Morgunblaðið - 28.08.2014, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Aldrei hefur mælst meira af makríl í
íslenskri lögsögu en í nýafstöðnum
leiðangri vísindamanna, en makríll
hefur á síðustu árum haldið í aukn-
um mæli á norð-
lægar slóðir í æt-
isgöngum
sumarsins. Alls
mældust tæplega
1.600 þúsund
tonn af makríl í
lögsögunni en
bæði árin 2012 og
2013 var magnið
metið um 1.500
þúsund tonn.
Athygli vekur
að í grænlenskri lögsögu mældust
1.164 þúsund tonn af makríl í sumar
og náðist ekki að meta alla útbreiðsl-
una á grænlensku hafsvæði. Afla-
ráðgjöf fyrir makrílveiðar á næsta
ári verður kynnt í október og byggir
hún á fyrirliggjandi gögnum, m.a.
niðurstöðum fyrrnefnds leiðangurs
fjögurra þjóða.
Hefur gengið norðar og vestar
Sveinn Sveinbjörnsson, fiskifræð-
ingur og leiðangursstjóri af Íslands
hálfu í mælingum á útbreiðslu og
magni makríls á norðurslóðum, seg-
ir að makríllinn hafi í ár gengið
norðar og vestar en síðustu ár. Í
sjálfu sér komi ekki á óvart að mikið
finnist af makríl í grænlenskri lög-
sögu. Í fyrra hafi verið farið inn í
grænlenska lögsögu og makríll hafi
mælst á könnunarsvæðinu.
„Þá komumst við hvorki vestur né
suður úr göngunum, þannig að við
áttum von á stærra útbreiðslusvæði
en í fyrra,“ segir Sveinn. „Könnun-
arsvæðið var því stækkað í ár og í
ljós kom að göngurnar voru komnar
sunnar en við höfðum aðstöðu til að
kanna á þeim tólf dögum sem ætl-
aðir voru í verkefnið. Vafalaust
verður reynt að komast betur yfir
útbreiðslusvæðið við Grænland á
næsta ári,“ segir Sveinn og bendir á
að þau 1.164 þúsund tonn sem mælst
hafi við Grænland gangi sennilega
að mestu í gegnum íslenska lögsögu
í ætisleit sinni, fyrst í átt til Græn-
lands og einnig á leiðinni til baka
síðsumars.
Sveinn segir að heildarmagn mak-
ríls á könnunarsvæðinu hafi aukist
lítillega frá síðasta ári. Könnunar-
svæðið sé hins vegar ekki alveg
sambærilegt, þar sem skipin hafi
farið norðar og vestar í ár. Í fyrra
hafi svæðið innan evrópskrar lög-
sögu suður af Færeyjum verið kann-
að en því hafi ekki verið sinnt á
sama hátt í ár. Greinilegt sé að
stærð makrílstofnsins haldist mjög
mikil.
Þarf að óbreyttu á þessu
útbreiðslusvæði að halda
Spurður hvort hrygning makríls
við Ísland sé vaxandi segir hann að
það sé ekki fullkannað. „Í togararalli
og öðrum rannsóknaleiðangrum hef-
ur fundist mjög ungur fiskur,“ segir
Sveinn. „Í hrognatalningarleiðangri
í fyrra fundust dagsgömul egg í ís-
lenskri lögsögu þannig að það er
klárt að hrygning á sér stað við Ís-
land. Við vitum hins vegar ekki hve
mikið umfangið er. Umhverfisbreyt-
ingar og breytingar sem þeim fylgja
þróast smám saman. Ef þessi þróun
heldur áfram eða breytingarnar
ganga ekki til baka á ég von á að
hrygning við Ísland eigi eftir að
aukast.
-Er makríllinn kominn til að vera í
íslenskri lögsögu?
