Morgunblaðið - 28.08.2014, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Fjarðarkaup
Gildir 28.-30. ágúst verð nú áður mælie. verð
Svínakótelettur úr kjötborði .............................. 1.298 1.698 1.298 kr. kg
Lambalundir úr kjötborði.................................. 4.298 5.098 4.298 kr. kg
Kindafille úr kjötborði ...................................... 2.898 3.498 2.898 kr. kg
Nautahakk, 1. flokkur, ísl. ................................ 1.298 1.698 1.298 kr. kg
Kjarnafæði lambalæri, hangið, frosið ................ 1.198 1.498 1.198 kr. kg
Danskur lífrænn kjúklingur, 1,2 kg .................... 1.998 2.579 1.998 kr. stk.
Fjallalambs frosið súpukjöt .............................. 698 858 698 kr. kg
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Helgartilboðin
Malín Brand
malin@mbl.is
Greint var frá ferðalagi og æv-intýrum Vigfúsar Blæs Inga-sonar í Morgunblaðinu fyrr í
sumar en hann fór til Suður-Afríku í
febrúar sl. til að sinna hjálparstarfi.
Hann vann á leikskóla í þrjá mánuði í
litlu þorpi í Höfðaborg. Skömmu eftir
að hann kom heim varð stórbruni í
þorpinu og leikskólinn brann til
grunna. „Þrír sjálfboðaliðar voru inni
með 40 börn þegar eldurinn blossaði
upp og með einhverjum hætti tókst
þeim að koma öllum börnunum út,“
sagði Vigfús Blær í viðtalinu í sumar.
Hann hóf strax söfnun fyrir litlu vini
sína í Höfðaborg en rúmar tvær millj-
ónir kostar að reisa nýjan stein-
steyptan leikskóla með salern-
isaðstöðu og loftræstingu.
Leikskólinn sem varð að brunarúst-
um var agnarsmár kofi, allt of lítill
fyrir þau 60 börn sem þar dvelja.
Velvilji almennings
Á meðal þess sem Vignir Blær
gerði til að safna peningum var að
ganga ásamt vinum sínum í hús á Sel-
fossi, þaðan sem hann er. „Fólk tók
mjög vel í þetta og nánast allir sem ég
þekki hjálpuðu til,“ segir hann en í
gær voru fjármunirnir millifærðir á
reikning hjálparsamtakanna You2Af-
rica í Suður-Afríku en alls söfnuðust
tæpar 900.000 krónur. „Þau eru sjálf
búin að vera dugleg að safna pen-
ingum úti og fleiri sjálfboðaliðar sem
voru úti á sama tíma og ég hafa verið
að safna. Þegar allt er lagt saman
ætti það að vera nóg fyrir nýju húsi
og þá er hægt að hefjast handa,“ seg-
ir Vigfús Blær sem myndi gjarnan
vilja sjá brunarústirnar víkja fyrir
nýjum leikskóla og hjálpa til við að
reisa þann nýja með eigin höndum.
Um leið og færi gefst ætlar hann út til
Suður-Afríku og hitta alla krakkana í
Masincedisane.
Það er ljóst að fátítt er að pen-
ingar séu millifærðir hér til Suður-
Afríku því það tók heillangan tíma og
var umstangið töluvert. Ef fólk vill
leggja fjármuni til söfnunarinnar er
það ekki of seint og er Vigfús Blær
orðinn sjóaður í millifærslunum.
Brunarústirnar víkja
Leikskóli verður byggður
í bænum Masincedisane
í Höfðaborg í stað þess
sem þar brann. Íslenskur
piltur hóf söfnun fyrir
nýrri leikskólabyggingu.
Morgunblaðið\Malín Brand
Ánægður Vigfús Blær var sáttur og sæll eftir að hafa lagt fjármunina inn á
bankareikninginn í Suður-Afríku. Innan skamms rís þar nýr leikskóli.
Tengd Börnin eiga stað í hjartanu.
Nánari upplýsingar er að finna á
vefsíðunni lampataska.wix.com/
masirescue
Vetrarstarfið í Menningarmiðstöðinni í
Gerðubergi í Breiðholti er fjölbreytt og
í dag fer af stað viðburður sem kallast
fimmtudagsfræðsla, stutt hagnýt
námskeið og fræðandi fyrirlestrar.
