Morgunblaðið - 09.08.2014, Page 21

Morgunblaðið - 09.08.2014, Page 21
SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Einelti á vinnustöðum getum verið dýrkeypt á ýmsan hátt. Auk vanlíðunar þeirra sem fyrir því verða getur fjárhagslegur kostnaður fyrirtækja í slíkum málum verið umtals- verður. Talsvert skortir á að tekið sé faglega á ein- eltismálum á vinnustöðum og umræðan um þessi mál er styttra á veg komin hér en í mörgum öðrum lönd- um. Þetta segir Brynja Bragadóttir, doktor í vinnu- og heilsusálfræði, sem nýverið stofnaði ráð- gjafarfyrirtækið Officium ásamt Hildi Jakobínu Gísladóttur. Officium sérhæfir sig í að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu og að fyr- irbyggja einelti á vinnustöðum. Brynja segir kannanir sýna að einelti á ís- lenskum vinnustöðum sé 4-6% að meðaltali. Til séu vinnustaðir þar sem það sé talsvert meira, allt upp í 12%, og víða sé það talsvert minna. Þetta séu áþekkar tölur og annars staðar á Norðurlöndum og í Bretlandi. Brynja hefur starfað við ráðgjöf sem þessa í tíu ár og hefur séð miklar breytingar á vinnustaðamenningu hér á landi á þeim tíma. „Með bankahruninu urðu miklar breytingar. Minna starfsöryggi hjálpar ekki til í barátt- unni gegn einelti.“ Viðhorf yfirmanna mikilvægt Spurð um hvað fái fólk til að haga sér svona gagnvart vinnufélögum sínum segir Brynja að persónueinkenni gerenda og þol- enda skipti vissulega máli, en séu ekki aðal- atriðið. „56% skýringanna eru stjórn- unartengdir þættir. Rannsóknir sýna að menning og umhverfisþættir eru helstu þætt- ir í að einelti viðgengst. Dæmi um þætti sem geta ýtt undir einelti, en hægt er að bæta, eru: óljós markmið, skortur á stuðningi, miklar kröfur og litlir möguleikar á þjálfun. Svo skiptir miklu máli hvert viðhorf yf- irmanna er til samskipta. Hættuleg staða getur komið upp þegar þeir taka ekki á hegðun sem á ekki að líðast.“ Mest í heilbrigðisgeiranum Brynja segir einelti í einstökum starfs- greinum lítið hafa verið rannsakað hér á landi, en erlendar rannsóknir sýni að mikið einelti sé í heilbrigðisgeiranum. „Einnig hef- ur einelti mælst mikið í kennarastéttinni og þetta væri vissulega vert að skoða hér á Ís- landi.“ Brynja segir það geta verið dýrkeypt að skera niður á þessu sviði, því þar sem einelti þrífist séu minni afköst, auknar fjarvistir og meiri starfsmannavelta. „Það getur því kost- að mikið að taka ekki á vandanum. Annað, sem hefur verið að aukast hér á landi, eru lögsóknir á hendur vinnuveitendum sem ekki taka á eineltismálum. Það getur verið gríð- arlega kostnaðarsamt. Svo getur umfjöllun fjölmiðla um einstök mál skaðað ímynd fyr- irtækja og stofnana. Það getur verið erfitt að bæta fyrir það.“ Gerandinn afsakaður Hvernig er almennt tekið á einelti á vinnu- stöðum? „Það er mjög mismunandi, en því miður eru oft fundnar ýmsar skýringar á hegðun gerandans. Í 70% tilvika er gerand- inn stjórnandi og hefur því meiri völd en sá sem fyrir eineltinu verður. Svo er algengt að þolendur láti ekki vita, þeir eru hræddir um að vera látnir fara. Þessi ótti er ekki ástæðu- laus, því þeir sem láta vita af einelti eru því miður alltof oft látnir fara og þurfa þá að líða enn meira. En það er hætt við að eineltið haldi bara áfram, gerandinn taki einfaldlega einhvern annan fyrir.“ Víða erlendis eru skýrar reglur um hvern- ig hegðun er viðeigandi á vinnustöðum. Þurf- um við á slíkum reglum að halda? „Já, það er mikilvægt að á íslenskum vinnustöðum, ekki síður en erlendum, að skilgreina æskilega og óæskilega hegðun í starfshóp. En það þyrfti að skilgreina í ríkari mæli hvað teljist vera eðlileg samskipti á vinnustað.“ Einelti á vinnustöðum getur verið dýrkeypt  Stjórnendur eru 70% þeirra sem leggja í einelti á vinnustöðum  Þolendur eru oft látnir taka pokann sinn  Einelti á vinnustöðum leiðir til minni afkasta og meiri starfsmannaveltu Morgunblaðið/Golli Sjálfsvíg Talið er að vaxandi tíðni sjálfsvíga ungs fólks eigi sér rætur í breyttum þjóðfélags- aðstæðum þessa aldurshóps. Hildur Einarsdóttir fjallar um þau félagslegu og andlegu skilyrði sem geta ýtt undir þá hugsun að unglingnum finnst sjálfsvíg eina lausnin. Brynja Bragadóttir FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014 www.volkswagen.is Atvinnubílar HEKLA býður nú fyrirtækjum Volkswagen Crafter, Extreme Edition, hlaðinn aukabúnaði á einstaklega hagstæðu mánaðargjaldi. Greitt er fast mánaðarlegt leigugjald og bifreiðinni einfaldlega skilað í lok leigutímans. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði Volkswagen Crafter á rekstrarleigu Staðalbúnaður: ESP stöðugleikastýring og spólvörn, Hill Holder og tregðulæsing, ABS bremsur, rennihurð báðum megin, loftpúðar fyrir ökumann og farþega, rafstýrðir upphitaðir hliðarspeglar, fjarstýrð samlæsing, 2 sæta bekkur með geymslurými, armpúðar á bílstjórasæti, fullkomin aksturstölva, útvarp með geislaspilara, 270° opnun á afturdyrum. Millilangur háþekja Langur háþekja VW Crafter með Extreme Edition aukahlutapakka 5.840.637 6.039.841 Sértilboð 4.613.546 4.772.908 12 mán. rekstrarleiga 12 mán. rekstrarleiga Rekstrarleiga 128.559 pr. mán. 131.497 pr. mán. Aukahlutapakki: Hraðastillir (Cruise control), gólfklæðning, hliðarklæðning, fjaðrandi, hæðarstillanlegt og upphitað bílstjórasæti með armpúðum, vélarhitari með fjarstýringu og tímastilli, rafmagnsmiðstöðvarhitari, fjarlægðaskynjarar að framan og aftan, aðgerðarstýri, rennur í flutningsrými, hliðarlýsing, díóðulýsing í flutningsrými. Öll verð eru án vsk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.