Morgunblaðið - 09.08.2014, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014
Jólaferð til Parísar
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Komdu með í dásamlega jólaferð til Parísar, einnar
glæsilegustu borgar Evrópu. Töfrandi ljósadýrðin og
hin mikla hátíðarstemning um alla borg skapa einstaka
upplifun í upphafi aðventunnar.
Verð: 109.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mikið innifalið m.a. skoðunarferð um París!
Sp
ör
eh
f.
27. - 30. nóvember
Fararstjóri: Laufey Helgadóttir
Gústaf Adolf Skúlason segir fráþví á blog.is að ný skoð-
anakönnun í Austurríki sýni í
fyrsta sinn að fleiri vilji að Aust-
urríki gangi úr ESB en haldi áfram
aðild. „46% að-
spurðra vildu fara
úr ESB en 44% vera
áfram. Andstaðan
við ESB vex stöð-
ugt, þrátt fyrir að
framkvæmdar-
stjórnin vísi gagn-
rýni á bug sem
öfgaskoðunum. Leiðtogum ESB
tekst ekki að galdra kreppuna
burt, sem dýpkar með degi hverj-
um,“ segir Gústaf.
Og hann heldur áfram: „Tilmarks um efnahagsstöðnun
evrulands, þá þurfa bankar að
borga fyrir innistæður hjá Seðla-
banka Evrópu. Styttist óðum í
stuðningskaup SE á ríkisskulda-
bréfum til styrktar evrunni til að
sanna í eitt skipti fyrir öll, að evran
sé eini rétti gjaldmiðillinn.
ESB hefur valið aðra leið en Ís-lendingar og heldur fjölmörg-
um bönkum á lífi í öndunarvél. Í
Þýzkalandi telja margir að ekki sé
hægt að þvinga Þjóðverja að greiða
skuldir banka, sem ekki heyra
beint undir fjármálaeftirlit Þýzka-
lands. Málaferli eru í gangi og falli
dómur Þjóðverjum í vil er óvíst
með áframhaldandi greiðslur
þeirra til fallinna banka í öðrum
evrulöndum.“
Það þarf dálítið til að meirihlutimælist í Austurríki fyrir úr-
sögn úr ESB. Ekki eru miklar líkur
á að af þessu verði en viðhorfs-
breytingin segir mikið um ástandið
innan ESB.
Þar skynjar almenningur að ESBá í margvíslegum vanda þó að
hér á landi sé enn til hópur manna
sem berst fyrir aðild Íslands.
Gústaf Adolf
Skúlason
Austurríkismenn
vilja út úr ESB
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 8.8., kl. 18.00
Reykjavík 14 skúrir
Bolungarvík 9 alskýjað
Akureyri 10 rigning
Nuuk 6 léttskýjað
Þórshöfn 14 léttskýjað
Ósló 22 léttskýjað
Kaupmannahöfn 22 léttskýjað
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 23 heiðskírt
Lúxemborg 22 skýjað
Brussel 20 léttskýjað
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 16 léttskýjað
London 20 skúrir
París 20 skúrir
Amsterdam 20 skúrir
Hamborg 25 heiðskírt
Berlín 26 heiðskírt
Vín 28 léttskýjað
Moskva 21 heiðskírt
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 35 léttskýjað
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 32 heiðskírt
Róm 28 léttskýjað
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 20 skýjað
Montreal 22 léttskýjað
New York 26 heiðskírt
Chicago 26 léttskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:01 22:07
ÍSAFJÖRÐUR 4:49 22:28
SIGLUFJÖRÐUR 4:31 22:12
DJÚPIVOGUR 4:26 21:40
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
„Viðskiptavinir fengu tilkynningu
um breytta greiðslutilhögun í
heimabanka, í tölvupósti og með
hefðbundnum pósti og hafa við-
skiptavinir almennt tekið þessu vel
þar sem breytta greiðslutilhögunin
hentar mörgum betur. Einhverjir
hafa fengið sér ódýrari kreditkort
eftir breytinguna, einkum þeir sem
ferðast lítið,“ segir Dögg Hjaltalín,
upplýsingafulltrúi Íslandsbanka,
um breytta greiðslutilhögun á ár-
gjaldi kreditkorta viðskiptavina
bankans.
