Morgunblaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 20
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
„Fræðandi og mikilvæg bók
fyrir alla sem vilja ná árangri
og njóta vinnunnar.“
MAGNÚS GEIR ÞÓRÐARSON, ÚTVARPSS
TJÓRI
„... kjarkur til sköpunar er besta vegane
sti
sem hægt er að hugsa sér í leik og starf
i.“
HALLA HELGADÓTTIR, HÖNNUNARMIÐS
TÖÐ ÍSLANDS
ÚT FYRIR
KASSANN!
TOM K
ELLEY
Á ÍSLA
NDI!
FYRIR
LESTU
R Í DA
G, 28.
ÁGÚST
,
Í HÁSK
ÓLABÍ
Ó, SAL
1,
KL. 12
.00—13
.00.
AÐGA
NGUR
ER ÓK
EYPIS
.
Sigurður Ægisson
Siglufirði
Salthúsið er nýjasta skrautfjöðrin í
hatti Síldarminjasafns Íslands.
Grunnur þess var steyptur fyrr í
þessum mánuði og í vikunni unnu
menn við að steypa gólfplötuna.
Húsið var upphaflega byggt á Pat-
reksfirði seint á 19. öld og flutt til
Akureyrar 1946. Talið er að það hafi
einnig staðið á Siglufirði á fyrri
hluta 20. aldar.
Það var mælt upp og teiknað af
Argos ehf. fyrir Þjóðminjasafnið ár-
ið 1998 og því næst tekið niður og
flutt að Naustum árið 1999 þar sem
viðir þess voru geymdir allt þar til í
sumar að þeir voru fluttir til Siglu-
fjarðar; gólf- og lofteiningarnar 13.
júní og veggeiningar og bitastæða
17. júní.
Var farið sjóleiðina
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra tók fyrstu skóflu-
stunguna 27. maí síðastliðinn og í
kjölfarið var grafið fyrir sökklum.
Húsið er 25,74 x 11,98 m að utanmáli
og 308 m2 að grunnfleti, ein hæð með
portbyggðu risi, og verður á milli
Róaldsbrakka og Gránu.
Tilgangurinn með nýju safnhúsi
er fyrst og fremst sá að bæta úr
ófremdarástandi í geymslumálum
Síldarminjasafnsins, en lengi hefur
sá þáttur safnstarfsins verið mjög til
vansa og munir/gripir geymdir á sex
stöðum og að sumu leyti við heldur
bágbornar aðstæður. Þarna er ráð-
gert að geymsla safnsins verði og
aðstaða til skráningar og annarrar
slíkrar vinnu. Þá er stefnt að því að
allt að helmingur hússins verði not-
aður fyrir sýningu, safnverslun og
gestamóttöku, t.d. með fyrirlestra-
sal.
Gólfplata steypt undir
Salthúsið á Siglufirði
Víðförult hús verður hluti af Síldarminjasafni Íslands
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Steypuvinna Unnið að því að steypa gólfplötu Salthússins í vikunni.
Teknar voru skóflustungur að nýrri
kísilverksmiðju United Silicon við
Helguvík á Reykjanesi í gær við há-
tíðlega athöfn. Ragnheiður Elín
Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, flutti stutt erindi af því tilefni
ásamt Magnúsi Garðarssyni, fram-
kvæmdastjóra United Silocon, og
Doron Sanders, stjórnarformanni
félagsins. Ragnheiður sagði að um
gríðarlega mikilvægan skref væri að
ræða sem íbúar á Reykjanesi hefðu
beðið lengi eftir. Hét hún stuðningi
stjórnvalda við verkefnið.
Fjölmenni var viðstatt athöfnina
og þar á meðal Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Athöfnin fór fram á lóð félagsins
að Stakksbraut 9 þar sem verkmiðj-
an mun rísa. Jarðvegsframkvæmdir
vegna hennar eru þegar hafnar en
verksmiðjuhúsið verður 41 metri á
hæð og um 5 þúsund fermetrar að
stærð.
Gert er ráð fyrir að verksmiðjan
taki til starfa árið 2016 og framleiðsl-
an nemi 21.300 tonnum á ári. Allt að
300 störf skapist við framkvæmdina
og 60 störf eftir að verksmiðjan hef-
ur starfsemi. Stefnt er að því að reisa
alls fjóra ofna í verksmiðjunni fáist
næg orka sem þýddi að hún yrði
stærsta kísilverksmiðja í heiminum.
Magnús segir að þegar sé búið að
tryggja raforku fyrir einn ofn. Það
er 35 megavött. Fjórir ofnar þurfi
140 megavött. Þegar hafi verið sótt
um starfsleyfi fyrir þrjá ofna til við-
bótar en verksmiðjan sé hönnuð með
fjóra ofna í huga. Miðað við fjóra
ofna yrði framleiðslugetan 85 þús-
und tonn á ári.
Heildarfjárfestingin, miðað við
fjóra ofna í rekstri, er um 35 millj-
arðar króna að sögn Magnúsar.
Fjármögnun verkefnisins er sam-
vinna danskra og hollenskra fjár-
festa frá Fondel Group, en lánsfjár-
mögnun verkefnisins og ráðgjöf er í
höndum Arion banka.
hjortur@mbl.is
Tóku skóflustungur að
nýrri kísilverksmiðju
Morgunblaðið/Þórður
Kísilverksmiðja Skóflurnar mundaðar vegna nýrrar kísilverksmiðju United Silicon við Helguvík á Reykjanesi.
Framkvæmdin hafi í för með sér allt að 300 störf