Morgunblaðið - 09.08.2014, Qupperneq 46
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Það er hávært „suð“, eins ogþað kallast á bransamáli, íkringum Mirel Wagner nú
um stundir og kemur ýmislegt til. Í
fyrsta lagi er það einfaldlega þessi
exótíska ára sem leikur um hana.
Fædd í Eþíópíu en alin upp í Finn-
landi frá eins og hálfs árs aldri og
svo þetta stórbrotna germanska
eftirnafn. Tónlistin er síðan niða-
dimmur alþýðublús í anda löngu
liðinna Delta-blúsara. En pakkinn
dugar aldrei einn og sér og það er
fyrst og síðast innihaldið sem er að
magna upp suðið.
Gömul sál
Já, því að tónlistin sjálf – þó
síst frumleg sé – er það sem er að
hreyfa við fólki, eitthvað sem var
staðfest í ár þegar hið bandaríska
Sub Pop (Nirvana, Shins, Fleet Fox-
es, Beach House o.fl. o.fl.) ákvað að
gefa út aðra plötu hennar, When
the Cellar Children See the Light of
Day (þvílíkur titill!). Fyrsta plata
Wagner, samnefnd henni, kom hins
vegar út undir merkjum Kioski árið
2011 en það er í eigu umboðsmanns
hennar. Þá var hún 23 ára gömul.
Það ár sá svo Bon Voyage Recor-
ding Company um að koma plöt-
unni út annars staðar í Evrópu en
útgáfan er í eigu hinnar gagn-
merku finnsku sveitar 22-
Pisterpirrko, líkast til besta neð-
anjarðar rokkband sem Finnar
hafa átt. Friendly Fire Recordings í
Brooklyn gaf plötuna svo út í
Bandaríkjunum árið 2012 og sú út-
gáfa vakti loksins ærlega á henni
athygli og skilaði henni alla leið til
litla risans Sub Pop.
Wagner er greinilega gömul
sál því þrátt fyrir ungan aldur má
heyra nið aldanna í gegnum rödd
hennar og hráan gítarleik. Henni
hefur verið líkt við meistara eins og
Valkyrjublús
Myrkur Mirel Wagner vinnur með melankólíska og nánast biksvarta tóna.
Charlie Patton, Townes Van Zandt
og Hope Sandoval og sjálfur heyri
ég dálítið af okkar eigin Lay Low í
henni. En maðurinn sem uppgötv-
aði hana, bandaríski blaðamað-
urinn Jean Ramsay – sem búsettur
er í Finnlandi – segir tónlistina eiga
meira skylt við nakið og miskunn-
arlaust verklag Swans fremur en
kaffihúsagítarplokk í anda Dylans.
Andsetin
Ramsay þessi rakst á Wagner á
„opnu“ hljóðnemakvöldi í Helsinki
og kolféll fyrir list hennar. Hann
hóf óðar trúboð mikið sem leiddi til
þess að Wagner hrærði í fyrstu
plötu sína á tveimur dögum. Tón-
listin hafði þá fylgt henni lengi vel
en hún lærði á fiðlu sjö ára gömul
er hún var að alast upp í borginni
Espoo. Þrettán ára skipti hún yfir í
gítar og sextán ára hóf hún að
semja lög, innblásin af löngum
stundum á bæjarbókasafninu þar
sem gamlir blúsdiskar rötuðu ein-
att í spilarann. Hægt og sígandi
sótti hún í sig veðrið, safnaði hug-
rekki og lét slag standa hvað opnu
kvöldin varðar. Restin er svo í
sögubókunum eins og sagt er.
„Allt hérna er naumhyggju-
legt, einfalt og skorinort,“ segir á
einum stað um fyrsta verk hennar.
„Undurfallegri, en um leið afar
brothættri stemningu, er viðhaldið
alla leiðina í gegn.“ Sama má segja
um nýjustu plötu hennar, en þegar
best lætur hljóma Nick Cave og
Tindersticks eins og Herman Her-
mits í samanburðinum. Og það er
rétt sem þeir segja, tónlistin er
einkar kunnugleg en um leið er
eins og henni sé útvarpað frá ein-
hverjum andsetnum handanheimi,
þar sem angurvært myrkur grúfir
eilíflega yfir.
»Wagner er greini-lega gömul sál því
þrátt fyrir ungan aldur
má heyra nið aldanna í
gegnum rödd hennar og
hráan gítarleik.
Hin finnsk-
eþíópíska Mirel
Wagner gefur út
aðra plötu sína
Hið virta
bandaríska
útgáfufyrirtæki
Sub Pop er nú
með hana á sínum
snærum
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014
Lilja Guðmundsdóttir sópran, Hildi-
gunnur Einarsdóttir mezzósópran
og Ingileif Bryndís Þórsdóttir pí-
anóleikari halda tónleika í tónleika-
röðinni Perlur íslenskra sönglaga í
Kaldalóni í Hörpu á morgun,
sunnudag, kl. 17.
