Morgunblaðið - 23.07.2014, Page 33

Morgunblaðið - 23.07.2014, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2014 ingu og er hugflæði henni hugleikið. „Ég hef gaman af því að flakka á milli öfga – sum verkin sýna of- flæði. Í öðrum er einfaldleikinn í fyrirrúmi.“ Verk Sólveigar hafa einnig ýmsar skírskotanir og vísa sum þeirra í mannlíf, t.d. strengjabrúður og sam- stöðu kvenna. „Virk hugsun og hugmyndavinna hefur verið mér nærri. Ég er hrá í túlkun og vinnslu en sæki mikið í hugmyndavinnuna,“ segir Sólveig og bætir við að stundum vinni hún verkin í lotum. „Oft vinn ég hratt í byrjun. Þannig kem ég hitanum og flæðinu frá mér. Eftir það fer ég meira í smáatriðin.“ Umhverfið hefur einnig haft skýr áhrif á hana og má þar nefna gróðureyðingu, fjöll og fjörð. Titill sýningarinnar, „Rætur“, kemur einmitt til vegna uppvaxtar Sólveigar á Siglufirði. „Ég er fædd og uppalin á Siglufirði og fjöllin höfðu gríð- arleg áhrif á mig. Í æsku óskaði ég þess að ég kæm- ist upp á fjallstoppana, svo ég sæi eitthvað annað en fjöll, mér fannst þau þrengja að mér. Nú kann ég hins vegar vel að meta þau og þau eru mér inn- blástur þegar ég mála. Sem krakki sá ég út úr þeim myndir og þær nýtast mér nú. Titill sýningarinnar vísar því í rætur mínar. Ég á rætur í sjónum, fjöll- unum og fólkinu á Siglufirði og er óskaplega ánægð að geta sýnt í mínum gamla heimabæ.“ Sýningin stendur til 6. ágúst næstkomandi og er opin alla daga milli kl. 14 og 18. gith@mbl.is Laugardaginn 26. júlí verður sýningin „Rætur“ opnuð í ráðhússal Fjallabyggðar á Siglufirði. Sýn- ingin er önnur einkasýning myndlistarmannsins Sólveigar Helgu Jónasdóttur. Sólveig útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskól- anum árið 1966, stundaði nám við Fjöltæknideild skólans 1988-1989. Skúlptúr og málun nam hún við School of Art and Design í Bristol, Bretlandi, á tímabilinu 2001-2002. Á sýning- unni „Rótum“ sýnir Sólveig olíumálverk og minni verk unn- in með lakklitum á tréplötur. „Verkin mín eru ekki hefð- bundin, að ég held. Ég er ekki reglustikukerling!“ segir Sól- veig hlæjandi. „Minni verkin eru flest unnin á þessu ári. Þau komu þannig til að ég fór í aðgerð og var bundin hjólastól um tíma. Við vorum að endurnýja vegg í húsinu okkar og áttum afgang af spónaplöt- um sem mér fannst tilvalið að nota í listsköpun. Ég byrjaði á litlum formum en þau uxu síðan. Verkin eru mörg mjög mismunandi en ég reyni að halda mínum stíl í öllu sem ég geri og það held ég að hafi tekist.“ Einnig verða til sýnis sýnishorn af stafrænni prentun á efni eftir teikningum Sólveigar en prent- unin er gerð í samvinnu við Guðrúnu Eysteins- dóttur textílhönnuð. „Það var fyrir tilviljun að ég hafði samband við Guðrúnu og bað hana að prenta verk eftir mig á einn púða. Hún vildi þá skoða verk- in mín betur og er búin að prófa að prenta svolítið. Það er aldrei að vita hvað við gerum með þetta í framtíðinni, þetta er skemmtilegt samstarf sem kom óvænt upp,“ segir Sólveig. Í verkum sínum leggur Sólveig áherslu á merk- Upphaf Verk Sólveigar taka sig vel út á efni. Strengjabrúða Olíumálverk. „Ég er ekki reglustikukerling“  Sólveig Helga sýnir myndlist sína í heimabænum, Siglufirði  Finnur innblástur í fjöllum og fólki  Prófar stafræna prentun verkanna á efni, í samstarfi við Guðrúnu Eysteinsdóttur textílhönnuð Sólveig Helga Jónasdóttir Dansþyrstir geta nú kæst en mikil plötusnúðaveisla er framundan í miðbæ Reykja- víkur. Gunni Ewok mun hefja gleðina á Prikinu í kvöld en þar mun hann spila vel valdar vínyl- plötur frá klukk- an 21. Dj Terror- disco kemur síðan til með að skemmta gestum Kaffibarsins með hressum tónum. Föstudagurinn verður ekki síðri en þá mun Dj KGB meðal annars koma fram á Brikk og hefst sú gleði klukkan 21, Dj Logi Pedro Pilatus mun stíga á bak við skífurnar klukkan 22 á Dollý, Gísli Galdur, sem gert hefur garð- inn frægan með sveitum á borð við Trabant, Ghostigital og Forgotten Lores, mun þeyta skífum á Kaffi- barnum og Dj Sigrún mun heilla gesti Palóma fram eftir nóttu. Mikil plötusnúða- veisla framundan Snúðar Logi Pedro ásamt Dj Yamaho. Trjáklippingar Trjáfellingar Stubbatæting Vandvirk og snögg þjónusta Sími 571 2000 | hreinirgardar.is “Eipshit geðveik ef ekki besta myndin í sumar” -T.V. BIOFIKILL.COM ÍSL. TAL "Besta stórmyndin í sumar. Þú verður gersamlega agndofa“. - P. H., Movieline Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar ÍSL. TAL TÖFRANDI MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA "Þú sérð ekki fyndnari mynd í sumar!" -T.V., Biovefurinn.is "Ég hló svo mikið að ég skammaðist mín”!" -Guardian POWERSÝNINGKL. 10:10 -New York Daily News ★ ★ ★ ★ ★ L L 12 12 14 14SEX TAPE Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:10 HERCULES Sýnd kl. 8 - 10:10 (P) PLANET OF THE APES 3D Sýnd kl. 8 - 10:40 22 JUMP STREET Sýnd kl. 5 AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 5 TÖFRALANDIÐ OZ 2D Sýnd kl. 4 Hljómsveitin Börn heldur upp á út- gáfu nýrrar smáskífu með tónleikum á Dillon föstudaginn 25. júlí. Ásamt Börnum mun hljómsveitin Kvöl stíga á svið en hún setti nýja breið- skífu á netið fyrir skemmstu. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er Börn drungapönkhljómsveit sem reis upp úr ösku hljómsveitarinnar Tentacles of Doom. Tónlist sveitarinnar leitar til drungapönksveita fyrri hluta ní- unda áratugarins og mætti líkja tón- list hennar við hljómsveitir á borð við Vonbrigði, UK Decay og Amber Asylum. Kvöl er nýtt band sem er að koma fram á sínum fyrstu tónleikum. Tón- list þess má einnig segja að leiti til drungapönks níunda áratugarins þó með meiri áherslum á rafrænu hlið þeirrar bylgju. Tónleikarnir hefjast klukkan 22 og frítt er inn. Sveit Börn spilar drungapönk sem má rekja aftur til níunda áratugarins. Drungapönk á Dillon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.