Morgunblaðið - 09.08.2014, Síða 20

Morgunblaðið - 09.08.2014, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014 Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Smábátar hafa flykkst til Hólma- víkur síðustu daga til makrílveiða í Steingrímsfirði. Var þeim sumum hverjum ekið landleiðina á vöru- bílum, aðallega frá Ólafsvík. Í byrjun vikunnar var talið að veiði væri farin að glæðast á svæðinu en í gær urðu menn minna varir við makrílinn. Ekki er búist við sömu makríltorfum og um svipað leyti í fyrra, þegar Steingrímsfjörður fylltist af makríl og smábátasjómenn hópuðust til Hólmavíkur. Í fyrra var alls um 1.300 tonnum landað á Hólmavík og mest 280 tonn- um á sólarhring. Að sögn Ingibjarg- ar Benediktsdóttur á Hólmavík voru 17 bátar að veiðum innst í Stein- grímsfirði í gærmorgun og þá töluðu sjómenn bara um „smá kropp“. Fljótt að breytast Að sögn Sigurðar Marinós Þor- valdssonar, hafnarvarðar á Hólma- vík eru alls um 16 aðkomubátar komnir og með heimamönnum séu hátt 30 makrílbátar tilbúnir í slag- inn. Sigurður segir að í vikunni hafi frést af 10 tonna veiði hjá einum báti í tveimur ferðum og það hafi líklega spyrst út til annarra smábátasjó- manna, minnugir mokveiðinni í fyrra. „Menn hafa væntanlega haldið að það væru að koma hingað torfur en þær hafa ekki látið sjá sig. Þó veit ég að báturinn Addi afi sigldi í gegnum þrjár torfur í morgun [gærmorgun], þannig að þetta er fljótt að breyt- ast,“ sagði Sigurður við Morgun- blaðið um miðjan dag í gær. Síðan um helgi hafði rúmum 37 tonnum af makríl verið landað á Hólmavík. „Það er ekkert hægt að kvarta undan því þó að þetta sé ekkert í lík- ingu við veiðina í fyrra,“ bætti hann við. Annars hafa smábátar aðallega verið á makrílveiðum á tveimur stöð- um undanfarnar vikur, úti fyrir Snæfellsnesi og Reykjanesi. Veiðin hefur verið nokkuð góð, alls um 2.500 tonn. Alls hafa hátt í 100 bátar stundað þessar veiðar. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, fylgist vel með veiðunum og segir þær hafa gengið ljómandi vel. Hann segir það hafa verið magnaða sjón að sjá vörubílalestina fara frá Ólafsvík og vestur. Skiljanlega vilji menn leita þangað sem einhverja veiði sé að hafa. „Makríllinn er þarna í Steingríms- firði og ef hann gefur sig er þetta fljótt að gerast. Bátarnir eru vel græjaðir og menn eru komnir með mikla reynslu af þessum veiðum. Þetta er dálítið eins og að spila á spilakassa, menn fá vinninginn ann- að slagið en þeir verða þá að standa við kassann,“ sagði Örn við Morgun- blaðið í gær. Morgunblaðið/Alfons Flutningar Nokkrir smábátasjómenn í Ólafsvík brugðu á það ráð að flytja bátana landleiðina á vörubílspalli til Hólmavíkur. Einir átta bátar voru fluttir á fimmtudeginum en þá var bræla á sjóleiðinni norður fyrir. Vonast eftir makríl- torfu í Steingrímsfirði  Smábátar flykktust til Hólmavíkur  Sumir fluttir á landi Ljósmynd/Ingibjörg Benediktsdóttir Hólmavík Þéttskipað var í Hólmavíkurhöfn þegar smábátarnir voru sjósett- ir og gerðir klárir til veiða á makríl á Steingrímsfirði. Lítið veiddist í gær. Alls útskrifuðust 3.574 stúdentar úr 35 skólum skólaárið 2011-2012, sem er 10,6% fjölgun frá skólaárinu áður. Ekki höfðu áður brautskráðst fleiri stúdentar á einu skólaári og aldrei áður hafa svo margir skólar braut- skráð stúdenta, að því er fram kem- ur í upplýsingum frá Hagstofunni. Hlutfall stúdenta af fjölda tví- tugra hækkaði umtalsvert frá fyrra ári, úr 69,2% í 74,1%, og hefur aldrei verið hærra. Konur voru 59,1% ný- stúdenta. Brautskráningum með stúdentspróf að loknu starfsnámi hefur fjölgað ár frá ári undanfar-in ár, og voru 742 skólaárið 2011-2012. Þá hefur brautskráðum stúdent- um, sem eru 19 ára og yngri, fjölgað nokkuð. Hlutfall þeirra var 9,8% af öllum stúdentum skólaárið 2011- 2012, var 8% árið þar áður og 5-6% á árunum 2004 til 2009. Eru konur lík- legri en karlar til að verða stúdent 19 ára eða yngri. Færri með sveinspróf Alls brautskráðust 6.118 nemend- ur af framhaldsskólastigi með 6.761 próf skólaárið 2011-2012. Það er fjölgun um 534 nemendur frá fyrra ári, eða 9,6%. Fjölgunina má aðal- lega rekja til fleiri brautskráninga með ýmis styttri próf af framhalds- skólastigi og til fjölgunar stúdenta. Stúlkur voru fleiri en piltar meðal brautskráðra, eða 54,5%. Sveinspróf voru 518 og fækkaði um 7,5% frá fyrra ári. Karlar voru 73,7% þeirra sem luku sveinsprófi. Brautskrán- ingum með sveinspróf hefur fækkað um nærri 30% frá skólaárinu 2008- 2009. Á vef Hagstofunnar er einnig greint frá brautskráningum á há- skólastigi skólaárið 2011-2012. Stúdentum fjölg- aði um 10,6%  Hagstofan gerir upp árið 2011-2012 Landsnet áformar að leggja raflín- una á milli Hellu og Hvolsvallar, Hellulínu 2, í jarðstreng. Kostnaður er svipaður og við loftlínu, að sögn Guðmundar Inga Ásmundssonar, aðstoðarforstjóra Landsnets. Gömul 66 kílóvolta raflína á tré- staurum liggur á milli Hellu og Hvolsvallar. Vegna framkvæmda við nýtt hótel á Hellu þurfti Lands- net að færa línuna á Hellu, til bráðabirgða, en hefur nú óskað eftir leyfi hjá Orkustofnun til að end- urnýja hana. Landsnet vill leggja nýju línuna í jarðstreng. Kostnaður um 450 milljónir Guðmundur Ingi segir að auka- kostnaður við jarðstreng með þess- ari spennu sé hverfandi, miðað við loftlínu. Kostnaður er áætlaður um 450 milljónir kr. Ekki hefur verið ákveðið hvenær ráðist verður í framkvæmdina en Guðmundur Ingi reiknar með að tillaga um hana verði tekin til athugunar við gerð kostnaðaráætlunar fyrir næsta ár. Sveitarfélögin Rangárþing ytra og Rangárþing eystra gera bæði ráð fyrir jarðstreng í sínu að- alskipulagi. Guðmundur Ingi gerir ráð fyrir að þótt strengurinn verði áfram á 66 kílóvolta spennu verði leiðararnir sverari og hann verði því öflugri en núverandi lína. Tilgangurinn er að anna aukinni raforkunotkun á Suð- urlandi í nánustu framtíð. Rætt verður við Vegagerðina um möguleika þess að leggja strenginn um brúna á Rangá. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Hella Flytja þurfti raflínuna til við byggðina á Hellu á Rangárvöllum. Endurnýjuð Hellulína lögð í jarðstreng

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.