Morgunblaðið - 09.08.2014, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 09.08.2014, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 221. DAGUR ÁRSINS 2014 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Allt frítt á Dirty Burger & Ribs 2. Hvalurinn er sprunginn 3. „Þá bara brjálaðist hann“ 4. Á heilsugæslu með matareitrun  Tónlistarmennirnir KK og Magnús Eiríksson leika lög úr lagasafni hvors um sig auk sameiginlegra lagasmíða á tónleikum á Café Rosenberg í kvöld kl. 22. Morgunblaðið/Sverrir KK og Magnús Ei- ríksson á Rosenberg  Drengirnir í BORG ætla að standa fyrir veg- legri upphitun fyr- ir Gay Pride-partí kvöldsins með því að þeyta skífum á Vitatorgi í miðbæ Reykjavíkur á milli klukkan 17 og 20. BORG samanstendur af þeim Jóni Reginbald Ívarssyni, Ómari Agli Ragnarssyni og Áskeli Harðarsyni. Hitað upp fyrir Gay Pride á Vitatorgi  Vel yfir hundrað manns frá yfir þrjátíu löndum sóttu um að komast að í hæfileikasmiðju Alþjóðlegu kvik- myndahátíðarinnar RIFF í ár. Um- sóknir bárust meðal annars frá Mið-Austurlöndum og Asíu, en rúm- lega fjörutíu erlendir kvikmynda- gerðarmenn komast í smiðjuna. Enn er rými fyrir íslenska kvikmynda- gerðarmenn sem hafa áhuga á að sækja hæfileikasmiðjuna. Umsjónarmaður smiðjunnar er kvik- myndagerðar– maðurinn Börkur Gunnarsson. Metþátttaka í hæfi- leikasmiðju RIFF FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR Á sunnudag Norðan 8-13 m/s og rigning á A-verðu landinu, súld með N-ströndinni en annars úrkomulítið. Hiti 7 til 15 stig að deginum, hlýjast SV-lands. Á mánudag Norðlæg átt, 5-10. Dálítil súld eða rigning norðantil en skýjað með köflum sunnanlands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast sunnanlands. Jón Margeir Sverrisson, sundmaður úr Fjölni, varð í gær Evrópumeistari í 200 metra skriðsundi í S14, fötlunar- flokki þroskahamlaðra á Evrópumóti fatlaðra í sundi. Mótið fer fram í Eindhoven í Hollandi. Jón Margeir bætti um leið Evrópumetið, sem raunar var í hans eigu fyrir. Metið bætti Jón Margeir um 70/100 úr sek- úndu. »1 Jón Margeir Evrópu- meistari á Evrópumeti ÍR er í forystu að loknum fyrri keppnisdegi á Bikar- mótinu í frjálsíþróttum sem hófst á Laugardalsvelli í gær. ÍR er einnig í 1. sæti í keppni kvennaliða en FH í keppni karlaliða. Sveinbjörg Zophaníasdóttir átti góðan dag í gær og vann allar þrjár einstaklingsgreinarnar sem hún keppti í. Keppni heldur áfram í dag. »2 ÍR í forystu eftir fyrri keppnisdag Stjarnan og íslenskir knattspyrnu- áhugamenn duttu í lukkupottinn í gær þegar Garðabæjarliðið dróst gegn Inter Mílanó í 4. umferð Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu. Í liði Inter eru nokkrir leikmenn sem spiluðu á HM í Brasilíu í sumar, meðal annars úr- slitaleik HM. »1, 4 Nokkrir af HM í Brasilíu mæta Stjörnunni Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Magni Kristjánsson, eigandi Hótel Capitano í Neskaupstað, gerði ný- verið upp gömlu Olísstöðina í Nes- kaupstað og opnaði þar átta her- bergja gistiheimili. Gistiheimilið ber nafnið „Gistiheimili Sigga Nobb“, en Magna hefur lengi lang- að til að reka