„Því ráða nokkur atriði. Ef stofn-
inn verður ekki veiddur niður og ný-
liðun verður áfram góð þannig að
stofninn helst stór þarf hann á þessu
mikla útbreiðslusvæði að halda til að
fæða sig. Ef umhverfisbreytingar
sem hafa orðið, einkum hvað varðar
hitastig sjávar, ganga ekki til baka
verða áfram aðstæður fyrir makríl í
lögsögunni. Ef þessi skilyrði verða
áfram fyrir hendi er ég viss um að
makríll verður áfram í íslenskri lög-
sögu,“ segir Sveinn Sveinbjörnsson.
Yfirborðshiti sjávar á rannsókn-
arsvæðinu í Norðaustur-Atlantshafi
í júlímánuði var vel yfir 20 ára
meðaltali júlímánaðar og var hann
allt að þremur gráðum yfir meðaltal-
inu norð- og norðaustur af Íslandi.
Aldrei meira mælst af makríl
Morgunblaðið/Alfons
Makríll Vertíðin hefur yfirleitt gengið vel. Í fyrradag var landburður hjá minni bátum sem róa frá Snæfellsnesi.
Um 1.600 þús. tonn í lögsögunni, en um 1.500 þúsund tvö síðustu ár Mikið af makríl við Grænland
Aflaráðgjöf verður kynnt í október Byggir m.a. á niðurstöðum togleiðangurs fjögurra þjóða
Útbreiðsla makríls
Tafla sem sýnir flatarmál rannsóknarsvæðis og mat á magni makríls
eftir lögsögum úr sameiginlega leiðangrinum í júlí-ágúst 2014
Lögsögur eða svæði Flatarmál svæðis Lífmassi Lífmassi
(í þús. km2) (í þús. tonnum) (%)
Evrópusambandið 78 226 2,5
Noregur 640 2.267 25,2
Ísland 478 1.593 17,7
Færeyjar 268 549 6,1
Jan Mayen 222 732 8,2
Alþjóðasvæði, norðanvert 275 1.759 19,6
Alþjóðasvæði, vestanvert 52 83 0,9
Grænland 335 1.164 13,0
Spitzbergen 105 611 6,8
Samtals 2.453 8.984 100,0
Sveinn
Sveinbjörnsson
Markmið sameiginlegs makríl-
leiðangurs Færeyinga, Íslendinga,
Norðmanna og Grænlendinga í
júlí og ágúst var einkum að kort-
leggja útbreiðslu og magn mak-
ríls og annarra uppsjávar-
fiskistofna í
Norðaustur-Atlantshafi meðan á
ætisgöngum þeirra um norðurhöf
stendur. Magn og útbreiðsla mak-
ríls á svæðinu var metin út frá
afla í stöðluðum togum sem tekin
voru með reglulegu millibili og
var rannsóknasvæðið um 2,45
milljónir ferkílómetrar og var
verkefninu sinnt á fjórum skip-
um. Rannsóknaskipið Árni Frið-
riksson tók nú þátt í þessum leið-
angri í sjötta sinn.
Lífmassi makríls á svæðinu var
metin um 9,0 milljón tonn, þar af
voru 1,6 milljónir tonna innan ís-
lenskrar efnahagslögsögu eða
tæp 18%. Vísitala heildarlífmassa
er lítið eitt hærri en á síðasta ári
og sú hæsta sem mælst hefur frá
því að rannsóknir hófust árið
2007. Í íslenskri lögsögu er hlut-
fallið svipað og var á síðasta ári.
Í frétt um niðurstöðurnar á
heimasíðu Hafrannsóknastofn-
unar segir m.a.: „Í leiðangrinum
varð vart við töluvert af til-
tölulega smáum makríl og aldurs-
greiningar sýna hátt hlutfall ár-
ganganna frá 2011 (32% af
fjölda) og 2010 (21%), en árgang-
arnir frá 2007, 2008 og 2009
voru einnig áberandi með um
11% hver. Yngri fiskinn var eink-
um að finna í Noregshafi eða á
austanverðu rannsóknarsvæðinu.
