Morgunblaðið - 23.07.2014, Side 27
unarkerfisins InfoStore.
„Nokkrar verslunarlausnir og þar
á meðal InfoStore voru síðan samein-
aðar í eina lausn sem í dag nefnist LS
Nav og byggist á viðskiptakerfinu
Microsoft Dynamics NAV. LS-
lausnin er notuð í yfir 47 þúsund
verslunum og í yfir 111 þúsund af-
greiðslutækjum um allan heim. LS
Retail er með yfir 150 endursöluaðila
í yfir 60 löndum.
LS Retail hafa verið veittar allar
helstu viðurkenningar innan Micro-
soft, meðal annars President Club,
Inner Circle og ISV of the year for
Central and Eastern Europe.
Vinna mín hjá LS Retail hefur gef-
ið mér tækifæri til að ferðast um all-
an heim og kynnast fjölda skemmti-
legra samstarfsaðila. Ég hef orðið
þeirrar gæfu aðnjótandi allan minn
starfsferil að vinna með hæfum og
metnaðarfullum einstaklingum og fá
að takast á við spennandi og metn-
aðarfullar áskoranir.“
Fjölskylda
Eiginkona Matthíasar er Laufey
Guðjónsdóttir, f. 24.7. 1968, sérfræð-
ingur hjá Fjármálaeftirlitinu. For-
eldrar hennar eru Guðjón Jóhanns-
son, f. 10.5. 1936, fyrrv. útibústjóri í
Reykjavík, og Hrefna Bjarnadóttir, f.
30.3. 1938.
Synir Matthíasar og Laufeyjar eru
Guðjón Georg Matthíasson, f. 9.11.
1995, nemi í Reykjavík, og Matthías
Ólafur Matthíasson, f. 15.1. 2000,
nemi í Reykjavík.
Bræður Matthíasar eru Jón Viðar
Matthíasson, f. 28.7. 1959, slökkvilið-
stjóri höfuðborgarsvæðisins; Magnús
Helgi Matthíasson, f. 25.3. 1967, inn-
kaupastjóri í San Jose í Bandaríkj-
unum; Einar Ólafur Matthíasson, f.
26.9. 1971, framkvæmdastjóri í
Reykjavík; Herjólfur Hrafn Matt-
híasson, f. 12.7. 1982, fram-
kvæmdastjóri og tónlistarmaður í
Garðabæ.
Foreldrar Matthíasar eru K. Kol-
brún á Heygum Magnúsdóttir, f.
30.7. 1942, klínískur tannsmiður og
söngkona í Garðabæ, og Matthías
Matthíasson, f. 14.10. 1937, tækni-
fræðingur í Reykjavík.
Úr frændgarði Matthíasar Einars Matthíassonar
Matthías Einar
Matthíasson
Anna Kristina á Heygum
húsfreyja í Vestmanna
Ólafur á Heygum
forstjóri í Vestmanna
í Færeyjum
Herborg á Heygum Sigurðsson
hárgreiðsludama og húsfreyja
í Reykjavík og Færeyjum
Magnús Sigurðsson
yfirlögregluþjónn í Rvík
K. Kolbrún á Heygum
Magnúsdóttir
söngkona og klínískur
tannsmiður í Garðabæ
Guðrún Tómasdóttir
húsfreyja á Stórafjalli
Sigurður Magnússon
b. á Stórafjalli í Borgarfirði
Jón Viðar Matthíasson
slökkviliðstjóri
höfuðborgarsvæðisins
Louisa Matthíasdóttir
myndlistarmaður í New York
Temma Bell
myndlistarmaður og bóndi í
Dehli New York Bandaríkjunum
Magnús Helgi Matthíasson
innkaupastj. í San Jose
Bandaríkjunum
Einar Ólafur Matthíasson
framkvæmdastjóri í Rvík
Herjólfur Hrafn Matthíasson
framkvæmdastjóri
og tónlistarmaður í Rvík
Kristín Brandsdóttir
nuddkona í Reykjavík
Dr. Helgi Pjeturss
jarðfr. og heimspekingur í Rvík
Helga Kristín Helgadóttir
Pjeturss húsfreyja í Rvík
Matthías Einars Matthíasson
fulltrúi í Reykjavík
Matthías Matthíasson
tæknifræðingur. í Rvík Matthías Einarsson
yfirlæknir í Reykjavík
