Morgunblaðið - 09.08.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014
Sigurður dýralæknir – afmælisrit
holar@simnet.is
Vísindamaðurinn, sagnamaðurinn og gleðimaðurinn, í góðri merkingu þess orðs,
Sigurður Sigurðarson, dýralæknir frá Keldum, verður 75 ára þann 2. október næst-
komandi. Af því tilefni kemur út hjá Bókaútgáfunni Hólum seinni bindið af æviminning-
um Sigurðar og er það jafnframt afmælisrit hans. Þar segir hann
frá lífshlaupi sínu, allt frá dýralæknanáminu í Noregi til þessa
dags, og dregur fram í dagsljósið ógrynni sagna af skemmti-
legu fólki og skemmtilegum viðburðum, þótt vissulega hafi
hann fengið sinn skerf af mótlæti og meðal annars verið
hótað lífláti. Þá er vísum vitaskuld varpað fram, enda liggur
kveðskapur honum létt á tungu og er hann lipur vísnasmiður.
Í fyrrnefndu afmælisriti verður að sjálfsögðu heillaóskaskrá
– Tabula gratulatoria – og býður útgefandi öllum þeim
sem sýna vilja Sigurði sóma að skrá nafn sitt þar
og eignast um leið bókina. Verð hennar verður kr. 6.480
m/sendingargjaldi og er tekið við áskrifendum í
netfanginu brynjar@holabok.is
og í síma 698-6919.
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
„Við erum með posa í bílunum sem
við notum einnig þegar fólk keyrir of
hratt,“ segir Atli Árdal Ólafsson,
varðstjóri lögreglunnar á Hvolsvelli,
spurður hvernig lögreglan sekti
ferðafólk sem keyri utan vega. Á
fimmtudag var lögreglan á Hvolsvelli
við eftirlit í Vatnajökulsþjóðgarði, við
Lakagíga. Þar var einn erlendur öku-
maður á bílaleigubifreið staðinn að
akstri utan vega við Varmárfell, á
móts við Laka. Hafði viðkomandi fest
bifreið sína í mýrarmosa.
„Það hefur verið svolítið um utan-
vegaakstur í sumar og fer slíkum at-
vikum örugglega ekki fækkandi,“
segir Atli. Hann segir ferðamenn sem
staðnir séu að verki viðurkenna fyrir
lögreglu að þeir viti að þeir megi ekki
gera þetta og segjast bera virðingu
fyrir náttúrunni. „Þeir gera þetta
samt. Þetta er alvarlegt, við sáum á
nokkrum stöðum merki um ljótan ut-
anvegaakstur,“ segir Atli um eftirlits-
ferð lögreglu á fimmtudag. Hann seg-
ir margar ábendingar um
utanvegaakstur berast lögreglunni
frá landvörðum og hálendisvakt
Landsbjargar og víða sé ekið utan
vega. „Á fjallabaksleiðunum og svo
eru þetta sandarnir. Skeiðarár-
sandurinn er áberandi, þar sem menn
virðast leika sér að þessu.“
Bílarnir ráða ekki við slóðana
„Fólk sér nú að sér þegar við ræð-
um við það. Þessir slóðar sem eru
kallaðir vegir eru ekkert fyrir þessa
bíla sem eru að fara inn á þessi
svæði,“ segir Atli um viðbrögð ferða-
mannanna við afskiptum lögreglu.
„Þó að þessir jepplingar séu skil-
greindir sem 4x4 eru þetta ekki bílar
til þess að fara á þessa slóða. Í sumar
hefur verið mikið vatn á þessum
svæðum og slóðarnir mjög slæmir.
Menn reyna að bjarga sér með því að
skutlast framhjá pollunum,“ segir
Atli og nefnir atvikið á Lakasvæðinu
á fimmtudag í því samhengi.
Vilja mynd með sektinni
Atli segir lögreglu meta það hverju
sinni fyrir sig hversu há sektin sé.
Hún hlaupi þó iðulega á hundruðum
þúsunda og geti náð allt að 500 þús-
und krónum, þó hann hafi aldrei séð
svo háa sekt. Upphæðirnar eru metn-
ar út frá skemmdum á náttúru og
fleiri þáttum, og hafa sektir upp á 300
þúsund krónur sést hjá lögreglunni á
Hvolsvelli. „Þetta er meira en sann-
gjarnt. Menn eru of kátir með þetta,
eins er með hraðasektirnar. Fólk
hlær oft að okkur og vill láta taka
mynd af sér með okkur þegar það er
að borga sektina, sem okkur svíður,“
segir Atli. Hann segir utan-
vegaakstur koma á borð lögregl-
unnar á Hvolsvelli nokkrum sinnum í
viku og þeim atvikum sé sinnt eftir
bestu getu.
Rukka sektina með posa á staðnum
Lögreglan á Hvolsvelli fær nokkrar ábendingar um utanvegaakstur í hverri viku Margir á illa
búnum bílum reyna að sneiða framhjá pollum í slóðum Sektir nema allt að 500 þúsund krónum
Ljósmynd/ Þorsteinn M. Kristinsson
Utanvega Lögreglan á Hvolsvelli stóð erlendan ökumann að utanvega-
akstri á fimmtudag. Varðstjóri segir utanvegaakstur ekki fara minnkandi.
Guðrún Jónsdóttir fagnar 108 ára
afmæli sínu í dag. Hún er næstelsta
konan á Íslandi í dag en Guðríður
Guðbrandsdóttir er elsti núlifandi
Íslendingurinn, varð 108 ára 23. maí
síðastliðinn.
