Morgunblaðið - 28.08.2014, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Skóladagar - 25% afsláttur
af öllum vörum frá
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
sími 571 5464
Stærðir 38-52
Anna Marsibil Clausen
annamarsy@mbl.is
„Ég hef lengi haft áhuga á þessum
meiðslum, ég hef sjálf slitið báðum
megin og eftir að ég lenti í því finnst
mér þetta orðið svo algengt svo mig
langaði að skoða hvað ylli þessu,“
segir Eva Hafdís Ásgrímsdóttir sem
skrifaði um krossbandaslit knatt-
spyrnukvenna í lokaverkefni sínu í
íþróttafræði við Háskólann í
Reykjavík.
Eva lagði spurningalista fyrir 55
leikmenn á aldrinum 18 til 34 ára
sem eiga það sameiginlegt að hafa
slitið krossband og hafa spilað í
fyrstu deild kvenna og í Pepsi-
deildinni. Í ljós kom að 54% knatt-
spyrnukvennanna höfðu slitið kross-
band við æfingar eða keppni á gervi-
grasi.
Líkamsbygging spilar inn í
„Það kom mér á óvart að helsta
orsökin var snúningur á föstum fæti
en slíkt getur til að mynda orsakast
vegna skóbúnaðar, á gervigrasi hafa
langir blaðtakkar t.a.m. meiri til-
hneigingu til að festast en hring-
takkar.“
Ungar konur eru 16% líklegri til
að slíta krossband en karlar og Eva
segir ýmislegt spila þar inn í.
„Líkamsbygging kvenna er öðru-
vísi, þær eru með breiðari mjaðmir
og hnéð er þar með innar miðað við
mjaðmirnar og undir meira álagi.
Þá er minna pláss fyrir bein í
hnjám kvenna í kringum kross-
bandið, og svo er mikið talað um að
tíðahringurinn gæti haft áhrif en
teygjanleiki liðbanda verður meiri
þegar konur eru á blæðingum,“ seg-
ir Eva.
Hún tekur fram að niðurstöður á
rannsóknum á tengslum tíðahrings-
ins við krossbandsslit séu oft misvís-
andi en að flestar rannsóknir sýni að
á fyrstu dögum tíðarhrings séu kon-
ur viðkvæmari fyrir meiðslunum en
ella.
Lendingartækni mikilvæg
Eva segir konur vera viðkvæm-
astar fyrir meiðslunum í kringum
kynþroskaskeiðið og hún telur því
mikilvægt að byrja snemma að
vinna með fyrirbyggjandi æfingar
svo sem styrktar- og stöðugleika æf-
ingar sem og lendingartækni æfing-
ar.
„Í flestum rannsóknum er talað
um að mikilvægasti þátturinn sé að
kenna rétta lendingu. Með því að
gera slíkar æfingar er hægt að
styrkja vöðvana í kringum hnén til
þess að virkja sig með sem mestum
krafti en aukin virkni verður til þess
að liðböndin taka á sig minna álag
við lendingu,“ segir Eva.
Í rannsókn hennar kom í ljós að
meiri áhersla væri lögð á stöð-
ugleika- og styrktaræfingar hér á
landi og að lendingartækniæfingar
væru látnar sitja á hakanum.
„Það kom í ljós að helmingur
knattspyrnufélaganna lagði mikla
áherslu á fyrirbyggjandi æfingar og
að hinn helmingurinn lagði litla
áherslu á þær. Það eru fjögur lið í
Pepsi-deild kvenna sem eiga sam-
tals 24 konur sem hafa slitið kross-
band, en nánast öll lið á Íslandi eiga
allavega einn leikmann sem hefur
lent í þessu,“ segir Eva.
Eva segist jafnframt hafa heim-
ildir fyrir því að á meðan á rannsókn
hennar stóð hafi fleiri knatt-
spyrnukonur en þær sem rann-
sóknin tók til slitið krossbönd og
greinilegt sé að þetta sé viðvarandi
vandamál í knattspyrnuheiminum.
„Ég myndi vilja sjá íþróttafélögin
vinna í fleiri fyrirbyggjandi æfing-
um, ekki bara hjá knattspyrnukon-
um heldur íþróttafólki almennt.“
Konur líklegri
til að slíta
krossband
54% krossbandsslita knattspyrnu-
kvenna hafa gerst á gervigrasi
Morgunblaðið/Eggert
Meiðsli 24 leikmenn fjögurra liða í
efstu deild hafa slitið krossbönd.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
„Þetta fyrirkomulag er þekkt er-
lendis, meðal annars í Bandríkj-
unum, Bretlandi og Þýskalandi, en
er nýjung hér á landi að því ég
best veit,“ segir Ingólfur Garðars-
son, framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins Seldur.is, en fyrirtækið kaupir
bæði nýjar og notaðar bifreiðar og
greiðir fyrir þær með reiðufé.
Fyrirtækið hóf rekstur í upphafi
ársins. Viðskiptavinir þess eru
meðal annars fólk sem vill losna
við gömlu bifreiðina til að kaupa
nýja eða vegna flutnings úr landi.
Eða vilji einfaldlega ekki standa í
löngu söluferli. Miðað sé við að
greiða hærra verð en umboðin
bjóði fyrir að taka bifreiðina upp í
nýja. Fyrirtækið selji þær síðan
áfram í gegnum bílasölur.
