Morgunblaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 55
FRÉTTIR 55Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
AKUREYRI
Draupnisgötu 5
462 3002
EGILSSTAÐIR
Þverklettum 1
471 2002
REYKJAVÍK
Skeifunni 5
581 3002
REYKJAVÍK
Skútuvogi 12
581 3022
– fyrir kröfuharða ökumenn
www.dekkjahollin.is
Skoðaðu úrvalið á vefnum okkar:
/dekkjahollin
Hjartagátt Landspítala eignaðist á
dögunum nýtt hjartarafstuðstæki.
Tækið er af gerðinni Lifepak 20 frá
Physio Control og er af fullkomn-
ustu gerð. Það leysir af hólmi gam-
alt rafstuðstæki sem bilaði nýlega,
segir í frétt frá LSH.
Hjartarafstuðstækið kemur að
notum við endurlífgun hjartasjúkl-
inga og meðferð á takttruflunum.
Tæki þetta er gjöf frá hjónunum
Birni Ófeigssyni og Mjöll Jóns-
dóttur sem reka vefsíðuna Hjarta-
líf. Þau öfluðu fjár til kaupanna
með því að halda styrktartónleika í
Gamla bíói í sumar þar sem fram
komu fjölmargir tónlistarmenn sem
allir gáfu vinnu sína.
Björg Sigurðardóttir, deildar-
stjóri Hjartagáttar, og Karl And-
ersen, settur yfirlæknir, veittu tæk-
inu viðtöku og færðu þeim Birni og
Mjöll hjartans þakkir fyrir þessa
höfðinglegu gjöf.
Hjartagátt
LSH fékk
nýtt tæki
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Verðbólga mælist nú 2,2% og er hún
undir verðbólgumarkmiði Seðla-
banka Íslands sjöunda mánuðinn í
röð, en það er 2,5%. Í janúar síðast-
liðnum mældist verðbólga 3,1% en
mánuði síðar lækkaði hún niður í
2,1% í kjölfar kjarasamninga. Hefur
hún síðan þá haldist undir 2,5%.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Al-
þýðusambands Íslands, segist hafa
átt von á lækkuninni í kjölfar kjara-
samninga. „Reyndar gerðum við ráð
fyrir því að hún lægi ofarlega á sum-
armánuðum eða í um 2,7 til 2,8%.
Hún er því um hálfu prósenti lægri
en við gerðum ráð fyrir og það er
vissulega ánægjulegt,“ segir hann
og bætir við að ljóst sé að kjara-
samningar þeir sem gerðir voru í
desember á síðasta ári hafi átt sinn
þátt í að skila þessum góða árangri.
Að sögn Gylfa verður þó einnig að
viðurkennast að ýmsir þættir hafi
miður tekist. Nefnir hann í því sam-
hengi mikla misskiptingu milli hópa
þegar kemur að launabreytingum
„Það er mikil gremja meðal
minna félagsmanna sem ekki nutu
sambærilegra launabreytinga og
gerðust víða annars staðar,“ segir
hann.
Hitt atriðið sem ekki tókst að
mati Gylfa eru traustar forsendur
fyrir gengisstöðugleika. „Seðla-
bankinn er að reyna að skapa hann
með því að halda vöxtum mjög
háum en það er bitur reynsla okkar
að slík stefna hefur ekki endað vel,“
segir Gylfi.
Verðbólgan helst niðri
Morgunblaðið/ÞÖK
Reykjavík Verðbólga mælist 2,2% sem er undir markmiðum Seðlabankans.
Skortur er á traustum forsendum fyrir gengisstöðugleika
Skotland: Nýtt
sjálfstætt ríki í
Norður-Evrópu?
er heiti opins
fundar sem fram
fer í Norræna
húsinu föstudag-
inn 29. ágúst kl.
12.00.
Hinn 18. sept-
ember kjósa íbú-
ar Skotlands um það hvort ríkið öðl-
ist sjálfstæði.
Fyrirlesarinn dr. John MacDon-
ald er dósent við háskólann í Glas-
gow og mun hann ræða um sjálf-
stæðishugmyndir Skotlands
varðandi utanríkis- og varnarmál.
Hann er með doktorspróf í evrópsk-
um stjórnmálum frá háskólanum í
Dundee og hefur haldið fjölda fyr-
irlestra um öryggismál, stríð og
bandarísk stjórnmál. Hann er jafn-
framt forstöðumaður Scottish Glo-
bal Forum (www.scottishglobal-
forum.int), rannsóknaseturs um
stöðu Skotlands í alþjóðlegu sam-
hengi.
Fundarstjóri verður Alyson Bail-
es, aðjunkt við stjórnmálafræðideild
Háskóla Íslands.
Að fundinum standa Alþjóðamála-
stofnun Háskóla Íslands, Edinborg-
arfélagið og Norðurlönd í fókus.
Fundurinn er öllum opinn.
Rætt um sjálf-
stæðishug-
myndir Skota
John MacDonald