Guðrún gat ekki veitt viðtal í gær
vegna veikinda en hún er rúmliggj-
andi. Hún er búsett á hjúkr-
unarheimilinu Sólvangi í Hafn-
arfirði.
Guðrún fæddist á Auðkúlu í Arn-
arfirði 9. ágúst árið 1906, fjórða í röð
átta systkina. Foreldrar hennar
voru Jón Bjarni Matthíasson, bóndi
og skipstjóri á Auðkúlu og Guð-
munda María Gísladóttir, bóndi á
Auðkúlu.
Guðrún giftist Gunnari Andrew
Sigurðssyni, sjómanni og síðar yf-
irfiskimatsmanni í Hafnarfirði.
Gunnar lést árið 1967. Þau bjuggu
um hríð á Þingeyri en fluttust síðar
til Hafnarfjarðar þar sem Guðrún
hefur búið alla tíð síðan. Hún er
fyrrv. húsfreyja. Guðrún og Gunnar
eignuðust fimm börn. Þau eru:
María, f. 1937; Sigurður Garðar f.
1938; Gunnar Örn, f. 1940, Gísli Ein-
ar f. 1942 og Jón Bjarni f. 1945.
Sú sjötta langlífasta
Guðrún er í sjötta sæti yfir elstu
Íslendingana, samkvæmt facebook-
síðunni langlífi. Sú elsta var Guðrún
Björnsdóttir í Kanda en hún náði
109 ára aldri og 310 dögum betur.
Hún lést árið 1998. Elstu þrír Ís-
lendingarnir hafa náð 109 ára aldri
og rúmlega það. Helgi Símonarson í
Svarfaðardal hefur orðið elstur ís-
lenskra karla, tæplega 106 ára.
Næstelst núlifandi kvenna
Afmæli Guðrún Jónsdóttir er 108
ára í dag. Myndin er tekin á 105 ára
afmæli hennar fyrir þremur árum.
Guðrún Jóns-
dóttir fagnar 108
árum í dag
„Það er uppsöfnuð þörf eftir sumar-
lokanir,“ sagði Þórarinn Tyrfingsson
yfirlæknir á Vogi. Göngudeild SÁÁ í
Reykjavík og Akureyri og meðferð-
arheimilin Staðarfell og Vík opnuðu á
ný í vikunni eftir sumarlokanir sem
voru þær umfangsmestu frá upphafi.
Rýmin á meðferðarheimilunum,
Staðarfelli og Vík eru næstum full-
skipuð. Hvort um sig tekur við 30
sjúklingum. Þeir sem voru á Vogi fyr-
ir sumarlokanir og vildu komast í
áframhaldandi meðferð þurftu að bíða
þar til eftir verslunarmannahelgi.
Í október árið 2013 var gripið til
sparnaðarráðstafana vegna rekstr-
arfjárskorts á sjúkrahúsinu Vogi og
hefur það ekki verið rekið af eins
miklum afköstum eftir það. „Það er
hræðilegt og hefur sést veruleg í
samfélaginu,“ sagði Þórarinn.
„Ríkið ber ábyrgð á því að sjúk-
lingarnir fái viðeigandi meðferð m.a.
samkvæmt velferðarlöggjöf. Það ber
einnig ábyrgð á því að gera við okkur
samning um þetta. Ábyrgð ríkisins
liggur einnig í því að full greiðsla eigi
að koma fyrir það sem sannarlega er
útlagt vegna sjúkdóma þessa fólks og
meðferðar. Það er gríðarlega alvar-
legt fyrir núverandi ríkisstjórn,
sjúkratryggingar og þá sem bera
þessa ábyrgð að SÁÁ hefur engan
gildan samning
um þessa starf-
semi núna,“ sagði
Þórarinn. Engin
virkni hefur skap-
ast í samninga-
viðræðum að sögn
hans.
Spurður hvort
fleiri óski eftir að
komast í meðferð
eftir versl-
unarmannahelgi segir Þórarinn ekki
svo vera í dag.
Dreifist jafnar en áður
„Ég sá þetta meira í eina tíð en nú
dreifist þetta jafnar yfir árið. Fólk
kom gjarnan eftir vertíðir eins og í
janúar en ég marka engar sveiflur
lengur. Verslunarmannahelgin er
ekki endilega stærri en aðrar helgar í
júlí þar sem áfengi- og vímuefni eru
notuð,“ sagði Þórarinn.
Þeir einstaklingar sem eru lagðir
inn á Vog koma oft af bráða-
móttökunni og úr fangageymslum
lögreglunnar. „Það er ábótasamt fyr-
ir þjóðfélagið að koma til móts við
þarfir þeirra einstaklinga sem vilja
láta renna af sér. Sjúkrahúsið Vogur
er mikilvægt skaðaminnkandi fram-
lag.“ thorunn@mbl.is
Uppsöfnuð þörf
eftir sumarlokun
SÁÁ er samningslaust við ríkið
Þórarinn
Tyrfingsson
Pæjumótið, knattspyrnumót fyrir stúlkur í 6. og 7.
flokki, fer fram á Siglufirði í 24. sinn um helgina. Alls
eru 14 félög skráð til leiks á mótinu og eru keppendur
tæplega 500, að sögn Óskars Þórðarsonar mótsstjóra.
„Veðrið hefur aðeins verið að stríða okkur en stelpurnar
láta það ekki á sig fá. Þær eru blautar en brattar,“ segir
hann. Unnur Eggertsdóttir tónlistarkona og Einar Mika-
el töframaður skemmta gestum mótsins í kvöld.
Tæplega 500 pæjur á Siglufirði
Ljósmynd/Sigurður Ægisson