Morgunblaðið - 09.08.2014, Page 22
FRÉTTASKÝRING
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Sérfræðingahópur Landssamtaka
lífeyrissjóða (LL) leggst eindregið
gegn því að heimild lífeyrissjóða
til að veita bein fasteignaveðlán
verði afnumin. Slík breyting dragi
úr samkeppni um lánskjör og sé
jafnframt líkleg til að fækka val-
kostum lántaka um lánaskilmála.
Verkefnisstjórn um framtíðar-
skipan húsnæðismála, sem félags-
málaráðherra skipaði í fyrra, hefur
lagt til að tekið verði upp húsnæð-
iskerfi að danskri fyrirmynd þar
sem lánveitingar til húsnæðis-
kaupa fari í gegnum sérstök hús-
næðislánafélög. Félögin megi ein-
göngu lána til húsnæðiskaupa og
fjármagna útlán með útgáfu sér-
tryggðra húsnæðisveðskuldabréfa.
Í umsögn sérfræðingahóps LL
er bent á að lífeyrissjóðir hafi um
áratugaskeið gegnt lykilhlutverki
þegar kemur að fjármögnun íbúð-
arhúsnæðis. Hlutdeild þeirra í
beinum íbúðalánum hafi að jafnaði
verið á bilinu 11-13% síðustu miss-
erin. „Þátttaka lífeyrissjóða á
markaði fyrir fasteignaveðtryggð
lán til einstaklinga byggir á ára-
tuga sögu og reynslu, hefur verið
eftirsótt af lántökum og aukið úr-
val í framboði til einstaklinga. Hún
hefur leitt til virkari samkeppni og
hefur ekki hindrað aðra lánveit-
endur til virkrar þátttöku á þess-
um markaði,“ segir í umsögninni.
Ekki sé því tilefni til að tak-
marka þessar heimildir lífeyris-
sjóðanna, eins og lagt er til.
Hópurinn gerir ennfremur fyrir-
vara um nauðsyn þess að „skikka
alla lánveitendur sem veita fast-
eignaveðlán til einstaklinga til að
gera það í gegnum sérstök hús-
næðislánafélög“. Ekki sé heldur
ráðlegt að skylda lífeyrissjóðina til
að setja á stofn húsnæðislánafélög
– með tilheyrandi kostnaði – sem
selur þeim sjálfum skuldabréf.
Valfrelsi lántaka lykilatriði
Í tillögum sínum leggur verkefn-
isstjórnin til að lán verði til fram-
tíðar óverðtryggð. Sérfræðinga-
hópurinn telur hins vegar
mikilvægt að lögð verði áhersla á
valfrelsi lántakenda. Skapaðar
verði aðstæður sem stuðli að fjöl-
breytni í lánakostum. „Ekki er
lagst gegn því að vægi óverð-
tryggðra lána aukist, ef lántak-
endur velja þann kost, en forsenda
þess að sá valkostur verði farsæll
til lengdar er að jafnvægi náist í
efnahagsmálum Íslands,“ segir í
umsögninni. Gjaldmiðillinn þurfi
að haldast stöðugur og verðbólgan
lág.
„Lífeyrissjóðir munu alltaf geta
boðið upp á óverðtryggð lán, en
eftir því sem óvissa með verð-
bólguhorfur er meiri er líklegt að
slík lán verði dýrari en verðtryggð
lán,“ segir í umsögn hópsins. Það
orki því tvímælis að einskorða
framboð íbúðalána við óverðtryggð
lán áður en stöðugleika sé náð í
efnahagsmálunum.
Lífeyrissjóðir mótfallnir af-
námi beinna fasteignalána
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Húsnæðislán Hlutdeild lífeyrissjóðanna í beinum íbúðalánum hefur verið á bilinu 11-13% á síðustu misserum.
Stórir kaupendur
» Í umsögn hóps LL segir að
lífeyrissjóðir hafi þá sérstöðu
að aðkoma þeirra sé tvenns
konar, bæði sem lánveitendur
og kaupendur að bréfum.
» Þeir muni verða langstærstu
kaupendur þeirra bréfa sem
gefin verða út til að fjármagna
nýja húsnæðiskerfið.
» Ekki sé ráðlegt að skylda þá
til að stofna húsnæðislána-
félög sem selja þeim bréf.
Sérfræðingahópur LL segir reynsluna af lánum lífeyrissjóðanna almennt góða
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014
!
