Morgunblaðið - 28.08.2014, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 2 8. Á G Ú S T 2 0 1 4
Stofnað 1913 200. tölublað 102. árgangur
ÍSLENDINGAR
Á VÍKINGAHÁTÍÐ
Í SLAGELSE
EINFALDLEIKI
FJARSKIPTA-
FYRIRTÆKJA
SKIPULAGÐI
LEYNILEGA FERÐ
FYRIR FRÚNA
VIÐSKIPTAMOGGINN BANDARÍSK HJÓN 10FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ 48
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Vanskil á smálánum eiga þátt í því
að fækkun einstaklinga á van-
skilaskrá er ekki meiri en raun ber
vitni, að sögn Hákons Stefáns-
sonar, framkvæmdastjóra Credit-
info. 27.813 einstaklingar eru á
vanskilaskrá í dag en voru 28.321 á
sama tíma í fyrra. Uppboðsmálum
hefur einnig fækkað; það sem af er
þessu ári hafa farið fram 1.032
framhaldsuppboð en voru 1.907 á
sama tíma í fyrra.
Pétur H. Blöndal alþingismaður
hefur oft vakið athygli á starfsemi
smálánafyrirtækja og bent á þann
mikla kostnað sem fylgir þeim
fyrir lántakandann, en dæmi eru
um að fólk greiði 2.500 krónur í
kostnað fyrir 10 þúsund króna lán.
„Neytendavernd á fjármálamark-
aði er of veik og ekki nægilega
skýr,“ segir Pétur og bendir á að
ekki sé alltaf ljóst hvort mál falli
undir Neytendastofu eða Fjár-
málaeftirlitið.
Frosti Sigurjónsson, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar og
þingmaður Framsóknarflokksins,
telur að setja þurfi lög á starfsemi
þessara fyrirtækja.
Neytendavernd
veik og óskýr
MUppboðsmálum fækkar »16
Minni
vanskil
og færri
uppboð
Morgunblaðið/ÞÖK
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Í dag hefst níu vikna ferðalag ljós-
myndara og blaðamanna Morgun-
blaðsins um landið, þar sem komið
verður við í öllum landshlutum og
fjallað um daglegt líf fólks, áhuga-
verða staði, náttúrufar, listalíf og
menningu. Sérstök áhersla verður
lögð á atvinnulíf og vaxtarbrodda í
atvinnulífinu undir yfirskriftinni
Vitinn 2014.
Í þessari umfjöllun er landinu
skipt í níu svæði og verður fjallað
um hvert þeirra í eina viku, frá
fimmtudegi til miðvikudags.
Fyrsti viðkomustaður er Vestur-
land, sem er til umfjöllunar í dag,
eftir viku verður sjónum beint að
Snæfellsnesi og Dölum og síðan
liggur leiðin á Vestfirði. Þá er röð-
in komin að Norðurlandi, síðan
verður haldið áfram á Austurland,
þá Suðurland og síðan Suðurnes.
Eftir það verður höfuðborgar-
svæðið til umfjöllunar og ferðinni
lýkur í Reykjavík.
Níu vikna ferðalag hefst í dag
Sérstök áhersla lögð á vaxtarbrodda Fjallað um fólk, menningu og náttúru
2014
Á FERÐ UM
ÍSLAND
M Morgunblaðið býður »50
Íslenska landsliðið í körfuknattleik karla skrif-
aði nýjan kafla í íslenska íþróttasögu í gærkvöldi
þegar það tryggði sér þátttökurétt í lokakeppni
Evrópumóts í fyrsta sinn. Það gerðist þrátt fyrir
átta stiga tap, 78:70, fyrir Bosníu í lokaleik riðla-
keppninnar í Laugardalshöll að viðstöddum á
þriðja þúsund áhorfendum.
Íslenska landsliðið hafnaði í öðru sæti undan-
riðilsins, þremur stigum á eftir Bosníu. Loka-
keppni Evrópumeistaramótsins fer fram í
september á næsta ári. Ekki liggur fyrir hvaða
land verður gestgjafi mótsins. » íþróttir
Morgunblaðið/Golli
Íslenska landsliðið fer í úrslitakeppni EM í fyrsta sinn
Nýr kafli
í íslenskri
íþróttasögu
Samhliða ferðum blaðamanna
og ljósmyndara Morgunblaðs-
ins um landið í haust mun
blaðið beina sjónum að vaxtar-
broddum í atvinnulífinu á ein-
stökum stöðum. Áherslan er á
fyrirtæki, lítil og stór, sem eru
að gera áhugaverða hluti, hafa
skapað ný atvinnutækifæri og
tekjur í heimabyggð sinni og
eru orðin eða geta orðið þýð-
ingarmikil fyrir staðinn eða
stærra svæði. Umfjöllunin
verður undir yfirskriftinni Vit-
inn 2014.
Vitinn 2014
VAXTARBRODDAR
Í ATVINNULÍFI
Vilhjálmur A. Kjartansson
Gunnar Dofri Ólafsson
Tveir sigkatlar hafa myndast sunnað við Bárð-
arbunguöskjuna, sem ekki er hægt að úskýra á
annan veg en að kvika hafi brætt jökulinn, sam-
kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. TF-
SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, flaug yfir
Vatnajökul í gær og sáust þá sigkatlar á fjögurra
til sex kílómetra langri sprungu í Vatnajökli suð-
austur af Bárðarbungu.
Víðir Reynisson, hjá Almannavarnardeild rík-
islögreglustjóra, segir að samkvæmt upplýsing-
um úr vél gæslunnar hafi myndast þrír sigkatlar
á umræddri sprungu. „Þar undir er þá vænt-
anlega hiti en það þarf töluverðan hita til að
bræða svona mikið. Á móti kemur að við erum
ekki að sjá neina eldgosaóróa á jarðskjálftamæl-
um og það veldur okkur hugarangri.“
Enn fremur segir Víðir óljóst á þessari stundu
hvar vatnið sé sem hefur bráðnað. „Þetta er á
vatnaskilum Grímsvatna og Jökulsár á Fjöllum
og það er mögulegt að þetta vatn sem bráðnar
hafi lekið í Grímsvötn en það þarf að kalla eftir
upplýsingum úr Grímsvötnum og erum við að
bíða eftir því.“ Í tilkynningu frá Almannavarn-
ardeild ríkislögreglustjóra sem send var út á ell-
efta tímanum í gærkvöldi segir að ekki sé búið að
staðfesta að gos sé hafið í norðanverðum Vatna-
jökli.
Sigdældir benda til goss
Jarðvísindamenn meta hvort breytingar við Bárðarbunguöskju sýni byrjun goss
Ljósmynd/Tobias Dürig
Eftirlitsflug Mynd frá í gær sýnir sprungur sem
ná um það bil fjóra km norður fyrir Dyngjujökul. MEldgos »2 og 26