Morgunblaðið - 23.07.2014, Síða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2014
Eitt virtasta leikfélag Breta
Leiksýning Verkið Hamlet verður sett á
svið í Hörpunni í kvöld.
Hið þekkta leikfélag Shakespeare’s Globe kemur til með að flytja
verkið Hamlet eftir William Shakespeare í kvöld klukkan 19.30 í
Eldborgarsal Hörpu. Um er að ræða eina af stærstu sýningum
ársins en viðburðurinn er liður í heimsferðalagi leikhópsins en
hann hyggst sýna verk sín í öllum löndum heims innan tveggja
ára. Nú þegar hefur hann sýnt í 25 löndum.
Shakespeare’s Globe er einkar vinsælt á meðal ferðamanna í
Bretlandi, en heimastöðvar leikfélagsins er í hjarta endurbættra
árbakka London Bankside. Hamlet er af mörgum talið besta leik-
rit Williams Shakespeares og nú gefst Íslendingum tækifæri til
þess að sjá það sett upp af einhverjum virtustu fagmönnum sem
völ er á í verkum hans. Uppsetning Globe á Hamlet er hrá og
frumleg og er þetta í fyrsta sinn sem leikflokkurinn kemur fram
á Íslandi.
Shakespeare’s Globe sýnir Hamlet í Hörpunni í kvöld
segir þá félaga ánægða með hress-
leika nýju plötunnar og danstónlist-
ina eiga vel við þá á þessari stundu.
„Daníel Ágúst, hefur náttúrulega
ekki gert annað en að syngja danslög
í mörg ár með GusGus. Þegar hann
setur saman tónlist þá er oft mikill
taktur í henni. Það passaði vel að
vera með eitthvað taktfast á Diskó
Berlín,“ kveður Jón.
GusGus og Nýdönsk
tillitssamar
„Það er heilmikið mál að finna
tíma fyrir Nýdönsk til að sinna
plötuútgáfu og tónleikahaldi sem út-
skýrir eflaust hví það hefur liðið
svona langt á milli platna hjá okkur,“
segir Jón en síðasta plata sveitar-
innar kom út árið 2008. „Við erum
reyndar búnir að gefa frá okkur lög
reglulega til að minna á okkur,“ bæt-
ir hann við. Jón segir það krefjast
mikillar skipulagningar að koma
sveitinni saman og ekki síst vegna
veru Daníels í GusGus en sveitin túr-
ar mikið um heiminn.„Við tökum
bara tillit til GusGus og GusGus tek-
ur tillit til Nýdanskrar,“ segir Jón og
bætir við að hlýtt sé á milli meðlima
sveitanna. Nýdönsk náði þó að taka
frá tíma til að skapa Diskó Berlín og
Jón vill meina að útgáfan á hljóm-
plötunni eigi sér fá ef nokkur for-
dæmi á Íslandi og vísar til þess
hvernig henni er skipt í tvennt, en
eins og áður sagði fá þeir sem kaupa
miða í forsölu fyrri hlutann ókeypis
með niðurhali. „Ef til vill er þetta
viðskiptamódel framtíðarinnar til að
selja tónlist, hvur veit,“ segir hann
en nú er hægt að nálgast fyrstu fimm
lögin og hlusta á þau á tonlist.is og
spotify.
Landsbyggðin bíður
„Ég efast nú um að við getum gert
mikið meira á þessu ári,“ svarar Jón
spurður um framtíð sveitarinnar.
„Við förum þó norður í land í lok
september og höldum tónleika í
Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.
Hinsvegar langar okkur að koma oft-
ar fram á næsta ári. Það er alveg
ástæðulaust að láta líða svona langt á
milli platna eða tónleika þegar það er
svona gaman að spila saman. Við er-
um búnir að einbeita okkur að Hörp-
unni í síðustu þrjú árin og nú er okk-
ur farið að klæja í að sinna
landsbyggðinni betur. Það er aldrei
að vita nema við leggjum í einhvern
túr á næsta ári með fullt skott af
Diskó Berlín,“ segir Jón. „Við kom-
um til með að spila eitthvað af Diskó
Berlín á tónleikunum í haust en að
vanda verður áherslan auðvitað á
vinsælustu og þekktustu lögin. Að
sjálfsögðu munum við ekki sleppa
okkar frægustu lögum,“ leggur Jón
áherslu á.
„Fólk vill heyra „Horfðu til him-
ins“, „Hjálpaðu mér upp“ og hina
smellina og við munum ekki bregð-
ast okkar fólki,“ segir Jón glaðbeitt-
ur að lokum.
Söngvari Björn Jörundur Friðbjörnsson hefur verið meðlimur Nýdanskrar
frá upphafi en hljómsveitin var stofnuð árið 1987 og er enn að.
Fjórða vika Sumartónleika í Skál-
holti hefst með tónleikum Caput á
morgun, fimmtudag, kl. 20. Tón-
leikarnir bera yfirskriftina
„Tristía“ en hópurinn mun flytja
verk eftir íslensk tónskáld. Kamm-
erkórinn Hljómeyki kemur fram
með Caput, auk Tui Hirv sóprans.
Tónleikarnir verða endurteknir
laugardaginn 26. júlí kl. 17. Þess er
vert að geta að Hljómeyki dvelur í
Skálholti nú í vikunni við æfingar á
nýju verki eftir staðartónskáld
Skálholts, Pál Ragnar Pálsson.
Verkið er samið við texta úr Ljóða-
ljóðunum, sérstaklega fyrir Sum-
artónleika og verður flutt 26. og 27.
júlí kl. 15. Páll heldur stutt erindi
um tónsmíðar sínar kl. 14 á laug-
ardeginum. gith@mbl.is
Tónlist við Ljóðaljóðin
Tónskáld Páll Ragnar Pálsson er staðartónskáld Skálholts í sumar.
SUMARSPRENGJA
Ný hjól með verulegum afslætti
Nítró / Kirkjulundi 17 / 210 Garðabæ / Sími 557 4848 / www.nitro.is
Verð aðeins
17.990,- kr
HiSun HS700ATV
1.190.000,- kr
990.000,- Kawasaki KX450F1.590.000,- kr
1.390.000,-
Kawasaki KX250F
1.490.000,- kr
1.290.000,-
VN1700 - árg.
2.420.000,- kr
2009
1.590.000,-
HiSun Golfbíll
990.000,- kr
790.000,-
2014
Skútuvogi 8 • 104 Reykjavík • Sími 567 6700 • www.vakahf.is
Dekkjasala
og þjónusta
Bifreiða-
verkstæði Varahlutir
Bifreiða-
flutningar
Endurvinnsla
bifreiða