"!#$
#"
$$
"#
%"
$
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
"
%$
!%
"!$
#%
$$$
"
%!$
$%
%
!
!$#
"!
###
$$
"%
%%
$ "
%
"!$#
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Júlímánuður var stærsti mánuður í
sögu flugfélagsins Primera Air, en félag-
ið flutti 155 þúsund farþega og flaug
1.006 flugferðir í mánuðinum.
Sætanýting var 91% í mánuðinum og
er um að ræða 14% aukningu frá fyrra
ári, að því er segir í tilkynningu.
Flestir farþeganna koma frá Dan-
mörku og Svíþjóð, en í tilkynningunni
segir einnig að aukningin frá Íslandi hafi
verið afar ánægjuleg.
Primera Air rekur nú átta Boeing 737
New Generation vélar og mun bæta við
níundu vélinni í byrjun næsta árs í kjölfar
nýrra verkefna sem félagið er að afla sér.
Júlí metmánuður í sögu
félagsins Primera Air
● Hagnaður Allianz, stærsta trygginga-
félags í Evrópu, nam 1,76 milljörðum
evra á öðrum ársfjórðungi, jafngildi 273
milljarða króna. Hagnaðurinn jókst um
10,5% á milli ára sem er mun meira en
greinendur höfðu spáð.
Hagnaður Allianz á fyrri helmingi árs-
ins nemur samtals 3,4 milljörðum evra,
jafngildi 528 milljarða króna, sem er
3% aukning á milli ára. Allianz áætlar
að hagnaður ársins verði í kringum 10
milljarðar evra, að því gefnu að nátt-
úruhamfarir og markaðssveiflur verði
ekki verulega umfram spár.
Afkoma Allianz umfram
væntingar greinenda
STUTTAR FRÉTTIR ...
Hagnaður sjóðstýringarfélagsins
Stefnis, sem er í eigu Arion banka,
jókst um 42% milli ára. Hagnaðurinn
nam alls 1.046 milljónum króna í fyrra
samanborið við 736 milljóna króna
hagnað árið 2012.
Rekstrargjöld félagsins drógust
saman um tæpar 908 milljónir króna
milli ára. Það skýrist af því að var-
úðarfærsla upp á 500 milljónir króna,
sem var færð á árinu 2012 vegna
dómsmáls sem slitastjórn Lands-
bankans höfðaði á hendur félaginu,
var færð til baka í fyrra. Héraðsdóm-
ur hafði komist að þeirri niðurstöðu
að Stefni bæri að greiða umdeilda
fjárhæð, en málinu var áfrýjað til
Hæstaréttar sem sýknaði félagið í
janúar á þessu ári.
Hreinar rekstrartekjur námu tæp-
lega 1,7 milljörðum króna og drógust
saman um 24% á milli ára. Eignir í
virkri stýringu félagsins jukust hins
vegar á árinu úr rúmlega 386 millj-
örðum í 414 milljarða. Þá lækkuðu
skuldir félagsins á milli ára og námu
667 milljónum króna.
Í skýrslu stjórnar segir að mikill
munur hafi verið á ávöxtun eftir
eignaflokkum á árinu. Skuldabréfa-
sjóðir hafi skilað töluvert lægri nafn-
ávöxtun en undangengin ár, en rekja
megi helstu ástæður til styrkingar
krónunnar í upphafi árs með lækk-
andi verðbólgu og hækkunar á ávöxt-
unarkröfu verðtryggðra skuldabréfa.
Þá hafi óvissa tengd kjarasamning-
um, skuldalækkanir stjórnvalda og
niðurstöður fjárlagafrumvarps einnig
haft áhrif á skuldabréfamarkaðinn.
Hlutabréfasjóðir og blandaðir sjóð-
ir með áherslu á hlutabréf áttu mjög
gott ár. Til marks um það skilaði
„Stefnir – ÍS 15“ yfir 43% nafnávöxt-
un í fyrra og „Stefnir – Samval“ yfir
21% ávöxtun. kij@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
Dótturfélag Sjóðstýringarfélagið
Stefnir er dótturfélag Arion banka.
Hagnaður Stefnis
milljarður í fyrra
Rekstrartekjur
drógust saman um
24% milli ára0 kr. útborgun
Langtímaleiga
Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram
allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða.
Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun,
tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert
vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald.
Losnaðu við vesenið með langtímaleigu
Kynntu þér málið í síma 591-4000
Á
R
N
A
S
Y
N
IR