Morgunblaðið - 09.08.2014, Síða 16

Morgunblaðið - 09.08.2014, Síða 16
VIÐTAL Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Séra Ólafur Jóhann Borgþórsson, prestur í Seljaprestakalli, fékk strax á fermingaraldri áhuga á því að leggja fyrir sig guðfræðinám og lauk hann guðfræði- prófi frá Háskóla Íslands 2006. Árið eftir var Ólafur Jóhann vígður prestur með áherslu á barna- og æskulýðsstarf í Seljaprestakalli og skipaður prest- ur við sama prestakall árið 2009. Hann er nú annar tveggja umsækjenda um emb- ætti sóknarprests í Seljasókn. „Þetta var í raun ákveðið um fermingarveturinn, en þá fékk ég fyrst áhugann eftir að hafa kynnst starfi prestsins. Sem barn var ég al- inn upp á kristnu heimili og má því segja að ég hafi fengið kristindóminn með móðurmjólkinni. Ég hvikaði svo í raun aldrei frá því að gerast prestur, en eftir því sem árin liðu jókst áhugi minn á trúnni,“ segir Ólafur Jóhann. Sóknarbörnin risu upp - Á kirkjan erindi við fólk í nútíma- samfélagi? „Ég tel engan vafa leika á því og sjáum við það e.t.v. best nú í aðdrag- anda prestskosninganna. Það skiptir fólk greinilega miklu máli hver presturinn er og að allir geti leitað til bæði hans og kirkjunnar þegar á þarf að halda. Mörgum þykir bersýnilega vænt um sína kirkju og fólk lætur kirkjustarfið sig varða.“ Eftir að biskup Íslands, með vísan í jafnréttislög, féllst ekki á tillögu val- nefndar sem mælti með því að Ólafur Jóhann fengi embætti sóknarprests var ákveðið að auglýsa embættið að nýju. Óskuðu sóknarbörn þá eftir al- mennum prestskosningum milli um- sækjenda stöðunnar og hófst þá undirskriftasöfnun. Á þriðja þúsund sóknarbarna skrifuðu undir á fjórum dögum. Samkvæmt lögum er heimilt að efna til almennra prestskosninga fari þriðjungur atkvæðisbærra sóknarbarna í prestakallinu fram á það. Undirskriftirnar jafngilda hins vegar 50% sóknarbarna. - Komu þessi sterku viðbrögð sóknarbarna þér á óvart? „Ég verð nú að viðurkenna það. Undirskriftirnar, sem komu á ein- ungis fjórum dögum, sýna skýrt að fólk vill hafa eitthvað um það að segja hver næsti sóknarprestur verður. Einnig tel ég undirskriftasöfnunina mjög jákvæða fyrir kirkjuna og þá einkum hversu mörg sóknarbörn skrifuðu undir. Þetta segir sitt um styrk kirkjunnar.“ Fermingarfræðslan mikilvæg Í nútímasamfélagi er hlutverk prestsins mjög margþætt og segir Ólafur Jóhann miklar kröfur gerðar til þeirra sem starfinu sinna. „Þær eru allt frá því að geta tónað vel, vera góður ræðumaður og sinna sálgæslu yfir í að vera vinur fólksins á stundum gleði og sorgar. Það sem hefur e.t.v. breyst mest í gegnum aldirnar er krafan um fjölbreytt og virkt starf innan krikjunnar. Nú er ekki lengur einungis haldin barnaguðsþjónusta og messa heldur er þar unnið öflugt starf alla daga vikunnar. Reynum við því eftir fremsta megni að mæta ólík- um hópum þótt grundvöllurinn sé alltaf hinn sami, að fræða og boða kristna trú.“ Aðspurður segir Ólafur Jóhann mikilvægt að viðhalda öflugri og góðri fermingarfræðslu. „Það er ekki síst mikilvægt á okkar tímum því í skólum hefur kennsla á biblíusögum minnkað stórlega að undanförnu. Er því brýnt að barna- og unglingastarf kirkjunnar sé virkt, vandað og fræð- andi,“ segir hann. - Nær kirkjan og boðskapur henn- ar vel til þeirra sem yngri eru? „Ég tel svo vera enda hef ég fundið fyrir almennri ánægju meðal þeirra sem sækja kirkjuna heim. Hingað getur fólk á öllum aldri komið á sín- um eigin forsendum og upplifað sig sem jafningja við næsta mann. En kristin trú gengur einmitt út á kær- leikann og að menn læri að meta aðra til jafns við sjálfan sig. Hef ég því ávallt lagt áherslu á að kirkjan sé griðastaður allra og að fólk geti á stundum sorgar sótt þangað frið og skjól.