Morgunblaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 47
FRÉTTIR 47Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
mjög dugleg að koma og hjálpa til,
einnig fyrirtæki og stofnanir í bænum
sem lánuðu bæði tæki og handafl.
Unnið var tvo laugardaga og eina
kvöldstund og komu að verkefninu
alls um tvö hundruð manns. Auk þess
að byggjast á lýðræði hefur verkefnið
gengið út á sjálfbærni sem bæði lýsir
sér í samvinnunni og að nýta efnivið
úr náttúrunni og það sem til hefur
fallið hér í leikskólanum,“ sagði Inga
María Ingvarsdóttir að lokum.
Tenglar:
thesagegardens.com
tjarnarsel.is
Margar hendur vinna létt verk Um 200 manns komu að gerð útisvæðisins í sjálfboðavinnu.
Hellur eins og kubbar Stórt hellulagt svæði var rifið upp við breytingarnar á útisvæðinu og þær
eru nú nýttar í leik á sama hátt og kubbar. Hér hefur myndarlegur stigi verið hlaðinn til að auka að-
gengi að vísindahorninu, nú eða nýta sem sæti eins og hér er gert.
Náttúruleg leiksvæði
» Verkefnið Áskoranir og æv-
intýri er samfélagslegt verkefni
sem styrkir og eykur samvinnu
og tengsl þeirra sem koma að
leikskólanum. Einnig hefur gef-
ist ómetanlegt tækifæri til að
skoða hvaða áhrif samvinna
nærsamfélagsins hefur á leik-
skólastarfið.
» Verkefnið hefur beina tilvísun
í aðalnámskrá leikskóla. Því er
ætlað að skapa lýðræðislegan
vettvang og lærdómssamfélag
þar sem starfsfólk, foreldrar og
börn eru virkir þátttakendur og
hafa áhrif á ákvarðanir og mál-
efni (aðalnámskrá leikskóla,
2011).
» Georg Hollanders og Sarka
Mrnakova hjá SAGE gardens sf.
hafa sérhæft sig í umhverfis-
vænni hönnun, m.a í endur-
bótum á útisvæðum leik- og
grunnskóla í samvinnu við börn,
foreldra og kennara. Georg lést
sl. vor eftir stutt veikindi.
» Markmið náttúrulegra leik-
svæða er:
– að auka leikgleði og ímynd-
urnarafl
– að hvetja til aukinnar hreyf-
ingar
– að nýta náttúrulegan efnivið
til leikja í stað staðlaðra leik-
tækja
– að ýta undir líkamlegan og
andlegan þroska
Þegar Síldarvinnslan festi kaup á
Berki NK í febrúar var tekin sú
ákvörðun að ekki yrði reykt um borð í
skipinu. Sökum þessa þurftu nokkrir
í áhöfninni að taka sig á og hætta
reykingum. Notkun nef- og munntób-
aks tíðkast ekki hjá skipverjum og er
Börkur því tóbakslaus með öllu. Á vef
Síldarvinnslunnar er haft eftir Hjörv-
ari Hjálmarssyni, skipstjóra Barkar,
að sérstakt reykherbergi sé í skipinu
en það hafi ekki verið notað eftir að
Síldarvinnslan eignaðist það. „Menn
losna við reykingalyktina og stað-
reyndin er sú að allri tóbaksnotkun
fylgir mikill sóðaskapur. Ég hef eng-
an heyrt kvarta um borð yfir hvarfi
tóbaksins, þvert á móti held ég að all-
ir séu ánægðir með að vera lausir við
þennan ófögnuð.“
Börkur er
tóbakslaus