Tvisvar í mánuði á fimmtudögum kl. 17
verður boðið upp á fyrirlestra um ýmis
málefni er tengjast velferð og menn-
ingu. Í dag kl. 17 verður fyrsti fyrirlest-
urinn, en þá mun Kolbrún Björnsdóttir
ráðgjafi kynna hugræna atferlis-
meðferð (HAM) og segja frá því hvern-
ig námskeiðin hafa aukið lífsgæði
fólks og árangur í lífi og starfi. Hug-
ræn atferlismeðferð er sálfræði-
meðferð sem byggist á árangursríkum
aðferðum sem auðvelda fólki að tak-
ast á við erfiðar tilfinningar og hegð-
un.
Einnig verður opnuð í dag sýning í
Gerðubergi þar sem Kristinn Alexand-
ersson sýnir bæjarlífsmyndir sem eru
minningar uppvaxtaráranna, íslenskt
landslag og átthagamyndir. Leik-
vangur Kristins á bernskuárum var að-
allega Austurvöllur og Dómkirkjan þar
sem afi hans var kirkjuvörður. Ungur
náði Kristinn tökum á málaralistinni
og hann þótti afbragðsgóður trommu-
leikari, spilaði m.a. með hljómsveit
Þorsteins Guðmundssonar, betur
þekkt sem „Steini spil“.
Fyrirlestur og málverkasýning í Gerðubergi
Hugræn atferlismeðferð góð
leið til að auka lífsgæði fólks
Bessastaðir Ein mynda Kristins.
Í Urtagarðinum í Nesi á Seltjarnar-
nesi er safn urta sem ýmist hafa
gegnt hlutverki í lækningum eða ver-
ið nýttar til næringar og heilsubótar
á tímabilinu 1760-1834. Bjarni Páls-
son landlæknir og Björn Jónsson lyf-
sali sátu í Nesi þar sem garðurinn er
staðsettur á safnasvæði Seltirninga
við Nesstofu, en þeir tengdu saman
ræktun og heilsubót í lífi og starfi. Í
dag klukkan 17-19 verður haldið mál-
þing í sal Lyfjafræðisafnsins við Nes-
tröð á Seltjarnarnesi undir yfir-
skriftinni: Epli, ber og annað
góðgæti, ræktunartilraunir í Nesi á
átjándu öld. Á málþinginu verður
skoðað hvað var ræktað í Nesi á tím-
um Bjarna og Björns. Lilja Sigrún
Jónsdóttir læknir fer yfir gamla sögu
og nýja um Urtagarðinn, Kristín Ein-
arsdóttir lyfjafræðingur segir sögu
apótekara í Nesi og Jóhanna Þ. Guð-
mundsdóttir sagnfræðingur segir frá
eplatré og fleiri nytjajurtum í garði
Björns. Öllum opið málþing og í boði
er hressing og leiðsögn um Lyfja-
fræðisafn, Nesstofu og Urtagarðinn.
Epli, ber og annað góðgæti á málþingi um Urtagarðinn
Hvað var ræktað við Seltjörn?
Nesstofa Þar er fagur urtagarður.
Gamli Kóngsvegurinn geymir mikla
sögu og hann er gaman að ganga. Í
dag kl. 18.15 verður lagt upp í menn-
ingargöngu um hluta gamla Kóngs-
vegarins frá bænum Miðhúsum í
Biskupstungum og gengið að Efsta-
dal í Laugardalnum. Leiðsögumenn
verða innansveitarkonurnar Björg í
Efstadal og Þrúða á Miðhúsum.
Gengið verður frá Miðhúsum upp á
Kóngsveginn gamla, sem liggur þar
ofan við tún. Síðan verður gengið
sem leið liggur eftir Kóngsveginum,
gegnum Miðhúsa- og Brekkuland að
Brúarfossi. Gengið yfir göngubrúna
og þaðan áfram eftir Kóngsveginum í
Efstadal, þar sem hægt er að kaupa
sér hressingu og heimagerðan ís hjá
Björgu, í nýja veitingastaðnum við
fjósið.
Leiðin er um 6-7 kílómetrar og
áætlaður göngutími um tveir tímar.
Göngufólk er beðið um að vera vel
skóað og klætt eftir veðri.
Endilega …
Brúarfoss Gönguleiðin er fögur.
… farið í menningargöngu
um gamla Kóngsveginn í dag