Morgunblaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 58
58 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Gnoðarvogi 44, 104 Rekjavík | sími: 588 8686 | hafberg@internet.is | hafberg.is
Nýlöguð humarsúpa Laxasteikur á grillið
Stór humar Glæsilegt úval fiskrétta
Heitur matur í hádeginu
VIRKA DAGA 10.00 - 18.15
LAUGARDAGA 11.00 - 16.00
OPIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Algengt er að liðsmenn samtaka ísl-
amista, Ríkis íslams, fremji
grimmdarverk á yfirráðasvæðum
sínum í Sýrlandi til að vekja ótta
meðal íbúanna, að sögn rannsóknar-
nefndar á vegum Mannréttindaráðs
Sameinuðu þjóðanna. Samtökin eru
ennfremur sökuð um að nota börn í
hernaði gegn stjórnarher Sýrlands.
Herinn er einnig sakaður um
grimmdarverk, meðal annars efna-
vopnaárásir á óbreyttra borgara.
Fjögurra manna nefnd, sem
mannréttindaráðið skipaði fyrir
þremur árum, birti í gær 45 síðna
skýrslu um rannsókn sína á atburð-
um í stríðinu í Sýrlandi frá 20. jan-
úar til 15. júlí.
Nefndin sakar íslamistasamtökin
Ríki íslams (áður nefnd ISIS) um
fjölmörg grimmdarverk og ofsóknir
á hendur öðrum trúarhópum. Sam-
tökin hafa lagt undir sig stór svæði í
austanverðu Sýrlandi og norður-
hluta Íraks og lýst yfir stofnun
kalífadæmis.
Stjórnarherinn sagður
hafa beitt efnavopnum
„Algengt er að aftökur fari fram á
almannafæri á föstudögum,“ segir
nefndin um rannsókn sína á
grimmdarverkum á yfirráðasvæðum
íslamistanna í Sýrlandi. Nefndin
hefur meðal annars fengið upplýs-
ingar um að íbúar, allt niður í fimm-
tán ára aldur, hafi verið hálshöggnir,
aflimaðir eða húðstrýktir. Dæmi eru
einnig um að kristið fólk hafi verið
krossfest. Íbúarnir, þeirra á meðal
börn, eru neyddir til að fylgjast með
grimmdarverkunum.
„Lík þeirra sem eru teknir af lífi
eru höfð til sýnis í nokkra daga til að
vekja skelfingu meðal íbúanna,“ seg-
ir einnig í skýrslunni. „Konur hafa
verið hýddar fyrir að brjóta reglur
samtakanna um klæðaburð.“
Íslamistarnir eru einnig sagðir
hafa neytt börn, allt niður í tíu ára
aldur, til að berjast gegn stjórnar-
hernum í Sýrlandi.
Rannsóknarnefndin sakar aðrar
uppreisnarhreyfingar og stjórnar-
herinn um alvarlega stríðsglæpi.
Hún telur að stjórnarherinn hafi
beitt efnavopnum, líklega klórgasi, í
átta árásum í vesturhluta Sýrlands
það sem af er árinu.
Skýrsluhöfundarnir segja að
stjórnarherinn haldi áfram að gera
flugskeyta- og sprengjuárásir á bæi
og íbúðarbyggðir. Í hverri viku bíði
hundruð manna bana í árásunum.
Gagnrýnir aðgerðaleysi
Rannsóknarnefndin gagnrýnir
þjóðir heims fyrir að gera ekkert til
að binda enda á blóðsúthellingarnar
í Sýrlandi. „Við höfum safnað gögn-
um í þrjú ár um þá sem fremja
mannréttindabrotin og stríðsglæpir
eru framdir á hverjum degi en samt
aðhefst alþjóðasamfélagið ekkert,“
sagði Carla del Ponte, sem er í rann-
sóknarnefndinni og var áður aðal-
saksóknari tveggja stríðsglæpadóm-
stóla Sameinuðu þjóðanna.
„Alþjóðasamfélagið, meðal annars
Sameinuðu þjóðirnar, er lamað
vegna þess að ríki heims sýna engan
vilja til að binda enda á átökin,“
sagði formaður nefndarinnar, Paulo
Pinheiro.
Nefndarmennirnir segja að eina
leiðin til að binda enda á blóðsúthell-
ingarnar sé að fá öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna til að vísa málum
meintra stríðsglæpamanna til Al-
þjóðasakamáladómstólsins. Del
Ponte lagði til að fjórmenningunum í
rannsóknarnefnd Mannréttinda-
ráðsins yrði falið að annast saksókn-
ina.
Rannsóknarnefndinni hefur ekki
verið leyft að starfa í Sýrlandi og
niðurstöður hennar byggjast á við-
tölum við sjónarvotta, ljósmyndum
og öðrum gögnum.