Niðurstöður leiðangursins
staðfesta líkt og leiðangrar fyrri
ára, víðáttumikla útbreiðslu
makrílsins … Þá sýna niðurstöð-
urnar að elsti makríllinn ferðast
lengst í sínum ætisgöngum í
Norðaustur-Atlantshafi á sumr-
in, en hann var einkum að finna
vestast og nyrst á rannsókna-
svæðinu. Niðurstöður leiðang-
ursins eru notaðar ásamt öðrum
gögnum, við mat Alþjóða-
hafrannsóknaráðsins (ICES) á
stofnstærð og veiðiþoli makríls.
Sá elsti ferð-
ast lengst
KORTLÖGÐU ÚTBREIÐSLU
OG MAGN MAKRÍLS
Arctic selolía
Nýtt útlit – meiri virkni
Einstök olía
Meiri virkni
fall Omega 3
fitusýrur
nir mælir með
lolíu, en þinn?
Gott fyrir:
Maga- og þarmastarfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Selolían fæst í:
Þín verslun Seljabraut,
úsum, Fjarðarkaupum,
ni, Hafrúnu og MelabúðSími 555 2992 og 698 7999
Nýtt!
D-vítamínbætt
t hlut
n læk
Se
pótekum,
heilsuh
Fiskbúðinni Trönuhrau
Hát
Min
a
„Við erum ósköp glöð yfir þessum
fréttum og hlökkum til að hefjast
handa við flutning,“ segir Bragi
Guðbrandsson, forstjóri Barna-
verndarstofu, en tillaga umhverfis-
og skipulagssviðs varðandi breyt-
ingu á deiliskipulagi vegna lóðar þar
sem starfsemi nýs Barnahúss mun
fara fram var samþykkt í gær.
„Vonandi mun þetta fela í sér að
við getum hraðað þessari fram-
kvæmd. Vonandi gengur það eftir
strax á næstu mánuðum að fram-
kvæmdir geti hafist. Ég vona að það
sé ekkert sem getur komið í veg fyr-
ir það,“ segir Bragi, en flutningur á
starfsemi Barnahúss í stærra og
betra húsnæði hefur dregist mikið.
Tafirnar má rekja til andstöðu ná-
granna, sem að því er virðist kærir
sig ekki um að starfsemin fari fram í
götunni.
Í breytingunni
á deiliskipulaginu
felst breyting á
notkun lóðarinn-
ar úr einbýlis-
húsalóð í lóð und-
ir starfsemi
Barnahúss.
Þurftu að
skera niður
Tillagan var grenndarkynnt frá 7.
júlí til og með 5. ágúst 2014 og í kjöl-
farið sendu tveir aðilar athugasemd-
ir. Málið var samþykkt á fundi um-
hverfis- og skipulagssviðs í gær með
vísan til umsagnar skipulagsfull-
trúa.
Nýja húsið, Gilsárstekkur 8, var
keypt í nóvember á síðasta ári og
átti starfsemi Barnahúss að færast
þangað strax í árs byrjun. Ráðnir
voru tveir nýir sérfræðingar sam-
hliða flutningunum en vegna þeirra
tafa sem orðið hafa hefur þurft að
skera niður í öðrum hliðum starf-
seminnar í staðinn. „Þessir nýju sér-
fræðingar voru ráðnir af því að gert
var ráð fyrir því að húsið yrði komið
í notkun. Svo dróst það og þá þurft-
um við í staðinn að loka aðstöðunni
til læknisskoðunar,“ segir Bragi.
„Við ákváðum að loka læknis-
aðstöðunni tímabundið til að geta
nýtt aðstöðuna fyrir þessa nýju sér-
fræðinga. Við urðum að gera þetta
svona þó að það sé auðvitað ekki
gott að hafa lokað læknisaðstöðunni.
Henni verður komið upp um leið og
nýja húsið verður tekið í notkun.“
if@mbl.is
Barnahús mun flytja þrátt
fyrir mótmæli nágranna
Neyddust til að loka aðstöðu til læknisskoðunar
Bragi
Guðbrandsson