Sigrún Simons
húsfr. í Bandaríkjunum
og Reykjavík
Christina Simons
ljósmyndari
í Melbourne Ástralíu
Maya Simons
sjúkraflutningakona
California Bandaríkin
Ellen Ludvika Matthíasdóttir
Johannessen
húsfreyja í Reykjavík
Matthías Johannessen
skáld í Reykjavík
Jóhannes Johannessen
lögfr. Landsbankans
Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri í Rvík
Haraldur Johannessen
ritstj. Morgunblaðsins
Haraldur Johannessen
aðalféhirðir í Reykjavík
KörfuboltastjarnanMatthías leikur
með skólaliði Marquette University
High School, 1982.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2014
101 árs
Herdís Jóhannsdóttir
90 ára
Guðríður Júlíusdóttir
85 ára
Elsa Friðriksdóttir
Guðjón Símon Björnsson
Helga Jóhannesdóttir
Hólmfríður Kristjánsdóttir
Sigríður Hjartardóttir
80 ára
Erla Sveinbjörnsdóttir
Halldór Halldórsson
Hulda Jónsdóttir
Magnfríður Dís
Eiríksdóttir
Ólöf Ólafsdóttir
Sigurlaug G. Egilsdóttir
Þórdís Jóna Óskarsdóttir
75 ára
Erna Geirmundsdóttir
Guðlaug S. Gunnarsdóttir
Hrefna Sighvatsdóttir
Samúel Ásgeirsson
Snæbjörn Kristjánsson
Sveinn G. Hálfdánarson
Sveinn Sigurjónsson
Sveinn Steinar Guðjónsson
70 ára
Guðmundur Teitsson
Helga Jónsdóttir
Kristján Finnsson
Magnea Magnúsdóttir
Sjöfn Gunnarsdóttir
Þorgeir Ingvason
Þorsteinn Þorsteinsson
60 ára
Árni Árnason
Davíð Hauksson
Guðmundur Guðmundsson
Guðni Karl Harðarson
Gunnar Einarsson
Jóhannes Jóhannesson
Jón Kristján Þorvarðarson
Laura Sch. Thorsteinsson
Lilja Þórey Þórðardóttir
Margrét Sigurðardóttir
Pálína A. Ragnarsdóttir
Páll Finnbogi Aðalsteinsson
Sigrún Lára Björnsdóttir
Stefanía Skarphéðinsdóttir
50 ára
Agnar Darri Gunnarsson
Birna Guðmundsdóttir
Dagbjört Kr. Þórhallsdóttir
Emelía D. Guðbjartsdóttir
Gísli Jónsson
Haraldur Rúnar Hinriksson
Hrönn Helgadóttir
Jóhanna Jóhannesdóttir
Matthías E. Matthíasson
Pétur Guðjónsson
Sigurður Sívertsen
40 ára
Guðfinna Björk Birgisdóttir
Ingi Stefán Guðmundsson
Ólafur B. Finnbogason
Pim Sinpru
Róbert Ólafur Sigurðsson
Vitor M.M. Guerra
Þuríður J. Sigurðardóttir
30 ára
Daði Geir Sverrisson
Erlendur Kristjánsson
Eva Rós Valgarðsdóttir
Helga Lóa Sverrisdóttir
Indriði Kristjánsson
Jennifer Y.G. Calpa
Katrín Ósk Geirsdóttir
Maria Dolores Moya Ortega
Óskar Sveinsson
Rakel Sæmundsdóttir
Sandra Gestsdóttir
Sigríður Rafnsdóttir
Steinar Sigurpálsson
Þorsteinn Yngvason
Þráinn Svan Gíslason
Til hamingju með daginn
30 ára Sverrir ólst upp í
Reykjavík, er þar búsett-
ur, lauk BA-prófi í lög-
fræði frá HÍ, stundar þar
MA-nám í lögfræði og rit-
stýrir jafnframt www.ein-
stein.is.
Maki: Álfheiður Haf-
steinsdóttir, f. 2.3. 1987,
þroskaþjálfi.
Foreldrar: Kristjana
Kjartansdóttir, f. 26.1.
1949, heimilislæknir, og
Björgvin Bjarnason, f. 2.5.
1949, heimilislæknir.
Sverrir
Björgvinsson
30 ára Gyða ólst upp á
Ísafirði, býr á Sauðár-
króki, er félags- og stuðn-
ingsfulltr., förðunarfr. og
matráður.
Maki: Björgvin Jónsson,
f. 30.3. 1986, starfsm.
Eirar.
Sonur: Guðbrandur
Bjarni, f. 17.8. 2010.
