Morgunblaðið - 23.07.2014, Page 24

Morgunblaðið - 23.07.2014, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2014 ✝ Sigurbjört Júl-íana Gunnars- dóttir fæddist 25.12. 1942 í Reykjavík. Hún lést á heimili sínu, Kjarrheiði 13, Hveragerði, þann 11. júlí 2014. Foreldrar henn- ar voru Gunnar Sverrir Guðmunds- son, vöru- bifreiðastjóri, f. 28. júní 1917, d. 21. júní 1963, og Bjarndís Jóns- dóttir, húsmóðir, f. 7. mars 1920, d. 27. september 2004. Systkini Sigurbjartar eru 1) Guðrún Elín, f. 29. mars 1946, d. 31. des. 1997, var gift Erni Pét- urssyni, f. 16. apríl 1946. 2) Unn- ur, f. 23. sept. 1947, var gift Baldri Heiðdal, f. 20. maí 1943, d. 24. maí 1999. 3) Jóhannes Jón, f. 6. maí 1950, giftur Ásgerði Flosadóttur, f. 11. nóv. 1954. 4) Gunnar Björn, f. 14. júlí 1959, giftur Þorgerði Þráinsdóttur, f. 20. mars 1961. 5) Helga, f. 1. ágúst 1961, gift Erni Sævari Rósinkranssyni, f. 28. nóv. 1958. Hinn 25. desember 1964 kvænt- ist Sigurbjört Erni Sigurðsyni tryggingamiðlara, f. 30.8. 1940. ar Þór Arnarson, f. 1. mars 1971, d. 28.mars 1987. Sigurbjört ólst upp í Hlíð- unum í Reykjavík og síðar í Laugarneshverfi, varð gagn- fræðingur úr Austurbæjarskóla 1959 og hóf þá störf hjá Trygg- ingarstofnun ríkisins. Sig- urbjört dvaldist á Englandi 1961-1962 við enskunám og sinnti börnum og búi frá 1964- 1977 , þegar hún hóf störf hjá RARIK. Sigurbjört rak eigin skóbúð á Laugaveginum 1985- 1991. 1992-1999 vann hún við ýmis verslunarstörf. Sigurbjört og eiginmaður hennar Örn bjuggu lengst af í Reykjavík eða þar til þau fluttu til Mosfells- bæjar 1991. Árið 1999 fluttist hún ásamt manni sínum til Hveragerðis og lærði tiffany glerskurð og rak í kjölfarið listasmiðjuna Grænu smiðjuna og hélt námskeið fyrir eldri borgara í glerskurði ásamt fleiru frá 1999-2003. Á sama tíma hóf hún nám í svæðanuddi, höfuðbeina- og spjald- hryggjajöfnun, Bowen tækni, Orku punkta jöfnun (OPJ) og heilun. Samhliða heil- unarstörfum vann Sigurbjört hjá garðyrkjudeild Hveragerð- isbæjar, Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði og hjá Sundlaug Selfoss á árunum 2003-2012. Útför Sigurbjartar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 23. júlí 2014, og hefst athöfnin klukkan 15. Foreldrar Arnar voru Sigrún M. Arnórsdóttir mat- ráðskona, frá Ups- um í Svarfaðardal, f. 30.1. 1913, d. 22.4. 1969, og Sig- urður Guðmunds- son skipstjóri, frá Dvergasteini við Álftafjörð vestra, f. 10.5. 1904, d. 8.5. 1971. Systir Arnar var Þóra Rannveig Sigurð- ardóttir f. 3. nóv. 1936, d. 13. sept. 2008. Börn Sigurbjartar og Arnar eru 1) Sigrún Margrét, f. 25. jan. 1964, maki Geir Gunn- arsson, þau eiga eina dóttir, Fil- ippíu Lind, fyrir átti Sigrún Sunnu Dís, barn hennar er Gunnar Ingi, fyrir átti Geir a) Margréti Ólöfu, börn hennar eru Andrea og Hálfdán Daði, b) Helgu Rún, maki hennar er Daníel Dawit og börn þeirra eru Julien, Alexander, Ísak og Soffía 2) Bjarndís Arnardóttir f. 30. sept. 1965. Börn hennar eru Júlíana Björt og Ísabella Mar- grét. 3) Örn Arnarson, f. 23. maí 1969, börn hans eru a) Birna María, barn hennar er Matthías Húni, b) Ásta Jóhanna. 