Þann 15. febrúar á þessu ári var
greiðslutilhögun vegna árgjaldanna
breytt hjá Íslandsbanka og er nú
árgjald kreditkorta af tegundunum
MasterCard og VISA hjá bankan-
um veltutengt.
Tryggingariðgjöld hækkuðu
Dögg segir fyrirkomulagið fyrir
breytingarnar hafa verið breytilegt
eftir kortategundum.
„50% afsláttur var mikið notaður
í vildarþjónustunni ef viðskiptavin-
ur uppfyllti ákveðin skilyrði. Einnig
voru viðskiptavinir í einhverjum til-
fellum með 100% afslátt af korta-
gjaldi,“ segir Dögg. Hún segir
veltutengingu árgjalda greiðslu-
korta hafa verið tekna upp til að
gæta samræmis í innheimtu gjalda
vegna greiðslukorta.
„Einnig hafa tryggingariðgjöld á
kortum hækkað mikið og miklar
breytingar hafa átt sér stað á
kortamarkaði eftir hrun,“ segir
Dögg. Hún segir veltutenginguna,
sem gangi jafnt yfir alla einstak-
linga sem eru í viðskiptum við
bankann, ekki hafa verið setta á til
að auka tekjur. „Þessi breyting var
gerð til að auka gegnsæi í gjaldskrá
greiðslukorta en ekki til þess að
auka tekjur,“ segir Dögg.
Hún segir örfáa viðskiptavini
hafa haft samband við bankann
vegna breytinganna.
Samkvæmt upplýsingum á vef-
svæði Íslandsbanka geta eigendur
kortanna fengið afslátt á árgjaldi
kortanna ef velta kortsins fer yfir
ákveðna tölu sem bankinn gefur út.
Þannig getur handhafi gullkorts
fengið 25% afslátt af árgjaldi korts-
ins sé velta á kortinu yfir 500 þús-
und kr. á einu ári. Fari viðkomandi
hins vegar yfir eina og hálfa milljón
kr. í veltu fær viðkomandi 100% af-
slátt af árgjaldinu. Handhafar plat-
inum korta frá bankanum fá 25% af
árgjaldinu sé velta kortsins yfir
eina milljón kr. á einu ári. Fari við-
komandi hins vegar yfir 3 milljónir
kr. í veltu yfir árið er veittur 50%
afsláttur af árgjaldi kortsins sem er
17.500 kr. fyrir MasterCard kort og
18.500 kr. fyrir VISA kort. Árgjald-
ið er miðað við að enginn afsláttur
sé gefinn.
Árgjöld tengd
kortaveltunni
Greiðslutilhögun vegna greiðslukorta
hjá Íslandsbanka var breytt fyrr á árinu
Morgunblaðið/Ómar
Árgjald ÍSB rukkar nú árgjald í
samræmi við veltu greiðslukorta.
Staðfest hefur verið að drunur sem land-
verðir heyrðu í Herðubreiðarlindum á
miðvikudag hafi verið vegna snjóflóðs
norðaustanmegin í fjallinu. Snjófleki fór
af stað með miklum látum sem vörðu í um
hálfa mínútu. Landverðirnir sem heyrðu
drunurnar töldu að þarna væri skriða á
ferðinni. Vitað var um franska ferðamenn
á svæðinu en hálendisvaktin fann þá fljót-
lega eftir að drunurnar ómuðu og höfðu
þeir séð snjóflóð fara af stað langt uppi í
fjallinu að sögn Hörpu Grímsdóttur, for-
stöðumanns Snjóflóðaseturs Veðurstofu Íslands. „Þetta var gamalt skarð
sem springur fram og brotnar upp í köggla og rífur með sér grjót, þannig
að þetta varð blönduð skriða þegar neðar dró,“ segir Harpa í samtali við
mbl.is. Hún segir óvenjulegt að snjóflóð falli á þessum tíma árs en engin
sérstök hætta sé þó á ferðum.
Óvenjulegt að snjóflóð falli á þessum tíma