Foreldrar: Þórdís Ólöf
Eysteinsdóttir, f. 6.3.
1962, þjónustufulltrúi.
Níels Ragnar Björnsson, f.
31.8. 1962, matsveinn.
Gyða M. Níels-
dóttir Waage
30 ára Heiðrún lauk BS-
prófi í sálfræði og er í
MPH-námi í lýðheilsuvís-
indum við HÍ þar sem hún
sinnir einnig rannsóknum.
Maki: Friðjón Sigurð-
arson, f. 26.8. 1978, verk-
fræðingur.
Sonur: Dagur Jóhann, f.
5.8. 2011.
Foreldrar: Hlöðver Berg-
mundsson, f. 17.2. 1954,
verkefnisstjóri, Jóhanna
Óskarsdóttir, f. 22.1. 1955,
sjúkraþjálfari.
Heiðrún
Hlöðversdóttir
Sunna Helgadóttir hefur varið dokt-
orsritgerð sína við Líf- og umhverf-
isvísindadeild Háskóla Íslands. Rit-
gerðin ber heitið: Frávik í
amínóasýleringu. Athuganir á óvenju-
legri amínóasýleringu í tveim veldum
lífs (á ensku: Alteration of normal am-
inoacylation. A study of anomalous
aminoacylation in two domains of
life).
Nýmyndun próteina er undirstaða
frumustarfs. Þessir ferlar voru til stað-
ar í seinasta sameiginlega forföður nú-
verandi lífvera. Þrátt fyrir þennan
sameiginlega uppruna og varðveitt
hlutverk prótein-nýmyndunar eru ýmis
frávik þekkt. Ein tilgáta hefur þó hald-
ið til þessa, en hún er að öll kjarnkóð-
uð tRNA fyrir einstaka amínósýru eru
aðeins hlaðin af einu espunarensími.
Þessi tilgáta er afsönnuð í fyrri hluta
ritgerðinnar. Önnur tilgáta sem nýlega
var afsönnuð, er að Cystein-
tRNACystein sé myndað í einu skrefi.
Þetta ferli er skoðað í seinni hluta rit-
gerðarinnar.
Fyrst er sýnt að frumdýrið Tryp-
anosoma brucei (sem veldur svefn-
sýki) þarf tvö espunarensím fyrir tryp-
tófan og tvö fyrir aspartik-sýru. Þetta
stafar af því að hluti tRNA-sameinda
fyrir þessar amínósýrur er fluttur inn í
hvatbera þar sem þeim er breytt.
TrpRS1 og AspRS1
hlaða tilsvarandi
tRNA í umfrymi á
meðan TrpRS2 og
AspRS2 eru í hvat-
bera. Mögulega
mætti nýta óvenju-
lega sérhæfni
þessara ensíma til
að hanna lyf gegn
svefnsýki en fá lyf
gegn henni eru þekkt og þau hafa oft
alvarlegar aukaverkanir.
Myndun Cys-tRNACys í methan-
myndandi fornbakteríum hefur nýlega
verið lýst. Í þessu ferli er fosfóserín
notað sem forstigsefni fyrir serín-
nýmyndun. Í upphafi seinni hluta rit-
gerðarinnar er skoðað hvernig fosfó-
serín er myndað sem forstigsefni í ser-
ín-nýmyndunarferlinum. Í þessum
lífverum hefur aspartat amínótr-
ansferasi breiðari virkni en í öðrum líf-
verum, hann er einnig með virkni
fosfóserín transamidasa.
Að lokum eru skoðað hvaða am-
ínósýrur í Sep-tRNA:Cys-tRNA pró-
teininu eru mikilvægar fyrir virkni
hvatans. Amínósýrur sem taldar voru
taka þátt í að binda pýridoxal fosfat og
fosfóserín voru skilgreindar og þeim
stökkbreytt til að sannreyna hlutverk
þeirra í virkni þessa hvata.
Sunna Helgadóttir
Sunna Helgadóttir er fædd 10. júní 1979. Hún lauk BS-gráðu í líffræði frá Há-
skóla Íslands 2002 og fjórða árs námi við sama háskóla 2003. Sunna er dóttir
hjónanna Helga Jóhannessonar og Elínar Sigurbjargar Jónsdóttur. Sunna starf-
ar sem sérfræðingur á veirudeild Landspítala – háskólasjúkrahúss.
Doktor
Lífið er til þess að njóta gæða
– veldu steik eins og steik á að bragðast
Barónsstíg 11
101 Reykjavík
argentina.is
Borðapantanir
551 9555