4) Gunn- Elskuleg móðir okkar hefur nú yfirgefið þennan heim. Hver gat ímyndað sér að svona geisl- andi glæsileg og sterk kona eins og mamma myndi yfirgefa okkur svona snemma? Satt best að segja kom þetta eins og reiðars- lag því okkur fannst hún eiga svo mikið inni. Það er þó huggun harmi gegn að mamma óttaðist ekki dauðann og talaði um hann af mikilli virðingu, reyndar full- viss um að hann væri einfaldlega ekki til. „Ég fer með gleði þegar minn tími kemur,“ sagði hún án þess að blikna. Það er svo margt hægt að segja um hana mömmu. Hún var svo mikil hetja enda ýmis ljón að kljást við á vegi hennar við- burðaríku ævi. Hún var heil- steypt og vel gerð kona, hafði sterka réttlætiskennd og djúpa samúð með þeim sem minna máttu sín. Hún var í einu orði sagt stórbrotin manneskja með hjarta úr skíragulli. Hún var kletturinn í lífinu, stoð okkar og stytta í blíðu og stríðu. Mamma hafði sterkar skoðanir á lífinu og tilverunni og var trú sjálfri sér fram í rauðan dauðann þótt við værum ekki endilega sammála henni í einu og öllu, en þeir sem standa og falla með sjálfum sér eins og mamma gerði eiga að- dáun skilið. Hún vakti athygli og lét að sér kveða hvar sem hún kom og lagði sitt af mörkum til samfélagsins hvort sem það var í pólitík, umhverfisvernd, list eða heilun. Hún var líka með ein- dæmum trygglynd og studdi sitt fólk með ráðum og dáð, sem og aðra sem til hennar leituðu, á sama hátt og hún gerði allt ann- að í lífinu, af heilum hug og hjarta. Ef mamma hafði trú á einhverju gekk hún alla leið af mikilli þolinmæði og óbilandi þrautseigju ef því var að skipta. Hálfkák var henni einfaldlega ekki að skapi og sem betur fer trúði mamma á það góða og ræktaði það af mikilli list fram á síðasta dag. Mamma Aldrei sem fyrr Sungu spörfuglarnir sín fegurstu ljóð meðan ljárinn framhjá reið Móðir vor, heimsins fegursta fljóð, lifði sitt mesta umbreytingarskeið til æðri heima í ferðalag tróð Eitt augnablik stendur tíminn kyrr Móður hjartað staðnar Í kvöldsins hljóða húmi hlátur lífsins hjaðnar í tárvotu tómarúmi úr blásvörtu myrkri rísa augu ljóssins í eilífum styrki vakn-andi (BA) Elsku mamma, við kveðjum þig með sárum söknuði, en erum jafnframt þess fullvissar að þú munt vaka yfir okkur dag og nótt eins og þú varst vön. Þínar dæt- ur, Bjarndís Arnardóttir og Sigrún Margrét Arnardóttir. Elsku fallega, geislandi amma okkar, við kveðjum þig í dag með mikinn söknuð í hjarta. Það er búið að reynast okkur mjög erf- itt að setjast niður og rifja upp allar ótrúlegu dýrmætu minning- arnar um þig, elsku amma, því þá þurfum við virkilega að við- urkenna að þú sért farin frá okk- ur. Við vorum svo nánar þér og þú varst svo stór partur af okkar lífi. Þú hafðir svo sterk áhrif á okkur og varst svo heilbrigð og sterk fyrirmynd fyrir okkur, stelpurnar þínar. Elsku amma, þú kenndir okkur að það mik- ilvægasta sem við eigum er heils- an okkar og þú varst svo sam- kvæm sjálfri þér í öllu sem þú kenndir öðrum. Við fylltumst alltaf svo miklu stolti og monti þegar við gátum bent öðrum á að þú værir amma okkar, því þú varst svo geislandi falleg og fág- uð kona. Það var svo æðislegt að koma til þín og afa í Hveragerði, nærvera þín var ávallt mjög lær- dómsrík og þér fannst svo gam- an að kenna okkur allt sem þú hafðir lært. Þú varst líka svo góður kennari, elsku amma, orð Gandhi um að vera sú breyting sem maður vill sjá í heiminum lýsa þér mjög