Morgunblaðið - 28.08.2014, Page 52
Skólinn hefst með rauðri rós
„Þessar góðu móttökur sem krakkarnir fá við upphaf skólagöngu eru hluti af
hefðum hér,“ segir Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir sem stýrir starfi uppsveita-
skólanna í Borgarfirði sem eru á Hvanneyri, Varmalandi og Kleppjárnsreykjum.
Á öllum stöðvunum tíðkast að eldri nemendur taki á móti þeim sem eru að
byrja skólagöngu sína í 1. bekk með því að afhenda þeim eina rós og bjóða þá
velkomna í skólann fyrir hönd nemenda og starfsfólks. Það eru nemendur úr 5.
bekk sem þetta gera á Kleppjárnsreykjum en 4. bekkingar á Hvanneyri. „Þess-
ar góðu móttökur mælast vel fyrir. Til skólasetningar mæta foreldrar, ömmur,
afar og fleiri og finnst gaman,“ segir Ingibjörg Inga. sbs@mbl.is
Ljósmynd/Gréta Ingvarsdóttir
Rós Jón Hannes Isaac Björnsson í Deildartungu eftir fyrsta skóladaginn.
VITINN 2014
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Sjóstangaveiði fyrir ferðafólk er ný
atvinnugrein á Akranesi. Hún hófst á
einum bát í sumar og er rekin undir
nafninu Akranes Adventures. Það er
38 ára gamall Skagamaður, Magnús
Freyr Ólafsson, sem stendur einn á
bak við framtakið. Magnús, sem er
líffræðingur og fiskifræðingur að
mennt og rekur farfuglaheimilið á
Akranesi, er bjartsýnn á að starfsem-
in eigi eftir að vinda upp á sig. Mjór
er mikils vísir segir máltækið.
Blómstrar á Vestfjörðum
„Þetta hefur gengið ágætlega,“
segir Magnús. „En við fórum of seint
af stað, keyptum bátinn í janúar og
auglýstum þjónustuna eftir það. Við
hefðum þurft að gera það í fyrra-
haust, enda bókar fólk sig yfirleitt í
svona ferðir með talsverðum fyr-
irvara. En við erum bjartsýn á fram-
Sér vaxtarmöguleika
í frístundaveiðinni
Nýtt fyrirtæki á Akranesi býður upp á sjóstangaveiði
Sjóstangaveiði Viðureign við einn vænan í fullum gangi. Mávarnir fylgjast spenntir rmeð.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
„Hundurinn minn var búinn að
vera í meðferðum hjá dýralækni
í heilt ár vegna húðvandamála
og kláða, þessu fylgdi mikið
hárlos. Hann var búinn að vera
á sterum án árangus. Reynt
var að skipta um fæði sem bar
heldur ekki árangur. Eina sem
hefur dugað er Polarolje fyrir
hunda. Eftir að hann byrjaði að
taka Polarolje fyrir hunda hefur
heilsa hans tekið stakkaskiptum.
Einkennin eru horfin og hann er
laus við kláðann og feldurinn
orðinn fallegur.“
Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi
Sími 698 7999 og 699 7887
Náttúruolía sem
hundar elska
Við Hárlosi
Mýkir liðina
Betri næringarupptaka
Fyrirbyggir exem
Betri og sterkari fætur
NIKITA
hundaolía
Selolía fyrir
hunda
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Veiðin í sumar hefur verið
þokkaleg miðað við allt og hér
hafa verið dregnir á land allt að
20 punda laxar. Smálaxinn hefur
þó vantað. Jón Kristjánsson fiski-
fræðingur hafði reyndar sagt mér
að það væri eftir bókinni. Vorið í
fyrra hefði verið kalt og þetta
yrði afleiðingin. Í ár var hins veg-
ar hlýtt á vormánuðum og því
verður 2015 væntanlega gott ár,“
segir Einar Sigfússon í Norðurá.
