Morgunblaðið - 23.07.2014, Síða 28

Morgunblaðið - 23.07.2014, Síða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þið eruð eins og milli steins og sleggju í ákveðnu máli. Gefðu þér líka tíma til að eiga samverustundir með fjölskyldunni. 20. apríl - 20. maí  Naut Takirðu áhættu þarftu líka að vera mað- ur til að taka afleiðingunum. Lestu í vísbend- ingarnar. Reyndu að halda í vonina og bjart- sýnina. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Jafnvel flóknasta viðfangsefni, eins og að láta samband ganga upp, er gert með litlum en raunhæfum skrefum. Besta leiðin til þess að mæta því er að þegja eða sýna þol- inmæði. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert svo vinsæll núna að þér verður kannski hrósað fyrir það sem þú átt ekki heiðurinn af. Reyndar er líklegt að of margir kokkar séu að vesenast í kássunni, ef svo má segja. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur þörf fyrir að ræða áhyggjur þínar við einhvern en skalt varast að gera það við hvern sem er. En þú kemst ekki að því nema á reyni – í það minnsta smávegis. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er betra að eiga sér góðan trún- aðarvin en byrgja allt innra með sér, því það getur verið skaðlegt. Leiktu þér með leikföng- unum þínum í kvöld. 23. sept. - 22. okt.  Vog Samskipti þín við einhvern náinn verða þér uppspretta gleði og nýrra upplýsinga. Hafðu þig því sem minnst í frammi. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú átt auðvelt með að leysa úr hvers kyns vandamálum í dag. Taktu ekki fleiri verkefni að þér en þú ræður við með góðu móti. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Vilji er allt sem þarf og þú verður að stilla þig inn á að vilja hlutina áður en þú freistar þess að framkvæma þá. Settu dag- setningu á það. 22. des. - 19. janúar Steingeit Láttu ekki vinsældir meðal sam- starfsmanna þinna stíga þér til höfuðs. Farðu gætilega svo það komi þér ekki í koll síðar meir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Viðamikið samstarfsverkefni sem þú ert nú að taka þátt í krefst mikils af þér. En það er bara ekki gaman að skemmta sér þegar manni er sagt að gera það. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er eitt og annað sem þú ert að velta fyrir þér þessa dagana en þér finnst þú ekki finna neinn botn í. Vertu opinn fyrir hug- myndum annarra, jafnvel þótt þær hljómi fjarstæðukenndar. Á laugardag skrifaði MagnúsÓlafsson frá Sveinsstöðum á Leirinn bréf í gamansömum tón. Hann þakkaði góðar kveðjur og heimsóknir á Landspítalann, – en sagði að ekki hefði skaðað þótt sum- ar vísurnar hefðu orðið beinskeytt- ari. – „En líklega eru menn svona hógværir meðan karlinn liggur enn inni, eru ekki allir sendir af svona stofnun strax og séð er að þeir tóri?“ Hann sendi tengdadóttur sinni vísu fyrir nokkrum dögum, sem hún telur ótvírætt merki þess, að hann sé farinn að hressast: Áfram gakktu auðnu veg unaðsblómum stráðum. Inga Sóley yndisleg yrkir meira bráðum. Fréttablaðið talaði við bæjarstjóra Blönduóss út af atkvæðisrétti bæj- arins í Veiðifélagi Blöndu og Svartár og spurði: „Er hægt að veiða at- kvæði í Blöndu?