Talið er að nær 200.000 manns
hafi beðið bana í stríðinu sem hófst í
mars 2011 þegar stjórnarandstæð-
ingar gerðu uppreisn gegn einræðis-
stjórn Sýrlands.
Mosul-stíflan
Samtök íslamista, Ríki íslams, hafa lýst yfir stofnun kalífadæmis
Yfirráðasvæði íslamista í Írak og Sýrlandi
5%
95%
25% 40%
Abou Bakr
al-Baghdadi
er leiðtogi samtakanna
Saga samtakanna
100 km
BAGDAD
DAMASKUS
Rutba
Sinjar
Arbil
Rawa
ÍRAN
TYRKLAND
SÝR LAND
Í RAK
Fallujah
Najaf
Basra
Nasiriyah
Amarah
Karbala
Kirkuk
Makhmur
Hawija
Jalawla
Baquba
Mosul
Samarra
Sharqat
Stjórnarhers
Íraks
Stjórnarhers
Sýrlands
Annarra uppreisnar-
hreyfinga
Hersveita
Kúrda
Samtaka
íslamistanna
Svæði
á valdi:
Sjálfstjórnar-
svæði
Kúrda
Haditha
Aleppo
Idleb
Latakía
Hama
Ar Rai
Raqa
Tabka
Homs
Dama
Deir Ezzor
2006
Stofnuð í Írak að áeggjan
al-Qaeda
Hasla sér völl í Sýrlandi
Al-Qaeda hættir að
styðja samtökin. Átök
milli samtakanna og
fylkingar íslamista
sem al-Qaeda styður
Samtökin hefja stórsókn,
ná Mosul á sitt vald.
Lýsa yfir stofnun
kalífadæmis á yfir-
ráðasvæðum sínum
Hrekja tugi þúsunda
manna á flótta
Júlí 2011
Febrúar 2014
Júní 2014
Ágúst 2014
Fjöldi liðsmanna
(áætlaður)
Stærð
yfirráða-
svæða í %
Fjármögnun
Persa-
flóaríki
Fjárkúganir,
smygl á olíu,
lausnargjöld,
bankar í Mosul
Sýrland Írak
8.000
til 10.000
þ. á m. 3.200-4.000
frá öðrum löndum
50.000
þ. á m. 20.000
frá öðrum löndum
(Persaflóaríkjum, Tétsníu,
Vestur-Evrópu)
Suleiman
Beg
Bukamal
Saka íslamista
um grimmdar-
verk í Sýrlandi
Börn neydd til að horfa á aftökur,
krossfestingar og húðstrýkingar
Sókn til að bjarga bæ
» Íraskar hersveitir bjuggu sig
í gær undir sókn til að binda
enda á umsátur liðsmanna
samtakanna Ríkis íslams um
bæinn Amerli í norðaustan-
verðu Írak. Um 12.000 íbúar
bæjarins eru að verða uppi-
skroppa með matvæli.
» Hermt er að Barack Obama
sé að íhuga að skipa Banda-
ríkjaher að gera loftárásir og
varpa niður matvælum á svæð-
inu. Hann sé einnig að reyna
að mynda fjölþjóðlegt banda-
lag til að undirbúa hugsan-
legan hernað í Sýrlandi.
Verslanir voru opnaðar og sjómenn
hófu veiðar að nýju á Gaza-svæðinu í
gær eftir að ótímabundið vopnahlé
tók gildi eftir 50 daga blóðsúthell-
ingar. Margir Gaza-búar virtust vera
vongóðir um að friður héldist eftir
árásir sem kostuðu meira en 2.140
manns lífið á Gaza og 70 í Ísrael.
„Við höfum sigrað,“ hefur frétta-
veitan AFP eftir einum íbúanna,
karlmanni á fertugsaldri. „Við höf-
um fengið nóg af stríði, enginn ætti
að þurfa að þola það sem við höfum
mátt ganga í gegnum vegna stríðs-
ins. Vopnahléið verður að haldast.“
Vopnahléssamkomulagið felur
meðal annars í sér að Ísraelar lofa að
draga úr takmörkunum á vöruflutn-
ingum og ferðum fólks til og frá
Gaza. Palestínumenn sögðu að með
samkomulaginu hefði átta ára herkví
í raun verið aflétt. Viðræðum um
önnur mál, svo sem kröfu Hamas-
samtakanna um höfn og flugvöll á
Gaza, var frestað og þær eiga að fara
fram í Kaíró innan mánaðar.
AFP
Friðnum fegin Palestínsk fjölskylda á heimleið með eigur sínar á hesta-
kerru nálægt Gaza-borg í gær, eftir að vopnahlé tók gildi á Gaza-svæðinu.
Vongóðir um frið á
Gaza og fagna sigri