Sú breyting varð á að Stang-
veiðifélag Reykjavíkur er ekki
lengur leigutaki Norðurár heldur
Sjálfsagt að sleppa laxinum
Einar Sigfússon á vaktinni við Norðurá Á níunda hundr-
að fiskar í sumar Kalt vor í fyrra vissi á minni veiði í ár
Morgunblaðið/Golli
Kátir Ráðherrarnir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benedikts-
son með Einari við opnun Norðurár snemma í júní á þessu ári.
Borgarnes verður seint þekkt fyrir
útgerð. Engu að síður á bæjarfélagið
sér útgerðarsögu sem hófst fyrir
miðbik 20. aldar. Í bókinni Víst þeir
sóttu sjóinn segir frá því þegar út-
gerðarfélagið í bænum keypti skipið
Eldborg sem gert var út á síldveiðar
og var eitt fengsælasta skip flotans á
fjórða og fimmta tug 20. aldar. Um
tíma gekk útgerðin vel, en þegar kom
fram á sjötta áratuginn var ljóst að
draumurinn um að útgerð og fisk-
vinnsla til framtíðar myndi ekki verða
að veruleika. Síðan þá hafa aðeins
verið gerðir út minni bátar til fisk-
veiða frá Borgarnesi.
Undanfarin ár hafa nokkrir eldri
borgarar í bænum ákveðið að halda
sögu útgerðar í Borgarnesi á lofti.
Hafa verið gerð líkön af skipum og
gefin út bók um sögu útgerðarinnar.
Nú stendur til að opna útgerðarsafn
og menningarhús í húsi sem áður
hýsti útgerðina og heitir Grímshús.
Allt hefur þetta verið gert með hjálp
frjálsra framlaga.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útgerð Hópur eldri borgara hyggst opna safn um útgerðina í Borgarnesi.
Eldri borgarar halda uppi heiðri
útgerðarinnar í Borgarnesi
VESTURLAND2014Á FERÐ UMÍSLAND
haldið næsta sumar og
ætlum að bæta við okk-
ur einum bát.“
Sjóstangaveiði
fyrir ferðafólk hefur
blómstrað á Vest-
fjörðum undanfarin
ár. Um fimmtíu bátar
eru gerðir út frá fimm
stöðum. Þangað sækir
Magnús fyrirmynd starf-
seminnar á Akranesi. Hann
segir að vestfirsku fyrirtækin geti
boðið upp á meiri veiði og yfirleitt
stærri fiska, en á fiskimiðunum út frá
Skaga sé um meiri tegundafjöl-
breytni að ræða og það togi í marga.
Sjóstangveiðin sem Magnús
býður erlendum ferðamönnum upp á
er „pakki“ sem hefur inni að halda
flug til og frá landinu, akstur frá flug-
velli og til baka, gistingu og leigu á
sex manna bát í eina viku. Í sumar
var gistingin á Farfuglaheimilinu, en
stefnt er að því að byggja lítil gisti-
hýsi fyrir ferðamennina.
Þeir sem taka bátinn á leigu
verða að hafa réttindi til
að stýra honum. Segist
Magnús vera í nánu
sambandi við Sigl-
ingamálastofnun sem
fari yfir þau vottorð
sem ferðamennirnir
framvísa. Hægt er að
ná sér í fullnægjandi
réttindi hér á landi á
stuttu námskeiði.
Aflinn sem veiðist er yf-
irleitt seldur á fiskmörkuðum, en
ferðamennirnir hafa þó leyfi til að
matreiða ofan í sjálfa sig. Kjósa sumir
að gera það. Býður Magnús upp á að-
stöðu til flökunar fyrir þá sem vilja.
Þjóðverjar spenntastir
Það eru Þjóðverjar sem eru
spenntastir fyrir sjóstangaveiði við
strendur Íslands. Hafa þýskar ferða-
skrifstofur og ferðafrömuðir yfirleitt
milligöngu um komu þeirra hingað.
Sjóstangaveiði á sér ríka hefð í
Þýskalandi. Engu að síður sækja
Þjóðverjar í þetta sport til annarra
VI
TINN
2014