“ Bæjarstjórinn hringdi í Magnús hvort hann ætti ekki svar við þessu. Magnús sagði kosningar nýafstaðnar og því gæti svarið orðið svona: Fáir glaðir flestir argir fái þeir ekki bröndu. Atkvæði veiða afar margir uppúr gruggugri blöndu. Ein hjúkkan fékk þessa kveðju, segir Magnús: Engu hérna aftur fer yl og gleði í hjarta finn Sigga Dúna sinnir mér sólskinsríki engillinn. Síðan segir hann frá því að þau hjónin hafi ætlað á ættarmót, en hann kæmist að sjálfsögðu ekki. Björg hefði helst ekki viljað fara en hann hvatti hana til þess svo að hún gæti átt gott kvöld systkinum sínum. Hún vildi hafa vísur meðferðis og Magnús lét hana m.a. hafa þessa: Auðvitað langar mig ennþá í djús ég ætti því að reka upp vein. Björg mig setti á sjúkrahús svo hún gæti drukkið ein. Stefán Vilhjálmsson segir greini- legt handbragð hagyrðings á þessari fyrirsögn í Morgunblaðinu á laug- ardag: „Inn í vélarrúm Valþórs lak“, þar sem skipið var skammt undan Dritvík: Inn í vélarrúm Valþórs lak, varð þó lítill skaði, skipið alls ekki orðið flak, að kom björg með hraði. IPétur Stefánsson á síðasta orðið: IÞótt við byggjum hreysi, höll, og höfum misjafnt geðið, á sex fetum við endum öll eftir lífsins streðið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Fréttir af sjúkrahúsi, sokkum og skipsleka Í klípu HANN LÁ Í KAFI OG ANDAÐI Í GEGNUM RÖR. BARA TIL AÐ SJÁ HVENÆR EINHVER MYNDI TAKA EFTIR ÞVÍ. eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að lífga saman upp á heimilið. LITA- KORT LILLABLÁR RAUÐUR ÞETTA MINNIR MIG Á SVOLÍTIÐ SEM ÉG ÆTLAÐI AÐ GERA FYRIR LÖNGU. HVAÐ ER ÞAÐ? KAUPA HÚS Á SUÐUR- ÍTALÍU. ÞAÐ ER SÓL OG BLÍÐA ÚTI, GRETTIR. EKTA SUMAR! ALLS EKKI INNI- DAGUR, KALLINN! ERTU AÐ HVETJA TIL HREYFINGAR? Langlífi er einn af fylgifiskum nú-tímasamfélags. Það heyrir ekki lengur til tíðinda að fólk verði hundr- að ára gamalt. Japanska ríkið veitti eitt sinn orður þeim, sem náðu að verða aldargamlir. Því hefur nú verið hætt vegna þess að það þótti of hversdagslegt og kostnaðarsamt. Sú var tíðin að barist var fyrir lækkun eftirlaunaaldurs. Sums staðar sest fólk í helgan stein sextugt. Fyrir þá sem ná aldarafmælinu þýðir það að líf á eftirlaunum verður jafn langt starfsævinni ef ekki lengra. x x x Ein af ástæðunum fyrir því að taliðvar hentugt að lækka eftirlauna- aldur var að þá losnuðu störf fyrir ungt fólk. Slík rök hljóma sennilega í samfélögum þar sem allt að helm- ingur ungs fólks er án atvinnu. Unga fólkinu getur hins vegar vart þótt fýsilegt að þurfa ekki bara að vinna fyrir sér, heldur halda uppi lífeyr- iskerfi fyrir hóp sem er jafnvel fjöl- mennari þeim sem eru á vinnumark- aði. x x x Á tímum atvinnuleysis koma einnigfram hugmyndir um styttri vinnuviku. Ein slík kom fram á dög- unum hjá einum auðugasta manni heims, Carlos Slim frá Mexíkó – áhöld eru um hvort hann eða Bill Ga- tes sé ríkastur. Hann lagði til að vinnuvikan yrði stytt niður í þrjá daga og fólk færi á eftirlaun 70 eða 75 ára. Slim sér fyrir sér að þessa þrjá daga vinni fólk 10 til 11 tíma á sólar- hring. Síðan hafi það fjóra daga fyrir sig sjálft. Þessir fjórir dagar myndu bjóða upp á mun meiri athafnasemi en hin hefðbundna tveggja daga helgi. Það þýði að fjölbreyttari skemmtanir þurfi að vera á boð- stólum en áður og myndi það örva efnahagslífið. x x x Slim býður starfsmönnum eins affyrirtækjum sínum, Telmex, sem hófu störf fyrir tvítugt að setjast snemma í helgan stein eða halda áfram eftir að eftirlaunaaldri er náð á fullu kaupi, en vinna fjóra daga í viku. Þriggja daga vinnuvikan hlýtur að vera á næsta leiti hjá starfsmönnum auðkýfingsins. víkverji@mbl.is Víkverji Drottinn birtist honum úr fjarlægð: Með ævarandi elsku hef ég elskað þig, fyrir því hef ég látið náð mína haldast við þig. (Jeremía 31:3) 0 kr. útborgun Langtímaleiga Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða. Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun, tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald. Losnaðu við vesenið með langtímaleigu Kynntu þér málið í síma 591-4000 Á R N A S Y N IR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.