„Ég staðgreiði bílinn og seljandi
heldur þá á peningum þegar hann
fer að kaupa sér nýjan bíl í stað
þess að vera með gamla bílinn í
eftirdragi sem oft er verðlagður
frekar lágt. Með peningum gerir
þú alltaf betri kaup hjá umboð-
unum en með gamla bílinn með
þér. Þú færð afslátt af nýja bílnum
hjá umboðunum,“ segir hann.
Ferlið fari þannig fram að
mögulegur seljandi sendi helstu
upplýsingar um bifreiðina til Seld-
ur.is, skráningarnúmer og hversu
mikinn hann sé ekinn. Kauptilboð
sé sent til baka. Því næst fari bif-
reiðin í ástandsskoðun hjá óháðum
aðila sem fyrirtækið greiði. Komi
ekkert óeðlilegt út úr því sé hægt
að ganga frá viðskiptunum. Komi
hins vegar eitthvað í ljós í skoð-
uninni sem hafi áhrif á upphaflegt
kauptilboð geri fyrirtækið nýtt til-
boð.
„Það má því segja að ég taki við
verkefninu af fólki að selja bílinn.
Ef ég kaupi bílinn þá losnar fólk
strax við atriði eins og afföll af
bílnum, tryggingar, opinber gjöld
og annan kostnað. Jafnframt
sem það greiðir ekki sölu-
laun. Einnig má benda á
það að gríðarlega algengt
er í bílaviðskiptum í dag
að þú fáir bíl upp í bílinn
sem þú ert að selja. Þann
bíl þarftu einnig að selja
þannig að þetta getur tek-
ið langan tíma fyrir fólk
að losna við bílinn
með tilheyrandi
kostnaði,“ seg-
ir Ingólfur.
Morgunblaðið/Ómar
Bifreiðasala Fyrirtækið Seldu.is kaupir nýjar og notaðar bifreiðar fyrir reiðufé og selur þær síðan áfram.
Tekur við verkefninu
að selja bifreiðina
Kaupir nýjar og notaðar bifreiðar og greiðir með reiðufé
„Ég er búinn að kaupa mikið
magn af bílum af ein-
staklingum, fyrirtækjum og
opinberum aðilum. Ég sel
þessa bíla síðan aftur í gegn-
um nokkrar bílasölur, ýmist
uppgerða eða í upprunalega
ástandi. Allt eftir því hvernig
ástandsskoðun bílsins kemur
út,“ segir Ingólfur Garð-
arsson. Hann segir aðspurður
að Seldur.is hafi fengið góð
viðbrögð frá því að það hóf
störf fyrr á árinu. Fyr-
irtækið leggi áherslu á að
söluferlið sé sem þægileg-
ast og einfaldast fyrir selj-
endur bifreiða og gangi
hratt fyrir sig. Greinilegt
sé að spurn sé á meðal
neytenda eftir þeirri þjón-
ustu sem það bjóði upp
á.
Keypt mikið
af bifreiðum
FYRIRTÆKIÐ SELDUR.IS
Ingólfur
Garðarsson
Knútur Björnsson lýta-
læknir lést á Land-
spítalanum í Fossvogi
26. ágúst síðastliðinn.
Knútur fæddist 1.
maí 1930 á Skálum á
Langanesi, sonur
hjónanna Sigurveigar
G. Sveinsdóttur og
Björns Sæmundssonar.
Knútur stundaði sér-
fræðinám í lýtalækn-
ingum í Malmö í Sví-
þjóð og var hann
fyrstur Íslendinga til
að fá full sérfræðirétt-
indi í lýtalækningum.
Hann starfaði sem lýtalæknir til árs-
ins 2003, lengst af hjá Landspítala –
Háskólasjúkrahúsi, en einnig rak
hann læknastofu í Domus Medica.
Hann var einn af stofn-
endum Félags ís-
lenskra lýtalækna og
var gerður að heiðurs-
félaga árið 2011.
Knútur var liðtækur
kylfingur, var þrefald-
ur Íslandsmeistari
eldri kylfinga og lands-
liðsmaður um árabil.
Knútur var tví-
kvæntur. Hann kvænt-
ist Önnu Þóru Þorláks-
dóttur 1953. Þau skildu
1986. Saman eignuðust
þau fimm börn, þau
Sigurveigu, Sæmund,
Kára, Steinunni og Björn. Fyrir átti
Knútur dótturina Sólveigu. Knútur
kvæntist Kristjönu Ellertsdóttur og
bjó með henni til æviloka.
Andlát
Knútur Björnsson
lýtalæknir
Mikið sér á furu
og fjallaþin á
Suðurlandi eftir
óvenju vondan
seinni part vetr-
ar 2013 til 2014.
Eru trén bæði
sviðin og ljót auk
þess sem talsvert
er um að tré hafi
drepist. Segir frá þessu á vef skóg-
arbænda.
Böðvar Guðmundsson, áætl-
unarfulltrúi hjá Suðurlands-
skógum, fór um skóga Þjórsárdals
og skoðaði skemmdir á þin snemma
í júlímánuði síðastliðnum. Ritaði
hann skýrslu þar sem fram kemur
að vind- og þurrkskaðar séu miklir
og áberandi á trjám sem standi á
vindasömum stöðum. Skaðinn sé
hins vegar minni á þeim stöðum
sem teljist skjólgóðir. Að áliti Böðv-
ars koma einungis tvö kvæmi vel út,
FÞ Þjórsárdalur 3220 og FÞ Kaup-
anger, sem eru á skýldum svæðum.
Fura og fjallaþinur á
Suðurlandi illa leikin