Morgunblaðið - 23.07.2014, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 23.07.2014, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2014 Voces Thules er sönghópur er sérhæfir sig í flutningi mið- aldatónlistar. Hópurinn hefur áður komið fram, t.d. á Sumartón- leikum í Skál- holti en hyggst nú halda sína fyrstu sjálfstæðu tónleika sem fara fram í Norður- ljósasal Hörpu í dag kl. 18.30. Til- efni tónleikanna verður að teljast skemmtilegt en í dag kemur hingað til lands, með skemmtiferðaskipinu „Black Watch“, hópur áhugafólks um forna tónlist. Hópurinn heldur síðan áfram för sinni á morgun, réttsælis í kringum landið. Þema tónleikanna er þau pólitísku og per- sónulegu umbrot og sá samfélags- legi harmleikur sem lesa má úr kveðskap Íslendingasagna. gith@mbl.is Harpa Voces Thu- les halda tónleika. Erlendir ferða- menn hlusta á Voces Thules Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Við ákváðum að fara til Berlínar og byrja á þessari plötu, planið náði nú ekki lengra en það í upphafi. Við fór- um út með nokkur tilbúin lög og önn- ur sem átti eftir að klára. Fimm lög litu dagsins ljós sem við gáfum út rafrænt svo fólk sem keypti miða í forsölu á tón- leikana fengi smá aukaglaðning í leiðinni. Auðvitað hefðum við getað beðið með þetta allt saman fram á haustið og gefið þá út heila breið- skífu í föstu formi en okkur fannst sniðugt að gera eitthvað fyrir fólkið sem keypti miða svona snemma á tónleika,“ segir Jón Ólafsson, hljóm- borðsleikari Nýdanskrar, um þá tón- leikagesti sem keyptu miða á haust- tónleika hljómsveitarinnar þegar forsala miða hófst í maí. Tónleikarnir verða haldnir 13. september í Eld- borgarsal Hörpunnar en um er að ræða útgáfutónleika plötunnar Diskó Berlín sem kemur út samhliða tónleikunum. „Hugsanlega munum við gefa plötuna út á vínyl líka, þetta er allt í skoðun. Stefnan er að þetta verði allt saman klárt þegar fólk kemur í Hörpuna. Gestir geta þá fjárfest í Diskó Berlín í föstu formi fyrir eða eftir tónleikana og þá í fullri lengd,“ segir hann. Sveitin fer í upp- tökur í næstu viku og býst Jón við því að viðbótarlögin verði tilbúin um miðjan ágúst en um splunkunýtt efni er að ræða. Auk tónleikanna í Hörp- unni mun Nýdönsk halda norður og spila í Hofi á Akureyri í lok sept- ember. Tilraunakenndari en áður „Ég veit ekki hversu fræðilegur ég á að vera en við förum eilítið út fyrir hið hefðbundna form popplag- anna á plötunni en það er yfirleitt mjög einfalt í eðli sínu. Sem dæmi um þetta má nefna lagið „Uppvakn- ingar“ sem fór í spilun í vor en eftir mikið fjör kemur allt í einu nýr kafli í lok lagsins sem er miklu hægari en það sem á undan gekk. Við sleppum okkur töluvert í útsetningunum og erum ekki mikið að velta fyrir okkur hvort lögin höfði sérstaklega til út- varpsmanna eða þeirra sem raða á spilunarlista stöðvanna. Svo sýnist mér stefna í að Diskó Berlín verði í hressari kantinum á okkar mæli- kvarða. Það helgast kannski af því að við fórum til Berlínar að taka upp og þar ríkti glaumur og gleði í upptök- unum. Nú er til dæmis komið frá okkur diskólagið, „Diskó Berlín“, en við höfum ekki sinnt diskótónlistinni mikið hingað til,“ segir Jón hress í bragði. „Við notumst mikið við hljóð- gervla á Diskó Berlín í stað píanós og orgels sem oftar en ekki hafa verið í öndvegi. Þetta helgast ekki síst af elektróblæti síðustu 2-3ja ára í mínu lífi,“ segir Jón. Aðspurður segist hann ekki vita hversu margar hljóm- plötur Nýdönsk hafi sent frá sér. „Það fer eftir því hvernig er talið! Það eru náttúrulega einhverjar safn- plötur þarna og svo er til dæmis plata sem við gerðum með Sinfó, þar voru bæði ný og gömul lög. Kirsuber innihélt tvö ný lög auk tónleika- upptaka á nokkrum lögum. Þetta er allavega vel á annan tug held ég þegar allt er talið,“ segir hann. Berlín kom sér vel „Berlín varð fyrir valinu af þeirri einföldu ástæðu að þar er ódýrt að vera, fullt af skemmtilegum hljóð- verum á sanngjörnu verði og svo er borgin auðvitað mjög skemmtileg og með mikla sögu,“ segir Jón spurður að því hví sveitin hefði lagt land und- ir fót. „Við gerðum okkur vonir um að fítonskraftur kæmist í hópinn með utanlandsferð sem var og raun- in. Áður höfðum við til dæmis tekið upp hljómplötuna Himnasendingu á Englandi sem gaf góða raun. Við vorum nú ekki nema í tæpa viku í Berlín en ég held að andrúmsloft borgarinnar skíni engu að síður í gegn á plötunni. Einhver benti til dæmis á Talking Heads og Bowie- áhrif í titillaginu,“ segir hann. Jón Nýdönsk og nýtilkomið diskó Berlín Að sögn Jóns var mikið glens og gaman í Berlín en þar var platan Diskó Berlín einmitt tekin upp. Hann segir áhrif borgarinnar skína í gegn á plötunni en á henni má meðal annars finna diskóstrauma.  Nýdönsk gefur út plötuna Diskó Ber- lín í haust  Tónleikar í Hörpu og Hofi Jón Ólafsson TWIN LIGHT GARDÍNUR Betri birtustjórnun MEIRA ÚRVAL MEIRI GÆÐI ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA EFTIR MÁLI Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Hringdu og bókaðu tíma í máltöku Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061 Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 11-18

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.