gistiheimili meðfram hótelinu. „Ég er búinn að eiga hót- elið í 14 ár svo ég er vanur þessum rekstri. Það eina sem hamlaði því að ég gæti opnað gistiheimilið var að snjóflóðavarnirnar voru ekki komnar. Nú eru þær komnar það langt að ég mátti fara í þetta verk- efni,“ segir Magni. Gistiheimilið var opnað fyrir fjór- um vikum en aðdragandinn að opnuninni var að sögn Magna bæði langur og strangur. „Það fylgdi þessu töluverð vinna. Þar sem gistiheimilið stendur var upp- haflega bensínstöð en ég lét rífa það húsnæði og byggði nýtt. Það eina sem stóð eftir var grunnurinn og ég notaði lítið annað en það í nýja húsnæðið. Þetta er því allt nýtt og lítur mjög vel út,“ segir Magni. Voru áður bensínstöðvar Svo skemmtilega vill til að staðsetning Hótel Capitano á það sameiginlegt með gisti- heimilinu að þar stóð áður bensínstöð, en áður en Magni opnaði hótelið fyrir fjórtán árum sá hann um rekstur Esso í Neskaup- stað. „Fyrir rúmum tutt- ugu árum byrjaði ég að sjá um bensínsöluna fyrir gamla Esso. Þeir hættu svo rekstri þegar olíufélögin sameinuðust en þá keypti ég húsnæðið og breytti því í hót- el. Það er því svona ákveðinn bensín–stöðvafílíngur í þessu öllu saman en ég lofa þó því að það er engin bensínlykt af mér,“ segir Magni í gamansömum tón. Magni velti því lengi fyrir sér hvaða nafn gistiheimilið skyldi hljóta, en hann segist hafa valið sér nafnið „Siggi Nobb“ vegna þess hversu þjált það er í munni bæði innfæddra Íslendinga sem og út- lendinga. „Málið er að Hotel Capit- ano hefur lukkast mjög vel enda eiga allir auðvelt með að bera nafn- ið fram og muna. Ég ætlaði fyrst að nefna gistiheimilið erlendu nafni en allt í einu mundi ég eftir Sigga Nobb. Hann var þjóðsagnapersóna hér á Norðfirði og hann þekkja all- ir. Þetta var því alveg kjörið nafn fyrir staðinn, þar sem allir geta borið það nafn fram,“ segir Magni. Rekur gistiheimili og hótel  Gistiheimilið Siggi Nobb var opnað nýverið Ljósmynd/Magni Kristjánsson. Norðfjörður Magni opnaði nýverið gistiheimilið Sigga Nobb í Neskaupstað, en hann rekur einnig hótel í bænum. Nafnið á gistiheimilinu er rakið til Sigurðar Norðfjörð, „þjóðsagnapersónu“ í bænum. Sigurður Norðfjörð, betur þekktur sem Siggi Nobb, var þjóðsagnapersóna í lifanda lífi á Norðfirði eftir miðja síðustu öld. Sigurður var ættaður frá Kolableikseyri við Mjóafjörð og vann þar í hvalstöðvum Norðmanna. Þegar vinnslu hvals við Mjóa- fjörð var hætt fór hann með Norðmönnunum í suðurhöf og stundaði hvalveiðar með þeim þar á vinnsluskipinu Cosmos. Sigurður átti það til að ýkja þegar hann sagði sögur og sagði m.a. frá því að Cosmos hefði verið það stórt að þrír fótbolta- vellir hefðu komist fyrir á því og að hægt hefði verið að spila þar fótbolta í 10 vindstigum. Sigurður giftist aldrei og átti ekki afkomendur. FÓR MEÐ NORÐMÖNNUM Á HVALVEIÐAR Í SUÐURHÖFUM Þjóðsagnapersóna í lifanda lífi SPÁ KL. 12.00 Í DAG Úrkomulítið N-lands, skýjað með köflum SV-lands en gengur í norðaustan 8-13 með rigningu SA-lands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast SV-lands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.