Á efnisskrá eru íslensk sönglög,
gömul og ný, auk þess sem sagt er
frá tónskáldum og efni og tilurð
laga.
Lilja nam söng hjá m.a. Sigríði
Aðalsteinsdóttur, Jóni Þorsteins-
syni og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur.
Hún leggur nú stund á framhalds-
nám við Tónlistarháskólann í Vín.
Hildigunnur lauk námi frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík undir leið-
sögn Signýjar Sæmundsdóttur og
Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur.
Ingileif lauk námi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík undir leið-
sögn Svönu Víkingsdóttur og
stundaði framhaldsnám í Freiburg
og Vín.
Perlur íslenskra sönglaga í Hörpu
Hæfileikarík Hildigunnur Ein-
arsdóttir syngur í Hörpu á morgun.
Eyþór Franzson
Wechner leikur á
tónleikum í Hall-
grímskirkju í dag
kl. 12 og á morg-
un kl. 17. Á efnis-
skránni í dag eru
Prelúdía í e-moll
eftir Nicolaus
Bruhns, Prelúdía
í fís-moll eftir
Dietrich Buxte-
hude og Prelúdía og fúga í a-moll
eftir Johann Sebastian Bach.
Tónleikar morgundagsins hefur
Eyþór valið að tileinka menningar-
og tónlistarborginni Leipzig í
Þýskalandi þar sem hann hefur ver-
ið við nám undanfarin fjögur ár.
Flutt verða Prelúdía og fúga í g-moll
eftir J. S. Bach, Studien für den Ped-
alflügel (Æfingar fyrir flygil með
pedal) eftir Robert Schumann, tvær
af Sjö vatnslitamyndum frá Boden-
see eftir Sigfrid-Kal-Elert og Fant-
asía og fúga í d-moll eftir Max Re-
ger, en öll tónskáldin höfðu sterk
tengsl við Leipzig.
Orgeltónleikar í
Hallgrímskirkju
Eyþór Franzson
Wechner
Söfn • Setur • Sýningar
Sunnudagur 10. ágúst kl. 14: Leiðsögn um sýninguna
„Svipmyndir eins augnabliks.
Ljósmyndir Þorsteins Jósepssonar“ í Myndasal
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Natríum sól á Veggnum, Innblástur á Torgi
Silfur Íslands í Bogasal, Silfursmiður í hjáverkum í Horni
Skemmtilegir ratleikir • Safnbúð og kaffihús
Opið í Nesstofu alla daga frá 13-17.
Húsasafnið opið víða um land, nánar á heimasíðu
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið frá 10-17 alla daga.
Listasafn Reykjanesbæjar
DÆMISÖGUR ÚR DRAUMALANDINU
Karolína Lárusdóttir
29. maí – 17. ágúst
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Hönnunarklasinn Maris
Listasafn Erlings Jónssonar
Opið virka daga 12-17,
helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
Verið
velkomin
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Ummerki sköpunar
Úrval nýrra verka
úr safneign Hafnarborgar
Opið 12-17,
fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga.
www.hafnarborg.is,
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
LISTASAFN ÍSLANDS
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga.
SPOR Í SANDI, Sigurjón Ólafsson - Yfirlitssýning 23.5. - 26.10. 2014
Í LJÓSASKIPTUNUM 5.7.-26.10. 2014
LEIÐSÖGN Á ENSKU fimmtudaga kl. 12-12:40
>>EKTA LOSTÆTI Úrval brasilískra myndbanda á kaffistofu safnsins
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906
SPOR Í SANDI, Sigurjón Ólafsson Yfirlitssýning 24.5. - 29.11. 2014
Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga. www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningarnar, HÚSAFELL ÁSGRÍMS og FORYNJUR. Opið sunnudaga kl. 14-17.
Stjórn Minningarsjóðs
Helgu Jónsdóttur og
Sigurliða Kristjánssonar
auglýsir eftir umsóknum um
styrki úr sjóðnum.
Markmið sjóðsins er stuðningur við nýjungar í læknis-
fræði, einkum á sviði heila- og taugasjúkdóma, hjarta- og
æðasjúkdóma, augnsjúkdóma og öldrunarsjúkdóma.
Með umsóknum skulu fylgja greinargerðir um vísinda-
störf umsækjenda, ítarlegar kostnaðaráætlanir og upp-
lýsingar um það, hvernig þeir hyggjast verja styrknum.
Umsóknir skulu staðfestar með undirskrift umsækjanda
og meðumsækjanda/enda, ef einhverjir eru.
Umsóknarfrestur er til 31. október n.k. og ber að
senda umsóknir í pósthólf 931, 121 Reykjavík, merktar
“Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar.” Stefnt er að því að tilkynna um úthlutun
í lok nóvember n.k.