Morgunblaðið - 09.08.2014, Side 49

Morgunblaðið - 09.08.2014, Side 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Í tilefni dagsins ákváðum við að leita í smiðju samkynhneigðra tón- skálda,“ segir Kristjana Stef- ánsdóttir og vísar þar til þess að Hin- segin dagar standa nú sem hæst og sjálf Gleðigangan verður farin í dag. Kristjana kemur ásamt Daða Birg- issyni píanóleikara fram á sérstökum Regnboga Pikknikk tónleikum í Nor- ræna húsinu í dag. „Flutt verða lög á borð við „Mad about the boy“ eftir Noël Coward, „I Feel Pretty “ eftir Leonard Bern- stein, „Take the A-Train“ eftir Billy Strayhorn og „Let’s Do It, Let’s Fall in Love“ eftir Cole Porter. Auk þess fær einn samkynhneigður textahöf- undur að fljóta með, þ.e. Lorenz Hart sem samdi textann „My Funny Valentine“ við lag Richard Rogers,“ segir Kristjana. Segir hún flest lag- anna á efnisskránni fjalla um ást og ástarsorgir, en ástin spyr hvorki um stétt né stöðu, kynþátt eða kyn- hneigð. „Svo slæðast inn lög um vin- áttuna og náungakærleikann auk þess sem við flytjum „I Am What I Am“ eftir Jerry Herman þar sem fjölbreytileikanum er fagnað.“ Í allt sumar hafa Pikknikk- tónleikarnir hafist kl. 14, en í dag byrja tónleikarnir kl. 12. „Vegna Gleðigöngunnar fannst okkur ekki annað hægt en að flýta tónleikunum til að sem flestir geti tekið þátt í göngunni. Þannig getur fólk komið til okkar og síðan tekið míní- gleðigöngu frá Norræna húsinu yfir móann og slegist í för með stóru göngunni.“ Bæði Kristjana og Daði eru djass- menntuð, en Kristjana er þekkt fyrir að takast á við alls kyns tónlist- arstíla, jafnt popp, rokk, djass, blús og klassík. Spurð hvort djassinn gefi henni eitthvað sem hinir stílarnir séu ekki færir um svarar Kristjana því játandi. „Djassinn gefur mér algjört frelsi í spuna, sem er ótrúlega gam- an. Þetta er stórkostlega falleg og rómantísk tónlist. Hún er lagræn og býr oft yfir safaríkum textum. Djass- inn er grunnurinn minn og ég get iðulega yfirfært frelsið þar yfir á þau önnur verkefni sem ég er að fást við,“ segir Kristjana og tekur fram að djassinn komi sér yfirleitt í gott skap. „Ég held að öll tónlist sé heil- andi,“ segir Kristjana og bendir á að það sé engin tilviljun að tónlist sé notuð á öllum stórum stundum í líf- inu. „Margir eru hummandi daginn út og inn án þess að átta sig á því. Tónlistin sefar, huggar, nærir og læknar,“ segir Kristjana og bætir við að sökum þessa séu tónlistarmenn upp til hópa hamingjusamt fólk. Tónleikarnir, sem hefjast kl. 12, standa í klukkutíma og eru ókeypis. „Ég held að öll tónlist sé heilandi“ Ljósmynd/Grímur Bjarnason Söngfugl Kristjana Stefánsdóttir. Laugardaginn 9. ágúst verður hátíð- in Pönk á Patró haldin í Sjóræn- ingjahúsinu á Patreksfirði í sjötta sinn. Tvær hljómsveitir mæta á svæðið í ár en það er hin rómaða Steinunn Eldflaug Harðardóttir, betur þekkt sem dj. flugvél og geim- skip, og hljómsveitin Grísalappalísa sem ætla að skemmta ungum sem öldnum á sinn einstaka hátt. Venju samkvæmt er um að ræða tvískipta dagskrá en börn og ung- lingar eru í forgrunni og markmiðið að svala rokkþörfum þeirra og gefa þeim kost á að njóta tónlistar á sín- um forsendum á skemmtilegum stað og kynnast í leiðinni tónlistarfólkinu. Dagurinn hefst með tónlistarsmiðju klukkan 13, svo er boðið upp á hress- ingu og að henni lokinni eru tón- leikar með Grísalappalísu og dj. flugvél og geimskip fyrir krakkana en þeir hefjast klukkan 15. Kvöldtónleikarnir í Sjóræningja- húsinu hefjast síðan klukkan 21 og eru gestir hvattir til að mæta stund- víslega. Þess má geta að Pönk á Patró hlaut tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem Tónlist- arviðburður ársins 2013 auk þess sem Eggert Guðmundsson gerði heimildarmynd um hátíðina og komu Skálmaldar í fyrra, en hún var sýnd á RÚV síðastliðinn vetur. Morgunblaðið/Eggert Hátíð Dj. flugvél og geimskip og Grísalappalísa koma fram á hátíðinni í ár. Pönkað á Patreksfirði Í tilefni Hinsegin daga ætlar Hljómsveitin Lame Dudes að flytja blús í öll- um regnbogans litum í Hressógarðinum í dag kl. 17. Aðgangur ókeypis, en gestir eru beðnir að mæta í litríkum klæðnaði. Regnbogablús á Hressó Litagleði Liðsmenn Lame Dudes biðja áhorfendur að mæta í litríkum fötum. F A S TU S _H _3 2. 06 .1 4 Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16 - 2.hæð. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Veit á vandaða lausn Resource Senior Active Sérhannaður drykkur fyrir aldraða sem þurfa næringarviðbót og fá ekki uppfyllt orku- og næringarþörf sinni úr fæðunni Heildstæður næringardrykkur sem er ríkur af: • Hitaeiningum (orkuefnum) • Kalsíum • Próteinum • D-vítamínum • Omega3 fitusýrum Notist samkvæmt ráðleggingum læknis og/ eða næringarfræðings Jarðarber Karamella Vanilla 200ml 300 kcal 3g trefjar 1000 IU D3 vítamín 20g prótín Næringarvörur eru í samningi við Sjúkratryggingar Íslands Þessar vörur fást í verslun Fastus og í flestum apótekum DWAYNE JOHNSON A BRETT RATNER FILM DISCOVER THE TRUTH BEHIND THE LEGEND Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar 16 16 ÍSL. TAL ÍSL. TAL "Þú sérð ekki fyndnari mynd í sumar!" -T.V., Biovefurinn.is L L L 12 12 "Ég hló svo mikið að ég skammaðist mín”!" -Guardian TÖFRANDI MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar LUCY Sýnd kl. 6 - 8 - 10 (P) NIKULÁS LITLI Sýnd kl. 2 - 3:55 HERCULES Sýnd kl. 8 - 10:10 THE PURGE Sýnd kl. 10:20 22 JUMP STREET Sýnd kl. 5 - 8 AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 2 - 5 TÖFRALANDIÐ 2D Sýnd kl. 1:50 EIN ÓVÆNTASTA SPENNUMYND ÁRSINS FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA POWERSÝNINGKL. 10 Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.