vel, elsku amma. Þú hafðir sterkar skoðanir og varst mikill frumkvöðull í heilsu- málum en þú hafðir líka mikla reynslu og kenndir einungis það sem þú og afi hefðuð prófað sjálf. Amma var mikill heilari og náttúrubarn. Henni leið best í kröftugu orkunni í Hveragerði og árin sem hún lifði þar voru hennar bestu. Hún lifði og hrærðist í að bæta sjálfa sig og umhverfið sitt. Hún amma hafði mikinn áhuga á fólki og að hjálpa öðrum var henni mjög mikil- vægt. Hún amma var ávallt til staðar og henni þótti svo afskap- lega vænt um fjölskylduna sína. Það er okkur afskaplega þungbært að kveðja þig, elsku amma okkar. Við munum sakna þín og elska þig til æviloka og minning þín mun halda áfram að veita okkur andagift á ókomnum árum. Við kveðjum þig í dag með mikla sorg og tómleika í hjarta en á sama tíma mikið stolt og þakklæti fyrir að hafa átt svona góð ár með þér, elsku amma. Við vitum að þú munt halda áfram að kenna okkur og fylgja okkur út lífið. Sunna Dís Jónasdóttir og Filippía Lind Geirsdóttir. Góð vinkona, Sigurbjört Gunnarsdóttir, er látin. Hún hafði verið slöpp í nokkra daga, hallaði sér rétt fyrir kvöldmatinn og sofnaði svefninum langa. Þeg- ar náinn ættingi eða vinur fellur frá deyr partur af manni sjálfum. Sibba var yndisleg kona, ég kynntist henni fyrst fyrir tæp- lega 30 árum. Við vorum vinnu- félagar hjá Alþjóða líftrygginga- félaginu í Reykjavík þar sem bóndi hennar, heiðursmaðurinn Örn Sigurðsson, var sölustjóri. Sigurbjört var hvort tveggja í senn Reykjavíkurmær og sveita- stelpa, hún var alin upp í Eski- hlíð og Laugarnesi og hafði dval- ið í Skagafirði og Vopnafirði. Sibba hafði því frá mörgu skemmtilegu að segja. Sigur- björt var hlý kona, hún hafði um- hyggju fyrir fólki að leiðarljósi í lífinu. Því kynntist ég nýlega. Hún hafði hendur „heilarans“, hún sá að mér leið ekki vel og bauðst til að hjálpa mér. Verk- urinn sem hrjáði mig hvarf eins og dögg fyrir sólu, því gleymi ég aldrei. Elsku Sibba, takk fyrir allt. Örn, kæri vinur, ég votta þér og þínum innilega samúð. Þórarinn Björnsson. Okkur langar að minnast með örfáum orðum okkar kæru vin- konu Sigurbjartar eða Sibbu eins og hún var kölluð. Andlát hennar bar brátt að eftir stutt veikindi og höfum við ekki áttað okkur á því ennþá. Við vorum fjórar vinkonur frá 12 ára aldri, Sibba, Guðrún, Sigga og Inga. Gengum við allar í Gaggó Aust og hefur vinátta okkar haldist alla tíð. Maddý bættist í hópinn nokkrum árum seinna og áfram héldum við ásamt eiginmönnum okkar og fjölskyldum góðu sambandi. Í fjöldamörg ár höfum við vinkon- urnar farið reglulega á kaffihús og í búðaráp, hafa það verið ógleymanlegar stundir. Stórt skarð kom í hópinn þegar Inga féll frá fyrir 11 árum. Síðasta ár- ið hefur Maddý verið á sjúkra- deild Eirar og við þrjár heimsótt hana og farið á kaffihús á eftir. Sibba var glæsileg kona, falleg jafnt að utan sem innan. Elsku vinkona, Guð blessi þig og megir þú hvíla í friði. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum (H.J.H) Elsku Öddi, Sigrún, Dísa, Örn og fjölskyldur. Okkar innilegustu samúðarkveðjur, Guð blessi ykk- ur og styrki í ykkar miklu sorg. Guðrún, Sigríður Björg og Magnea. Þegar Örn vinur minn hringdi og tjáði mér að Sigurbjört konan sín væri dáin, brá mér heldur betur í brún því þessi unglega og fallega kona var í mínum huga fyrirmynd annarra varðandi heilbrigðan lífsstíl og í hvert skipti sem ég heimsótti þau hjón- in fórum við gjarnan að tala um heilsuna eða eitthvað heilsu- tengt. Ég kynntist Erni og Sibbu, eins og hún var gjarnan kölluð, fyrir 30 árum þegar ég hóf störf við tryggingasölu. Eitt af því sem maður tók strax eftir í lífi þeirra Arnar og Sibbu var hvað þau voru einstaklega samrýmd hjón og þegar ég fór í sölutúra út á land, kom ég gjarnan við hjá þeim í bakaleiðinni hvort sem þau bjuggu í Mávahlíðinni, Mos- fellsbæ eða nú síðast í Hvera- gerði og naut einstakrar gest- risni þeirra. Fyrir nokkrum árum hóf Sibba að sækja ýmis námskeið í óhefðbundnum lækningum og meðferðum s.s. reiki, Bowen tækni og höfuðbeina- og spjald- hryggjameðferð. Hún var óþreytandi við að sækja sér sí- fellt meiri þekkingu á þessu sviði og það lá einstaklega vel fyrir henni að nýta hæfileika sína í þágu þeirra sem til hennar leit- uðu. Síðastliðinn vetur fórum við konan mín í sund og hittum þar Bjarndísi dóttur Sibbu og Arnar. Við fórum að tala um vöðvabólgu og/eða hálsvandamál sem hrjáði mig á þessum tíma og Bjarndís sagði mér að hún hefði sjálf lengi glímt við svipuð einkenni en náð að lokum góðum bata með aðstoð móður sinnar. Ég ákvað þá að leita til Sibbu til þess að komast í meðferð hjá henni. Ég keyrði til Hveragerðis og Sibba og Örn tóku vel á móti mér eins og venjulega. Meðferð- in hjá Sibbu var notaleg upplifun og ég fann strax að hún gaf sig alla í að reyna að lækna mig. Þegar meðferðinni var lokið þann dag beið mín svo kom- bucha- heilsudrykkur sem Örn hafði lagað og sat ég með þeim hjónum í góðan tíma að spjalla áður en ég hélt heim. Eftir þetta mætti ég vikulega til meðferðar hjá Sibbu og eftir hvert skipti leið mér betur og betur og verð ég henni ævinlega þakklátur fyrir hjálpina. Burt séð frá öllum þeim námskeiðum sem Sibba hafði farið á, þá held ég að hún hafi sjálf haft dulinn lækningarmátt, enda var hún mjög andlega sinnuð kona. Enginn veit hvenær kallið kemur og í tilfelli Sibbu kom það vissulega mjög óvænt. Það fær mann til að hugsa og hvetur mann til að njóta og þakka fyrir hverja stund. Ég er viss um vel verði tekið á móti Sigurbjörtu í andlega heim- inum sem ég trúi að verði heim- kynni okkar allra eftir að kallið kemur. Ég er afar þakklátur fyr- ir að hafa kynnst þessari góðu konu, Sigurbjörtu og hún skilur eftir sig góðar minningar sem bæði ég og konan mín munum geyma. Hugur minn er hjá Erni vini mínum og fjölskyldu hans. Ómar Einarsson og fjölskylda. Sigurbjört Júlíana Gunnarsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma mín, mikið á ég eftir að sakna þín. Ég á eftir að sakna þess að sjá þig á fimleikasýning- unum, en þú varst svo dug- leg að koma, amma, og það var svo gaman að fá þig. Ég á líka eftir að sakna þess að fara með þér á blómadagana í Hveragerði, elsku amma mín, og halda fimleikasýn- ingu fyrir þig og afa í Kjarr- heiðinni og leggjast svo á bekkinn þinn og fá heilun. Ég er svo glöð að þú komst í afmælið mitt í sumar, skemmtilegasta afmælið mitt. Ég veit að englarnir passa þig vel og vandlega. Bless, amma mín. Þín Ísabella Margrét. Þótt minn elskulegi faðir og kæri vinur hafi nú kallaður