“ - Hvaða stundir eru dýrmætastar í starfi prestsins? „Þær eru sem betur fer margar en að fá að skíra lítið barn er dýrmæt og einlæg stund. Annað sem kemur upp í hugann er brúðkaup fólks og fermingarathafnir unglinga. Þetta eru oft á tíðum ógleymanlegar at- hafnir og það er ákaflega gleðilegt að fá að standa með fólki á slíkum tíma- mótum enda er yfirleitt um stærstu daga í lífi fólks að ræða.“ Kirkjan griðastaður fólks í gleði og sorg  Grundvöllur kristinnar trúar helst þótt tímarnir breytast 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014 Ríkisstjórnin hefur tekið ákvörðun um móttöku 13 sýrlenskra flótta- manna í neyð og að undirbúningur vegna móttöku þeirra hefjist þeg- ar í stað. Þetta var tilkynnt í gær. Ákvörðunin er í samræmi við til- lögu flóttamannanefndar og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Ákvörðunin er tekin í framhaldi af samþykkt ríkisstjórnarinnar 23. maí síðastliðinn þar sem brugðist var við ákalli Flóttamannastofn- unar Sameinuðu þjóðanna til aðild- arríkja sinna um að koma til að- stoðar og taka á móti flóttafólki frá Sýrlandi sem leitað hefur til nágrannaríkjanna. Flóttamanna- nefnd var þá falið að leggja fram tillögu um einstaklinga sem tekið skyldi á móti, að höfðu samráði við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. „Áhersla var lögð á að bjóða hingað flóttafólki sem hefur slasast eða stríðir við veikindi og hefur því brýna þörf fyrir heil- brigðisþjónustu,“ segir í frétt frá ráðuneytum utanríkis- og velferð- armála. Sýrlenska flóttafólkið sem boðið verður að koma til Íslands dvelur nú í Tyrklandi. Þetta eru fjórar fjölskyldur, þar af sex börn. Rík- isstjórnin hefur falið flóttamanna- nefnd að undirbúa móttöku fólks- ins og leitast eftir samstarfi við sveitarfélög á höfuðborgarsvæð- inu, auk Rauða krossins á Íslandi sem annast ýmsa þætti sem tengj- ast móttöku flóttafólks samkvæmt samningi við velferðarráðuneytið. Fjórar fjöl- skyldur koma  Tekið á móti 13 sýrlenskum flótta- mönnum sem nú dvelja í Tyrklandi Reuters Sýrland Óöld hefur ríkt í landinu. Tveir sækjast eftir embætti sóknarprests í Seljaprestakalli, Reykjavík- urprófastsdæmi eystra. Eru það séra Ólafur Jóhann Borgþórsson, prest- ur í Seljaprestakalli, og guðfræðingurinn Fritz Már Berndsen Jörgensson en rætt var við hann í Morgunblaðinu hinn 31. júlí síðastliðinn. Séra Hans Markús Hafsteinsson Isaksen hætti nýverið við að sækjast eftir embættinu en áður höfðu alls sjö sótt um það, þar af tvær konur. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna prestskosninganna sem fram fara laugardaginn 16. ágúst nk. fer fram alla virka daga á biskupsstofu og í safnaðarheimili Seljakirkju. Tveir sækjast eftir embætti PRESTSKOSNING Ólafur Jóhann Borgþórsson Ljósmynd/Sjöfn Ólafsdóttir Gleðistund Séra Ólafur Jóhann Borgþórsson, prestur í Seljaprestakalli, segir starfið ríkt af dýrmætum stundum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.