ánægju.
Hún var vinur okkar beggja,
dásamleg í alla staði, auðgaði líf
okkar og gladdi með allri sinni
visku og kímni. Elsku Inga, kærar
þakkir fyrir vináttuna, hláturinn
og einlægnina. Við eigum eftir að
sakna þín. Hvíl þú í friði, elsku vin-
kona.
Sólveig og Friðjón.
Ingveldur
Eyjólfsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Ingveldi Eyjólfsdóttur
bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.
HINSTA KVEÐJA
Amma var kona sem gaf lífinu lit,
full af kærleik, ást og umhyggju.
Amma var ætíð svo ljúf og góð
og alltaf hún var til staðar.
Hún huggaði ef illa fór,
hressti okkur og kætti.
En þó á móti blési,
einkenndi jákvæðni, gleði
og aðdáunarverður styrkur hana
alla tíð.
Svo ótal margs er að
minnast og geymum við
dýrmætar minningar í
hjörtum okkar. Hönd þín
snerti sálu okkur og fót-
spor þín liggja um líf okkar
um ókomna tíð.
Eitt að lokum amma:
Bond, James Bond!
Við elskum þig.
Sonja Ósk, Eyjólfur
og Elva Margrét.