verið heim til himinsins sælu sala og sé því frá mér farinn eftir óvenju farsæla og gefandi samferð, þá bið ég þess og vona að brosið hans blíða og bjarta áfram fái ísa að bræða og lifa ljóst í mínu hjarta, ylja mér og verma, vera mér leiðarljós á minni slóð í gegnum minninganna glóð. Og ég treysti því að bænirnar hans bljúgu mig blíðlega áfram munu bera Reynir Þór Reynisson ✝ Reynir ÞórReynisson fæddist í Reykja- vík 11. janúar 1983. Hann lést á Seltjarnarnesi 1. júlí 2014. Reynir Þór var jarðsung- inn í kyrrþey 15. júlí 2014. áleiðis birtunnar til, svo um síðir við ljúflega hittast munum heima á himnum og samlagast í hinum eilífa ljóssins yl. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Guð geymi þig, elsku pabbi okkar, þín Emilía Mist, Stefán Darri og Hildur María. Glettilegt bros, stór og opinn faðmur, alltaf, einstök nærvera. Þannig vil ég minnast míns kæra vinar, Reynis Þórs. Ég kynntist Reyni fyrir u.þ.b. 13 árum þegar hann og Elín Thelma, föðursystir Önnu Hildar minnar, fóru að vera saman. Með árunum sem liðu styrktust bönd- in enn frekar og eyddum við ófáum stundum saman. Nú, þegar við stöndum frammi fyrir hinni ísköldu staðreynd, eru það endurminningarnar sem ylja okkur eftirlifendum og voru gleðistundirnar margar. Samver- an í Tjarnarbólinu, þar sem Elín og fjölskylda bjuggu á sínum tíma, á Skerjabrautinni, þar sem þau Reynir keyptu sína fyrstu íbúð, á Akurbrautinni í Njarðvík, Austurströndinni, í Skála og á Laugarvatni og allar stóru stund- irnar, eins og fæðing barna þeirra, afmælin öll og glæsilega brúðkaupið þeirra. Allt lék í höndunum á Reyni, hann gat bókstaflega allt, gerði það vel, en á ljóshraða, hvort sem það var að smíða, mála eða annað. Hann fléttaði hár listilega vel og nutu stúlkurnar í fjölskyldunni góðs af því. Þegar fjölskyldan bjó í Njarðvíkum stundaði Reynir nám í Keili og var unun að koma að honum inni í bílskúr þar sem hann glímdi við stærðfræðidæmi og önnur heimaverkefni og vita af því hversu vel honum gekk. Þeg- ar ég var ein með Önnu Hildi var hann fyrstur á staðinn til þess að mála, lakka eða veggfóðra. Hon- um fannst það eins sjálfsagt og væri ég systir hans. Við töluðum oft um að við værum bara „eins og fjölskylda“. Hann var vinur vina sinna, traustur sem klettur. Fjölskylda Reynis er einkar sam- heldin og hefur mér þótt aðdáun- arvert hvað þau hafa alltaf verið dugleg að gera allt saman. Svo kynntist hann Inga mínum og áttu þeir sameiginlega ástríðu í veiðiskapnum sem þeir ræddu í hvert skipti sem þeir hittust. Enn og aftur er maður minnt- ur á vanmátt sinn og smæð í líf- inu. Harmurinn er svo óendan- lega sár að orð mega sín lítils. Með þakklæti, virðingu og ást kveð ég nú vininn minn ljúfa með fallegu bláu augun. Elínu, börn- um þeirra og fjölskyldunni allri votta ég mína dýpstu samúð. Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Kalhil Gibran) Anna Guðrún Konráðsdóttir og fjölskylda. Grein vantaði Við úrvinnslu greina um Reyni Þór Reynisson urðu þau leiðu mistök að grein barna hans, Emelíu Mistar, Stefáns Darra og Hildar Mar- íu, rataði ekki með í birtingu í gær. Það leiðréttist hér með og eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar. LEIÐRÉTT Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.